Morgunblaðið - 16.07.2009, Page 27

Morgunblaðið - 16.07.2009, Page 27
Velvakandi 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HVAÐ VILTU SÍÐAN AÐ ÉG GERI? ÉG VIL AÐ ÞÚ HORFIR Á HITT LIÐIÐ SPILA... GANGI ÞÉR VEL! TAKK FYRIR, KALLI SÍÐAN GETUR ÞÚ SKRIFAÐ VEIKLEIKA ÞEIRRA NIÐUR Á ÞESSA TYGGJÓPLÖTU. EF ÞEIR SJÁ ÞIG ÞÁ GETUR ÞÚ BORÐAÐ SÖNNUNARGÖGNIN AF HVERJU HELD ÉG AÐ ÞETTA ENDI ILLA? ÞAÐ ÆTTI AÐ VERA BANNAÐ AÐ HAFA SKÓLA ÞEGAR ÞAÐ ER NÓGU MIKILL SNJÓR TIL AÐ LEIKA SÉR! ÞAÐ ÆTTI AUÐVITAÐ HELDUR EKKI AÐ VERA SKÓLI Á HAUSTIN... OG ÉG ER NÚ ÞEGAR Í FRÍI Á SUMRIN... ÞÁ ER BARA VORIÐ EFTIR... ÞAÐ ÆTTI AÐ VERA Í LAGI AÐ HAFA EINN SKÓLADAG Í NÓVEMBER OG EINN DAG Í MARS ÞÚ VERÐUR KOMINN MEÐ FALSKAR TENNUR ÁÐUR EN ÞÚ KLÁRAR ANNAN BEKK FRÁBÆRT! ÞÁ GET ÉG SEST Í HELGAN STEIN EFTIR ÞRIÐJA BEKK! AF HVERJU SPYRÐU? MÉR FINNST EINS OG BÁTURINN SÉ AÐ HREYFAST FINNUR MAÐUR FYRIR JARÐSKJÁLFTUM ÚTI Á HAFI? RÚNAR, ÞÚ ÆTLAR AÐ HJÁLPA MÉR AÐ VERÐA „PAPARAZZI“ MÍN EIGIN TALSTÖÐ! ÞAÐ EINA SEM ÞÚ ÞARFT AÐ GERA ER AÐ LÁTA MIG VITA ÞEGAR ÞÚ SÉRÐ STJÖRNU ROSIE O’DONNELL ER Í SÓLBAÐI! ÉG ENDURTEK... ROSIE O’DONNELL ER Í SÓLBAÐI! SKAL GERT! HVERNIG SLEKKUR MAÐUR EIGINLEGA Á ÞESSU?!? ÉG VIL EKKI SKILJA KRAKKANA EINA EFTIR HEIMA... EN ÞAU ERU ENGIN SMÁBÖRN LENGUR ER Í LAGI AÐ ÞIÐ SÉUÐ HÉRNA EIN Á MEÐAN ÉG SKÝST ÚT Í BÚÐ? SVO LENGI SEM RAFMAGNIÐ FER EKKI AF ÞÁ VERÐUR Í LAGI MEÐ ÞAU HVAÐA VÖRUBÍLL ER ÞETTA? HANN ER AÐ OPNAST! TÍMI TIL AÐ NOTA SEGULINN ÞAÐ TOGAR OKKUR EITTHVAÐ INN Í VÖRUBÍLINN! Grundarfjörður | Það var glæsileg sjón að sjá þegar hið risastóra farþega- skip Queen Victoria kom til hafnar í Grundarfirði. Farþegar skipsins voru flestir Bretar og Ameríkanar og sáust þeir á sprangi um götur Grundar- fjarðar í góðviðrinu. Um 2000 farþegar voru um borð og kaus stór hluti þeirra að fara í land og skoða sig um. Líflegt er í verslunum og á mörk- uðum handverksfólks þegar skemmtiferðaskipin koma í Grundarfjörð, en 14 slík skip heimsækja bæinn í sumar. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Queen Victoria í Grundarfirði Frændþjóð í vanda HUGMYNDIN er sú að Norðmenn greiði upp allar skuldir Ís- lendinga innan eins árs og í staðinn fái Norð- menn einir óheftan að- gang að olíuvinnslu á svonefndu Drekasvæði þar sem miklar líkur eru á að olíu sé að finna. Þannig gætu Norðmenn náð til baka á skömmum tíma þeim peningum sem fóru í að borga skuldir Ís- lendinga og drjúgt bet- ur. Þar með gætu þeir nýtt bæði tæki og búnað sem þegar er til staðar í Noregi og töluvert af honum stendur ónotaður vegna minnkandi olíu- og gasvinnslu. Þar er einnig að finna alla þá sérþekk- ingu sem þarf til slíkra starfa. Skuldir Íslendinga eru smáaurar fyrir Norðmenn sem liggja á gríð- arlega digrum sjóðum. Báðar þjóð- irnar myndu hagnast á slíku sam- komulagi og frændbönd þjóðanna styrkjast. Þarna yrði um hrein og klár viðskipti að ræða, allt sem til þarf er viljinn til að ýta málinu úr vör. Skuldastaða Íslands er mjög erfið og biðla ég til ráðamanna Íslands og Noregs að þeir kanni þessi mál til hlítar að því gefnu að olía muni finnast á Drekasvæðinu. Benda má á að tvö norsk fyrirtæki hafa þegar fengið leyfi til leitar á Drekasvæð- inu og vænta má upplýsinga með haustinu um hvort olíu og gas sé þar að finna, sem miklar líkur eru taldar á. Ef þetta mál gengi eftir yrði það vinargreiði sem Ís- lendingar myndu aldr- ei gleyma og Norð- menn yrðu sannarlega meiri af. Sigurjón Gunnarsson. Fangelsi á Reyðarfirði SJÓNVARPIÐ greindi frá því í frétt- um að vinnubúðir Bechtel á Reyðarfirði væru til sölu. Í ljósi þess, að nú þurfa dæmdir menn að bíða lengi eftir því að „fá inni“, datt mér í hug hvort ekki væri hægt að nýta þetta húsnæði fyrir fanga. Það er engin úrlausn í sjónmáli í þessum efnum og líkindi til þess að biðlistinn lengist fremur en styttist. Dómsmálaráðherra, það er ekki sæmandi réttarríkinu Íslandi að menn þurfi að bíða mánuðum eða árum saman eftir því að taka út refsingu. Sigfús Gunnarsson. Lyklakippa tapaðist LYKLAKIPPA tapaðist í síðustu viku í hverfi 101 í Reyjavík. Á kipp- unni eru nokkrir húslyklar auk leð- urpjötlu merktri bókstafnum L. Á henni er einnig skjöldur merktur Gucci. Finnandi vinsamlegast hafið sam- band í síma 690-9993.                 Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Félagsstarf fellur niður vegna sumarlokunar. Hádegismatur af- greiddur kl. 12-13. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handavinna kl. 9-16.30, boccia 9.30, helgistund kl. 10.30. Púttvöllur opinn. Leikfimi fellur nið- ur í júlí. Bólstaðarhlíð 43 | Opin handa- vinnustofa, fótaaðgerð, böðun, hár- greiðsla, kaffi/dagblöð, hádegisverður. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Hádeg- ismatur kl. 11.40, handavinnustofan opin, hægt er að fá veitingar. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Gönguhópur kl. 11, handavinnuhorn kl. 13, vöfflukaffi kl. 14-16. Hraunbær 105 | Félagsmiðstöðin er opin kl. 9-14, matur kl. 12. Hvassaleiti 56-58 | Böðun fyrir hádegi. Boccia kl. 10. Hádgismatur kl. 11.30. Fé- lagsvist kl. 13.30, góðir vinningar, kaffi og meðlæti í hléi. Fótaaðgerðir, hársnyrting. Hæðargarður 31 | Opið í allt sumar. Morgunspjall kl. 9, Stefánsganga kl. 9.10, gáfumannakaffi kl. 15, „hot spot“ og tölv- ur, 18 holu púttvöllur, ljóðabók skapandi skrifa til sölu, hugmyndabankinn opinn, málverkasýning Erlu og Stefáns og fé- lagsvist alla mánudaga kl. 13.30. Uppl. 411-2790. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Boccia kl. 10.30. Handverks- og bókastofa opin kl. 13. Boccia kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Hárgreiðslustofa s. 862-7097. Fótaaðgerðastofa s. 552-7522. Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15-15.30, matur kl. 11.45, leikfimi með Janick kl. 13 (júní-ágúst), kaffi kl. 14.30. Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl. 9-16. Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgunstund, opin handavinnustofa, spilað. Hár- greiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is @

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.