Morgunblaðið - 25.07.2009, Page 2
2 FréttirFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009
Tempur – 15 ár á Íslandi
Frábær afmælistilboð í júlí
Te
m
pu
r 15 ár á Ísland
i
Te
m
pur 15 ár á
Ísl
an
d
i
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
Í UPPGJÖRSSAMNINGI á milli
breskra og íslenskra stjórnvalda er
fjallað um greiðslur til breska inn-
stæðutryggingasjóðsins vegna kostn-
aðar sem hann hefur orðið fyrir. Sagt
hefur verið að þar sé tveggja millj-
arða króna lögfræðikostnaði Breta í
Icesave-málinu velt yfir á Íslendinga.
„Hið rétta er að íslensk stjórnvöld
féllust sl. haust á það að þeim bæri að
greiða innstæðueigendum í Bretlandi
og Hollandi hluta af innstæðum
þeirra […]. Hluti af skuldbindingum
innstæðutryggingasjóða samkvæmt
reglugerðinni er að sjá um útborg-
anir og samskipti við innstæðu-
eigendur,“ sagði í yfirlýsingu fjár-
málaráðherra vegna málsins í gær.
Í samningnum, sem Morgunblaðið
hefur undir höndum, segir í grein 3.1
í þýðingu blaðamanns: „Breski inn-
stæðutryggingasjóðurinn má leggja
fram (fyrir hönd þess íslenska) eina
beiðni um útgreiðslu að andvirði tíu
milljón pund, með hliðsjón af þeim
kostnaði sem stofnað hefur verið til,
eða stofnað verður til, af breska inn-
stæðutryggingasjóðnum, við meðferð
og útgreiðslu á bótum til innstæðu-
eigenda hjá breskum útibúum og um-
sjón með tengdum málum, þar á með-
al, án takmarkana, endurheimtum og
hvers konar deilum sem geta hlotist
af þeim.“
Þarna er vísað til kostnaðar við að
halda utan um Icesave eftir banka-
hrun, en ekki vegna gerðar Icesave-
samninga. Þó er tekið fram að engar
takmarkanir séu á því í hvað megi
nota peninginn.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, segir að sér
finnist ákvæðið niðurlægjandi. Það
undirstriki að viðsemjendur Íslands
fái allt og eftirgjöfin sé algjör.
„Ég er leiður á því að heyra fjár-
málaráðherra vísa til þess að fyrri
stjórnvöld hafi verið búin að skuld-
binda ríkið. Því ef eitthvað hefur
komið í ljós í þessari vinnu á Alþingi,
þá er það einmitt að ekki hafði tekist
skuldbindandi samkomulag um eitt
eða neitt í haust,“ segir Bjarni.
Niðurlægjandi ákvæði
Milljarðarnir tveir vegna Icesave-umsýslu en án nokkurra takmarkana á notkun
Niðurlægjandi ákvæði sem undirstrikar uppgjöfina, segir Bjarni Benediktsson
VARÐSKIPIN Ægir og Týr eru bæði bundin
við bryggju í Reykjavíkurhöfn þessa dagana.
Nú er í gangi fyrirfram ákveðið sumarstopp og
gert er ráð fyrir að skipin verði í höfn fram að
mánaðamótum. Þó segir Hrafnhildur Brynja
Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Landhelgis-
gæslunnar, að ef eitthvað kemur upp á verði
skipin til taks. „Skipin eru tilbúin að öllu leyti
nema hvað vistir vantar. Ef eitthvað kemur upp
á þá er bara farið,“ segir Hrafnhildur. Aðspurð
hvort þetta tengist niðurskurði segir hún: „Að
vissu leyti gerir það það, já, það þurfti að gera
nýjar áætlanir og það var ákveðið að skipin
myndu sigla reglubundið, en með þessu hléi í
sumar.“
VERÐIR HAFSINS BUNDNIR VIÐ BRYGGJU
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„AUÐVITAÐ er alltaf horft á heild-
araðstæður. Hún er gift kona með
nýja fjölskyldu og eftir heildarmat
var talið að þeim væri betur borgið í
Bandaríkjunum,“ segir Guðrún Ög-
mundsdóttir, formaður flóttamanna-
ráðs.
Morgunblaðið sagði frá því í gær
að Sama Husam Ahmed Al Hasan,
dóttir Aydu Abdullah Al Esa, sem
flutti hingað til lands sem flótta-
maður frá Al-Waleed-búðunum í
Írak í fyrra, yrði ekki boðið að
koma til Íslands ásamt eiginmanni
sínum, en þau búa enn í flótta-
mannabúðunum. Að sögn Guðrúnar
er ástæðan fyrst og fremst sú að
þegar beiðnin kom inn á borð til
flóttamannaráðs hér á landi, hafi
þegar verið tekin ákvörðun um að
þau hjónin fengju hæli í Bandaríkj-
unum.
„Það var skoðaður mjög stór hóp-
ur af fólki þegar okkar hópur var
valinn og auðvitað voru hennar mál
rædd, en hún vildi ekki koma þá því
hún er gift inn í aðra fjölskyldu,“
segir Guðrún.
Í kjölfarið af frumkvæði Íslands
að því að taka til sín flóttamenn úr
Al-Waleed-búðunum hafi svo
Bandaríkjamenn og Svíar fylgt í
kjölfarið og þá hafi komist skriður á
mál fjölskyldu eiginmanns Sömu og
muni hún fylgja þeim.
Móttöku flóttamanna
sjálfhætt í kreppunni
Ísland hefur verið virkt í móttöku
flóttamanna, en í ár var hinsvegar
ekki tekið á móti neinum hópi. Guð-
rún segir að áætluninni hafi verið
sjálfhætt þegar kreppan skall á, en
vilji sé þó til að halda starfinu
áfram.
„Við viljum reyna að gera þetta á
annan hátt, fá kannski smærri hópa
og dreifa þeim. Við viljum halda
áfram að standa okkur vel og mun-
um ræða nýjar hugmyndir með
haustinu.“
Borgið í Bandaríkjunum
Morgunblaðið/Eggert
Flóttamannabúðir Alls komu 29
konur og börn til Akraness í fyrra.
Dóttir Aydu Abdullah Al Esa hafði þegar fengið hæli í
Bandaríkjunum Flóttamannaáætlun endurskoðuð í haust
AF stórum nýtil-
komnum erlend-
um lánum rík-
issjóðs, þ.e. frá
Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum, Norð-
urlöndunum og
frá Bretlandi og
Hollandi vegna
Icesave, eru Ice-
save-lánin á hag-
stæðustu vaxta-
kjörunum. Þetta kemur fram í
minnisblaði Seðlabanka Íslands fyr-
ir fjármálaráðuneytið.
Icesave-lánin, sem gætu numið
allt að 640 milljörðum króna og eru
til 15 ára, bera 125 punkta álag á
fasta 4,29% grunnvexti, sem miðast
við Cirr-vexti þegar samningarnir
voru gerðir. Vextirnir eru því 5,54%.
Tekið er fram að frá því samið var
um Icesave-lánin hafi Cirr-vextir
hækkað um 25 punkta og gert sé ráð
fyrir frekari hækkun.
Norrænu lánin eru um 2,5 millj-
arðar Bandaríkjadala, til tólf ára, á
275 punktum yfir Libor-vöxtum, þ.e.
um 6,57% vöxtum, og lánið frá AGS
á svipuðum kjörum og þau.
Icesave-lán
á lægstu
vöxtunum
Krónur Fengnar að
láni í miklu magni.
Hagstæðari en Norð-
urlanda- og AGS-lán
SINUELDUR kom upp austan við
Krýsuvíkurvatn seint í gærkvöldi.
Að sögn vaktstjóra slökkviliðsins í
Grindavík var slökkvistarf erfitt því
eldurinn brann langt utan alfara-
leiðar og þurftu slökkviliðsmenn að
ganga í tvær klukkustundir um úfið
hraun áður en þeir komu að eld-
inum, sem var að umfangi á við væn-
an fótboltavöll.
Björgunarsveitin slóst í lið með
slökkviliðinu og fór slökkvistarfið
þannig fram að grafnir voru skurðir
í kring til að hefta útbreiðslu eldsins.
Það gerði slökkvistarfið viðráðan-
legt að vind hafði lægt með kvöldinu
og eldurinn því rólegur.
Í gærkvöldi blossaði einnig upp á
nýjan leik eldur í Esjuhlíðum og eins
við Helgafell. Erfitt getur verið að
berjast við eldana í miklum þurrki
eins og var í gær. una@mbl.is
Sinueldar í
þurrkinum
Upphæðin, tíu milljón pund, sem
breski sjóðurinn á að fá fyrir um-
sýsluna virðist nokkuð rífleg. Vinn-
an snýst að miklu leyti um að gera
innstæðueigendum kleift að milli-
færa á netinu, þótt eflaust komi
upp ágreiningsefni við einhvern
fjölda þeirra. Sé upphæðinni deilt
niður á 300.000 innstæðueigend-
ur eru það ríflega 33 pund á mann
eða um 6.700 krónur.
Í yfirlýsingu fjármálaráðherra í
gær sagði að talið hefði verið
heppilegra að semja um hlutdeild
Íslendinga með fastri fjárhæð. Þá
muni allur viðbótarkostnaður falla
á sjóðina í Bretlandi og Hollandi.
Engu að síður er ákvæði 3.2 í
uppgjörssamningnum við Breta
svohljóðandi, í þýðingu blaða-
manns: „Afgangnum af öllum út-
borgunum vegna kostnaðar breska
innstæðutryggingasjóðsins má
hann halda eftir fyrir sjálfan sig.“
Fari svo að kostnaðurinn verði
níu milljónir punda hefur breski
sjóðurinn því fengið milljón pund
að gjöf frá þeim íslenska.
Breski sjóðurinn heldur afgangnum