Morgunblaðið - 25.07.2009, Síða 12

Morgunblaðið - 25.07.2009, Síða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl UMRÆÐAN um fjárhagsvandræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur náð eyrum alþingismanna. Eftir helgi verður farið yfir málið á fundi eða fundum nefndarinnar. Dómsmálaráðherra, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins og fulltrúi frá Landssambandi lögreglumanna verða kallaðir til og munu lýsa stöðu mála. Óvíst er með næstu skref í kjölfarið en víst er að ýmsar hug- myndir eru uppi í dómsmálaráðu- neytinu. Viðmælendur Morgunblaðsins voru sammála um að einhverra breytinga er þörf. Embættið hafi þanist óeðlilega út eftir skipulags- breytingarnar fyrir tveimur árum og lögreglumenn sem gætu sinnt lögreglustörfum sitji sem fastast bakvið skrifborðið. Þá hafi embættið verið komið í vandræði löngu fyrir hrunið í haust og eigi sér ekki við- reisnar von í sama búningi. Áður en 6. október rann upp voru uppi hugmyndir innan dómsmála- ráðuneytisins um frekari samein- ingu embætta, enda hafði hagræð- ingin með tilkomu embættis lög- reglu höfuðborgarsvæðisins ekki skilað nægilegum árangri. Þær hug- myndir – líkt og margar aðrar – duttu hins vegar úr brennideplinum þegar bankarnir hrundu. Í niðurskurðaráætlunum fyrri rík- isstjórnar, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, var kveðið á um þrjár grunnstoðir sem bæri að hlífa: vel- ferðarkerfinu, menntakerfinu og löggæslunni. Niðurstaða velferðar- stjórnarinnar varð hins vegar sú að láta eitt yfir alla ganga fyrir utan mennta- og velferðarkerfið. Sú for- gangsröðun endurspeglar pólitískar áherslur ríkisstjórnarflokkanna. Engar töfralausnir í boði Ragna Árnadóttir dómsmála- ráðherra komst svo að orði í Morg- unblaðinu að hún teldi nægt fjár- magn til að halda úti „viðunandi“ löggæslustigi. Hvort forsíðufrétt Morgunblaðsins í gær hafi lýst því stigi skal ósagt látið, en í henni var greint frá fjórum tilkynningum sem lögregla komst ekki í að sinna að- faranótt fimmtudags, þar á meðal var eitt innbrot. Óvíst er hversu miklar fjárveit- ingar lögreglan þarf en viðmælandi Morgunblaðsins innan lögreglunnar sagði það afskaplega lítið, s.s. til að geta haldið sjó svo vel sé, raunar „fjárhæðir sem hljóma eins og klink í samanburði við ýmislegt annað.“ Í samtali við fréttavef Morgun- blaðsins í gær sagði lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Stefán Ei- ríksson, engar töfralausnir í boði en hann bindi vonir við viðbrögð Al- þingismanna. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, for- maður allsherjarnefndar, sagði í gær óvíst hver næstu skref yrðu eft- ir fundina í næstu viku, útilokaði ekki frekari fjárveitingar og lýsti sjálf sínu sjónarmiði, að taka ætti upp hverfislöggæsluna líkt og gafst svo vel upp úr aldamótum. Birgir Ármannsson, fulltrúi í nefndinni, sagði allar hugmyndir um niðurlagn- ingu ríkislögreglustjóra eða samein- ingu við aðrar stofnanir byggðar á misskilningi. Hann vildi að öðru leyti lítið tjá sig áður en hann fengi gögn frá lögreglunni. Frekari sameiningar eða fjárveiting? Var lögregla höfuðborgarsvæðisins komin í vandræði löngu fyrir hrun? Málefni lögreglunnar verða tekin fyrir í allsherjarnefnd Alþingis eftir helgi. Hugmyndir um frekari sameiningu embætta voru rædd- ar í dómsmálaráðuneytinu á liðnu hausti.                            !"       Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is „ÉG TALA bara fyrir hönd lögreglu- manna. Þetta er það sem við ræðum á göngunum og á kaffistofunni,“ segir lögreglumaður sem hefur sent tvö nafnlaus bréf til Morgunblaðsins í vikunni. Þar segir hann frá slæmu ástandi og aðbúnaði lögreglunnar. Hann segir þetta hafa byggst upp innra með sér í nokkurn tíma. Fyrra bréfið átti að vera einföld ábending, um það að diska hafi vantað í lög- reglubíla til að skrásetja atburði, eins og ofsaakstur í Hvalfirði síðasta sunnudag. „Þá áttaði ég mig á því að það var svo margt sem þurfti að segja. LR og LL [Lögreglufélag Reykjavíkur og Landsamband lögreglumanna] hafa gert góða hluti, skrifað bréf og talað opinberlega um ástandið í lögregl- unni. Þeir geta hins vegar ekki bent á einstök mál vegna þagnarskyldu. Svo virðist ekkert vera hlustað á þá.“ Blöskraði ummæli ráðherra Hann segir gríðarleg vonbrigði vera meðal lögreglumanna um við- brögð dómsmálaráðherra við öllum aðvörunum um svelti lögreglunnar. „Það er eins og dómsmálaráðherra sé í öðrum heimi og viti ekkert hvað er að gerast hjá okkur. Okkur blöskr- aði þegar við sáum hana segja í sjón- varpinu að hægt væri að komast af með þetta fjármagn. Við héldum að hún myndi berjast fyrir okkar mál- stað og höfum alltaf haldið að hún myndi gera það.“ Hann segir þó já- kvætt að þingmenn hafi sýnt við- brögð og að málið eigi að fara fyrir allsherjarnefnd. „Þetta er allt að fara til fjandans og álagið hefur aukist jafnt og þétt, rannsóknarmál hlaðast upp. Menn eru komnir með tugi mála á sitt borð og hafa enga yfirsýn yfir þau. Þegar bunkinn með málunum stækkar og stækkar, og enginn möguleiki er á því að saxist á hann fer svo að lokum að kannski helmingur af málunum endar ofan í skúffu.“ Lögreglumaðurinn tekur undir þá gagnrýni sem hefur komið fram á nýtt fyrirkomulag LRH, þar sem al- mennu deildinni hefur verið skipt á fimm hverfastöðvar og lagðar hafa verið niður sérhæfðar deildir. „Til dæmis innbrotadeildin, sem var virkilega að skila árangri og náði að endurheimta þýfi. Núna, ef það er brotist inn til þín, eru litlar líkur á að fá þýfið til baka. Áður voru þetta fáir hópar fólks sem voru að brjótast inn sem að nokkru leyti var hægt að ganga að vísum, en nú hefur þeim fjölgað.“ Þá megi ekki gleyma fyrir- huguðum breytingum á vaktakerfinu sem eiga að verða í haust. Þá verði tekinn upp svokallaður frjáls vinnu- tími, sem muni „sundra vöktunum, sem er það eina sem heldur okkur saman. Okkur þykir þetta einfaldlega ömurlegt fyrirkomulag“. Tilfærslur duga ekki til Hann segir að sér sýnist vera í vændum einhvers konar breytingar hjá RLS og LRH, sameiningar eða tilfærslur til að spara. „Ég sé bara ekki að það dugi til. Við þurfum þess- ar deildir, alþjóðadeild Ríkislögreglu- stjóra og fjarskiptamiðstöðina, sem sér um samskipti neyðarlínu og lög- reglu.“ Þá megi alls ekki svelta sér- sveitina. „Hún er Íslands eina von, þó sérsveitarmenn séu reyndar ekki bara viðbót lengur, því þeir eru nán- ast orðnir hluti af lágmarkslöggæslu og bjarga henni alveg á höfuðborg- arsvæðinu. Sérsveitarbíll í vesturbæ Reykjavíkur var til dæmis næsti lausi bíll þegar tilkynnt var um innbrot við Höfðabakka í fyrrinótt.“ Helst dettur honum í hug að hægt væri að sameina greiningardeild RLS við upplýsinga- og áætlanadeild LRH, sem og efna- hagsbrotadeild við fjársvikadeild. „Þar gæti mögulega verið sparnaður en ég hugsa að margir séu mér ósam- mála þar.“ Ljóst er af vangaveltum sem þess- um að lögreglumenn eru algjörlega í lausu lofti um það hvernig á í raun og veru að framfylgja fyrirhuguðum nið- urskurði. Þeim hefur lítið sem ekkert verið sagt um hvað verði, annað en að skera þarf niður um 10%. Lögreglu- maðurinn, bréfritarinn, segist ekki vita hvernig hann eigi að bregðast við. Hugsjónin uppurin „Ég er bara einn af nokkur hundr- uð lögreglumönnum og ég veit ekki um allt sem gerist eða fer úrskeiðis. Það eina sem ég get gert er að tjá mig. Við hjá lögreglunni megum ekki fara í verkfall og það er mjög erfitt að berjast fyrir okkar réttindum, líka því við erum bundin af þagnarskyldu.“ Árum saman hefur verið ljóst að lög- reglustarfið trekkir ekki að vegna launanna, það er hugsjónastarf. „Mér líkar mjög vel í starfinu mínu, en ef mér byðist eitthvað betra þá myndi ég taka því. Hugsjónin er nánast upp- urin vegna þreytu.“ Erfiðara er að skipta um starf um þessar mundir en oft áður. Þess gætu þó einhverjir þurft, því margir lögreglumenn eru nú aðeins ráðnir til áramóta, enda þarf að skera niður sem svarar til launa 50 lögreglumanna, bara á höf- uðborgarsvæðinu. Samkvæmt mati RLS fyrir árið 2010 þarf 351 lög- reglumann á höfuðborgarsvæðið. Nú eru þeir 310 og þeim verður líklega fækkað ef niðurskurðurinn gengur eftir. „Ef maður horfir yfir bílastæðið hjá lögreglustöðvum þá er það næst- um tómt. Aldrei vandamál að fá stæði. Eins þarf aldrei að bíða lengur eftir tölvu til að útbúa skýrslur, svo mikið hefur fækkað. Sumir sjá þetta sem kost, en ég sé það ekki þannig.“ Svo áþreifanleg er fækkunin. Hún kemur auðvitað líka niður á öryggi borgaranna og öryggi lögreglumanna í starfi, eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu. Lögreglumaðurinn segir það svíða að skera eigi niður í þessari grunn- þjónustu samfélagsins á meðan ríkið hyggst taka lán til að standa undir auknum fjárveitingum til listamanna- launa. „Af hverju er þá ekki eins hægt að taka lán vegna lögreglunnar?“ Svo margt sem þarf að segja  Lögreglumaður sem hefur ritað nafnlaus bréf um stöðu lögreglunnar segir viðbrögð ráðherra mikil vonbrigði  Tilfærslur duga ekki ef skorið verður niður um sem svarar til launa 50 lögreglumanna Lögreglan Heimurinn er harðari en áður fyrr. Ekki má spara í kaupum á skjöldum eða hnífavestum. Morgunblaðið/Júlíus „Ég veit um marga lögreglumenn sem leggja ekki í það að fara einir á skemmtistaði í miðbæ Reykjavík- ur,“ segir lögreglumaðurinn. „Við þurfum að fara í húsleitir og eiga samskipti við alls konar fólk sem þekkir okkur úti á götu. Þrír félagar mínir í lögreglunni fóru á skemmti- stað á fimmtudagskvöldi til að fá sér öl. Þar var maður sem reyndi að eggja þrjá vini sína til að ráðast á lögreglumennina og það munaði litlu að illa færi.“ Þetta eigi sérstaklega við um þá sem eru óeinkennisklæddir í sínum daglegu störfum. Auðveldara sé að slíta sig frá starfinu með því að fara úr búningnum. „Svona aðstæður geta líka kom- ið upp ef maður fer í sund. Mönnum finnst ekki þægilegt að fara í heita pottinn með krakkana ef þar er ein- hver sem hefur lent upp á kant við mann í starfinu.“ Hann segir miklu meiri hörku í samfélaginu núna en áður. Lítið dæmi um það sé að þrátt fyrir fjár- svelti og sparnað hafi embættið keypt hnífavesti fyrir lögreglu- menn. „Á síðustu vikum hafa komið upp þrjú tilvik þar sem ég var feg- inn að vera í hnífavesti. Sum útköll virðast sakleysisleg í fyrstu en taka svo óvænta stefnu. Einn félagi minn fór í útkall vegna farþega sem neita að borga fyrir leigubíl. Hann bankaði upp á og til dyra kom „venjuleg“ kona á miðjum aldri sem lagði til hans með stórum hníf. Að mörgu leyti finnst mér ég öruggari í kringum afbrotamenn, því ég veit hvernig þeir hegða sér. Þegar mað- ur er á ferli í miðbænum er aldrei að vita hvaðan árás getur komið.“ Árásir á skemmtistöðum og í heimahúsum Morgunblaðið/Júlíus

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.