Morgunblaðið - 25.07.2009, Qupperneq 19
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
DAVÍÐ Oddsson, fyrrverandi
seðlabankastjóri, og Ingimundur
Friðriksson, fyrrverandi seðla-
bankastjóri, rituðu
Björgvini G. Sigurðs-
syni, þáverandi við-
skiptaráðherra, bréf
hinn 16. desember
2008 þar sem þeir
greindu við-
skiptaráðuneytinu
frá því að Seðlabanki
Íslands væri sjálf-
stæð stofnun, sem
stjórnsýslulega félli
að forsætisráðuneyt-
inu. Með lögum nr. 134/2008 hefði
Seðlabankanum verið falið að setja
reglur um gjaldeyrismál og fara
með undanþágur frá þeim.
Starfsmönnum
gefin fyrirmæli
Orðrétt segir í bréfi þeirra Dav-
íðs og Ingimundar: „Óviðeigandi er
að embættismenn bankans séu
kallaðir í viðskiptaráðuneytið án
samráðs við stjórnendur bankans
til að fara yfir mögulegar und-
anþágur með þeim aðilum sem
hagsmuna eiga að gæta, svo sem
með forstjóra Vífilfells sl. föstudag.
Hafa starfsmönnum bankans verið
gefin fyrirmæli um að sinna ekki
slíkum boðum af hálfu við-
skiptaráðuneytisins, þar sem jafn-
ræðisreglu stjórnsýslulaga er ekki
fylgt við slíkan málatilbúnað.
Beiðnum og fyrirspurnum um und-
anþágu skal beina til Seðlabankans
í samræmi við ákvæði laga og
reglna um gjaldeyrismál.“
Undir bréfið rita þeir Davíð
Oddsson, formaður bankastjórnar
Seðlabankans, og Ingimundur
Friðriksson seðlabankastjóri og af-
rit var sent til Geirs H. Haarde,
þáverandi forsætisráðherra.
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrver-
andi banka- og viðskiptaráðherra,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að málsatvik hefðu ekki verið
eins og lýst er í bréfi Seðlabank-
ans.
Ekki leitað að undanþágum
„Það voru nokkur fyrirtæki sem
óskuðu eftir útskýringum á gjald-
eyrishöftunum, hvað þau þýddu
fyrir þeirra fjárfestingar og inn-
komu erlendra fjárfesta,“ sagði
Björgvin. Fyrirtækin hefðu verið
Norðurál, Vífilfell, Werner Hold-
ing og eitt eða tvö fyrirtæki í við-
bót.
Björgvin sagði að viðskiptaráðu-
neytið hefði milligengið fundi full-
trúa allra fyrirtækjanna, fulltrúa
ráðuneytisins og Seðlabanka, til að
fara yfir áhrifin af gjaldeyrishöft-
unum á stöðu þessara félaga.
Björgvin var spurður hvað hann
segði um hið hvassyrta bréf frá
Seðlabankanum, sem hann hefði
fengið í kjölfar slíkra fundahalda:
„Ég man eftir þessu bréfi. Það
var enginn kallaður eitt eða neitt.
Starfsmenn mínir í viðskiptaráðu-
neytinu óskuðu eftir því við sér-
fræðinga í Seðlabankanum að þeir
kæmu til slíkra funda, því útfærsla
þessara laga var sameiginlegt
verkefni ráðuneytisins og Seðla-
bankans.
Ég veit ekkert við hvern var tal-
að af þessu tilefni eða hvort ósk-
irnar fóru í gegnum bankastjórana
eða ekki. Það voru einfaldlega
mínir sérfræðingar sem höfðu
samband við sérfræðinga bankans
og ekkert óeðlilegt við það.“
Björgvin sagði að hugmyndin
hefði alls ekki verið að leita að
mögulegum undanþágum frá gjald-
eyrishöftunum. „Það er náttúrlega
alrangt og þetta eru eins og hverj-
ar aðrar dylgjur seðlabanka-
stjóra,“ sagði Björgvin.
„Ég hafði aldrei á ævinni hitt
forstjóra Vífilfells og þekki hann
ekki neitt. Vífilfell óskaði formlega
eftir svona fundi, rétt eins og hin
félögin gerðu. Það mætti alveg
eins segja að við hefðum verið að
ganga erinda Norðuráls. Þetta er
bara della og ljótar ávirðingar,“
sagði Björgvin.
Rituðu ráðherra harðort bréf
Davíð Oddsson og Ingimundur Friðriksson sögðu í bréfi að viðskiptaráðuneytið hefði ekki fylgt jafn-
ræðisreglu stjórnsýslulaga Björgvin vísar gagnrýni á bug og segir málsatvik önnur en lýst er í bréfinu
Davíð
Oddsson
Ingimundur
Friðriksson
Björgvin G.
Sigurðsson
Fréttir 19INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
SUMARHÓPUR á vegum ÍTR
kynnti í gær niðurstöður úr könnun
á viðhorfi ungmenna til kennslu í
lífsleikni. Hjá ungmennaráði, sem
er lýðræðislegur vettvangur ung-
menna til að viðra skoðanir sínar,
hefur verið nokkur umræða og
gagnrýni á kennslu í lífsleikni í
grunnskólum. Því var ráðist í að
kanna hugmyndir ungmenna um
kennsluna.
Metnaðarfull rannsókn
Þrettán ungmenni á aldrinum 15
til 17 ára unnu í sumar könnun eða
rannsókn á vegum ÍTR og Vinnu-
skólans. Þau byrjuðu á að lesa
gaumgæfilega námskrá og náms-
bækur í lífleikni sem þau eru sam-
mála um að sé metnaðaðarfyllri en
kennslan almennt. Eftir að hafa
kynnt sér rannsóknaraðferðir
sömdu þau ýtarlega spurningalista.
Hópnum var skipt í tveggja til
þriggja manna teymi sem heim-
sóttu vinnuhópa á vegum Vinnu-
skólans. Til að skapa góða stemmn-
ingu og traust fóru þau í ýmsa leiki
áður en rætt var við hvern og einn
nemanda. Úrtakið var nokkuð stórt
eða 355 unglingar á aldrinum 13–
16 ára og var kynjahlutfall jafnt.
Könnunin leiðir í ljós að almennt
eru unglingar nokkuð ánægðir með
eða hlutlausir um kennslu í lífs-
leikni. Meirihluti nemanda er með
fasta tíma í lífsleikni og er algeng-
ast að umsjónarkennari sjái um
kennsluna.
Fjármálafræðslu ábótavant
Fæstir könnuðust við að hafa
fengið bóklega kennslu í lífsleikn-
inni þrátt fyrir að til séu náms-
bækur á þessu sviði. Umræður eru
algengasta kennsluaðferðin. Vett-
vangsferðir og utanaðkomandi
heimsóknir eru ekki stór hluti
námsins og sakna margir þess. Þá
finnst flestum að fjármálafræðslu
sé ábótavant. Forvörnum er vel
sinnt en fáir segjast hafa fengið
kennslu í námstækni; þá er kennsla
lítil í samfélags- og menningar-
málum. Unglingarnir voru beðnir
að meta gagnsemi, skemmtun og
fræðslugildi kennslunnar á skal-
anum 1 upp í tíu. Fræðslugildi og
gagnsemi fengu að meðaltali um 6 í
einkunn. Áberandi fleiri voru á því
að kennslan væri skemmtileg og
var meðaleinkunnagjöfin tæplega
7. Meðalmat á leiðinlegheitum var
bara 3,5 og tilgangsleysið hlaut
lága meðaleinkunn eða 1,3.
Lífsleiknin rannsökuð
Skoðuðu viðhorf unglinga til kennslu í lífsleikni Niður-
staðan er að námið sé þarft og skemmtilegt en stefnulaust
Morgunblaðið/Arnaldur
Lífsleiknir? Unglingar virðast sammála um að kennsla í lífsleikni sé
skemmtileg og þörf þótt ýmsu sé ábótavant í kennslunni.
Það var samdóma álit hópsins, sem
að könnuninni stóð, að ákveðna
formfestu og metnað vanti í
kennsluna. Það sé ekki nógu gott
að einhverjir virðist líta á lífsleikni-
tímana sem tíma til að spila ólsen
ólsen, slaka á eða fíflast. Vissulega
geti leikir verið kennsluform en
ekki sé mikil dýpt í ólsen. Nokkur
þeirra hafa lokið fyrsta ári í
menntaskóla og segja kennsluna
þar markvissari og árangursríkari.
Þau leggja áherslu á mikilvægi þess
að huga betur að ýmsum þáttum
kennslunnar, s.s. fjármálafræðslu
og námstækni. Stökkið úr grunn-
skóla yfir í framhaldsskóla sé mikið
og námstækni sé oft ábótavant.
Fjármálafræðsluna segja þau góða í
lífsleiknitímum menntaskólanna en
staðreyndin sé sú að ekki fari allir í
framhaldsnám. Sá hópur fái því
litla sem enga kennslu á þessu
sviði. Þá hefur hópurinn áhyggjur
af ákörðun lögreglu og Reykjavík-
urborgar að skera niður samstarf í
forvörnum sem þau hafi verið í
ásamt Samhjálp. Það gæti reynst
dýrkeyptur niðurskurður. Hópurinn
hyggst fylgja könnuninni eftir með
haustinu. Þau ætla að halda áfram
vinnu í haust og leggja fram til-
lögur til úrbóta fyrir menntaráð og
menntamálaráðherra.
Skoðanir hópsins
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
FJÓRIR þátttakendur sömdu ljóð
um þátttökuna í Snorraverkefninu,
nokkrir skrifuðu sögur um reynsl-
una og aðrir lýstu áhrifum verkefn-
isins á þá, en krakkarnir skiluðu
frásögnum sínum við útskriftina í
fyrrakvöld.
Tólf ungmenni af íslenskum ætt-
um í Norður-Ameríku tóku þátt í
verkefninu að þessu sinni og hafa
alls 159 manns sóttt það síðan það
byrjaði sumarið 1999. Um er að
ræða samstarfsverkefni Norræna
félagsins og Þjóðræknisfélags Ís-
lendinga og heitir það eftir Snorra
Þorfinnssyni, fyrsta Evrópubúan-
um sem fæddist í Norður-Ameríku,
hugsanlega á Nýfundnalandi, fyrir
rúmlega 1.000 árum, en foreldrar
hans voru Guðríður Þorbjarnar-
dóttir og Þorfinnur karlsefni, sem
síðar settust að í Skagafirði.
Þátttakendur létu vel af sex
vikna dvölinni. Sumir sögðu að þeir
hefðu öðlast nýja sýn á lífið og til-
veruna, aðrir að þátttakan hefði
breytt þeim og hugsunarhætti
þeirra mikið. „Ég vil ekki gera upp
á milli hópanna, þeir hafa allir ver-
ið góðir, en þessi er sérstaklega
góður,“ segir Ásta Sól Kristjáns-
dóttir verkefnisstjóri.
Útskriftin fór fram á hótelinu
Northern Light Inn við Bláa lónið
og héldu þátttakendur til síns
heima í gær. Tvö urðu samt eftir
og í öðru tilfellinu kom fimm
manna fjölskylda frá Alberta í
Kanada til að eyða nokkrum dög-
um með „Snorranum“ sínum á Ís-
landi.
Morgunblaðið/Steinþór
Hópurinn Þátttakendur í Snorraverkefninu ásamt aðstandendum þess eftir
útskriftina. Almar Grímsson, formaður Þjóðræknisfélagsins, er lengst til
vinstri, Ásta Sól Kristjánsdóttir verkefnisstjóri situr á hækjum sér til hægri
og Hrafnhildur Sigmarsdóttir er lengst til hægri.
Sömdu ljóð og sög-
ur um reynsluna