Morgunblaðið - 25.07.2009, Page 23
Fréttir 23ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009
HÚN hljómar eins og vísindaskáld-
skapur en gæti engu að síður senn
orðið að veruleika nýja rafsendi-
tæknin sem fyrirtækið Witricity hef-
ur þróað og kynnt var á ráðstefnunni
TED Global, árlegri ráðstefnu hugs-
uða, sem fram fór í Oxford.
Eric Giler, forstjóri fyrirtækisins,
segir notkunarmöguleikana marga.
Flatskjáir munu ekki þurfa að
vera tengdir við raftengi né heldur
rafbílar sem nóg verði aka yfir eins-
konar rafmottu sem hlaði geyminn.
Aðspurður um tæknina segir Árni
Benediktsson, rafmagnsverkfræð-
ingur hjá Landsvirkjun, hana snúast
um að ná eigintíðni á rafmagnsrás.
„Þetta er svipuð tækni og útvarp
byggist á. Útvarpsbylgjur eru raf-
segulbylgjur og þegar stillt er inn á
rás í tækinu er verið að stilla inn á
sömu tíðni og útvarpið sendir út á.
Það er þá eigintíðni rafmagnsrás-
arinnar. Það er hægt að senda lítið
afl í loftinu án þess að nota víra. En
það hefur aldrei tekist að senda
meira en það í loftinu,“ segir Árni.
„Tækni Witricity hljómar sann-
færandi en enn sem komið er tapast
um helmingur orkunnar sem skiptir
ekki miklu máli fyrir tölvur og far-
síma. Þetta yrði hins vegar ekki hag-
stætt fyrir ryksugu, svo dæmi sé
tekið.“ baldura@mbl.is
Rafmagnið í loftið
Ný tækni gerir
kleift að hlaða raf-
bíla án innstungu
Úrelt? Chevrolet Volt rafbíllinn er
settur í samband við raftengi.
BRESK heilbrigðisyfirvöld áætla
að 100.000 ný tilvik af svínaflensu
hafi komið upp í síðustu viku, eða
nærri tvöfalt fleiri en vikuna áður.
Flensan herjar einkum á börn 14
ára og yngri en hefur minni áhrif á
65 ára og eldri. Flest tilfellin eru
væg en mikill minnihluti alvarleg.
Nokkur ótti hefur gripið um sig í
Bretlandi og hafa milljónir manna
nýtt sér upplýsingavefsíðu um
flensuna sem 30 Bretar hafa nú lát-
ist úr. Þá liggja 64 á gjörgæslu.
Hefur greinst í 160 ríkjum
Á sama tíma greindi Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin (WHO) frá því að
flensunnar hefði orðið vart í 160 af
193 aðildarríkjum stofnunarinnar
og óvissa ríkti um hvernig flensan
myndi þróast á norðurhveli í vetur.
Á Nýja-Sjálandi er vandinn tek-
inn að skýrast en vísindamenn þar
áætla nú að flensan muni herja á
allt að 79% landsmanna, þótt ein-
kenna verði aðeins vart hjá um
tveim af hverjum þremur.
Veiruræktun í tengslum við
fyrirhugaða framleiðslu bóluefnis
gengur hægt í Þýskalandi en fram
kemur á vef Die Zeit að það sé talið
gagnast 60% 65 ára og eldri, en 80
til 90% fólks á aldrinum 15 til 60
ára. Rætt er við veirufræðinginn
Stephan Becker sem reiknar með
að hægt verði að hefja framleiðslu
bóluefnisins fyrir árslok.
Banvæn 800 hafa látist úr flensunni.
Svínaflensa
breiðist út
GEIMFARINN Christopher Cassidy fer í þriðju
geimgönguna sem lagt er í frá geimferjunni En-
deavour að þessu sinni en stefnt er að fimm
göngum í leiðangrinum. Búist var við að geim-
ganga Cassidy og félaga hans Thomasar Marsh-
burn í gær myndi taka sjö og hálfan tíma en
verkefnið var að koma fyrir nýjum sólarsellum.
Endeavour lagði að alþjóðlegu geimstöðinni
föstudaginn 17. júlí og flutti þá til hennar nýja
japanska rannsóknarstofu, nokkur tonn af
birgðum og nýjan geimfara í stöðina. Með hon-
um eru geimfararnir orðnir 13 en aldrei fyrr
hafa jafn margir verið í geimnum á sama stað á
sama tíma. Í baksýn varpar jörðin, „bláa plán-
etan“ svonefnda, bláum ljóma út í geiminn.
Fumlaus handtök í geimgöngu frá Endeavour
Reuters
Dyttað að geimtækjum yfir bláu plánetunni
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
ALI Khamenei erkiklerkur, æðsti leiðtogi klerka-
stjórnarinnar í Íran, hefur fyrirskipað að nýskip-
aður varaforseti landsins, Asfandiar Rahim
Mashaie, verði vikið úr embætti. Sú ákvörðun
Mahmouds Ahmadinejads forseta að skipa Masha-
ie í varaforsetaembættið hafði sætt harðri gagn-
rýni stuðningsmanna forsetans úr röðum aftur-
haldssamra klerka.
Mashaie, sem er tengdafaðir sonar Ahmadine-
jads, reitti marga íranska ráðamenn til reiði í fyrra
þegar hann sagði að Íranar væru „vinir ísraelsku
þjóðarinnar“. Khamenei erkiklerkur var á meðal
þeirra sem gagnrýndu um-
mælin.
Hatrömm valdabarátta
Khamenei hefur stutt Ah-
madinejad í deilunni um for-
setakosningarnar 12. júní og
fordæmt mótmæli andstæðinga
forsetans sem saka yfirvöld um
kosningasvik til að tryggja hon-
um endurkjör. Deilan hefur
valdið hatrammasta klofningi í klerkastjórninni frá
íslömsku byltingunni árið 1979. Akbar Hashemi
Rafsanjani, fyrrverandi forseti, hefur sagt að
klerkastjórnin hafi glatað trausti þjóðarinnar.
Khamenei skipar forsetanum
að víkja varaforsetanum frá
Erkiklerkurinn hafnar vali Ahmadinejads á varaforseta eftir hörð mótmæli
Í HNOTSKURN
» Khamenei erkiklerkur sagði í bréfi tilAhmadinejads forseta að val hans á
varaforseta stangaðist á við hagsmuni
landsins, ylli klofningi og mikilli óánægju
meðal stuðningsmanna forsetans.
» Ahmadinejad hefur ekki sýnt neinmerki um að hann sé tilbúinn til að falla
frá þeirri ákvörðun að skipa vin sinn í emb-
ætti varaforseta þrátt fyrir hörð mótmæli,
m.a. margra stuðningsmanna forsetans.
Ali Khamenei
EFTIR linnu-
lausa ríkisvæð-
ingu á einkafyr-
irtækjum og
bújörðum, yfir-
töku á verkalýðs-
félögum og of-
sóknir og
málaferli gegn
pólitískum and-
stæðingum
stjórnarinnar eru tugir þúsunda
menntamanna í Venesúela búnir að
fá sig full sadda af sósíalistabylt-
ingu Hugo Chavez forseta og hafa
ákveðið að freista gæfunnar í
frjálsari samfélögum.
Fjallað er um atgervisflóttann í
nýjasta hefti tímaritsins Newsweek
en þar segir að listamenn, lögfræð-
ingar, læknar, stjórnendur og verk-
fræðingar flykkist á brott, á sama
tíma og þeir sem búi erlendis hafi
hætt við að snúa aftur. Um milljón
manna hafi yfirgefið landið frá því
Chavez komst til valda fyrir áratug.
Greinarhöfundur, Mac Margolis,
tekur sterkt til orða og segir fólks-
flóttann leggja lamandi hönd á há-
skóla og iðnaðinn. Niðurstaðan sé
að helsta útflutningsvara ríkisins sé
atgervi brottfluttra, ekki olían, gas-
ið eða jarðefnin sem þetta eitt rík-
asta land heimshlutans búi yfir.
Á mörkum aðskilnaðarstefnu
Margolis rifjar upp söguna og
hvernig nágrannaríkin hafi á 8. og
9. áratugnum mörg hver rennt öf-
undaraugum til Venesúela sem hafi
þá verið álitið auðugt lýðræðisríki.
„Við vorum tiltölulega ríkt land
sem bauð upp á tækifæri […] Eng-
um datt í hug að fara. Núna er
glæpatíðnin há, stjórnkerfið undir-
okandi og á mörkum aðskiln-
aðarstefnu,“ hefur hann eftir Diego
Arria, fyrrverandi sendiherra
Venesúela hjá Sameinuðu þjóð-
unum, sem býr nú í New York.
Atgervisflótti
frá Venesúela
Hugo Chavez
Rætist spár
Witricity
verður eftir
12 til 18
mánuði
kominn á
markað far-
sími sem
hægt verður
að hlaða
með rafsendingum í loftinu.
Það hvimleiða vandamál að
leita logandi ljósi að hleðslu-
tæki mun þá heyra sögunni til,
að minnsta kosti ef raftengi,
eða rafsendir, sem svo má ef til
vill kalla, er nærri.
Það hefur því mikið vatn
runnið til sjávar frá árdögum
farsímans þegar rafhlaðan var á
stærð við símaskrá. Witricity er
stytting á ensku orðunum
„wireless electricity“.
Hlaðinn í vasanum
BARACK Obama Bandaríkjaforseti
sagði í gær að hann sæi eftir um-
mælum sínum um hvítan lögreglu-
mann sem handtók virtan prófessor
við Harvard-háskóla, blökkumann-
inn Henry Louis Gates, við heimili
hans vegna gruns um að hann væri
innbrotsþjófur.
Lögreglumaðurinn krafðist þess
að forsetinn bæðist afsökunar á
ummælum um að handtakan hefði
verið „heimskuleg“. Obama við-
urkenndi að orðaval hans hefði ver-
ið „óheppilegt“ og gæfi til kynna að
hann hefði „rægt lögregluna“.
Obama iðrar
ummælanna