Morgunblaðið - 25.07.2009, Síða 29

Morgunblaðið - 25.07.2009, Síða 29
Pétur Stefánsson orti við andlátgóðs vinar og vinnufélaga: Enda flestir ævi sína að óskum skaparans. – Ennþá vilja tölu týna, tryggir vinir manns. Lífsins vegur liggur beinn, – lítið er þar tafið. Vinir hverfa einn og einn yfir dauðahafið. Rúnar Kristjánsson orti um dag- inn „eftir tiltekið mál“: Þingið brást nú enn og aftur, enga trú á því ég reisi. Það er eins og opinn kj......, uppfullur af glóruleysi ! Skírnir Garðarsson yrkir öf- ugmælavísu: Æseif málið er oss kært allri þjóð til sóma blessun hefir börnum fært og brögnum dýrðarljóma. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Af vinum og lífsins vegi Daglegt líf 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009 www.gisting.dk/gisting.html sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer) Ódýr gisting í Kaupmannahöfn Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200 800 7000 • siminn.is E N N E M M /S ÍA /N M 38 59 8 Það er Kynntu þér dreifikerfi Símans á siminn.is 3G netlykill á 0 kr. Með því að gera 6 mánaða samning við Símann fæst 3G netlykil á 0 kr. Valin er áskriftarleið við hæfi og ef farið er yfir innifalið gagnamagn er greitt fyrir umfram gagnamagn. Fullt verð fyrir 3G netlykil er 17.900 kr. Sól og blíða alla daga, það má segja að veðrið hafi leikið við Suðurnesja- menn það sem af er sumri, ferða- menn sem leggja leið sína á Suður- nesin hafa margt að skoða. Má þar nefna það nýjasta sem eru Víkinga- heimar í Reykjanesbæ. Fyrir ferða- menn sem langar að skoða Suður- nesin er tilvalið að koma við á Markaðsstofu Suðurnesja þar sem einnig er upplýsingamiðstöð. Þar er hægt að fá allar upplýsingar um hvað Suðurnesin hafa uppá að bjóða til afþreyingar fyrir fjölskylduna og ferðamenn.    Tjaldsvæði hefur nú verið tekið í notkun, hið fyrsta sinnar tegundar, í Sandgerði. Byggt hefur verið þjón- ustuhús á tjaldsvæðinu. Í því er sal- ernis- og sturtuaðstaða, auk þvotta- vélar og þurrkara til notkunar fyrir gesti. Rafmagnstengingar fyrir hús- bíla og fellihýsi eru á svæðinu. Tjald- svæðið er staðsett við Byggðaveg, á gamla íþróttavellinum. Svæðið er skjólgott og miðsvæðis í Sandgerði. Það verða frí afnot af svæðinu á þessu sumri.    Elsta hús Sandgerðis sem heitir Efra Sandgerði og var byggt árið 1883. Það hefur að undanförnu feng- ið andlitsupplyftingu en félagar í Lionsklúbbi Sandgerðis hafa unnið við að mála húsið og sinna viðhaldi þess. Lionsklúbburinn er eigandi hússins og hafa Lionsfélagar end- urbyggt húsið á undanförnum árum og er húsið mikill bæjarprýði og Lionsklúbbi Sandgerðis til sóma.    Senn líður að bæjarhátíðinni Sand- gerðisdögum. Undirbúningur er þegar hafinn og íbúar í hverfunum sem hafa hvert sinn lit eru farnir að leggja drög að því hvernig skreyt- ingum verði háttað. Segja má að frumleikanum í skreytingum séu engin takmörk sett, að þessu sinni verður tekið mið af stöðu fjármála þjóðarinnar, og eru Sandgerðingar hvattir til að koma með hugmyndir um atriði á dögunum, sér og öðrum til skemmtunar, enda er þema dag- anna skemmtum okkur sjálf.    Það hefur verið gott gengi hjá meist- araflokki Reynis í annarri deild Ís- landsmótsins í knattspyrnu. Liðið er efst í deildinni og hefur verið það sem af er keppnistímabilsins og ef fram fer sem horfir koma þeir vænt- anlega til með að spila til úrslita um sæti í 1 deild, en keppnistímabilið er nú ekki búið og það getur allt skeð í fótbolta.    Púlsinn hefur opnað aðstöðu í hús- næði við Vitatorg, milli Listatorgs og Fræðaseturs. Þar er hægt að sækja allskonar námskeið til að efla hugann og styrkja líkamann. Mörg og fjölbreytt námskeið eru í boði fyr- ir fólk á öllum aldri, en það er Marta Eiríksdóttir sem rekur Púlsinn og leiðbeinir fólki sem sækir námskeið hjá henni. Allir ættu að finna eitt- hvað við sitt hæfi, sjálfum sér og öðrum til hressingar, bæði á sál og líkama. Hægt er að sjá hvað er í boði á www púlsinn.is    Átak í umhverfismálum stendur nú yfir í Sandgerði. Fjöldi manna hefur unnið við að þekja manir og græn svæði við Byggðaveg sem er nýr vegur ofan við byggðina í Sandgerði. Malbikaðir hafa verið göngustígar með veginum sem hefur létt á um- ferð um íbúahverfi. Þessar fram- kvæmdir koma til með að gera að- komuna til bæjarins snyrtilega, en sól og blíða hafa gert það að verkum að mikið hefur þurft að vökva svæðið og hefur verið leitað til slökkviliðsins til að koma í veg fyrir að svæðið skrælni upp í þurrkunum sem hafa verið undanfarið. SANDGERÐI Reynir Sveinsson fréttaritari Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Tjaldsvæði Nýtt þjónustuhús á tjaldsvæðinu í Sandgerði. UMHVERFIÐ skiptir líka máli þeg- ar staður fyrir tískusýningu er val- inn. Á nýafstaðinni tískuviku í Róm voru kastalar valdir til að hýsa stærstu sýningarnar. Meðal þeirra sem þar sýndu hönnun sína var líbanski hönnuður- inn Abed Mahfouz. Vöktu síðkjól- arnir hans sérstaka athygli. Reuters Kjólar sýndir í kastala

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.