Morgunblaðið - 25.07.2009, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 25.07.2009, Qupperneq 36
36 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009 ✝ Ívar Haukur Stef-ánsson fæddist í Haganesi við Mývatn 8. október 1927. Hann varð bráðkvaddur í bát sínum á Mývatni 17. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Stefán Helgason, f. 31.5. 1884, d. 23.11. 1972, og Áslaug Sigurð- ardóttir, f. 20.12. 1884, d. 18.5. 1979. Systkini Ívars: Sig- urður, f. 1905, d. 1982, Helgi, f. 1912, d. 1987, Hlín, f. 1915, Hjördís, f. 1918, d. 2004. Eiginkona Ívars er Birna Svan- fríður, fædd 16. júlí 1934 á Ísafirði, dóttir hjónanna Kristjönu Jón- asdóttur og Björns Guðmundssonar, sem bæði eru látin. Börn Ívars og Birnu: 1) Áslaug, f. 9.6. 1953. 2) Bryndís, f. 11.5 1957, hennar maður er Hólmgeir Her- mannsson, f. 20.11. 1957, þeirra börn eru Birna, f. 1993, og Hermann, f. 2000. 3) Hörður, f. 21.9. 1958. 4) Kolbrún, f. 26.7. 1969, gift Ein- ari Jónssyni, f. 7.9. 1967, þeirra börn eru Heiðbjört, f. 1999, Ív- ar Helgi, f. 2002, og Gunnar Bragi, f. 2002. Ívar ólst upp í Haganesi og bjó þar alla sína ævi. Þar stundaði hann hefð- bundinn búskap auk þess sem hlunnindi voru nýtt af vatninu og Laxá. Ívar var grenjaskytta, bridgespilari, harm- onikkuleikari og skíðagöngumaður. Hann keppti á mörgum skíðalands- mótum og 1952 keppti hann á Ól- ympíuleikunum í Noregi og fór svo í framhaldi af þeim til Svíþjóðar og tók þátt í Vasagöngunni. Var hann landpóstur sveitarinnar í mörg ár eða til 70 ára aldurs. Útför Ívars fer fram frá Skútu- staðakirkju í dag, laugardaginn 25. júlí, og hefst athöfnin kl. 14. Hugurinn reikar nær 60 ár aftur í tímann. Í sjö sumur var stefnan tekin norður í Mývatnssveit til afa, ömmu og Ívars. Ég sé afa fyrir mér stand- andi við réttarvegginn, hann er að gera að silungi, amma er á þeytingi á milli búrs og reykhúss. Ef gesti bar að garði var amma í móttökunefnd- inni á hlaðinu þar sem smágrennd- arkynning fór fram sem fólst í því að segja frá nöfnum fjallanna umhverfis vatnið og voru nú sumir fegnir þegar boðið var til stofu því ekki var ör- grannt um að ein og ein fluga sveim- aði yfir söfnuðinum sem dró óneit- anlega úr áhrifamætti kynningarinnar. Vegurinn út í Haganes var ekki greiðfær á þessum árum en það hindraði Ívar ekki í að hitta vini sína, enda vinsæll og vinamargur. Við sem heima sátum nutum svo góðs af, því skemmtilegri sögumanni hef ég ekki kynnst og hæfileikar hans sem eft- irherma juku áhrifamátt frásagn- anna. Karlakór Mývetninga æfði um tíma í Haganesi, seinna söng Ívar með kórnum, hann hafði góða söng- rödd eins og systkini hans öll. Hann hlustaði mikið á tónlist, eignaðist for- láta upptrekktan grammófón sem var óspart notaður og voru helstu tenórar heimsins tíðir gestir í stof- unni í Haganesi. Einu sinni sendi ég honum plötu með Ljudmilu Zikinu þjóðlagasöngkonu í tilraun til þess að hafa áhrif á tónlistarsmekk hans. Mörgum árum seinna kom þessi söngkona til Íslands og söng m.a. á Húsavík, þá fór Ívar með Birnu sína til þess að hlusta. Engum sögum fer af aðdáun hans á söngkonunni en Viktor Gridin harmonikuleikari sem lék undir ásamt hljómsveit sinni heillaði Ívar sem sjálfur var liðtækur harmonikuspilari og var ekki leiðin- legt að fá að fljóta með á sveitaböllin þar sem hann og frændi hans Jón Árni héldu uppi fjörinu. Umhverfi og lífríki Mývatns og Laxár voru honum hugleikin. Eins og dæmin sanna má leikmaður sín lítils í andstöðu sinni gegn vilja þeirra sem sjást ekki alltaf fyrir í áhuga sínum við að skapa ný störf. Þéttbýlt var orðið á sumum jörðum við Mývatn svo að menn leituðu allra mögulegra leiða til atvinnusköpunar. Kísilgúr- verksmiðja var reist við vatnið og hófst námugröftur af botni vatnsins 1967. Árum saman reyndu vísinda- menn að tengja minnkandi líf bæði ofan og neðan vatnsyfirborðs töku kísilgúrsins en í viðtali við Árna Ein- arsson líffræðing sem birtist í tíma- ritinu Nature í mars 2008 kemur fram að kísilnámið hafi leitt til hruns bleikjustofnsins í Mývatni en hann tekur jafnframt fram að yfirvöld sem heimiluðu vinnsluna hafi ekki átt að geta séð hrunið á stofninum fyrir, vegna þess að nýja þekkingu í vist- fræði þurfti til þess að skýra ástæð- una. Það sannaðist með vísindalegum rannsóknum að menn með gagnrýna hugsun eins og Ívar höfðu haft rétt fyrir sér. Fjöllin í kringum vatnið hafa ekki breyst í tímanna rás og Haganesi er skilað til afkomenda eins og Ívar tók við því, engu hefur verið fórnað fyrir stundarhagsmuni. Flugnasveimurinn er ekki eins til- komumikill í sveitinni og áður frekar en sveitin eftir að Ívar er burtkall- aður. Blessuð sé minning hans. Bryndís Helgadóttir. Hljóðnar raust og bliknar blað, bilar traust á mátt sinn eigin. Þegar hausti hallar að heim í naust er bátur dreginn. (R.R.) Á fallegum sumardegi fór Ívar Stefánsson í sína hinstu ferð á vatnið. Í lífi hans var komið haust, líkaminn var uppgefinn þótt viljinn væri til staðar. Hann kvaddi þetta jarðlíf í bátnum sínum með net í höndum, Mývatn vaggaði honum yfir í annan heim. Þegar við nú kveðjum vin okkar og frænda streyma allar góðu og skemmtilegu minningarnar fram. Ív- ar var einstakur maður og honum var margt til lista lagt. Á yngri árum var hann mikill íþróttamaður, spilaði fót- bolta, glímdi, en frægur var hann fyrst og fremst fyrir skíðagönguna og keppti hann á Ólympíuleikunum í Osló 1952 og tók einnig þátt í Vasa- göngunni svo og ótal Íslandsmótum. Hann var líka bridsspilari, refa- skytta, handlaginn og útsjónarsamur til allra verka. Tónlistaráhugi hans var mikill, hann söng í kórum, spilaði á trommur eða harmonikku á böllum og öðrum samkomum og hann dansaði eins og engill. Hann átti ógrynni af klassískri tónlist, Jussi Björling, Pavarotti og Bocelli voru hans menn. Hvar sem hann kom var hann hrókur alls fagnaðar, hafði vísur á hraðbergi, sagði sögur og hermdi eft- ir samferðafólki betur en nokkur annar. Enn er masað yfir glasi allt því fasið vitni ber. Þó ég hrasi á grænu grasi Guð álasar varla mér. (R.R.) Ívar hafði sterkar skoðanir bæði á mönnum og málefnum. Hann var vinstrimaður. Nálægðin við vatnið og ána höfðu vísast þau áhrif að Ívar varð snemma góður veiðimaður. Lífið í Haganesi snerist mikið um silunginn og fugl- inn. Fyrirdráttur, netaveiði að sumri og á vetrum undir ís, dorgveiði og veiði í ánni, umhirða neta, verkun sil- ungsins og reyking. Á árum áður var þetta búbót sem útheimti mikla vinnu. Aldrei var Ívar kátari en þeg- ar dregið var fyrir og vel veiddist. Sigling með honum á vatninu, hvort heldur var til að huga að netum eða skemmtisigling um vatnið og vestur á Rif á sólbjörtum degi, var ógleym- anleg upplifun. Þá var hann konung- ur, þetta var ríkið hans. Að leiðarlokum þökkum við fyrir vináttuna, greiðviknina í okkar garð, fyrir óteljandi gleðistundir, hlátur og söng. Granninn átti gómsætt vín gamanþátt svo kíminn. Langra nátta geymist grín, gleymdist háttatíminn. (R.R.) Þín er sárt saknað kæri vinur. Kæra Birna og fjölskyldan öll, okkar innilegustu samúðarkveðjur sendum við ykkur. Úlfhildur og Hákon Hákonarson. Ívar frændi minn kvaddi þetta líf á jafn fallegan og táknrænan hátt og hann sjálfur lifði því. Viðlíka höfð- ingja og snillingi er leitun að og ein- stök forréttindi að hafa fengið frá blautu barnsbeini að njóta samferðar með honum. En nú er komið að ferða- lokum frænda sem lagði í sína hinstu för á bátnum sínum og kvaddi með netin í fanginu og umvafinn nálægð við fiskana og fuglana – Mývatnið, eyjarnar og hólmana. Og ég er alveg miður mín að þú skulir lagður af stað, en um leið svo þakklát fyrir allar minningarnar sem ég og fjölskyldan eigum um þig. Í huga okkar frændsystkinanna sem nutum æskunnar í bústað ömmu og afa í Haganesi varstu hluti heil- agrar þrenningar ásamt afa Rögn- valdi og Helga frænda. Svo sólbrúnn, vel greiddur og glettinn í augunum ævinlega hreint – í köflóttri skyrtu, með axlabönd, í ullarsokkum og gúmmískóm. Svo flottur og „orginal“ – og við krakkarnir agndofa af virð- ingu í þinn garð. Þú byggðir eina fallegustu jörð sem fyrirfinnst á jarðríki – og vegna óeigingirni og væntumþykju ykkar í Haganesi fengum við pínkulitla stór- fjölskyldan að byggja bústað hjá ykkur. Ævintýralegra umhverfi er ekki hægt að hugsa sér sem barn og var Ívar konungur ævintýranna í ómótstæðilega fallega ríkinu sínu. Minningarnar eru endalausar og kalla fram bros og þakklæti. Sigling- ar á Mývatni út í eyjar og hólma, veiðar á Mjósundinu og vatninu, eggjatínsla, póstferðir með þér og Kollu á póstbílnum Litla rauð, sláttur og baggahlaup úti á Hamri, leyft að sitja á heyvagninum heim í Haganes og ferðalag í Herðubreiðarlindir á rússajeppanum – sem þú keyrðir reyndar á ullarsokkunum. Og jafn ótrúlegt og mér þótti það nokkurra ára gamalli var mér ljóst að það mátti greinilega keyra jeppa á ullarsokk- unum – allavega fyrst þú gerðir það! Þú varst tvímælalaust fyrsti merki- legi maðurinn sem ég kynntist. Höfð- ingi varstu svo sannarlega og engum líkur. Og ekki var nú leiðinlegast að hlusta á þig fara með sögur og herma eftir þeim sem til umfjöllunar voru hverju sinni. Ég held að enginn hermi betur eftir kerlingum en þú gerðir og hlátur, söngur og harmon- ikkan bræða saman endalausar minningar og kalla fram bros. Takk elsku frændi fyrir allt sam- an. Ég treysti því að þið félagarnir þrír setjið jafn mikinn stíl á núver- andi samastað ykkar og þið gerðuð hérna megin. Elsku Birna og fjöl- skyldan öll – við sendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur til ykkar í sveitina. Helga Hlín og fjölskylda. Mig langar til að minnst í nokkr- um orðum Ívars Stefánssonar, bónda í Haganesi í Skútustaðahreppi í Mývatnssveit. Tilviljun réð því að okkur rak á fjörur í Haganesi fyrir rúmlega hálfri öld. Við höfðum eignast fyrsta bílinn okkar og ákveðið að fara í jómfrúarferð norður heiðar í fyrsta sinn á ævinni. Af meðfæddri veiði- ástríðu var sterk löngun til þess að renna fyrir fisk á svæðinu. Mér varð að ósk minni og þá hittum við Ívar og hans fólk í fyrsta sinn. Sú morgun- stund er enn í minni sem og frábær veiði. Og ekki nóg með það heldur féll ég algerlega fyrir Laxá og Mý- vatnssveit allri. Landslagið, fuglinn, fiskurinn, gróðurinn, jarðfræðin, lit- brigðin og fleira. Allt til staðar. Þetta skammvinna upphaf leiddi af sér að allar götur síðan hef ég ár- lega notið þeirrar ánægju að koma í 1-2 vikur til að veiða í Laxá við Mý- vatn og notið gestrisni og hjálpsemi fjölskyldunnar í Haganesi. Síðar tóku börnin okkar að fylgja með til Haganesdvalar og enn síðar barna- börn. Ívar varð okkur sem besti kennari því hann þekkti hvern stein, þúfu, hróf, dokk, sker, erju og hólma á sínu óðali. Hafði hundruð örnefna á reiðum höndum, kenndi okkur nöfn fjalla í fjallahringnum svo og nöfn veiðistaða með upplýsingum um hvernig standa skyldi að veiðinni. Hann talaði að mínum dómi mjög fallegt mál með sínum norðlenska framburði og hafði metnað fyrir við- gangi móðurmálsins. Ekki vildi ég hafa misst af þeirri lífsreynslu að hafa nokkrum sinnum hitt á Ívar og stórvin hans Þorgrím Starra í Garði mátulega hreifa fara á kostum í samræðum í Haganesbæn- um, skáldið í Garði með gamanmál á hraðbergi en Ívar með eftirhermur. Ég held að hann Ívar hafi getað hermt eftir flestum í sveitinni. Á sínum yngri árum var Ívar einn fremsti skíðagöngumaður landsins, varð margsinnis meistari í sinni íþrótt. Keppti á Vetrarólympíuleik- unum í Osló árið 1952 og gekk Vasa- skíðagönguna. Vann hann til margra verðlauna í íþróttagreininni en stærstu verðlaunin sem honum hlotnaðist voru hans ágæta eigin- kona Birna Björnsdóttir frá Ísafirði. Ég held að þau hljóti að hafa hist á einhverju skíðalandsmótinu, senni- lega á Ísafirði og það rennir líka stoðum undir þá kenningu mína að skíðin séu allra meina bót. Ívar var ákaflega tónelskur, hafði sérstaklega ánægju af söngtónlist, kunni fjölda söngverka frá upphafi til enda og átti myndarlegt safn platna og diska. Sjálfur hafði Ívar fína söngrödd og söng um árabil í Karlakór Mývetninga. Ívar naut lengst af góðrar heilsu, en allra seinustu árin voru hné og mjaðmir farin að slitna eftir mikla vinnu frá barnsaldri. Þegar við Baldur sonur okkar kvöddum Birnu og Ívar í hlaðinu á Haganesi 11. júlí sl. eftir vikudvöl áttum við ekki von á að Ívar yrði all- ur aðeins 6 dögum síðar en lífið er bara svona. Vertu sæll, kæri vinur, og við þökkum fyrir allar hamingjustund- irnar sem þið veittuð okkur í hálfa öld. Við trúum því að þú fáir að ljúka við að leggja netið sem þú varst byrj- aður að leggja þegar þú kvaddir en nú í nýjum veiðilendum. Megi hið eilífa ljós lýsa þér. Birnu og Haganesfólki öllu biðjum við blessunar Guðs Svavar Davíðsson. Ívar Haukur Stefánsson Guðbjörg Hjartardóttir ✝ Guðbjörg Hjart-ardóttir fæddist í Fáskrúðsfirði 29. mars 1937. Hún lést á Fjórðungssjúkrahús- inu í Neskaupstað 18. júlí sl. Foreldrar Guð- bjargar voru Hjörtur Guðmundsson og Guðrún Bjarnadóttir frá Lækjamóti í Fáskrúðsfirði. Guðbjörg átti sex systur auk fóstursystkina. Eig- inmaður Guðbjargar var Sigurjón Jóns- son. Þau eignuðust fjögur börn: Jón Gunnar, giftur Huldu Gísladóttur og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn; Gíslína Ingibjörg, gift Karli Jóhanni Karlssyni og eiga þau þrjá syni; Páll Lár- us, giftur Berglindi Einarsdóttur og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn; Hjörv- ar Moritz giftur Sigrúnu Júlíu Geirs- dóttur og eiga þau tvö börn. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu fimmtudaginn 23. júlí síð- astliðinn. Meira: mbl.is/minningar                          ✝ Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, FÍFA G. ÓLAFSDÓTTIR, Hjarðarhaga 46, Reykjavík, sem lést á dvalarheimilinu Grund við Hringbraut mánudaginn 20. júlí, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju mánudaginn 27. júlí kl. 15.00. Ólafur S. Helgason, Ásdís Helgadóttir, Gunnar O. Rósarsson, Sigrún Huld Gunnarsdóttir, Hildur Arna Gunnarsdóttir, Bryndís Snæfríður Gunnarsdóttir, Tómas Ían Brendansson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA HÓLMFRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR, Asparfelli 8, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð fimmtudaginn 23. júlí. Fyrir hönd ástvina, Bjarni Thorarensen, Sigríður Magnúsdóttir, Smári Thorarensen, Steinunn Sigurjónsdóttir, Hallbjörg Thorarensen, Óskar Elvar Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.