Morgunblaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 38
38 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009 Mig langar að fá að kveðja þig með örfáum fátæklegum orðum, elsku amma mín. Frá því að ég man eftir mér hefur þú verið stór hluti af mínu lífi. Ég og bræður mínir nutum þeirra forrétt- inda að fá að alast upp með þig og afa innan seilingar í sveitinni. Hugurinn leitar á æskuslóðir þeg- ar ég hugsa um þig og núna fæ ég kökk í hálsinn og tár í augun. Ég sakna þín svo mikið og ég vildi óska að ég væri orðinn lítill pjakkur aftur, bankandi á dyrnar á hlýlega eldhús- inu þínu til að sníkja pönnukökur, þessar með bráðnaða sykrinum sem enginn hefur náð að endurgera. Ég hugsa um okkur tvö, lítill drengur með ömmu sinni á fallegum sumar- degi heima í sveitinni, í matjurta- garðinum þínum að hjálpa þér að snyrta beðin þín og fá radísur og gul- rætur að launum. Svo seinna þegar ég ákvað að gott væri að tína ána- maðka í beðunum til að nota við sil- ungsveiðar sem voru mér snemma í blóð bornar og þú hastaðir á mig þegar ég reyndi að grafa á milli blómkálshausanna með misjöfnum árangri. En í staðinn fyrir að skamma mig og verða mér reið, sýndir þú mér hvar ég mátti grafa innan þessa fallega reits sem þú nostraðir við af þinni einstöku alúð og leystir þannig málin á farsælan hátt fyrir okkur bæði. Mig langar að þakka þér svo margt, amma mín. Þakka þér fyrir þegar ég og stúlka sem ég elskaði skildum að skiptum og þú huggaðir mig svo fallega og innilega þegar ég átti erfitt og leið illa og gafst þér all- an tímann í heiminum fyrir mig. Þeg- ar við hittumst fyrst eftir að ég meiddist og þú faðmaðir mig svo vel og lengi þrátt fyrir að þú ættir erfitt með að lyfta hendinni þinni og ég fann væntumþykjuna streyma frá þér. Tárin renna niður kinnarnar þeg- ar ég hugsa um að þú sért farin en ég má ekki vera eigingjarn. Þú varst þrotin að kröftum og þurftir að fá hvíld og ég á að vera glaður yfir því hvað við fengum að hafa þig lengi hjá okkur við góða heilsu. Þuríður Helga Kristjánsdóttir ✝ Þuríður HelgaKristjánsdóttir fæddist á Hellu á Ár- skógsströnd 21. nóv- ember 1915. Hún lést á Kristnesspítala 2. júlí sl. Útför Þuríðar fór fram frá Munkaþver- árkirkju 16. júlí síð- astliðinn. En ég sakna þín bara svo mikið, amma mín. Núna kemur Heið- dís inn um dyrnar og færir mér barna- barnabarnið þitt, hann litla Jón Gunnar, sem er með sitt ómótstæði- lega bros á vörunum og hann sest hjá mér upp í rúmið mitt. Það er eins og hann skynji að ég er dapur því hann situr bara róleg- ur hjá mér og er „aaa“ við mig. Hann mun ekki verða þeirr- ar gæfu aðnjótandi að þekkja þig og muna eftir þér en ég mun segja hon- um frá þér og hversu yndisleg og fal- leg kona þú varst. Því heiti ég. Elsku amma mín. Það er komið að kveðjustund. Ég hef hugsað svo mikið til þín undanfarna daga þegar ég var á fjöll- um á fjórhjólinu mínu og fundið fyrir návist þinni sem segir mér að þú ert ekki farin langt frá okkur. Ég veit að afi er glaður að hafa endurheimt þig og að þú ert glöð að hitta hann og hana Sigurbjörgu þína sem þú misstir svo snemma. Ég veit einnig að ég mun hitta þig aftur en bara ekki alveg strax. En þegar sá tími kemur að við hittumst á ný mun ég banka á eld- húsdyrnar hjá þér og segja það sem þú rifjaðir svo oft upp: „Ætlarðu að opna, amma mín, þetta er Jón litli …“ Guð geymi þig og varðveiti. Jón Gunnar Benjamínsson. Elskuleg og yndisleg amma mín er fallin frá. Það er erfitt að finna rétt orð til að lýsa henni ömmu. Engin orð finnast sem lýsa henni nógu vel. Hugurinn hvarflar til allra góðu stundanna í sveitinni. Sveitin, at- hvarf frá annríki. Gamla húsið þar sem hægt var að ganga að ömmu vísri. Eiga við hana gott spjall. Hægt að tala um allt milli himins og jarðar enda var amma vel inni í öllum mál- um allt fram á síðasta dag. Var visku- brunnur, hægt að fá upplýsingar um hvað allir voru að gera. Vissi ná- kvæmlega hvað öll barnabörnin voru að gera í lífinu. Finna væntumþykj- una, góðmennskuna. Vellíðunartil- finning að stíga inn til ömmu, tíminn stóð í stað, ekkert stress, engin til- gerð. Njóta þess einstaka andrúms- lofts sem skapaðist í kringum ömmu. Þegar amstur daglega lífsins var að manni fannst yfirþyrmandi, þá var gott að láta hugann reika í sveit- ina, sjá fallegu sveitina fyrir sér, hús- ið hennar ömmu og ömmu þar inni að dunda í eldhúsinu eða sitja með prjónana sína í sófanum. Hún tók á móti gestum alveg fram undir það síðasta. Bakaði og eldaði, tók öllum opnum örmum. Harðdugleg. Hlust- aði ekki á það frá gestunum að hún ætti að taka því rólega, stóð upp og hellti upp á kaffi, hafði frekar áhyggjur af því að aðrir væru að of- gera sér. Umhyggjan fyrir öðrum alltaf til staðar. Spyrjandi út í hagi manns og líðan fram á síðasta dag. Hvetjandi og hrósandi. Talaði svo fallega um alla. Enda var gestkvæmt hjá ömmu, öllum leið vel í návist hennar. Hún hafði svo fallega nær- veru. Ég er innilega þakklátur fyrir þennan tíma sem við áttum hana ömmu okkar að, fyrir allt sem hún kenndi mér, fyrir allt sem hún gerði fyrir mig. Við eigum eftir að sakna hennar svo sárt. Það verður öðruvísi að koma í húsið hennar ömmu í sveit- inni eftir að hún er farin, en hið ein- staka andrúmsloft sem hún bjó til mun lifa þar áfram. Takk fyrir allt, elsku amma. Baldur Helgi Ingvarsson. Enginn stöðvar tímans þunga nið eins og segir í kvæðinu. Það erum við óþyrmilega minnt á í hvert sinn sem vinirnir kveðja einn af öðrum. Nú síðast var það elskuleg og kær vin- kona okkar hún Þuríður á Ytri- Tjörnum sem kvaddi eftir langa og farsæla ævigöngu. Við vitum að hún var ferðbúin og fagnaði þessum vistaskiptum en nokkur ár eru síðan Baldur kvaddi og vissum við að hún saknaði nærveru hans. Ytri-Tjarnir eru okkar fjölskyldu- óðal, þar bjuggu afi okkar og amma þau Fanney og Kristján Helgi og áttu tólf börn sem öll náðu háum aldri. Hlýtur það að teljast einstakt. Við búi þeirra tóku síðan þau Þur- íður og Baldur föðurbróðir okkar og bjuggu þar stórbúi um áratugi. Ekki er að efa að þar var og er rekið eitt myndarlegasta bú í Eyjafirði þótt víðar væri leitað. Þau Þuríður og Baldur kynntust þegar hún kom sem húsmæðrakenn- ari að Kvennaskólanum á Syðra- Laugalandi. Það er óhætt að segja að hún hafi verið starfi sínu vaxin. Á stóru og mannmörgu heimili þeirra hjóna sinnti hún húsmóðurstörfum og barnauppeldi af miklum myndug- leik og stóð þar vaktina sem klettur í hafinu í dagsins önn. Föðurfjöl- skyldu okkar var staðurinn afskap- lega kær og þar var því oft margt um manninn og glatt á hjalla. Þessar samverustundir eru okkur ætíð minnisstæðar og kærar. Þuríður og Baldur voru samhent hjón og rausnarleg heim að sækja. Glaðværð og hlýja var þeirra aðals- merki. Þuríður var glæsileg kona, hóg- vær en ætíð glaðleg og vinsamleg í framkomu. Aldrei minnumst við þess að hún hafi skipt skapi né hallað á nokkurn mann, þvert á móti. Fjöl- skyldu sinni og vinum sinnti hún af mikilli alúð og umhyggju. Með dygg- um stuðningi barna sinna og fjölskyldna nutu þau hjón ævi- kvöldsins á eigin heimili. Síðustu ár- in var heilsa Þuríðar farin að bila en andlegri heilsu og reisn hélt hún fram á síðustu stund og gestrisnin var ætíð sú sama. Aldrei fór maður með tóman maga eftir heimsókn í Ytri-Tjarnir. Stofu- borðið var dúkað, hellt var á könn- una og heimabakað brauð borið á borð, allt fram undir það síðasta. Þuríður var einstök manneskja og vinátta hennar ómetanleg gjöf, þeim sem nutu hennar. Á Syðra-Lauga- landi þar sem foreldrar okkar bjuggu stendur mikil og falleg ösp sem gróðursett var þar um miðja síð- ustu öld. Aðra okkar dreymdi í vor að öspin fagra væri horfin og mikið tómarúm þar sem hún hafði staðið. Draumurinn hefur nú komið fram. Við mælum fyrir munn fjölskyldu okkar þegar við segjum að við mun- um ætíð minnast þeirra hjóna með hlýhug og þakklæti í hjarta. Guð blessi minningu þeirra Þuríðar og Baldurs á Ytri-Tjörnum. Hrefna Sigríður og Snæbjörg Rósa. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, FANNEY G. HANNESDÓTTIR, Neðstaleiti 4, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grensáskirkju mánudaginn 27. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Ljósið eða önnur líknarfélög. Bára Brynjólfsdóttir, Brynjólfur G. Brynjólfsson, Emma Eyþórsdóttir, Sólveig Hlín Brynjólfsdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, afi, sonur og bróðir, JÓN BALDURSSON tollvörður, Ásgarði 55, Reykjavík, lést miðvikudaginn 22. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 29. júlí kl. 13.00. Baldur Jónsson, Freyr Jónsson, Hrund Guðmundsdóttir, Börkur Eiríksson, Fura Barkardóttir, Gréta Jónsdóttir, Vöggur Jónsson, Sigurður E. Baldursson, Þuríður E. Baldursdóttir, Jóhann S. Erlendsson, Ingi Þ. Vöggsson. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR S. GRÖNDAL fyrrv. sóknarprestur, Bræðraborgarstíg 18, Reykjavík, varð bráðkvaddur á heimili sínu að morgni fimmtu- dagsins 23. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ingveldur Lúðvígsdóttir Gröndal, Lúðvík H. Gröndal, Kristbjörg Konráðsdóttir, Sigurbjörg H. Gröndal, Ólafur Haukur Ólafsson, Hallgrímur H. Gröndal, Sólveig Fanný Magnúsdóttir, Þorvaldur H. Gröndal, Lára Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, UNNAR ERLINGUR BJÖRGÓLFSSON, lést miðvikudaginn 22. júlí á Högnastöðum, Eskifirði. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Jónína Jónsdóttir. ✝ Systir okkar, KRISTÍN HJALTADÓTTIR frá Norður-Götum, Mýrdal, til heimilis að Seilugranda 6, Reykjavík, andaðist á Klausturhólum, Kirkjubæjarklaustri miðvikudaginn 22. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jón Hjaltason, Sigríður Hjaltadóttir, Sæmundur Hjaltason og aðrir vandamenn. ✝ Minn ástkæri eiginmaður, faðir, bróðir, mágur og frændi, AXEL BIRGISSON flugvirki, Ægisvöllum 4, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðviku- daginn 22. júlí. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkur- kirkju miðvikudaginn 29. júlí kl. 13.00. Sigurfríð Rögnvaldsdóttir, Birgir Axelsson, Elsa Lilja Eyjólfsdóttir, Guðni Birgisson, Elsa Skúladóttir, Sesselja Birgisdóttir, Ólafur Birgisson, Ragnhildur Ingólfsdóttir og frændsystkin. ✝ Okkar ástkæri faðir, sonur, bróðir og frændi, HARTMAN PÉTURSSON, Lágengi 21, Selfossi, lést þriðjudaginn 21. júlí. Anton Óli Hartmannsson, Pétur Hartmannsson, Jórunn E. Ingimundardóttir, Ingimundur Pétursson, Steinunn J. Pétursdóttir,Jóhann Örn Kristjánsson, Pétur Hartmann Jóhannsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.