Morgunblaðið - 25.07.2009, Qupperneq 39
Minningar 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009
✝ Guðrún Harð-ardóttir (Rúna)
fæddist í Reykjavík 9.
desember 1946. Hún
andaðist á sjúkrahús-
inu á Ísafirði 15. júlí
sl.
Foreldrar Rúnu eru
hjónin María Björns-
dóttur og Hörður
Guðmundsson. Frá
unga aldri ólst Rúna
upp hjá hjónunum
Guðrúnu Kolbeins-
dóttur og Indriða
Guðmundssyni og
dóttur þeirra Ólöfu Svövu og manni
hennar Benedikt Björnssyni. Ung
2) Indriði Steinþór, f. 13.2. 1969,
maki María Katarína Guðmunds-
dóttir, f. 31.1. 1968, börn þeirra eru
Daníel og Stefanía. Maki Stefaníu
er Óskar Aðalsteinn og barn þeirra
er Jóhanna María. Fyrir átti Stein-
þór soninn Össur. 3) Guðrún Bjarn-
ey, f. 10.6. 1971, maki Jón Magn-
ússon f. 27.8. 1967, börn þeirra eru
Birna Mjöll og Sylvía Lind. Fyrir
átti Guðrún dótturina Elvu Björk.
4) Sæmundur Bjarni f. 14.9. 1977,
maki Lilja Debóra Ólafsdóttir, f.
4.5. 1976, börn þeirra eru Katla
María og Tómas Geiri. Fyrir átti
Lilja soninn Jakob Fannar. 5) Þór-
dís Guðbjörg, f. 3.8. 1981, maki
Bjarki Guðmundsson, f. 10.1. 1979,
dóttir þeirra er Guðrún Eva.
Útför Rúnu fer fram frá Þingeyr-
arkirkju í dag, laugardaginn 25.
júlí, og hefst athöfnin kl. 13.
flutti Rúna vestur í
Dýrafjörð og gerðist
bóndi í Lambadal
ásamt manni sínum
Guðmundi Steinþórs-
syni, f. 21.10. 1935.
Þau gengu í hjóna-
band 25. júlí 1971.
Börn þeirra eru: 1)
María Kolbrún, f. 5.6.
1964, maki Ísleifur
Aðalsteinsson f. 10.9.
1963, börn þeirra eru
Viðar Örn, Kolbrún
Ósk og Guðlaugur
Rúnar. Faðir Maríu
Kolbrúnar var Valur Magnússon en
Guðmundur gekk henni í föðurstað.
Rúna í Lambadal er látin, allt of
snemma. Síðastliðið haust greind-
ist Rúna með æxli í heila og á 62
ára afmælinu var hún í geislameð-
ferð hér í Reykjavík. Sama dag og
meðferðinni lauk, um miðjan des-
ember, hélt Rúna aftur vestur,
staðráðin í að halda hefðbundin jól
heima með fjölskyldu sinni. Við
dáðumst öll að dugnaði hennar á
þessum erfiðu tímum.
Aðstæður höguðu því þannig að
Rúna ólst upp hjá bæði foreldrum
mínum og ömmu og afa, hún var því
ætíð hluti af lífi okkar allra. Ellefu
ára aldursmunur er mikill framan
af. Nú síðari ár fann ég ekki fyrir
honum því Rúna var síung.
Rúna var grallari og tók upp á
ýmsu. Eftirminnilegt er þegar hún
fór með mig 5 ára gamla á hár-
greiðslustofu, lét leggja á mér hár-
ið samkvæmt tískunni sem þá var
og síðan í bíó að sjá mynd með Cliff
Richard. Þegar heim var komið
spígsporaði ég montin um með tú-
berað hárið á meðan Þóra systir lá í
rúminu með mislinga.
Í þá daga var aldursmunur okkar
Rúnu mikill og þegar hún eignaðist
Maju Kollu var ég enn í dúkkulísu-
leik. Þær mæðgur fluttust vestur í
Dýrafjörð því allt í einu var Gummi
kominn til sögunnar. Þegar þau svo
gengu í hjónaband lögðum við land
undir fót. Ferðalangarnir voru for-
eldrar Rúnu, þau Maja og Hörður á
einum bíl og við fjölskyldan á öðr-
um. Þetta var heilmikið ferðalag
sem tók marga daga. Við gift-
inguna klæddist Rúna peysufötum
Guðrúnar ömmu. Þá var Maja
Kolla orðin sælleg sveitastúlka,
Steini lítill, sætur en óttalegur
prakkari og Gunna var skírð um
leið og foreldrarnir gengu í hjóna-
bandið. Næstu ár bættust svo Sæ-
mundur og Þórdís við, myndarfólk
allt saman.
Með Rúnu held ég að allir ald-
urshópar hafi getað samsamað sig.
Hún var ungleg bæði í útliti og fasi
og hafði gaman af að hitta fólk og
spjalla. Krökkum leiddist ekki
frekar en öðrum að koma í heim-
sókn og þær eru ófáar sögurnar
sem hlegið hefur verið að við eld-
húsborðið í Lambadal.
Vegna þess hve miklu lengra
virðist vera fyrir okkur borgarbörn
að fara frá höfuðborginni vestur á
firði en öfugt, var frekar að við hitt-
um Rúnu hér syðra. Nú síðari ár
hafa þau hjónin komið á hverju
sumri til okkar í sumarbústaðinn
við Laugarvatn, tjaldað og trallað
og síðasta sumar komu Rúna,
Gummi og flestir þeirra afkomend-
ur og voru viðstödd hátíð til minn-
ingar um hellisbúana á Laugar-
vatnsvöllum, þau Guðrúnu ömmu
og Indriða afa. Stuttu síðar komu
þau aftur í tengslum við landbún-
aðarsýningu. Við áttum frábæran
tíma í sumarbústaðnum, Rúna var
eldhress eins og alltaf og engan ór-
aði fyrir að þetta yrði síðasta sum-
arið okkar saman.
Afi og amma sem þótti mikið
vænt um Rúnu eru löngu fallin frá
sem og Hörður faðir hennar. Við
hin sem á sínum tíma vorum sam-
ferða vestur í giftingu Rúnu förum
nú aftur, 38 árum síðar upp á dag,
en nú til að kveðja hana.
Missir Gumma og barna þeirra,
tengdabarna og barnabarna er
mikill. Mesta gæfa í lífi Rúnu var
örugglega að flytjast vestur í
Lambadal. Nú er þar stór fjöl-
skylda sem sér á eftir og saknar
Rúnu úr hópnum. Ég votta þeim og
Maju móður hennar innilega samúð
sem og öðrum sem þótti vænt um
Rúnu í Lambadal.
Hólmfríður Benediktsdóttir.
Guðrún Harðardóttir
✝ Guðbjörg ÓskHauksdóttir
fæddist á Eskifirði 11.
október 1951. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Vest-
mannaeyja 20. júlí
2009.
Foreldrar hennar
eru Theódóra Ósk-
arsdóttir, f. 12.10.
1933, og Haukur Guð-
mundsson, f. 25.10.
1929, d. 3.9. 1991.
Systkini Guðbjargar
Óskar eru, a) Stella, f.
17.11. 1955, hennar sonur er Guð-
mundur Haukur, b) Ólöf, f. 29.8.
1955, maki Ægir Sigurjónsson.
Hennar sonur Sigurður Jóhann, c)
Haukur, f. 8.2. 1961, maki Sigríður
Högnadóttir. Börn
þeirra Stefán, Óskar
Þór, Tinna og Daði, d)
Arelíus Smári, f. 8.9.
1971, maki Ólöf Una
Ólafsdóttir. Börn
þeirra Ólafur Haukur
og Theódór Orri.
Dóttir Guðbjargar
Óskar er Theódóra
Anný Hafþórsdóttir,
f. 10.5. 1972. Börn
hennar Andri Þór, f.
30.9. 1993, Kristján
Haukur, f. 1.11. 1995,
og Hafþór Elí, f. 18.7.
2001.
Útför Guðbjargar Óskar fer fram
frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
í dag, 25. júlí, og hefst athöfnin
klukkan 11.
Mamma.
Guð þig leiði sérhvert sinn
sólarvegi alla.
Verndarengill varstu minn
vissir mína galla.
Hvar sem ég um foldu fer
finn ég návist þína.
Aldrei skal úr minni mér
mamma ég þér týna.
(Jón Sigfinnsson.)
Þín,
Anný.
Lítill drengur lófa strýkur
létt um vota móðurkinn,
– augun spyrja eins og myrkvuð
ótta og grun í fyrsta sinn:
Hvar er amma, hvar er amma,
hún sem gaf mér brosið sitt
yndislega og alltaf skildi
ófullkomna hjalið mitt?
Lítill sveinn á leyndardómum
lífs og dauða kann ei skil:
hann vill bara eins og áður
ömmu sinnar komast til,
hann vill fá að hjúfra sig að
hennar brjósti sætt og rótt.
Amma er dáin – amma finnur
augasteininn sinn í nótt.
Lítill drengur leggst á koddann
– lokar sinni þreyttu brá
uns í draumi er hann staddur
ömmu sinni góðu hjá.
Amma brosir – amma kyssir
undurblítt á kollinn hans.
breiðist ást af öðrum heimi
yfir beð hins litla manns.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Þínir ömmugaurar,
Andri Þór, Kristján Haukur
og Hafþór Elí.
Guðbjörg Ósk
Hauksdóttir
Morgunblaðið birtir minningargrein-
ar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upp-
lýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út. Grein-
ar, sem berast eftir að útför hefur farið
fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef
útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru
birtar á vefnum, www.mbl.is/minning-
ar. Æviágrip með þeim greinum verð-
ur birt í blaðinu og vísað í greinar á
vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Engin lengdar-
mörk eru á greinum sem birtast á
vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 lín-
ur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar
um hvar og hvenær sá sem fjallað er
um fæddist, hvar og hvenær hann lést
og loks hvaðan og klukkan hvað útför-
in fer fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra, systk-
ini, maka og börn. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í formálanum,
sem er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinun-
um.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynn-
ingu er hún sjálfkrafa notuð með minn-
ingargrein nema beðið sé um annað.
Minningargreinar
✝
Þökkum auðsýnda hlýju og vinarhug vegna fráfalls
elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
sonar, bróður, mágs og afa,
REYNIS HELGASONAR,
Álfheimum 34,
Reykjavík.
Björg Gísladóttir,
Berglind Reynisdóttir, Samson Magnússon,
Sveinbjörg Jónsdóttir,
Jón Helgason, Stefanía Björnsdóttir
og barnabörn.
✝
Útför
TORFA JÓNSSONAR
bónda á Torfalæk,
sem lést föstudaginn 17. júlí á Heilbrigðisstofnun-
inni á Blönduósi, fer fram frá Blönduósskirkju
þriðjudaginn 28. júlí kl. 14.00.
Jóhannes Torfason, Elín S. Sigurðardóttir,
Jón Torfason, Sigríður Kristinsdóttir,
Sigurlaug A. Stefánsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
PÉTURS ÞORBJÖRNSSONAR
fyrrv. kaupmanns,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs, 3. hæð, St. Jósepsspítala
Hafnarfirði, Oddfellowbræðrum í Bjarna Riddara og Karlakórnum
Þresti.
Valgerður Sigurðardóttir,
Svanhildur Pétursdóttir, Gissur Guðmundsson,
Birgir Pétursson, Hrefna Geirsdóttir,
Sverrir Pétursson, Sandra L. Pétursson,
Hrönn Pétursdóttir, Jafet E. Ingvason,
Björk Pétursdóttir, Sveinn Sigurbergsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæru
SÚSÖNNU HALLDÓRSDÓTTUR,
Sunnu,
frá Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar
Landspítalans og líknardeildar Landspítala Landa-
koti fyrir góða umönnun.
Örn Sævar Ingibergsson, Guðlaug Óskarsdóttir,
Elín Dóra Ingibergsdóttir, Haraldur L. Haraldsson,
Jón Kristinn Ingibergsson, Sonja Christensen,
Þórunn Einarsdóttir, Richard Kelley,
Halldór Einarsson, Esther Magnúsdóttir,
Elín Einarsdóttir, Jón Gunnlaugsson,
Ingibjörg Einarsdóttir,
Birna Einarsdóttir, Guðmundur Þorsteinsson,
Haukur H. Gröndal, Ásta Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður, bróður, mágs og afa,
JÓHANNS BRIEM.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar-
heimilinu Eir.
Ásta Kristín Briem,
Páll Jóhann Briem,
Haraldur Páll Briem, Vera Nily,
Birna Jóna Jóhannsdóttir, Þór Kristjánsson,
Kristín Briem, Sigurjón H. Ólafsson,
Sigrún Briem, Jón Viðar Arnórsson,
Jóhanna Björk Briem, Guðmundur Þorbjörnsson
og barnabörn.