Morgunblaðið - 25.07.2009, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009
Mikið hefur verið rætt ogritað um sænskablaðamanninn og rit-höfundinn Stieg Lars-
son, sem var á mörkum heims-
frægðar þegar ótímabæran dauða
hans bar að fyrir fáum árum. Um
svipað leyti kom út Män som hatar
kvinnor, fyrsta bókin af þrem sem
hann náði að ljúka um rannsókn-
arblaðamanninn Mikael Blomkvist
(Nyqvist), pönkarann Lisbeth Sa-
lander (Rapace) og árangursríka
samvinnu þessa furðulega tvíeykis í
baráttu við mannsora í röðum betri
borgara í Svíþjóð. Dapurleg og ekki
síður dramatísk erfðamál Larssons
hafa verið ofarlega á baugi í um-
ræðunni, en það er önnur saga.
Frumraun Larssons reyndist
hafa til að bera flesta kosti sem
prýða má glæpasögur og er þrenn-
an um Blomkvist og Salander orðin
með mest seldu krimmum á Norð-
urlöndunum og víðar. Það þurfti því
ekki að bíða lengi eftir kvikmynda-
gerðinni, nú hefur sú fyrsta verið
frumsýnd hérlendis, hinar tvær sitt
hvorum megin við næstu áramót.
Karlar sem hata konur hefst á
málaferlum þar sem rannsókn-
arblaðamaðurinn Blomkvist hjá
Millenium-útgáfunni er dæmdur í
þriggja mánaða fangelsi fyrir að
reyna að fletta ofan af fjárglæfra-
manninum og milljarðamæringnum
Wennerström (Stefan Sauk) sem
reynist með betri lögfræðing. Áður
en til afplánunar kemur er haft
sambandi við Blomkvist af lög-
manninum Dirch Frode (Hirdwall),
sem starfar fyrir Henrik Vanger
(Taube), vellauðugan góðborgara
sem jafnframt er höfuð Venger-
ættarinnar og fyrirtækja-
samsteypu hennar. Henrik býr
praktuglega á herragarði sínum á
litlum hólma ásamt nokkrum nán-
um skyldmennum. Þangað mætir
blaðamaðurinn um hávetur, til-
gangur heimsóknarinnar er 40 ára
gamalt hvarf á Harriet (Fröling),
bróðurdóttur Henriks, sem sá ekki
sólina fyrir henni. Henrik telur víst
að hún hafi verið myrt og morðing-
inn sé í innsta hring fjölskyldunnar.
Henrik hefur safnað saman
miklu efni um málið og kemur
blaðamanninum fyrir í húsi á land-
areigninni. Blomkvist verður lítið
ágengt fyrr en hann fær óvænta
hjálp frá tölvuþrjót sem brýst inn í
harða diskinn hans og leysir lyk-
ilgátu sem kemur honum á sporið.
Reyndar þeim báðum því Blom-
kvist hefur upp á tölvuþrjótnum
sem reynist vera pönkarinn Lis-
beth Salander, bráðskörp en illa
farin ung kona á skilorði í uppreisn
við umhverfið.
Sagan er ljót en rannsóknin er
æsispennandi og persónurnar eru
litríkar og vel leiknar af fjölda
frægra, sænskra skapgerðarleik-
ara. Larsson var vinstrisinnaður og
í andstöðu við yfirstéttina í krata-
veldinu Svíþjóð. Hann fær sann-
kallaða víkingaútrás fyrir andúðina
á spillingunni á meðal auðmanna-
aðalsins. Karlar sem hata konur er
árás á kynþáttafordóma, siðleysi og
úrkynjun með hrikalegu, ofbeldis-
fullu ívafi sem er sannkallaður vít-
iskokkteill úr fáguðum ófögnuði;
Lömbin þagna með slettu úr subbu-
myndum á borð við Saw og Hostel.
Leikstjórinn, Daninn Niels Arden
Oplev, er útsjónarsamur, ekkert
ákaflega frumlegur í hægagangi en
myndin er oftast hlaðin spennu og
óhugnaði og þá er Oplev með á nót-
unum, ekki síst í grimmdarlegustu
ofbeldisatriðunum. Fyllir áhorfand-
ann réttlátri heift út í miskunn-
arlausa karlpunga sem hata konur,
barnaníðinga, hvítflibba-glæpa-
menn, almennt óréttlæti í þröng-
sýnu, löngu stöðnuðu þjóðfélagi.
Tímasetning þessarar und-
anbragðalausu hefndarsögu getur
ekki verið betri og aðferðin sem
Ljósfælin fjölskylduleyndarmál
Smárabíó, Háskólabíó,
Regnboginn
Karlar sem hata konur –
Män som hatar kvinnor
bbbbn
Leikstjóri: Niels Arden Oplev. Aðalleik-
arar: Michael Nyqvist, Noomi Rapace,
Lena Endre, Sven-Bertil Taube, Peter
Haber, Peter Andersson, Ewa Fröling,
Gunnel Lindblom. 155 mín. Svíþjóð/
Danmörk/Þýskaland. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Ljósmynd/C Knut Koi
Ógleymanleg Leikkonan Noomi Rapace í hlutverki Lisbeth Salander.
PUNGINN ÚT
Frábær gamanmynd með Seann
William Scott úr American Pie
og Dude Where Is My Car?
HHHH
- S.V. MBL
HHHH
- Ó.H.T, Rás 2
Stórskemmtileg
sumarmynd uppfull af
gáskafullum atriðum
og grófum húmor.
Í HVERT SINN SEM HANN FER Í VINNUNA ER ÞAÐ UPP Á LÍF OG DAUÐA
ÓTRÚLEG MYND SEM BYGGÐ ER Á SÖNNUM HEIMILDUM,
UM HÆTTULEGASTA STARF Í HEIMI
HHH
„Hágæða mystería
- pottþétt handrit
- frábær mynd“
-D.Ö.J., kvikmyndir.com
HHHH
„Þrælvelheppnuð yfirfærsla viðburðaríkrar
og magnaðrar glæpasögu á hvíta tjaldið.
Varla hægt að gera þetta betur ...
áleitin og ögrandi spennumynd.”
-Þ.Þ., DV
HHH
„...ótrúlega vel unnin,
vel leikin, spennandi ...
brjáluð meðmæli.”
-T.V., kvikmyndir.is
HHHH
„Það er ekki að ástæðulausu
að þetta er vinsælasta
mynd ársins á
Norðurlöndunum.”
- V.J.V., FBL
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK
STIEG LARSSON
„Fantagóð, kuldaleg sænsk
glæpahrollvekja... Saga sem rífur
mann í sig. Myndin gefur
bókinni ekkert eftir“
-F.E. Morgunvaktin á Rás 2.
HHHH
„Karlar sem hata konur
er hrein snilld, maður
getur varla beðið eftir
framhaldinu.”
- S.V., MBL
HHHH
„verk sem dúndrar í höfði
manns á eftir, lengi,
og vekur áframhaldandi
hugsanakeðjur”
- Ó.H.T., Rás 2
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
SÝND Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
SÝND Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANUM
SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ, BORGARBÍÓ OG REGNBOGANUM
750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef
TILBOÐSVERÐ
550 KR Á SÝNIN
GAR MERKTAR
RAUÐU
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBOGANU
M 750kr.
Karlar sem hata konur kl. 3 - 6 - 9 B.i.16 ára
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 2 - 4 LEYFÐ
My Sister‘s Keeper kl. 6 - 8 B.i.12 ára
Lesbian Vampire Killers kl. 10 B.i.16 ára
Karlar sem hata konur kl. 3 - 4:30 - 6 - 7:30 - 9 - 10:30 B.i.16 ára
District 13 kl. 8 - 10:10 B.i.14 ára
My Sister‘s Keeper kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 ára
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
Karlar sem hata konur kl. 2:30 - 4 - 5:30 - 7 - 8:30 - 10 750kr. B.i.16 ára Angels and Demons kl. 10:10 750kr. B.i.14 ára
Balls Out kl. 3:40 - 5:50 - 8 750kr. B.i.12 ára
The Hurt Locker kl. 10:10 750kr. B.i.16 ára
Ice Age 3 (enskt tal) kl. 3:30 - 5:50 - 8 750kr. LEYFÐ