Nýtt kvennablað - 01.02.1962, Síða 14

Nýtt kvennablað - 01.02.1962, Síða 14
kindunum sá hann inn um hálf opnar húrdyrnar, að þær mæðgur sátu yfir stórri hyttu af nýsoðnu saltkjöti og háma það í sig. lóhanna Kláusardóttir er gestur hjá þeim. Hann heyrði, að hún sagði: „Það er nú meira lánið fyrir ykkui að geta horðað svona gott kjöt daglega. Ég fæ mér nú víst annan hita“. Markús fór fram í skálann. Hann var ólæstur og lykill inn í skránni. Hann hjóst við, að kjötið væri úr hans eigin tunnu. Það var víst líka svo. Honuin ofhauð, hvað húið vai að eyða miklu úr tunnunni. Ilann skellti hlemmnum yfir hana og tautaði: „Eyðslusöm kona er eldur í húi.“ Hann var ekki öfundsverður af því að leggja til heimilisins, karlanginn. Lík- lega ekki öfundsverður af neinu. Svo læsti hann skálanum og lét lykilinn i vasann. Næsta dag sá hann, að Auðbjörg var búin að sópa hæjar dyrnar og var að leita að einhverju í öllum holum. Hann þóttist vita, að hún væri að snuðra eftir lyklinum. Hann hafði hálf gaman af að sjá, hvað hún var vandræðaleg á svipinn. Það var dauft yfir öllum næstu daga. Það varð húsmóðirin, sem varð fyrst til að tala við fra-nda sinn. „Eg var að rangla niður við fjárhús i morgun. Þar sá eg tunnu, sem eg býst við, að sé saltfiskur í. Blessaður láttu mig hafa hann. Það ei orðið lítið um að vera hjá okkur núna.“ „Sveinbjörn saltaði rauðmaga í hana handa Jóhannesi gamla á Vatni. Líklega hefur hann aldrei sagt honum frá hví, fyrst hann hefur ekki sótt það.“ sagði hann. „Gengur nú fram af mér,“ sagði Sigurlaug. „Það hefði átt að nægja, að Jóhannes sótti hingað rauðmaga og líklega fleira matarkyns í vor, þó að það væri ekki farið að salta handa honum Hka. Hvað hefur hann svo sem með þetta að gera? Það er ekki svo margt á fóðrum hjá honum. Eg gæti hugsað, að Sveinbirni hefði þótt alveg eins gott að það lenti hjá okkur. Láttu mig hafa það, sem í tunnunni er, fyrst hann er ekki húinn að gefa karlinum það, hefur liann verið hætt- ur við það.“ Eg hef ekkert með það að gera. A nógan mat handa méi einum. Karlanganum veitir ekki af þessu. Hann er sffellt á einhverjum snöpum eftir mat. Eg fer varla að taka þetta frá munninum á honum, fyrst Sveinbjörn ætlaði honum það,“ svaraði Markús stuttlega. Hann var hálf gramur yfir kjöt- átinu. „Það hefur varla minna að skammta en eg, fólkið það, þvl er gefið úr öllum áttum." sagði Sigurlaug. „Voruð þið ekki að leggja net í vor. Það minnir mig, að Sveinki segði einhvern tfma?“ spurði Markús. „Gátuð þið ekki saltað eitthvað?" „Nei, áreiðanlega ekki. Það þarf nú svo í hverja máltíð, hérna. Hún þarf nú matinn sinn hún amma gamla. Það er áreiðanlega rétt, sem stendur í vísunni. að gamalmennin þurfi þá, þriggja kúa fóður. Hann þarf á reiðanlega minna ofan í krakkana, sem hjá honum eru, hann Jóhannes gamli.“ „Ekki nema það, þriggja kúa fóður,“ sagði Markús og brosti. „Það munar svo sem ekkert um það. Aldrei heyrði eg talað um það, öll þau ár, sem ég var á Gili, að Margrét gamla liorðaði mikið,“ sagði hann og leit til gömlu konunnar, sem sat prjónandi á rúmi sínu og hlustaði á, að talinn var matur inn ofan í hana. Hann sárkenndi ! brjóst um hana. En hún lét sér hvergi hregða þó hnífillinn væri rekinn í síðu hennar. Hún var svipuð sveitinni, sem hún var alin upp í, köld og lét sér hvergi bregða, á hverju sem gekk. Hún hló meira að segja, þegar tengdadóttir hennar talaði um, hvað hún væri þung á fóðrunum. Framh. ^zfífatLDóta 's^fdall^ót^óttLt VALDASTÖBBM, K 3Ó S Mig langar að minnast Halldóru Halldórsdóttur frá Valdastöðum, sem andaðist 5. janúar 1962. Þetta verður ekki æviminning, því að aðrir mér færari hafa gert því góð skil og svo brestur mig kunnugleik til þess, því að ég kynntist henni ekki fyrr en fyrir 6 árum. En mig langar að minnast hennar vegna þess, að hún er mér minnisstæð sem sérstakur persónuleiki. Hún bjó um tíma í sama húsi og dóttir mín, svo ég hitti hana oft. Sýndi hún mér þá oft alls kyns handavinnu, sem hún var með, því að hún var sívinn- andi og mjög listhneigð. Nutu margir af hennar stóra frænda- og vinhópi góðs af, því að hún var óvenju gjöful. Hún lét sér mjög annt um allt sitt skyldulið. Hún var sérlega snyrtileg og fín kona og bar ald- urinn vel, var bein í baki og létt í spori sem ung væri, þótt hún væri nær áttræðu, jiegar ég kynntist henni. Hún var glaðsinna og hafði gaman af að kotna á mannfundi og var dugleg að ferðast, miðað við hennar háa aldur. Hún var svo lánsöm að fá að taka þátt í önn dags- ins fram til þess síðasta, því að hún var veik aðeins fáa daga, áður en hún skilaði þessari jarðvist. Halldóra mín! Mér fannst lærdómsríkt að kynn- ast þér og ég jiakka og minnist, hvað þú varst góð við litlu dótturbörnin mín, sem eru langömmubörnin þín. — Guð blessi minningu þína. Anna Kristj&nsdóttir, Bjarkalundi. Sigríður Geirsdóttir í Hollywood. Nú eru íslenzku fegurðardrottningarnar farnar að leggja leið sína til Hollywood, er Sigríður ein þeirra. Farið er að sýna stórmyndina ,,Hitler“ í Ameríku og leikur Sigríður Geirsdóttir í myndinni. Hún var eins og við munum fegurðardrottning íslands 1959. NÝTT KVENNABLAÐ 12

x

Nýtt kvennablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.