Morgunblaðið - 30.08.2009, Blaðsíða 16
16 Heimildarmynd
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009
ALLT FYRIR
ÞAKIÐ!
TAX
FREE!
27. ágúst -
6. september
ÞAKSTÁL- ÞAKPAPPI -
ÞAKRENNUR - ÞAKULL - ÞAKSPERRUR -
ÞAKGLUGGAR - ÞAKMÁLNING -
ÞAKSAUMUR OG MARGT FLEIRA
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
S
ú var tíðin að innflytjendur
á Íslandi voru teljandi á
fingrum annarrar handar.
Menn hrukku í kút heyrðu
þeir framandi tungur eða
mættu manni sem augljóslega var af
erlendum uppruna á götu. Nú er öld-
in önnur. Innflytjendur hafa streymt
til landsins á umliðnum árum og
varla er lesinn upp sá bekkur í skóla
að ekki heyrist erlent nafn.
Íslendingar hafa þurft að laga sig
hratt að þessum breytta veruleika
og margt bendir til þess að þeim
gangi það misjafnlega. Sumum þykir
umræðan um málefni innflytjenda
aldrei hafa náð viðunandi hæðum og
aðrir segja að upplýsingar séu af
skornum skammti. Oddný Helga-
dóttir og Jón Gunnar Ólafsson
brugðust við þessu og hafa nú lokið
við gerð heimildarmyndar um fjöl-
menningu á Íslandi, auk þess sem
þau hafa samið námsefni fyrir
grunn- og framhaldsskóla og fullorð-
insfræðslu.
Heimildarmyndin Vegurinn heim,
byggist á viðtölum við fimm börn
innflytjenda á Íslandi. Þau eru á
aldrinum sjö til tólf ára og af ólíkum
uppruna; frá Póllandi, Taílandi, Kó-
sóvó, Palestínu og Haítí. Í myndinni
ræða þau líf sitt og tilveru á Íslandi
og tala m.a. um vini, fjölskyldu,
skóla, tungumál og fordóma.
Vettvangur umræðu
Erlendar rannsóknir sýna að mik-
il hætta er á að börn innflytjenda
einangrist og verði utanveltu í sam-
félaginu og Oddný og Jón Gunnar
segja að hugsunin með myndinni sé
að veita börnum innflytjenda vett-
vang til að taka þátt í umræðu um
innflytjendur á Íslandi. Börnin fimm
í myndinni eru öll íslenskumælandi
en Oddný og Jón Gunnar segja það
lykilatriði í aðlögunarferlinu.
Hugmyndin að myndinni kviknaði
fyrir um tveimur árum en Oddný og
Jón Gunnar hafa bæði lokið meist-
aranámi í alþjóðasamskiptum frá
Háskóla Íslands með fjölmenningu
sem sérgrein. Auk þess hafa þau
bæði starfað á fjölmiðlum, skrifað
greinar, gert úttektir á innflytjenda-
málum og skipulagt fundi og mál-
þing um málefni innflytjenda.
„Fyrir alþingiskosningar árið
2007 varð umræðan um stöðu inn-
flytjenda neikveiðari en ég man áður
eftir. Hún varð af einhverjum ástæð-
um líka fljótt svart/hvít.Annað hvort
var fólk á móti því að innflytjendur
kæmu til landsins eða hlynnt því.
Það er ákaflega mikil einföldun. Að
mínu viti er alveg eins hægt að
spyrja: Ertu með eða á móti Netinu?
Staðreyndin er sú að heimurinn
breytist og okkar hlutverk hlýtur að
vera að leita leiða til að bregðast við
breyttum aðstæðum og rækta sam-
félagið eins og það er og getur
þróast,“ segir Oddný.
Þau segja þessa umræðu hafa
hvatt sig til dáða og markmiðið var
strax að nálgast innflytjendur ekki
sem hagfræðihugtök heldur sem
manneskjur. Snemma ákváðu þau að
hafa börn í forgrunni og spyrja op-
inna spurninga, m.a. um sjálfsmynd
og þjóðerni. „Frá upphafi var ljóst
að Vegurinn heim myndi ekki snúast
um okkar persónulegu skoðanir á
innflytjendamálum heldur reynslu
viðmælenda okkar,“ segir Jón Gunn-
ar.
Afskaplega ánægjuleg vinna
Höfundarnir segja vinnuna við
myndina hafa verið afskaplega
ánægjulega, ekki síst kynnin af við-
mælendunum og fjölskyldum þeirra.
Myndin er hugsuð til kennslu í
grunn- og framhaldsskólum, auk
fullorðinsfræðslu, enda telja Oddný
og Jón Gunnar brýnt að fylgja sýn-
ingu hennar eftir með umræðum.
„Markmiðið var aldrei að sýna
myndina einu sinni í sjónvarpi, held-
ur að fara með hana inn í skólana.
Vonandi á hún eftir að verða kveikja
að uppbyggilegum umræðum um
innflytjendamál,“ segir Oddný.
Vegurinn heim er 26 mínútur að
lengd og hentar því vel til sýningar í
einni kennslustund.
Kennarar Kvikmyndaskóla Ís-
lands veittu ráðgjöf við gerð mynd-
arinnar og Karl Sigtryggsson að-
stoðaði við klippingu og mynd- og
hljóðvinnslu.
Vegurinn heim var styrkt af Evr-
ópu unga fólksins, Þróunarsjóði inn-
flytjenda (félags- og trygginga-
málaráðuneyti), Hagþenki,
Kvikmyndaskóla Íslands, Nýsköp-
unarsjóði námsmanna og Reykjavík-
urborg.
Fjölbreytt námsefni
Verkefnið vatt fljótt upp á sig og
fram kom sú hugmynd að semja
námsefni með hliðsjón af og til notk-
unar með myndinni. Því er ætlað að
dýpka skilning á reynsluheimi
barnanna í myndinni, styrkja vitund
um margbreytileika í íslensku sam-
félagi og setja hann í víðara sam-
hengi jafnréttis og mannréttinda.
Námsefnið er sérsamið fyrir fjóra
mismunandi aldurshópa – miðstig
grunnskóla, efsta stig grunnskóla,
framhaldsskóla og fullorðna.
Oddný og Jón Gunnar segja verk-
efnin einkar aðgengileg fyrir kenn-
ara. Þau eru fjölbreytt og stuðst er
við ólíkar kveikjur, t.d. er farið í
leiki, rýnt í umfjöllun fjölmiðla, vísað
í reynslu nemenda og tekist á við
flóknar spurningar. Leitast er við að
beita fjölbreyttum kennsluaðferðum
og hvatt til sjálfstæðra og skapandi
vinnubragða, m.a. er lögð áhersla á
samvinnunám og hópastarf. Nem-
endur taka þátt í hugflæði og stýrðri
umræðu, flytja fyrirlestra og rök-
ræða. Þeir leita að heimildum upp á
eigin spýtur, taka viðtöl og skrifa rit-
gerðir. Þá er unnið út frá leiklist og
farið í hlutverkaleiki.
Oddný og Jón Gunnar segja
námsefni af þessu tagi eiga brýnt er-
indi hér á landi. Reynslan sýni að í
fjölmenningarlegum samfélögum
Evrópu hafa fordómar gegn innflytj-
endum aukist í efnahagsþrengingum
eins og Íslendingar búa við í dag.
Innflytjendur verði iðulega blóra-
bögglar í vaxandi atvinnuleysi og
fjárhagsvanda. Fyrir vikið segja
Oddný og Jón Gunnar mikilvægt að
kenna umburðarlyndi og samstöðu
þegar harðnar á dalnum. „Málefni
innflytjenda eru í brennidepli og að
okkar mati er þetta mjög góð tíma-
setning til að kynna myndina og
námsefnið,“ segir Oddný og Jón
Gunnar kinkar kolli.
Umbóta þörf í skólastarfi
Að þeirra sögn hafa rannsóknir
auk þess sýnt að umbóta sé þörf í
skólastarfi til að koma til móts við
vaxandi fjölbreytni í íslensku sam-
félagi, t.d. hvað snertir menningu,
trúarbrögð og tungumál. „Margoft
hefur verið sýnt fram á að í námsefni
birtast ýmiss konar fordómar. Brýnt
er að bregðast við ríkri tilhneigingu
til að draga upp einhliða og ófull-
nægjandi mynd af minnihlutahóp-
um,“ segja Oddný og Jón Gunnar
sem vita ekki til þess að sambæri-
legt námsefni sé til á íslensku.
Fjöldi kennara og annarra sér-
fræðinga veitti ráðgjöf við gerð
námsefnisins og hópur nemenda í
kennslufræði samfélagsgreina við
Háskóla Íslands aðstoðaði við hug-
myndavinnu á byrjunarstigi. Hildur
Björk Pálsdóttir og Jón Þorgeir
Kristjánsson lögðu auk þess hönd á
plóginn við gerð verkefnisins en
hugmyndir eru uppi um að þróa það
áfram á vettvangi margmiðlunar.
Framundan hjá höfundunum er
kynning á myndinni og námsefninu
og vonast Oddný og Jón Gunnar til
að efnið verði komið í gagnið eigi síð-
ar en á næsta skólaári.
Áhugasömum er bent á að senda
fyrirspurnir á netfangið vegurinn-
heim@gmail.com. Einnig er hægt að
fá nánari upplýsingar á Snjáldru (e.
Facebook), á síðu sem ber einfald-
lega nafnið Vegurinn heim.
Hver vegur að heiman ...
Skólabörn Vegurinn heim er skreytt teiknuðum myndskeiðum eftir Unu Lorenzen. Fjöldi fólks lagði höfundunum lið meðan á vinnslu myndarinnar stóð.
Höfundar Oddný Helgadóttir og Jón Gunnar Ólafsson eru fólkið á bak við
heimildarmyndina Veginn heim og námsefnið sem tengist myndinni.
Vegurinn heim er ný
heimildarmynd þar
sem fimm börn innflytj-
enda á Íslandi ræða
um líf sitt og tilveru hér
á landi. Höfundar
myndarinnar eru
Oddný Helgadóttir og
Jón Gunnar Ólafsson.
Vegurinn heim
mbl.is | SJÓNVARP