Morgunblaðið - 30.08.2009, Síða 21
myndirnar hugsa ég með sjálfri mér
að þær hafi ekki verið nógu góðar til
að útfæra þær.“
Hún segir þetta þó ekki hafa átt
við þegar hún hannaði Hótel Þing-
holt. Þá hafi hún komið á svæðið þeg-
ar nýbúið hafi verið að rífa húsið sem
var á lóðinni og séð hótelið fyrir sér á
skömmum tíma, en hún lagði áherslu
á að andi íslenskrar náttúru svifi yfir
vötnum. Gulla segir að yfirleitt sé
erfitt að hanna saman arkitektúr og
húsgögn í kjallara, en hún er samt
ánægð með hvað henni tókst vel til á
Centerhóteli Þingholti.
„Þetta á að vera íslenskt huldu-
fólk,“ segir hún um grímurnar sem
blasa við gestum á vinstri hönd þegar
þeir ganga inn á hótelið. „Þar sem ég
var að hanna á Íslandi þótti mér við
hæfi að nota gamlar sögur af álfum
og huldufólki og lamparnir við rúmin
eru líka hugsaðir sem álfahattar.“
Á sama vegg og öðrum til viðbótar
er rennandi vatn og það á sína skýr-
ingu. „Mér líður alltaf vel í kringum
vatn og það er róandi inni á hótelinu
eftir að komið er úr ys borgarinnar.
Vatnsniðurinn er róandi.“
Náttúran er áberandi í verkum
Gullu. „Mér líður vel í náttúrunni og
þegar fólk fer í frí fer það gjarnan
annaðhvort upp í fjöll eða niður á
strönd. Því líður vel í náttúrunni.
Náttúruleg efni eru hlýleg inni á hót-
elum og ég nota þau til þess að fólki
líði vel. Vatn, lýsing og eldur eru ró-
andi.“
Í þessu sambandi bendir hún á að
nýlega hafi hún hannað diskótekið
My House í Hollywood. „Við
ákváðum að líkja eftir stóru heimili,
hönnuðum borðstofu, stofu og eldhús
þar sem barinn er, svefnherbergi og
fleira og nafnið er hugsað til þess að
draga fólk að – „come to my house
tonight“. Þetta er nú einn vinsælasti
klúbburinn í Hollywood.“
Ekkert óviðkomandi í hönnun
Gulla segir að þegar hún hafi unn-
ið hjá Richard Meier hafi hún eink-
um hannað byggingar sem slíkar.
Allt hafi verið samkvæmt ákveðnum
stöðlum og reglum, fagurt og frið-
sælt. Hjá Disney hafi hún hins vegar
gefið ímyndunaraflinu algerlega
lausan tauminn. „Þetta er allt saman
jafn skemmtilegt,“ segir hún. „Ég
hef gaman að velta því fyrir mér
hvaða tilfinning bærist í hótelgesti,
þegar hann virðir fyrir sér arkitekt-
úr hótelsins, innanhúss sem utan,
hvaða áhrif tónlistin hefur á hann,
lyktin og lýsingin í anddyrinu og svo
framvegis. Þegar við hönnuðum
Cabo Azul-hótelið í Los Cabos í
Mexíkó fann ég upp nöfn á bygging-
arnar, við hönnuðum öll húsgögn, lét-
um framleiða okkar eigin línu af
rúmfötum og sloppum ásamt því sem
við hönnuðum bygginguna að utan
sem innan. Við sáum um alla hönnun
frá smæstu hlutum upp í stærstu
byggingar.“
Nýtur lífsins
Síðan Gulla útskrifaðist úr skóla
hefur hún haft meira en nóg að gera
sem arkitekt. Þar til kreppan skall á í
fyrra. Þá var gert hlé á nokkrum hót-
elverkefnum. „Áður gerði ég nánast
ekkert annað en að vinna 16 til 18
tíma á dag en allt í einu hafði ég tíma
til þess að fara í jóga og fara á
ströndina. Ég hef alltaf viljað njóta
lífsins og núna, þegar ég er aftur
byrjuð að vinna á fullu, reyni ég samt
að hætta um kvöldmatarleytið svo ég
hafi tíma til þess að gera eitthvað
annað en að vinna. Þegar útlitið var
sem verst hugsaði ég með sjálfri mér
að ég færi bara til Bali að stunda jóga
og myndi synda kreppuna af mér en
síðan fengum við þessi stóru hót-
elverkefni í Arizona og Miami og
önnur ultu inn í kjölfarið. Ég horfi
alltaf á björtu hliðarnar og sagði við
vin minn, arkitekt, sem var allt í einu
án samstarfsmanna og kvartaði und-
an verkefnaskorti, að hann kæmist að
minnsta kosti heim í kvöldmat. Ég
hugsa yfirleitt jákvætt og spyr sjálfa
mig oft hvort okkar stærsta verkefni
í lífinu sé ekki bara að njóta þess.“
Kemur Íslendingum á framfæri
Gló veitingastaður og Robe Yoga-
setrið við Engjateig eru hönnuð af
Gullu. „Ég gerði þetta fyrir vini mína,
Guðna Gunnarsson og Guðlaugu Pét-
ursdóttur, og hef einmitt hug á að fá
þau með mér í samstarf vegna heilsu-
hótelsins sem ég er að gera í Arizona.
Þau mundu þá sjá um jóga og veit-
ingastaðinn þar. Eðlileg þróun á
skrifstofu okkar er að stíga eitt skref
til viðbótar og í stað þess að hanna
eingöngu hótelin ákváðum við að eiga
líka hlut í þeim og sjá um að hafa
hönd í bagga með reksturinn á þeim.
Við höfum áhuga á umhverfisvænni
hönnun og höfum fengið fjárfesta í lið
með okkur.“
Gulla segist hafa lagt áherslu á að
reyna að koma íslenskum iðn-
aðarmönnum og listamönnum á
framfæri erlendis og hafi fengið
nokkra listamenn til samstarfs við
sig. Hún hafi til dæmis fengið El-
ísabetu Ásberg til að gera eitt verk í
hvert hótelherbergi í tveimur hót-
elum, samtals 400 verk, Linda Svan-
bergsdóttir og Valgerður Ein-
arsdóttir í Secret North hafi búið til
nokkur eldstæði fyrir sig og Edda
Guðmundsdóttir, fatahönnuður og
stílisti í New York, hafi gert búninga
á starfsfólk hótela sem hún hafi
hannað. „Það er alltaf gaman að
tengja fólk saman og ef mér finnst
einhver gera eitthvað vel reyni ég að
aðstoða viðkomandi við að fá verk-
efni. Íslenskir hönnuðir og listamenn
eru margir hverjir mjög færir.“
Engin vandamál
Þegar Gulla er spurð um vandamál
í vinnunni brosir þessi jákvæða, unga
kona og hristir höfuðið. „Ég hef aldr-
ei lent í neinum vandræðum sem eru
alvarleg. Maður á að vera þakklátur
fyrir það sem maður hefur, dreyma
stórt og vinna nægilega mikið til þess
að láta drauma sína rætast. Ég held
að það sé mjög nauðsynlegt að hafa
gaman af vinnunni sem maður velur
sér. Það eru engin vandamál, bara
lausnir.“
Gulla hefur komið miklu í verk sem
arkitekt á skömmum tíma, er stöðugt
að hugsa um eitthvað nýtt, er sann-
kölluð bylgja framtíðarinnar. „Mér
finnst ég vera á einhverjum tímamót-
um núna og mig langar alltaf til þess
að gera eitthvað nýtt og spennandi.“
nar
Lýsing Gulla spilar á vatn, eld og lýsingu í hönnun sinni.
Barinn Gulla hugsaði fyrir öllum smáatriðum á Cabo Azul hótelinu í Mexíkó.
21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009
gítar
skóli ólafs gauks
Gítargaman
Innritun hefst á morgun, mánudag, 31. ágúst
Sláið á þráðinn í síma 588 3730, sendið tölvupóst, ol-gaukur@islandia.is
eða komið við í skólanum Síðumúla 17, kl. 14-17 virka daga
Kennsla hefst 21. september
FRÍSTUNDAKORT Í FULLU GILDI
• Skemmtilegt tónlistarnám, gulli betra
• Ævilöng inneign sem aldrei rýrnar
• Áratuga reynsla, þekking, fyrsta flokks
kennsla og einstaklega hlýlegt húsnæði
• Gítarar á staðnum, allt kennsluefni innifalið,
þar á meðal nýr geisladiskur með undirleik við
vinsælustu, íslensku sönglögin
• Lauflétt og lifandi gítarnám fyrir alla, yngri sem
eldri, byrjendur eða lengra komna
Lögum okkur tímabundið að aðstæðum og
LÆKKUM VERÐIÐ VERULEGA
hjá þeim sem innritast og ganga frá greiðslu fyrir 15. september
• Lánum gítara til heimaæfinga endurgjaldlaust meðan birgðir endast
• Glænýtt byrjendanámskeið er í boði. Það
heitir LÉTT OG LEIKANDI vegna þess hve
auðvelt og skemmtilegt það er!
ATH! Ný vefsíða: www.gitarskoliolafsgauks.com • Gítarskóli Ólafs Gauks er á Facebook