Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 23

Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 23
meiri peninga þurfti að auka við gullforðann. Í kerfinu í dag er bóluvöxturinn landlægur þar sem kerfið býr til peninga úr skuldum og hægt er að stofna nýjar skuldir nánast óheft eins og gefur auga leið. Efnahagskerfið er að hrynja að sögn Josephs sem segir Bandarík- in ekki munu geta staðið í skilum af vaxtagreiðslum eftir aðeins tíu ár og standi því andspænis gjald- þroti með tilheyrandi alvarlegum afleiðingum fyrir restina af heim- inum. Í áratugi hafi Bandaríkin flutt út sína eigin verðbólgu í krafti dollarans sem helsta greiðslumiðils heimsins. Þegar of erfitt reyndist að halda dollar inn- leysanlegum í gulli eða silfri hafi það fyrirkomulag einfaldlega verið lagt af í stað þess að draga saman seglin í bandaríska hagkerfinu. Bankahrunið, sem fólk hefur nú þegar orðið vitni að á Íslandi, og lausafjárkrísan á heimsvísu eru byrjunin á þessu ferli, að sögn Jo- sephs. Verðbólga rís og ríkið dælir peningum í kerfið því eina leiðin til að halda bönkunum gangandi er að prenta meiri peninga og eina leiðin til að prenta peninga er með því að stofna til meiri skulda og verð- bólgu. Það sé því aðeins tíma- spursmál hvenær fólk átti sig á þessu og hreinlega hætti að fá lán- að fé, vanskil fara þá að aukast og þá mun kerfið hrynja saman með látum, segir Joseph. Einhverjum kann að þykja þessi lýsing minna á ferlið sem Íslend- ingar hafa farið í gegnum á síð- ustu árum, sem endaði svo með hruninu í haust. Það ætti þó að vera enn meira áhyggjuefni, ef satt reynist, að á heimsvísu hefur kerfið verið við lýði í áratugi og hrunið ætti því að verða í réttu hlutfalli við það. Kerfið er svo varið af fólkinu sem ætti að stuðla að breytingum á kerfinu. Útópían spillir Þetta er kannski einna áhuga- verðast í Zeitgeist: Addendum með tilliti til þeirra sviptinga sem hafa orðið á Íslandi á síðustu mánuðum. Landsmenn hafa séð stjórnmála- menn taka 180 gráðu snúning í þjóðþrifamálum til að verja ríkjandi kerfi. Jacque Fresco, einn viðmælanda Peters Joseph, en hann er Íslandi kunnugur eftir heimsókn sína til landsins, segir reyndar einmitt í heimildarmynd- inni að stjórnmálamenn séu kosnir á þing, ekki til að breyta hlutum, heldur til að tryggja að allt haldist óbreytt. Karlinum, sem er 93 ára gamall róttæklingur með hug- myndir sem minna útópíu Karl Marx, virðist hafa ratast satt orð á munn þó auðvelt sé að efast um önnur áform hans. Fresco og maki hans Roxanne Meadows halda því fram að mað- urinn hafi ekki eðli heldur læri ákveðna hegðun. Þannig læri mað- urinn að verða gráðugur og for- dómafullur í umhverfi þar sem skortur er skipulagður og viðvar- andi. Venusarverkefni Jacques Fresco er af mörgum talin vera falleg hugsjón. Um er að ræða 85 þúsund fermetra sjálfbært sam- félag sem sett var á laggirnar árið 1975. Eini gallinn við hina fögru hugmynd Frescos er að hún er óframkvæmanleg nema sú menn- ing sem við þekkjum í dag verði þurrkuð út. Það má því allt eins segja að smá-fasistakeimur sé af fyrirætlunum Frescos því í sam- félagi hans mun fólki ekki leyfast að sinna hlutum sem ekki samrým- ast hugmyndafræði samfélagsins. Af þessu má vera ljóst að þó áhugaverðar kenningar komi fram í Zeitgeist: Addendum, sér í lagi hvað varðar hagkerfi nútímans, þá sé nauðsynlegt að vera afar gagn- rýninn og taka því sem fram kem- ur með góðum fyrirvara. Útópískar kenningar Frescos eru þannig fyrst og fremst fallnar til að draga úr trúverðugleika Peters Josephs sem annars nýtur mikils stuðnings í efnahagslegri gagnrýni sinni. Hvað tefur? Ísland er land þar sem tækifær- in til að breyta hagkerfinu eru sennilega meiri en víðast hvar annarsstaðar. Hvað tefur stjórn- völd frá því að nýta t.d. met- anframleiðslu á bíla í stað innflutts eldsneytis þegar t.d. ein hreinsi- stöð á sorphaugunum í Álfsnesi annar notkun 3000–4000 með- alstórra fólksbíla? Hvað með vetni og rafmagn? Hagsmunir ríkisins eru miklir af sölu eldsneytis enda skatttekjurnar himinháar, kannski of háar til að kerfið leyfi breyt- ingar. Öðrum þræði er kallað eftir notkun á viðvarandi orkugjöfum en á hinn veginn er ríkið svo að segja háð skatttekjunum. Sagt er að nauðsyn brjóti lög og í því sambandi má einstaka sinnum heyrast minnst á neyðarrétt þegar talað er um viðbrögð stjórnvalda við efnahagshruninu, en rauði þráðurinn í málflutningi Josephs er að róttækra úrræða sé þörf til að bylta kerfinu. Vestræn lönd sem orðið hafa fyrir barðinu á skulda- klafanum sem Joseph talar um væru tilvalin til að fara á undan með fordæmi þar sem nauðsyn brýtur lög, réttindi þjóðar yrðu sett ofar réttindum fjármagnseig- enda. Í myndinni hvetur Joseph einnig til þess að fólk byrji á sjálfu sér og láti efnishyggjuna lönd og leið. Í hnotskurn má segja að Zeit- geist: Addendum sé að mörgu leyti keimlík öðrum myndum sem halda samsæriskenningum á lofti. Það er þó eitt meginatriði sem greinir mynd Peters Joseph frá öðrum og það er að Joseph telur að það sé miklu frekar það kerfi sem við höf- um búið við sem stjórni sem væri það lifandi. Flestar aðrar samsær- iskenningar snúast um áhrifaríka hópa í heiminum, sem annaðhvort eru til – eins og Bilderberg- hópurinn, eða ekki til – eins og Ill- uminati-hópurinn úr bókum Dans Brown sem nú hafa verið kvik- myndaðar. Þannig sé hagkerfi heimsins stjórnað af kerfi sem mennirnir hafa búið til að sögn Jo- sephs. Peter Joseph skipar sér í hóp með mönnum sem hingað til hafa predikað að hagkerfi heimsins geti ekki gengið upp en þar má finna menn eins og Peter Schiff sem var- aði við efnahagshruninu árið 2006, Ron Paul öldungardeildarþing- mann sem hefur lengi þótt vera málsvari skynseminnar, hagfræð- inginn Jóhannes Björn sem hefur haldið úti vefsíðunni www.vald.org og Max Keiser sem gerði sér ferð til Íslands árið 2007 þar sem hann spáði hruni íslensks efnahags. Fyr- ir þá sem misstu af sýningu RÚV má benda á að Zeitgeist: Add- endum er dreift á netinu og hana má finna í fullri lengd og í miklum gæðum, meðal annars á Youtube. ar og skulda? 23 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009 VILTU ... ... ná forskoti? ... efla sjálfstraustið? ... verða betri í mannlegum samskiptum? ... bæta tjáningarhæfnina? ... efla leiðtogahæfileikana? ... draga úr áhyggjum streitu og kvíða? ... setja þér raunhæf markmið? ... bæta þig í tímastjórnun? Kynntu þér námskeiðin okkar á www.dalecarnegie.is eða í síma 555 7080 Beinum athyglinni að einstaklingnum á ný með Dale Carnegie þjálfun - upprunalegu og enn bestu leiðinni til að þróa mannlegu hliðina í viðskiptum. NÆSTU NÁMSKEIÐ: 8. september þriðjudagur kl. 18-22 16. september miðvikudagur kl. 18-22 7. október miðvikudagur kl. 8:30-12 FRÍR KYNNINGARTÍMI: 1. september þriðjudagur kl. 8:30-10 2. september miðvikudagur kl. 20-21:30 7. september mánudagur kl. 8:30-10 Hringdu núna og tryggðu þér sæti!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.