Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 26
26 Hryðjuverk
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
Á
rin 1799 til 1815 stóðu
Napóleónsstríðin yfir
um gervalla Evrópu og
teygðu áhrif stríðsins
sig svo langt sem til
Ameríku og Egyptalands. Napóleón
Bonaparte hafði með valdabrölti
sínu tekist að draga nánast allar
Evrópuþjóðirnar inn í þjáningar
stríðsins, þar með talið herraþjóð
Íslendinga, Dani, sem framan af
höfðu náð að halda hlutleysi sínu.
Stríðsreksturinn var á margan hátt
nútímavæddur á skelfilegan máta. Í
fyrsta skipti voru borgarar dregnir
með í svaðið í allsherjarstríði þar
sem fáum var hlíft. Notuð voru öll
tiltæk ráð til að reyna að sigra og
var ýmsum óblíðum og ógeðfelldum
meðulum beitt. Til dæmis voru
verksmiðjur teknar yfir í þágu hers-
ins, matvælaframleiðsla hverskonar
sömuleiðis og herkvaðningu var
beitt í fyrsta skipti skipulega og í
miklum mæli. Einnig tíðkuðust
árásir á óbreytta borgara og hótanir
um refsiaðgerðir. Í fyrsta skipti var
lítill greinarmunur gerður á her-
mönnum og borgurum í bardögum,
heldur var fólki fyrst og fremst
skipt í fylkingar og allir urðu að
vinna í þágu hersins á einn eða ann-
an hátt.
Afdrifaríkt fyrir Dani
Það var mögulega þessi þróun
sem varð til þess að Danir gátu ekki
forðast átökin á þessum árum. Dan-
ir höfðu reynt af fremsta megni að
halda hlutleysi sínu á meðan ná-
grannar þeirra sveifluðust á milli
bandalaga. Á þessum tíma var Nor-
egur hluti Danmerkur og fylgdi
landið því Danmörku að málum og
var því hernaðarmáttur Dana nokk-
ur þó ekki kæmist landið með tærn-
ar þar sem stórveldin höfðu hælana.
Meginmarkmið Dana var að halda
áfram ábatasömum viðskiptum við
bæði Breta og Frakka. Sá orðrómur
var hins vegar á kreiki að Napóleón
ætlaði sér að ráðast inn í Danmörku
og ná yfirráðum þar til þess að geta
beitt danska flotanum gegn þeim
breska.
Óánægja Breta með hlutleysi
Dana fór einnig vaxandi enda sök-
uðu Bretar Dani um að leyfa skipum
með hentifána að færa Frökkum
vistir. Danir höfðu framan af hagn-
ast gríðarlega á hlutleysi sínu, svo
mikið að Kaupmannahöfn var með
stærstu höfnum Evrópu á þessum
tíma, jafnvel stærri en Amsterdam
Hryllingur í Kaup
1801 Fyrri árás Breta á Dani var gerð árið 1801 en þá var danski herflotinn nánast þurrkaður út. Í það skiptið
sluppu þó borgarbúar við fallbyssukúlurnar þó fallbyssunum væri reyndar beint að borginni.
1807 vörðu Kaupmanna-
hafnarbúar sig fyrir Bret-
um í árás sem af mörg-
um hefur verið talin
fyrsta ógnarverk sem
beinlínis beindist gegn
borgurum til þess að
draga úr baráttuvilja
þeirra. Mannfall var mikið
og tjónið í höfuðborg
Dana gríðarlegt.
Undir lok seinni heimsstyrjaldarinnargerðu bandamenn grimmilega árás á
þýsku borgina Dresden.
Í febrúar 1945 voru Rússar að nálgast Dres-
den og borgin var full af flóttafólki sem vildi
frekar falla í hendur bandamanna en Rúss-
anna.
Líkt og í Kaupmannahöfn 1807 og Guernica
1937 þá var ástæða árásarinnar ekki sú að
eyða ætti hernaðarlega mikilvægum skot-
mörkum. Tilgangurinn var ekki einu sinni sá
að brjóta niður baráttuþrek Þjóðverja því í
raun var uppgjöf þeirra aðeins spurning um
daga.
Þó enn sé deilt um ástæður árásarinnar má
telja líklegt að bandamenn hafi viljað sýna
Rússum fram á hernaðargetu sína, vitandi að
Rússar myndu innan skamms ná Dresden á
sitt vald og þeir myndu þar með taka við sem
óvinir bandamanna að stríðinu loknu.
Dresden hafði fram að þessu sloppið við
loftárásir og því var borgin ósködduð en ein-
mitt þess vegna var mjög margt flóttafólk í
borginni, þar sem annars var talið að byggju
um 350 þúsund manns.
Þann 13. og 14. febrúar gerðu 1300 sprengjuflugvélar loftárás á Dresden og var 3300 tonnum af sprengjum varpað á
borgina, þar á meðal miklu af íkveikjusprengjum.
Afleiðingin var helvíti á jörð. Svo mikið eldhaf kviknaði í miðborg borgarinnar að súrefni úr kjöllurum húsa og í nágrenni
miðborgarinnar sogaðist að eldhafinu svo úr varð eldstormur þar sem hitinn náði næstum þúsund gráðum. Malbik breyttist
í sjóðandi tjörudrullu, ljósastaurar bráðnuðu og fólk fleygði sér í vatn hvar sem það fannst á flótta undan hitanum.
Talið er að á milli 35-130 þúsund manns hafi látist í árásinni en talan er mjög ónákvæm einmitt vegna flóttafólksins. Eftir
árásirnar tók tvær vikur að brenna líkamsleifar fólksins á torgi í miðborginni. August Kuklane, háttsettur SS-foringi sem sá
um líkbrennsluna, áætlaði eftir stríðið að 600 þúsund manns hefðu farist loftárásinni.
Eftirlifandi þýskur hermaður sem hafði barist á austurvígstöðvunum sagði árásina miklu meiri hrylling en það sem hann
hafði séð áður.
Um tólf vikum síðar stytti Hitler sér aldur og stríðinu var lokið.
Helvíti Þegar mikill eldur kviknaði í Dresden vegna notkunar
íkveikisprengna myndaðist eldstormur sem sogaði til sín súrefni úr
nágrenninu og náði hitinn í borgarmiðjunni næstum þúsund gráð-
um og því var öllu lífi eytt í stórum hluta Dresden. Rústir Frúar-
kirkjunnar sjást á miðri myndinni.
Dresden
Líklega er árásin áHiroshima ein sú
þekktasta úr seinni
heimsstyrjöldinni enda
markaði árásin nýja
tíma þar sem kjarn-
orkuvopni var beitt í
fyrsta skipti.
Hvert mannsbarn
ætti að þekkja söguna
um hvernig flugvélin
Enola Gay bar úraníum-
sprengjuna sem kölluð
var Litli strákurinn inn
yfir Hiroshima-borg þar
sem henni var sleppt
þann 6. ágúst 1945
klukkan 08:15. Á einu
augnabliki þurrkaðist
miðborgin út með um
80 þúsund íbúum.
Birtan frá sprenging-
unni var slík að skugg-
ar eftir fólk brenndust
á veggi og hitinn frá sprengjunni kveikti samstundis í eldfimu efni í allt að
tveggja kílómetra fjarlægð. Næst kom höggbylgja frá sprengingunni sem jafnaði
70% af Hiroshima við jörðu. Eftir árásina létust fleiri þúsundir til viðbótar vegna
geislavirkninnar.
Farmur Enola Gay var öflugri en árás tvö þúsund fullhlaðinna B-29 sprengju-
flugvéla hefði verið.
Tilgangur árásarinnar var eins og með Kaupmannahöfn, Guernica og Dresden
ekki að eyðileggja hernaðarlega mikilvæg skotmörk, heldur var tilgangurinn sá
að valda skelfingu og var árásinni því beint gegn óbreyttum borgurum.
Japönum voru settir úrslitakostir. Þessu vopni yrði beitt þangað til þeir gæf-
ust upp. Þremur dögum síðar var plútóníumsprengju varpað á Nagasaki og dag-
inn eftir skipaði keisarinn hernum að gefast upp.
Launsátur Þegar kjarnorkusprengjunni var
varpað á Hiroshima fór fólk á jörðu niðri ferða
sinna eins og vanalega enda allir grunlausir um
að ein flugvél gæti borið eyðileggingarkraft sem
áður þurfti 2000 flugvélar til að ná.
Hiroshima
Við styðjum
stelpurnar okkar!