Morgunblaðið - 30.08.2009, Blaðsíða 39
Umræðan 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009
• Rótgróin heildverslun með gjafavörur. Auðveld kaup.
• Lítil heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 80 mkr.
Hentar vel til sameiningar.
• Þjónustufyrirtæki sem selur um 600 fyrirtækjum þjónustu sína.
Ársvelta 100 mkr.
• Vinsælt veitingahús. Ársvelta 230 mkr.
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að þjónustu- og innflutningsfyrirtæki.
Ársvelta áætluð um 200 mkr. Ágætur hagnaður.
• Heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 170 mkr. Mjög skuldsett.
• Meðeigandi óskast að nýju framleiðslufyrirtæki. Reiknað er með 30-35%
árlegri ávöxtun eigin fjár næstu árin.
• Sérverslun með fatnað á góðum stað. Ársvelta 150 mkr. Góð framlegð.
• Iðnfyrirtæki í matvælaframleiðslu með mikinn og vaxandi útflutning.
Ársvelta 240 mkr.
• Rótgróið iðnfyrirtæki. Ársvelta 450 mkr.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 400 mkr.
Hagstæðar skuldir.
• Rótgróið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 130 mkr.
• Þekkt innflutningsfyrirtæki með eigin verslanir. Ársvelta 240 mkr.
EBITDA 35 mkr. Hagstæðar skuldir.
• Þjónustufyrirtæki sem selur fyrirtækjum lögbundna þjónustu með föstum
samningum. Ársvelta 170mkr.
Ég hef hafið störf
á tannlæknastofunni
í Vesturturni Glæsibæjar
4.hæð, Álfheimum 74
Tímapantanir
í síma: 561 3130
Vilhelm Grétar Ólafsson, tannlæknir
NÚ Á þessum sum-
ardögum höfum við
minnst þess, að 200 ár
eru liðin frá því að
Jörgen Jörgensen kom
hingað til landsins og
kom á byltingu á lang-
varandi stjórn Dana
yfir landi okkar. Stjórn
Jörundar entist aðeins
nokkrar vikur. Lauk
henni raunverulega 22.
ágúst 1809, þegar þeir Stephensen
bræður tóku við völdum af Jörundi í
fjarveru Trampe greifa. Margt hef-
ur verið fróðlegt sagt um þessa veru
Jörundar hér og skrifaðar hafa verið
fræðilegar greinar og góðar bækur
um atburðinn og ævi Jörundar.
Mörgum finnst þessi viðburður æv-
intýralegur og jafnvel skoplegur. Er
ekki laust við, að enn ríki hjá okkur
sama álit og haft var, þegar Jörundi
var steypt af stóli. Þá var aftur tekið
upp danskt viðhorf til þessa þáttar í
sögu landsins. Embættismenn hallir
undir Dani tóku þá aftur við völdum.
Gerðu þeir gys að byltingunni. Var
litið á athæfi Jörundar sem grát-
broslegan leik og „narraspil".
Jörundur hefur verið kallaður
hundadagakonungur. Sjálfur leit
hann ekki á sig sem konung, og ætl-
aði aðeins að hafa
stjórn á landinu um
tíma eða vera verndari
og hæstráðandi til sjós
og lands fram til 1. júlí
1810, þegar hann ætl-
aði, að eðlilega kjörin
landstjórn tæki við
völdum.
Jörundur lýsti Ís-
landi frjálsu og hlut-
lausu landi, sem var
óháð Dönum. Hann
kom á langþráðu versl-
unarfrelsi og hann skipaði svo fyrir
að forgangsmenn landsins og lög-
sagnar skyldu engir valdir nema
innfæddir Íslendingar.
Hefði stjórn Jörundar haldist,
hefði Ísland orðið „forustuland í al-
mennum kosningarétti,“ því Jör-
undur vildi gefa allri alþýðu kosn-
ingarétt og íhlutunarrétt um stjórn
landsins. Jafnvel Frakkland, eftir
byltinguna, hafði þá ekki almennan
kosningarétt.
Síðan fengum við okkar eigin
fána, sem var blár feldur með teikn-
ingum af þremur flöttum þorskum.
Þessar ráðstafanir voru allar gerðar
án nokkurrar blóðsúthellingar og al-
þýða manna tók þessu með spekt.
Ég hygg að við Íslendingar höfum
ekki metið þessa frelsisviðleitni Jör-
undar að verðleikum. Jörundur reið
á vaðið í frelsisbaráttu okkar lands-
manna. Þegar Fjölnismenn hófu
sína baráttu, þá höfðu þeir viðleitni
Jörundar að leiðarljósi. Þeir sáu, að
Íslandi gat farnast vel sem fullvalda
ríki. Að sjálfstæði þess bæri að
stefna.
Ég hef hugleitt, að við ættum að
lyfta Jörundi á hærri stall í sögu
okkar og meta þátt hans betur í
frelsisbaráttu landsins.
För til Tasmaníu
Breski skipherrann Alexander
Jones kom hingað til landsins um
miðjan ágústmánuð 1809 og kom í
veg fyrir áframhaldandi stjórn Jör-
undar. Fór Jörundur af landi brott á
skipinu Orion hinn 24. ágúst og hélt
aftur til Englands.
Seinna var hann fluttur sem fangi
á skipi til Hobart í Tasmaníu. Svo
merkilega vildi til, að þar koma aftur
margir ágætir mannkostir Jörundar
í ljós.
Ég og Sigrún kona mín reyndum
eitt sinn að leita uppi sagnir um
þetta æviskeið Jörundar. Héldum
við til Tasmaníu og komum fyrst að
norðurströnd eyjarinnar, sem liggur
fyrir sunnan Ástralíu. Fórum við þar
strax upp til fjalla.
Við ferðuðumst síðan í rútu suður
um eyna vestanverða og komum að
lokum til höfuðborgarinnar Hobart.
Þar á safni fengum við að skoða
skjöl og önnur rituð gögn viðvíkjandi
veru Jörgen Jörgensen í Tasman-
íu. Voru okkur afhentir tveir
bunkar í möppum, vorum við
lengi dags að fletta þessum plöggum
og fengum ljósrit af sumum þeirra.
Jörundur giftist írskri stúlku, sem
hét Norah Corbett. Voru þau vígð af
prestinum H. R. Robinson 25. jan-
úar 1831. Jörundur sótti um náðun
fyrir sig og konu sína og fékk lausn
1835. Jörundur fékk lungnabólgu og
dó á Nýlenduspítalanum 20. janúar
1841. Hafði hann þá átt heima í húsi
á Watchhorn stræti 4 í Hobart.
Hann var talinn vera 5 fet og 71⁄4
tommur að hæð, með dökkbrúnt hár
og blá augu. Staða hans var skráð
sem farmaður.
Jörgen skrifaði æviágrip sitt, heil-
mikið af ferða- og landlýsingum,
heimspekilegar ritgerðir, leikrit og
lýsingar á innfæddum. Mest af
þessu hefur verið prentað, en þó
ekki allt.
Samtíðarmenn Jörundar í Hobart
voru grafnir í St. Davids kirkjugarði
þar í borg. Þeim garði hafði nú verið
breytt í lystigarð og hafði öllum leið-
um verið jafnað við jörðu, en leg-
steinar fluttir á einn stað. Enginn
steinn hafði verið við leiði hunda-
dagakonungsins frá Íslandi. Við leit-
uðum í dánarregistrum, en fundum
þar ekki nafn Jörundar. Þar lifir
samt enn minningin um þann merka
landkönnuð Jörgen Jörgensen.
Ég setti saman vísu um þann
ágætis mann, og læt hér fylgja sýn-
ishorn af þeim kveðskap.
Ég fylltist því angri, er agndofa sá,
að enginn var reistur þar varði
þeim íslenska kóngi er látinn þar lá
án legsteins í almenningsgarði.
Gröf Jörundar er ekki varðveitt,
og ekki var neinn varði á hans leiði.
Mér hefur hins vegar dottið í hug að
við Íslendingar ættum að minnast
Jörundar hér með einhverju virðu-
legu minnismerki.
Virðum minningu Jörundar
hundadagakonungs
Eftir Sturlu
Friðriksson
» Fyrsta tilraun til lýð-
veldisstofnunar á Ís-
landi á 19. öld.
Sturla Friðriksson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Jörundur hundadagakonungur
Í MORGUN-
BLAÐINU 27. ágúst
2009 er furðuleg frétt
sem fellur undir fyr-
irsögnina í grein þess-
ari.
Fréttamaðurinn
heldur því fram að fyr-
irtækið Eimskipafélag
Íslands sem nú er talið
gjaldþrota hafi verið
stofnað 17. janúar
1914. Slík sögufölsun er með ólík-
indum á öld þekkingar með aðgengi
að öllum upplýsingum ef leitað er
eftir því.
Það fyrirtæki sem ber nafn Eim-
skipafélags Íslands á ekkert sam-
merkt með óskabarni þjóðarinnar
annað en nafnið. Fyrirtæki þetta
hefur verið í nafnaflakki og hét þeg-
ar það var stofnað 1988 samkvæmt
kennitölu Atlanta hf. (sjá skráningu
fyrirtækjaskrár Ríkisskattstjóra).
Einu sinni eða tvisvar var nafni
breytt eftir að útrásarvíkingar
keyptu fyrirtækið. Mistökin við að
leggja Óskabarn þjóðarinnar, Hf.
Eimskipafélag Íslands, niður með
því að leggja það undir Burðarás
sem síðan var skipt upp á milli
Landsbankans og Straums sem hét
eftir það Straumur-Burðarás var í
ætt við framhaldið. Framkvæmd
þessara gjörninga varð á árunum
2004-2006.
Það að Hf. Eim-
skipafélagi Íslands var
lógað og það sett undir
Burðarás var ekki
hægt án þess að fyr-
irtækið Eimskipafélag
Íslands væri aflagt. Ef
fyrirtækið var lagt til
hliðar og eignir þess
hirtar með færslu í
annað fyrirtæki hefði
verið um hreinan
þjófnað að ræða. Þar
sem slíkur gjörningur
að geyma fyrirtækið Eimskipafélag
Íslands sem eitthvert skúffufyr-
irtæki fyrir útrásarvíkingana til
notkunar seinna meir hefði verið
brot á stjórnarskrá Lýðveldisins Ís-
lands. Eignarréttarákvæði stjórn-
arskrárinnar er það skýrt að skúffu-
fyrirtækjavæðing
útrásarvíkinganna hefði aldrei
gengið upp vegna þess ákvæðis að
eignir manna séu friðhelgar. Við
hluthafar í Hf. Eimskipafélagi Ís-
lands sem ekki voru sáttir við gjörð-
ir útrásarvíkinganna hefðum aldrei
samþykkt slíkan skrípaleik. Þar af
leiðandi var Hf. Eimskipafélag Ís-
lands stofnað 17. janúar 1914 lagt
niður eins og fram kemur í gögnum
fyrirtækjaskrár Ríkisskattstjóra-
embættisins.
Sú sögufölsun að reyna að eigna
hinu sögufræga fyrirtæki sem gekk
undir gælunafninu Óskabarn þjóð-
arinnar þá smán sem felst í því
gjaldþroti sem boðað er í umræddri
grein og þær upplýsingar að verið
sé að stofna nýtt fyrirtæki sem bera
á nafnið Nýja Eimskipafélag Ís-
lands er mönnum ekki sæmandi og
síst af öllu fréttamönnum sem telja
sig flytja sannleikann og ekkert
annað en sannleikann í sínum skrif-
um.
Nafnaflakkið á fyrirtækinu Atl-
anta hf. eftir að það komst í eigu út-
rásarvíkinga er eftir öðru á vett-
vangi íslenskra fjármála og er í anda
skúffufyrirtækjaeigna þeirra sem
taldir hafa verið útrásarvíkingar.
Hf. Eimskipafélag Íslands sem
stofnað var 17. janúar 1914 á ekkert
sameiginlegt með því fyrirtæki sem
sagt er vera gjaldþrota nema nafnið
hefur verið vakið upp eins og ein-
hver vúdú gjörð uppvakninga.
Sögufölsun eða vanþekking
Eftir Kristján
Guðmundsson » Þar af leiðandi var
Hf. Eimskipafélag
Íslands stofnað 17. jan-
úar 1914 lagt niður eins
og fram kemur í gögn-
um fyrirtækjaskrár
Ríkisskattstjóraemb-
ættisins.
Kristján Guðmundsson
Höfundur er fv. skipstjóri.@
Fréttir
á SMS