Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 44

Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009 Eitt síðasta verk Al- þingis fyrir þinghlé var að festa „sykurskatt- inn“ svonefnda í lög frá og með 1. september. Sú 15%-20% verðhækk- un sem hann mun hafa í för með sér á algengri matvöru, væri kannski þolanlegri, ef skatt- takan væri í takt við þau lýðheilsulegu markmið, sem lögð voru að sögn stjórnvalda til grund- vallar álagningunni. Því er þó ekki að heilsa. l upprifjunar kynntu stjórnvöld um miðjan maí hugmyndir um skatttöku á sykri í lýðheilsulegum tilgangi. Veruleg umræða spannst í kjölfarið, aðallega á milli þeirra sem töldu sterk lýðheilsuleg rök mæla með slíkum sykurskatti, m.a. með hliðsjón af tannheilsu barna og aukinni ofþyngd og svo hinna sem bentu á helstu ann- marka málsins, aðallega með tilliti til sjónarmiða er varða atvinnu og fram- kvæmd innheimtunnar. Þessi um- ræða er ekki ný af nálinni og snertir ýmis vandmeðfarin svið, ekki hvað síst það sem snýr að framkvæmd slíkrar neyslustýringar. Reynslan hefur enda margsýnt að neyslustýr- ingarskattar geta haft ýmsar hlið- arverkanir í för með sér, sé ekki nægilega vel eða fag- lega að málum staðið. Neyslan getur færst yfir á aðrar „óæski- legar“ vörur og fram- leiðslu- eða atvinnu- greinum verið mismunað, svo að fátt eitt sé nefnt. Ný vandamál koma í stað þeirra sem á að leysa. Löngu úrelt og óréttlátt vöru- gjaldakerfi end- urvakið Nokkrar getgátur voru uppi um hvernig staðið yrði að þessari nýju og umdeildu skattlagningu, en al- mennt var gert ráð fyrir að farin yrði gagnsæ og vandlega rökstudd leið með hliðsjón af þeim hags- munum sem í húfi eru fyrir ekki að- eins innlenda atvinnustarfsemi, heldur einnig neytendur – skatt- greiðendurna. Óhætt er að full- yrða, að jafnvel svartsýnustu menn áttu þó ekki von á þeirri niðurstöðu sem málinu var valin í endur- upptöku á löngu úreltu og óréttlátu vörugjaldakerfi. Þessi niðurstaða er illskiljanleg, sér í lagi með hlið- sjón af því að löggjafinn hefur skil- ið íslenskar landbúnaðarafurðir – rétt eina ferðina – undan þeim álögum sem öðrum atvinnurekstri í matvælaiðnaði er ætlað að bera. Telst sykur í mjólkurvörum nú allt í einu hollari en sykur í safa, sultu eða kexi? Heggur sá er hlífa skyldi Þrátt fyrir versnandi rekstr- araðstæður fyrirtækja, hafa stjórn- völd ákveðið að taka upp einn vægðarlausasta neysluskatt sem fyrir finnst, sem leggst flatt á heildsöluverð og magnar upp aðrar álögur eins og virðisaukaskatt. Vörugjöldin munu hækka algengar neysluvörur á borð við safa, kex og sultur um 15-20% frá og með næstu mánaðamótum. Geng- ishrakningar krónunnar hafa valdið verulegum hækkunum á hráefniskostnaði og svigrúm framleiðenda til að taka á sig hluta gjaldtökunnar er af þeim sökum lítið og ekkert til skemmri tíma lít- ið. Í viðbót við umtalsverða kjara- skerðingu, er almenningi síðan gert að þola nýjan matarskatt, sem mun hækka innkaupakörfuna í verði og þyngja greiðslubyrði verðtryggðra lána sökum hækk- andi neysluvísitölu. Það má því ljóst vera, að höggið sem stjórn- völd reiða jafnt innlendum mat- vælaiðnaði sem almenningi verður þungt. Að kenna þessi ósköp við heilsu- eflingu þjóðarinnar bítur höfuðið af skömminni. Greinarmunur er gerður á sykruðum mjólk- urdrykkjum og ávaxtasafa, búvör- unni í hag, svo lítið dæmi sé nefnt. Var allt heilsutalið í vor ekkert annað en skálkaskjól fyrir illa út- færðan matarskatt á algengar neysluvörur sem standa utan ís- lenska búvörukerfisins; óréttláta skatttöku sem grefur enn frekar en orðið er undan störfum í mat- vælaiðnaði og lífskjörum almenn- ings? Sykurskattur: Lýðheilsa eða lýðskrum? Eftir Hjalta Nielsen » Almenningi er gert að þola nýjan mat- arskatt sem mun hækka matarkröfuna enn frek- ar í verði og þyngja greiðslubyrði verð- tryggðra lána. Hjalti Nielsen Höfundur er framkvæmdastjóri Kexverksmiðjunnar Fróns. FRÁBÆRT KAUPTÆKIFÆRI – ESJUMELUR, KJALANESI Húsavík – GOTT ORÐSPOR – TRAUST VIÐSKIPTI Gott 452 fm iðnaðarhúsnæði á einni hæð auk tveggja millilofta sem er í báðum endum hússins. Milliloftin eru ekki skráð hjá Fasteignamati ríkisins. Fm tala hússins er því meiri en segir hér að ofan. Eignin skiptist í stóran sal og starfsmannaað- stöðu. Kaffistofa er á léttu millilofti í vesturenda hússins en milliloft í austurenda. Lofthæð er frá ca 4 m og upp í ca 7 m. Stórar innkeyrsludyr er á vesturenda hússins með ca 4 m lofthæð en að auki er ein með ca 3 m lofthæð og tvær aðrar minni. Í dag er rekin gluggasmiðja í húsinu. Lóð er 3000 fm og því gott athafnasvæði í kringum húsið. Byggingareitur er 1.200 fm og því hægt að byggja við húsið ca 750 fm, ef ekki meira miðað við það sem aðrir hafa gert á þessu svæði. Óskað er eftir tilboðum. Nánari upplýsingar veitir Elías 898-2007. Elías Haraldsson lögg. fasteignasali Reynir Björnsson lögg. fasteignasali BORGARTÚN 29 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net REYNIR BJÖRNSSON ELÍAS HARALDSSON L Ö G G. FA S T E I G N A S A L A R Landfestar ehf. óska eftir tilboðum í Sætún 8 í Reykjavík. Hægt er að gera tilboð í: a) Heildareignina, þ.e. allt svæðið með byggingum b) Kaaberhúsið eitt og sér, með sérafnotalóð c) heildareignina, að Kaaberhúsinu undanskildu Hægt er að skoða eignirnar milli klukkan 11 og 12 alla virka daga. Nánari upplýsingar um stærðir, eignaskiptasamning, afstöðumyndir og aðrar forsendur má nálgast á www.landfestar.is Tilboðum skal skila fyrir kl. 16:00 þann 11. september á skrifstofu félagsins, Suðurlandsbraut 22 á 3. hæð. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Landfestar ehf. eru fasteignafélag í eigu Nýja Kaupþings banka. Markmið félagsins er að þróa öflugt fyrirtæki á fasteignamarkaði. Félagið hefur til umráða um sextíu þúsund fermetra af góðu húsnæði. Stærsti hluti þess er skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meðal helstu leigutaka félagsins eru bæði ríkisstofnanir og nokkur af stærri fyrirtækjum landsins. Landfestar ehf. sími 422 1400 www.landfestar.is F A S T E I G N A F É L A G Til sölu Sætún 8 í Reykjavík Reykjavík Sími 588 9090 Síðumúla 21 • 108 Reykjavík www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali Einbýlishús í Vesturbæ eða Þingholtunum óskast Traustur kaupandi óskar eftir 250-350 fm einbýlishúsi í vesturborginni eða þingholtunum. Staðgreiðsla í boði fyrir rétta eign. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali í síma 861-8514 Til sölu eignaland í Grindavíkurkaupstað Til sölu er u.þ.b. 80% eignarhluti í Þórkötlustaðarlandi sem telst vera um 2.500 ha og nær frá Þórkötlustaða- nesi og upp fyrir Litla Skófell. Eignarhluti þessi er seld- ur með öllum gögnum og gæðum, þ.m.t. hita- og kaldavatnsréttindum, réttindum til námatöku og reka- hlunnindum. Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Reykjaness í síma 533 4455 eða GSM 863 7313. Reykjavík Sími 588 9090 Síðumúla 21 • 108 Reykjavík www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali Sumarbústaður við vatn óskast – staðgreiðsla Traustur kaupandi óskar eftir 80-130 fm vönduðum sumarbústað við vatn, gjarnan innan klukkustundar aksturs frá Reykjavík. Staðgreiðsla í boði. Nánari upplýsingar veita Geir Sigurðsson eða Sverrir Kristinsson löggiltir fasteignasalar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.