Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 54
54 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009
Sudoku
Frumstig
4
6 2 4
8
5
7 1 2
8 6 2 3 1
7 5
9 7 2
4 9 8
7 5 8 2
3
1 7 9
1
8 5 9 3
2 3 6
1 8
3 6
1 4 5
7 9 1
5 6
1 7 4
4 8
4 8 3
3 7
9 6
5 2 4
1 6 2 9
5 9 2 7 4 8 1 6 3
1 4 7 3 6 5 8 2 9
8 6 3 9 2 1 4 7 5
4 7 8 6 9 2 3 5 1
3 5 6 1 8 4 7 9 2
2 1 9 5 3 7 6 4 8
6 8 1 2 7 9 5 3 4
7 2 4 8 5 3 9 1 6
9 3 5 4 1 6 2 8 7
5 3 1 2 8 7 6 9 4
6 7 8 4 5 9 3 2 1
4 2 9 3 1 6 8 7 5
2 9 7 5 4 3 1 8 6
3 6 4 1 9 8 7 5 2
8 1 5 6 7 2 4 3 9
1 4 3 7 2 5 9 6 8
7 8 2 9 6 4 5 1 3
9 5 6 8 3 1 2 4 7
8 7 9 6 1 5 4 2 3
4 1 5 3 2 9 6 8 7
2 3 6 4 8 7 9 1 5
1 4 8 5 3 2 7 9 6
7 6 3 1 9 4 2 5 8
9 5 2 7 6 8 1 3 4
5 8 4 2 7 1 3 6 9
6 9 1 8 4 3 5 7 2
3 2 7 9 5 6 8 4 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 30. ágúst,
242. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Enn sagði hann við þá:
„Gætið að, hvað þér heyrið. Með þeim
mæli, sem þér mælið, mun yður mælt
verða og við yður bætt.“ (Mk. 4, 24.)
Víkverji á kunningja sem hefurkomið sér vel áfram í lífinu, er í
afar vel launaðri vinnu og á eignir.
Hann getur leyft sér meira en flestir
aðrir. Þessi maður á stálpuð börn og
gætir þess vel að þau verði ekki vör
við ríkidæmið því hann segir að það
myndi verða þeim óhollt. Á sumrin
fara börn hans í sumarvinnu þótt
hann hafi sannarlega efni á að halda
þeim uppi með ríkulegum vasapen-
ingum. Eitt er það þó sem þessi góði
kunningi Víkverja borgar umyrða-
laust fyrir börn sín – og það eru bæk-
ur. Ef þau biðja um bók þá fá þau
hana.
x x x
Víkverji er afar hrifinn af uppeld-isaðferðum þessa vel stæða
kunningja síns og er bjargfastlega
þeirrar skoðunar að börnin muni
verða jafn heilsteyptir einstaklingar
og faðir þeirra.
x x x
Víkverji er afar ánægður meðnýja bókaverslun Eymundsson
á Skólavörðustíg. Búðin er ekki stór
en björt og hlýleg. Afgreiðslufólkið
er líka svo glatt og viðræðugott að
það er gaman að líta þarna inn. Eini
gallinn er sá að eins og í öðrum ís-
lenskum bókaverslunum er úrvalið
af erlendum bókum heldur snaut-
legt. Enn einn fylgifiskur krepp-
unnar sem stöðugt bankar upp á og
minnir á sig. Víkverji hlakkar ein-
læglega til þeirrar stundar þegar ís-
lenska krónan hefur jafnað sig og
bókabúðir fyllast aftur af úrvali er-
lendra bóka.
x x x
Víkverji er að lesa Oliver Twisteftir Charles Dickens. Vit-
anlega les hann söguna á ensku því
þótt hún hafi verið þýdd á íslensku
er sú þýðing stytting og allt frá því
Víkverji varð fullorðinn vill hann
bara lesa óstyttar bækur. Víkverji
verður að viðurkenna að hann verður
oft klökkur við lesturinn því þarna er
svo óskaplega margt sorglegt. Hann
tekur líka oft andköf vegna aðdáunar
á hæfileikum höfundarins. Charles
Dickens var meistari skáldsagna-
formsins. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 málgefin, 4
afdrep, 7 hafna, 8 rán-
dýr, 9 pest, 11 sárabindi,
13 skordýr, 14 ginna, 15
listi, 17 vindleysa, 20
liðamót, 22 skóflar, 23
stingurinn, 24 flýtinn, 25
starið.
Lóðrétt | 1 kunnátta, 2
spila, 3 teikning af ferli,
4 regndemba, 5 slétta, 6
blundar, 10 fuglinn, 12
ná húð af, 13 poka, 15
samtala, 16 innheimta,
18 krafturinn, 19 óhróð-
urinn, 20 orgar, 21 borð-
um.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 næturgagn, 8 fælin, 9 lofar, 10 und, 11 súrir,
13 urðar, 15 Spánn, 18 balar, 21 áll, 22 stirð, 23 ussar,
24 sunnudags.
Lóðrétt: 2 ætlar, 3 unnur, 4 guldu, 5 gáfuð, 6 ofns, 7
hrár, 12 inn, 14 róa, 15 sess, 16 átinu, 17 náðin, 18
blund, 19 lúsug, 20 rýrt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. e3 e6
5. Rf3 Rbd7 6. Dc2 Bd6 7. Bd3 O-O
8. O-O dxc4 9. Bxc4 a6 10. Hd1 b5
11. Be2 Dc7 12. e4 e5 13. g3 He8 14.
a3 exd4 15. Rxd4 Be5 16. Bf3 c5 17.
Rf5 Rb6 18. a4 b4 19. a5 bxc3 20.
axb6 Dxb6 21. bxc3 Hb8 22. Bd2
Db3 23. Dc1 Bb7 24. Hb1 Da4 25.
Ha1 Db3 26. He1 g6 27. Rh6+ Kg7
28. g4 Dc4 29. Bf4 Dxc3 30. Bxe5
Dxe5 31. g5 Rxe4 32. Bxe4 Bxe4 33.
Rg4 Dd4 34. Rf6 He5 35. Df4 Hb4
36. Had1
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir nokkru í Martuni í
Armeníu. Armenski stórmeistarinn
Samvel Ter-Sahakyan (2.480) hafði
svart gegn landa sínum og kollega
Tigran Kotanjian (2.580). 36.
…Hxg5+! 37. Dxg5 Dxf6 38. Dxc5
og hvítur gafst upp um leið.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Skriffæri.
Norður
♠D
♥G54
♦Á1098765
♣82
Vestur Austur
♠G1076 ♠9854
♥ÁKD102 ♥98763
♦DG ♦K43
♣Á9 ♣3
Suður
♠ÁK32
♥–
♦2
♣KDG107654
Suður spilar 6♣.
Ertu með blað og blýant? Ekki það?
Nú, jæja. Það má vera að þú getir gert
þetta í huganum. Eftir opnun vesturs á
1♥ stökk norður í 3♦ og austur síðan í
4♥. En það var suður átti hæsta stökk-
ið – í 6♣. Vestur fékk vitrun: spilaði út
♣Á og meira laufi. Yfir til þín.
Þú dælir út trompum og fylgist vel
með. Þegar átta spil eru eftir á vestur
alla spaðana fjóra, ♥ÁK og ♦DG. Þú
lumar enn á þremur trompum og spilar
því þriðja síðasta og neyðir vestur til
að henda spaða (hendi hann rauðu spili
geturðu annaðhvort fríað ♥G eða
trompsvínað fyrir ♦K). OK – austur er
þá einn um að valda spaðann. Nú tek-
urðu ♠D, trompar hjarta heim, tekur
♠ÁK og síðasta trompið: Tvöföld kast-
þröng, takk fyrir.
Ertu viss um að þú viljir ekki skrif-
færi?
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert í góðu jafnvægi andlega
sem líkamlega og mátt ekki láta neitt
verða til að trufla það. Vertu umfram allt
sannur.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér finnst eins og önnur hver
manneskja vilji leita ráða hjá þér og þú
sjáir ekki út úr verkefnum þess vegna.
Slakaðu á, þetta tímabil er liðið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Af hverju virðist sannleikurinn
ekki heiðarlegur? Skoðaðu málið í víðu
samhengi. Kynntu bara málstað þinn af
festu. Annars siturðu bara uppi með
brotið hjarta.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þig langar að brjóta af þér hlekki
vanans. En ef innri rödd þín er ekki
nægilega hávær þá hlustar þú ekki.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú hefur hundrað hugmyndir um
hvað á að gerast næst. Njóttu velgengn-
innar á meðan þú hefur byr í seglin.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ný tækni í vinnunni mun hugs-
anlega skjóta þér skelk í bringu í dag. Nú
er rétti tíminn til að ganga að samninga-
borði en lestu smáa letrið vel.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú þarft að melta þá hluti sem nú
valda þér hugarangri. Forðastu að vera
með stóryrtar yfirlýsingar um líf ann-
arra.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Hópvinna er líkleg til þess að
ganga vel í dag og þú kemur miklu í verk
með fulltingi annarra. Taktu þetta með í
reikninginn og reyndu að líta sem best
út.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þótt mikið fjör ríki þessa
stundina og gaman sé að taka þátt í því,
máttu ekki gleyma alvöru lífsins. Vertu
þolinmóður og hlustaðu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Íhugaðu hvatvísina í þér. Vertu
einlægur og segðu hug þinn allan því þá
munu aðrir standa með þér í gegnum
þykkt og þunnt.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert að glíma við verkefni
sem krefst mikils af þér. Vertu opinn fyr-
ir heppninni með því að draga engar
ályktanir um hvað gera mun.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú gerir rétt í því að undirbúa
málin vandlega því þá getur þú óttalaus
ýtt þeim úr vör og stýrt til sigurs. Haltu
þínu striki því sumum er ekki sjálfrátt
vegna eigin mistaka.
Stjörnuspá
30. ágúst 1935
Íslenska ríkið eignaðist Geysi í
Haukadal og hverasvæðið um-
hverfis hann, en svæðið hafði
verið í eigu útlendinga í tíu ár.
Sigurður Jónasson gaf fé til
kaupanna.
30. ágúst 1945
Gídeonfélagið var stofnað, „til
að útbreiða Guðs orð“. Félags-
menn hafa komið Biblíunni
eða Nýja testamentinu fyrir á
hótelherbergjum, í skipum,
við sjúkrarúm og í fangaklef-
um. Síðan 1954 hafa öll tíu ára
börn fengið Nýja testamentið
að gjöf frá félaginu.
30. ágúst 1967
Tvær stórar vöruskemmur
Eimskipafélagsins við Borgar-
tún í Reykjavík brunnu en í
þeim voru þúsundir tonna af
vörum. Eldurinn kom upp
skömmu fyrir miðnætti þenn-
an dag og börðust slökkviliðs-
menn við hann í röskan sólar-
hring. Eignatjón í þessum
bruna, Borgarskálabrunanun,
var hið mesta í eldi til þess
tíma.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Ragnar S. Hall-
dórsson verk-
fræðingur og
fyrrverandi for-
stjóri, verður átt-
ræður 1. sept-
ember. Þann dag
taka hann og
kona hans Mar-
grét K. Sigurðar-
dóttir á móti vinum og vandamönn-
um í Miðgarði á Grand Hótel, við
Sigtún Reykjavík, frá kl. 17 til 19.
Blóm og gjafir vinsamlega afþökk-
uð.
80 ára
Það verður ekki mikið tilstand hjá Hallveigu
Thorlacius brúðuleikara sem í dag fagnar 70 ára
afmæli. Hún sagðist hreinlega ekki hafa tíma til að
halda upp á afmælið þegar Morgunblaðið talaði
við hana í gær. Hún var þá á námskeiði sem hún
kallar leikmyndaverkstæði. Hallveig og Helga
Arnalds, dóttir hennar, eru þessa dagana að und-
irbúa uppsetningu á nýju verki, Laxdælu. Hallveig
sagði það mikla áskorun að takast á við þessa
stóru sögu.
Hallveig hefur fengist við leikbrúður nánast all-
an sinn starfsaldur. Í vetur sýnir hún í grunn-
skólum og leikskólum. Hún sýnir Egissögu og einnig er hún að sýna í
leikskólum sýningu sem hugsuð er sem fræðsla fyrir ung börn um
hvernig eigi að bregðast við ofbeldi. Sýningin er í samvinnu við Blátt
áfram.
Það eru engar ýkjur að segja að mikið sé að gera hjá Hallveigu. Í
sumar vann hún sem leiðsögumaður fyrir rússneska ferðamenn. Hún
er nýbúin að afla sér réttinda sem jógakennari og ætlar í vetur að
kenna jóga. „Ég má eiginlega ekki vera að því að eldast,“ sagði Hall-
veig. egol@mbl.is
Hallveig Thorlacius brúðuleikari 70 ára
Má ekki vera að því að eldast
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is