Morgunblaðið - 30.08.2009, Síða 57

Morgunblaðið - 30.08.2009, Síða 57
Stephen King Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Í FJÖRINU sem fylgt hefur falli bankanna hér heima hefur netið nýst vel til að dreifa sögusögnum, slúðri og ósannindum, ekki síður en að koma á framfæri upplýsingum um ýmislegt misjafnt. Vandinn er að greina hvað er della og hvað er satt og það á ekki síður við ytra; ekkert hefur nýst eins vel til að dreifa ósannindum, samsæriskenn- ingum og almennri dellu en Netið, hvort sem það eru kenningar um að eðlumenn hafi lagt undir sig heim- inn, bandarísk stjórnvöld hafi sprengt tvíturnana í New York eða að Elvis og Michael Jackson séu í felum saman á smáeyju í Kar- íbahafi (alveg satt!). Samsæriskenningasmiðir Ekki er þó ástæða til að ör- vænta! Víst er til legíó af bull- síðum, en það eru líka til síður sem fletta ofan af bullinu. Frægust þeirra er snopes.com, sem menn eiga alltaf að byrja að skoða áður en þeir senda af stað fjölpósta um nýja vírusa, týnd börn, en aðrar eru líka til sem nálgast hlutina á annan hátt, til að mynda Swallow- ing the Camel, http://swallowing- thecamel.blogspot.com/, vefsetur sem safnað hefur saman upplýs- ingum um rugludalla og samsær- iskenningasmiði. Heiti síðunnar vísar í Biblíuna, nánar tiltekið í Matteusarguðspjall 23:24 en þar segir: „Blindu leiðtog- ar, þér síið mýfluguna, en svelgið úlfaldann!“ Aðstandandi síðunnar er, að eigin sögn, kanadísk hús- móðir á fertugsaldri, en vitanlega á ekki að taka það of trúarlega frek- ar en annað á Netinu; er ekki eins líklegt að hún sé starfmaður bandarísku leyniþjónustunnar? Það hafa í það minnsta sumir hald- ið því fram þegar hún hefur spottað þá fyrir samsæriskenningar sínar. Bull á bull ofan Meðal efnis á síðunni er listi yfir heimsins heimskulegustu samsær- iskenningar sem við grípum aðeins niður í (í sviga er nafn þess eða þeirra sem fyrstur hélt þessu fram): Bílstjórinn myrti John F. Kennedy (William Cooper), Sál- fræðihernaðarráð Bretlands sendi Bítlana til Bandaríkjanna til að spilla siðferði bandarískra ung- menna (Lyndon LaRouche), Krist- ur var aldrei krossfestur heldur fór hann í felur með Maríu Magdalenu og átti með henni börn í Frakk- landi (Hugh Schonfield, Michael Baigent, Richard Leigh og fleiri), Kristur og lærisveinar hans voru á sífelldu sveppatrippi (John Allegro), Stephen King myrti John Lennon (Steve Lightfoot), fyrir milljörðum ára heilaþvoði illi al- heimsalvaldurinn Xenu sálir okkar til að trúa helstu trúarbrögðum heims sem hann bjó til (L. Ron Hubbard) og Hitler flúði til norð- urskautsins og býr þar í góðu sam- læti með geimverum sem búa inni í jörðinni (jörðin er hol að innan) (Ernst Zundel o.fl.). Ekkert of ótrúlegt Svo eru það samsæriskenningar sem óljóst er um uppruna eða eng- inn vill kannast við að hafa komið af stað: Undir flugvellinum í Den- ver er gríðarmikið neðanjarð- arbyrgi sem hýsir stjórnstöð al- heimsráðsins sem tekur brátt völdin (sönnun þess má sjá í mósa- íkmyndum á flugvellinum), HIV- veiran var búin til á tilraunastofu / HIV-veiran veldur ekki alnæmi, sætuefnið aspartam, flúor, gena- breyttur matur og bóluefni eru beinlínis búin til af illum yfirvöld- um til að tryggja að mannkyn sé veiklulegt og auðsveipt. Eins og sjá má er það ótrúlegast við þessar kenningar allar að fólk skuli yfirleitt trúa þeim, en það vantar ekki: Ekkert virðist vera of ótrúlegt til að vera satt sem sann- ast af þeim fjölmörgu sem skrifað hafa athugasemdir á síðuna þar sem þeir reyna að skjóta stoðum undir delluna. Hitler Hann á að hafa flúið til norðurskautsins til að búa með geimverum. Heimsins heimskulegustu samsæriskenningar John F. Kennedy Menning 57 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Söngvaseiður (Stóra sviðið) Harry og Heimir (Litla sviðið) Leikferð um landið í september og október Fim 10/9 kl. 20:00 Fors U Fös 11/9 kl. 20:00 Fors U Lau 12/9 kl. 20:00 Frums U Sun 13/9 kl. 20:00 2.kort U Fim 17/9 kl. 20:00 3.kort U Fös 18/9 kl. 20:00 4.kort U Lau 19/9 kl. 20:00 5.kort U Sun 20/9 kl. 20:00 6.kort U Fim 24/9 kl. 20:00 7.kort U Fös 25/9 kl. 20:00 8.kort Ö Lau 26/9 kl. 20:00 9.kort Ö Sun 27/9 kl. 20:00 10.kortÖ Djúpið (Litla sviðið) Mið 23/9 kl. 20:00 Ö Sun 27/9 kl. 16:00 Ö Mið 30/9 kl. 20:00 Sun 4/10 kl. 16:00 Allt að seljast upp - tryggðu þér miða Vertu með í allan vetur – tryggðu þér áskrifta núna Fös 4/9 kl. 19:00 U Lau 5/9 kl. 19:00 U Sun 6/9 kl. 19:00 U Mið 9/9 kl. 20:00 U Fim 10/9 kl. 19:00 U Fös 11/9 kl. 19:00 Ö Lau 12/9 kl. 19:00 Aukas Fös 18/9 kl. 19:00 Ö Lau 19/9 kl. 19:00 U Sun 20/9 kl. 14:00 U Fös 25/9 kl. 19:00 Aukas Lau 26/9 kl. 14:00 U Sun 27/9 kl. 20:00 Ný auka Fim 1/10 kl. 19:00 Ný aukas Fös 9/10 kl. 19:00 Ö Flutt á ensku í tengslum við Lókal leiklistarhátíðina Dauðasyndirnar (Litla sviðið) Lau 5/9 kl. 19:00 Flutt á ensku Flutt á ensku í tengslum við Lókal leiklistarhátíðina Þú ert hér (Litla sviðið) Lau 5/9 kl. 22:00 Aukasýn. Sun 6/9 kl. 20:00 Aukasýn. Ath. stutt sýningartímabil UTAN GÁTTA (Kassinn) 4ra sýninga kort aðeins 9.900 kr. KARDEMOMMUBÆRINN (Stóra sviðið) Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is Sun 30/8 kl. 14:00 U Sun 30/8 kl. 17:00 U Sun 6/9 kl. 14:00 U Sun 6/9 kl. 17:00 U Sun 13/9 kl. 14:00 U Sun 13/9 kl. 17:00 U Sun 20/9 kl. 14:00 U Sun 20/9 kl. 17:00 U Sun 27/9 kl. 14:00 U Sun 4/10 kl. 14:00 Ö Sun 4/10 kl. 17:00 Ö Sun 11/10 kl. 14:00 Ö Sun 11/10 kl. 17:00 Ö Sun 18/10 kl. 14:00 Ö Sun 18/10 kl. 17:00 Sun 25/10 kl. 14:00 Sun 25/10 kl. 17:00 Sun 1/11 kl. 14:00 Sun 1/11 kl. 17:00 Sýningar haustsins komnar í sölu Fös 4/9 kl. 20:00 Ö Sun 6/9 kl. 20:00 Lau 12/9 kl. 20:00 Ö Lau 19/9 kl. 20:00 Ö Lau 26/9 kl. 20:00 Ö Lau 3/10 kl. 20:00 FRIDA... viva la vida (Stóra sviðið) Fös 11/9 kl. 20:00 Frums U Lau 12/9 kl. 20:00 2. sýn Ö Fös 18/9 kl. 20:00 3. sýn Ö Lau 19/9 kl. 20:00 4. sýn Ö Fös 25/9 kl. 20:00 5. sýn Ö Lau 26/9 kl. 20:00 6. sýn Ö Fös 2/10 kl. 20:00 7. sýn Lau 3/10 kl. 20:00 8. sýn Miðasala hafin á sýningar haustsins Frístundakor t Ástvaldur Traustason skólastjóri Tónheima “Markmið mitt er að gefa sem flestum tækifæri til að stunda tónlistarnám því tónlist er stór hluti af lífi okkar og veitir ómælda gleði og ánægju . Nú gefst þér tækifæri til þess að stunda skemmtilegt tónlistarnám - sem fyrr eru allir velkomnir, byrjendur sem lengra komnir, ungir og aldnir.” Upplýsingar og skráning á tonheimar.is og í síma 846 8888 Skráning hafin á haustönn - enginn biðlisti! Bassagítar Lagasmíðar Harmónika Raf- og kassagítar Píanó Tónheimar - Fákafeni 9 - tonheimar@tonheimar.is VEFSÍÐA VIKUNNAR swallowingthecamel.blogspot.com» NOEL Gallagher seg- ist hættur í hljómsveit- inni Oasis þar sem hann geti ekki lengur starfað með bróður sínum Liam eftir ítrekaða árekstra. No- el segist á heimasíðu hljómsveitarinnar vera leiður vegna þessa en einnig létt. „Fólk mun skrifa og segja það sem það vill en ég gat ekki unnið degi lengur með Liam,“ segir No- el. Noel, sem er að- algítarleikari Oasis, bað alla þá afsökunar sem hefðu þegar keypt miða á tónleika hljóm- sveitarinnar í París, Konstanz og Mílanó. Tilkynningin kom eftir að hljómsveitin aflýsti tónleikum á Rock en Seine-tónlistarhátíðinni í grennd við París á föstudag. Skipuleggjendur hátíðarinnar sögðu bræðurna hafa rifist áður en þeir áttu að stíga á svið. Áheyr- endur á Rock en Seine-hátíðinni héldu fyrst að um grín væri að ræða þegar upphitunarhljóm- sveitin tilkynnti að Oasis myndi ekki spila eða þangað til að til- kynning þess efnis birtist á stórum skjám báðum megin við svið- ið. Blaðamaður hjá New Musical Express segir að þrátt fyrir langa sögu af illindum á milli bræðranna liti þetta út fyrir að vera endanlegt núna. „Noel hefur yfirgefið þá á miðjum tónleika- ferðalögum áður, Li- am hefur ekki mætt á tónleika en þeir hafa haldið áfram. En núna, miðað við hvernig Noel setur þetta fram á vefsíðunni, lítur allt út fyrir að bandið sé end- anlega hætt,“ segir blaðamað- urinn. Liam, söngvari hljómsveit- arinnar, og eldri bróðir hans Noel hafa átt stormasamt samband allt frá því að þeir stofnuðu hljómsveit- ina árið 1991 en orðrómur hafði verið uppi á liðnum vikum um að hljómsveitin myndi leysast upp. Oasis leysist upp Hættur Noel Gallagher þolir ekki bróður sinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.