Morgunblaðið - 21.09.2009, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 2 1. S E P T E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
256. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«SONJA SCHMIDT
VAR SEND Í KLAUSTUR
TIL AÐ LÆRA
«TÍSKUVIKAN Í NEW YORK
Kreppan setti svip
sinn á flíkurnar
DAVÍÐ Þór Viðarsson, fyrirliði FH, hefur bikarinn á loft eftir að FH-ingar
höfðu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu karla annað árið í
röð og í fimmta sinn á síðustu sex árum. FH-ingar unnu Val, 2:0, í Pepsi-
deildinni í gærkvöldi og tryggðu þar með sigurinn. Tryggvi Guðmundsson
er ekki síður kátur eins og sjá má. | Íþróttir
TITILLINN Í HÖFN
Morgunblaðið/hag
Á ÞRIÐJA hundrað tilvik tengd strandveið-
unum í sumar eru nú til skoðunar hjá Fiskistofu.
Árni Múli Jónasson fiskistofustjóri segir að
þessi tilvik séu ekki flokkuð sem brotamál, að
svo stöddu að minnsta kosti. Hann segir að
skipta megi málum sem varða meint brot á
reglum um strandveiðar í tvo meginflokka.
Veiðar umfram leyfilegt hámarksmagn annars
vegar og lengd veiðiferða umfram tímalengd
hins vegar. Árni Múli segir að á heildina litið
hafi strandveiðarnar gengið vel. Hins vegar hafi
þær valdið miklu álagi á stofnunina enda tóku
um 550 bátar þátt í þessum veiðum. | 6
Mörg mál vegna strandveiða
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
HELMINGUR landsmanna notar
einkabílinn minna nú en fyrir efna-
hagskreppuna. Hafa um 40% breytt
ferðavenjum sínum, fara frekar
gangandi eða hjólandi og sjaldnar í
bílferð út fyrir bæjarmörkin. Þetta er
meðal þess sem fram kemur í nýlegri
könnun ráðgafarfyrirtækisins Land-
ráða á ferðavenjum landans. Tilgang-
urinn var að meta áhrif kreppunnar á
ferðamenningu landans, borið saman
við fyrri kannanir sem Land-ráð hafa
gert.
Ferðum út fyrir sveitarfélag eða
búsetusvæði fækkaði um 27% í des-
ember 2008 til loka febrúar sl., borið
saman við árið á undan. Er fækkunin
að meðaltali fimmtán ferðir í ellefu á
þessu tímabili. Mest hefur dregið úr
ferðafjölda frá jaðarbyggðum höfuð-
borgarsvæðisins, en þaðan voru farn-
ar átján ferðir á nefndu tímabili og
fækkaði úr 22. Fjöldi ferða frá lands-
byggðarkjörnum stendur í stað.
Mikið hefur dregið úr umferð úti á
þjóðvegum samkvæmt talningu
Vegagerðarinnar sem vitnað er til í
könnun Land-ráða. Fyrstu þrjá mán-
uði líðandi árs minnkaði umferð á
þjóðvegum úti um 3,3%. Á höfuð-
borgarsvæðinu dróst umferð saman
um 10% en um 19% á Norður- og
Austurlandi frá sama tíma árið á und-
an.
„Upphaf kreppunnar hafði áhrif á
ferðavenjur,“ segir Bjarni Reynars-
son hjá Land-ráðum. Áhrifin segir
hann hafa verið mest fyrst eftir hrun-
ið en í fyllingu tímans hafi hlutirnir
leitað jafnvægis enda hafi margir
ferðast innanlands í sumar og erlend-
um ferðamönnum fjölgað
Kreppan
dregur mikið
úr umferð
Helmingur landsmanna notar einka-
bílinn minna en fyrir efnahagshrunið
Í HNOTSKURN
» Um 40% hafa breytt ferða-venjum sínum, fara gang-
andi eða hjólandi og sjaldnar
út fyrir bæjarmörkin.
»Á höfuðborgarsvæðinudróst umferð saman um
10% en 19% á Norður- og
Austurlandi.
»Ferðum út fyrir búsetu-svæði fækkaði um 27% frá
desember til loka febrúar sl.
Helmingur notar | 8
Sveitarstjórn-
armenn sjá ýmsa
ókosti við per-
sónukjör og telja
mikilvægt að
skoða hvort aðr-
ar leiðir séu jafn
vel eða betur til
þess fallnar að
auka áhrif kjós-
enda í kosningum. Frumvarp um
persónukjör er til meðferðar hjá
allsherjarnefnd Alþingis. Í umsögn
Sambands íslenskra sveitarfélaga
segir m.a. að sú hugmynd njóti tölu-
verðs stuðnings að kveða á þessu
stigi aðeins á um heimild sveitar-
stjórna til þess að ákveða að við-
hafa persónukjör fremur en skylda
öll sveitarfélög til þess að taka upp
þá kosningaaðferð. Binda mætti
slíka ákvörðun því skilyrði að auk-
inn meirihluti í sveitarstjórn sam-
þykkti slíka tillögu. »14
Sveitarstjórnarmenn sjá
ýmsa ókosti við persónukjör
ÞRÁTT fyrir
að fátt bendi til
að niðurstaða
loftslagsráð-
stefnu 192 aðild-
arríkja Samein-
uðu þjóðanna í
Kaupmannahöfn
í desember muni
marka þau tíma-
mót sem vonast
var eftir gæti af-
rakstur hennar haft áhrif í fram-
haldi viðræðna á næsta ári, að mati
Rajendra K. Pachauri, formanns
milliríkjanefndar Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreytingar.
Hann segir þrýsting á Banda-
ríkjastjórn um aðgerðir. »8
Ekki heimsendir þótt
útkoman verði heldur rýr
Rajendra K.
Pachauri
GENGI íslensku krónunnar er
meira en 30% of lágt miðað við
langtímajafnvægisraungengi. Þetta
segir Baldur Pétursson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Endurreisnar-
og þróunarbanka Evrópu. Baldur
segir að af þessum sökum séu er-
lendar skuldir Íslendinga 30% of
háar, sem nemur þúsund millj-
örðum, eða um 14 milljónum á
hverja fjögurra manna fjölskyldu.
Eðlileg leiðrétting á gengi krón-
unnar sé því forsenda endurreisnar
íslensks efnahagslífs og skulda-
stöðu allra Íslendinga. »11
Gengi krónunnar er meira
en 30% of lágt skráð
INGIBJÖRG Þórðardóttir, formað-
ur Félags fasteignasala, telur að um-
talsverð fjölgun þinglýstra kaup-
samninga um fasteignir í liðinni viku
miðað við það sem af er ári sé merki
um að fasteignamarkaðurinn sé að
hefja sig upp úr þeirri lægð sem
hann hefur verið í undanfarið ár.
Segist hún vona að ládeyðunni sem
legið hefur yfir markaðnum sé nú að
ljúka og jafnvægi komist á fast-
eignaviðskipti í landinu.
57 kaupsamningum var þinglýst á
höfuðborgarsvæðinu dagana 11.-17.
september en að meðaltali hafa að-
eins 34 kaupsamningar borist til
þinglýsingar í viku hverri á þessu
ári. Nam velta samninganna 1.485
milljónum króna og var meðalupp-
hæð samninga því 26 milljónir
króna.
Á sama tíma árið 2008 var að með-
altali þinglýst 66 kaupsamningum í
viku hverri, rétt tæplega tvöfalt
fleiri en að jafnaði í ár. Segist Ingi-
björg telja að markaðurinn eigi enn
nokkuð í land með að komast í eðli-
legt horf en vonast til að fasteigna-
viðskiptin nái sér enn frekar á strik
á næstunni. | 4
Fasteignamarkaðurinn
loksins að taka við sér
ÍÞRÓTTIR
Byggt á mönnum
með félagshjarta
Stjarnan mætir til leiks á Íslands-
móti karla í handbolta í vetur með
ungt og reynslulítið lið. Þar verður
byggt til framtíðar á mönnum með
félagshjartað á sínum stað.
Ryan Giggs lætur engan bilbug á
sér finna og í gær lagði hann upp
þrjú mörk í mögnuðum nágranna-
slag í Manchester þegar United
vann City, 4:3.
Eldist eins vel og
úrvals rauðvín
KR-ingar gerðu það sem þeir gátu
til að veita FH keppni um Íslands-
meistaratitilinn og unnu Stjörnuna,
7:3, í ótrúlegum leik á heimavelli
sínum í Vesturbænum í gær.
KR-ingarnir
gerðu sitt besta