Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 Heimsferðir bjóða frábært sértilboð í einu helgarferð haustsins til hinnar einstöku perlu Búdapest 22. október. Búdapest er ótvírætt ein fegursta borg Evrópu og hún býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun að ógleymdri gestrisni Ungverja auk frábærra veitinga- og skemmtistaða. Verðlagið í Búdapest er frábært svo hér er tilvalið að versla og njóta lífsins. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Verð frá kr. 79.900 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 4 nætur á Hotel Platanus *** eða Hotel Ibis Váci út *** með morgun- mat. Aukalega m.v. gistingu á Hotel Radisson SAS ****+. Sértilboð 22. okt. Ath. verð getur hækkað án fyrirvara. Allra síðustu sætin – Ótrúleg sértilboð! Búdapest 22.-26. október frá kr. 79.900 Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is FJÖLDI fólks samfagnaði Reykja- víkurmeynni Klöru Vemundsdóttur sem hélt upp á hundrað ára afmæli sitt í gær. „Ég átti hamingjusamt líf. Við skulduðum aldrei neinum neitt. Hvernig nú er komið hins vegar fyr- ir þjóðinni er hræðilegt. Fólk kaupir og kaupir og á ekki fyrir hlutunum. Og bankarnir djöflast í fólki og ausa peningum,“ sagði Klara í samtali við Morgunblaðið í gær. Klara er innfæddur Reykvík- ingur, fædd 21. september 1909, og ólst upp í við Grettisgötu og í Þing- holtsstræti. „Ég man vel eftir spænsku veikinni þar sem mitt var að færa fólki vatn þegar allir voru lagstir í rúmið. Faðir minn var á sjó þegar þetta var og eftir að hann kom í land lagðist hann fárveikur. Þegar allir voru lagstir veikir var mér komið í fóstur vestur í bæ og þá veiktist ég sjálf,“ segir Klara sem missti móður sína í þessari skæðu sótt. Eiginmaður Klöru, Ársæll Kjart- ansson, lést 1991. Þau eignuðust sjö börn en aðeins eitt úr þeirra hópi, Hafsteinn, er lifandi. Afkomend- urnir eru alls 48. Ársæll var lengi starfsmaður hjá Kolum og salti og seinna sýningar- maður hjá Nýja bíói en Klara starf- aði við ræstingar. Alls bjuggu þau á sautján stöðum í borginni. „Svo byggðum við hús í austurbænum, Landbrot, þar sem Bakkagerði er núna. Þegar það var risið fór allt að ganga vel hjá okkur,“ segir Klara sem er ern eftir aldri og minnið trútt, enda þótt sjón og heyrn séu farin að gefa sig. Hún bjó allt þar til fyrir þremur árum í eigin íbúð með dóttur sinni, sem nú er látin en flutt- ist þá á hjúkrunarheimilið Skjól þar sem hún unir hag sínum vel. Ég átti hamingjusamt líf og skuldaði aldrei Morgunblaðið/Kristinn Afmælisbarn Klara Vemundsdóttir ber sig vel og heilsan er góð. Hún er hundrað ára í dag og segir að flest í lífinu hafi gengið sér og sínum í haginn.  Klara Vemundsdóttir 100 ára í dag  Ern og minnið trútt STAÐA skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis um bankahrunið verður metin í fyrstu viku októ- bermánaðar og í beinu framhaldi verður útgáfu- dagur skýrsl- unnar ákveðinn. Páll Hreinsson, formaður rann- sóknarnefndarinnar, segir að ekki liggi fyrir nákvæmlega hvenær skýrslan muni verða birt en miðað hefur verið við að það verði í kring- um 1. nóvember. „Það fer líka svo- lítið eftir dagskrá þingsins, hvenær það hefur dagsetningu fyrir okk- ur,“ segir Páll. Hann kveður starf nefndarinnar hafa gengið vel og býst við að áætlunin standist nokk- urn veginn. skulias@mbl.is Býst við skýrslu nefndar í byrjun nóvember Páll Hreinsson Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is „OKKUR fasteignasölum hefur fundist að eftir verslunarmannahelgi hafi markaðurinn tekið talsvert við sér og það er að skila sér núna,“ seg- ir Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala. Um þessar mundir sé meira en undanfarið spurt eftir eignum, viðhorf fólks til fasteignaviðskipta sé jákvæðara og salan hafi aukist. Þinglýstir kaupsamningar á höf- uðborgarsvæðinu voru 57 dagana 11.-17. september en til saman- burðar segir Ingibjörg að í ár hafi að meðaltali 34 kaupsamningum verið þinglýst í hverri viku. Á sama tíma í fyrra var meðalfjöldinn 66 vikulega. „Þetta hefur verið eins og í dauðs manns gröf,“ segir Ingi- björg og segir að þótt samningum hafi fjölgað töluvert sé markaðurinn ekki kominn á þann skrið sem ætti að vera. Kveður hún enn vanta úrræði til að stuðla að eðlilegum fasteignaviðskiptum. Hún telur þó að hinn aukni skriður á markaðnum sé teikn um raunveru- legan bata. Makaskipti ekki meginþáttur Ingibjörg segir að hlutur maka- skipta í aukningunni sé orðum auk- inn í umræðunni, þau séu ekki meg- inþáttur í viðskiptunum. „Það er eitthvað um makaskipti og þá helst þegar um stórar eignir er að ræða, þeir sem eru að selja stærstu eign- irnar taka gjarna íbúðir upp í.“ Þeg- ar um ræðir eignir af hefðbundnum stærðum, íbúðir og íbúðarhús, er hlutur makaskipta að sögn Ingi- bjargar lítill. Fasteignaviðskiptin að komast á skrið á nýjan leik Formaður Félags fasteignasala telur raunveruleg batamerki á fasteignamarkaði Í HNOTSKURN » 45 af kaupsamningunum57 sem þinglýst var á höf- uðborgarsvæðinu voru um eignir í fjölbýli, níu um sérbýli og þrír um annars konar eign- ir. Heildarvelta viðskiptanna nam 1.485 milljónum króna. » Á umræddu tímabili voruþinglýstir kaupsamningar átta talsins á Suðurnesjum og fimm á Akureyri. Þremur var þinglýst á Árborgarsvæðinu. Ingibjörg Þórðardóttir Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is EKKI hafa borist merki frá steypi- reyðinni, sem var merkt í Skjálf- andaflóa 23. júní, í tæpar tvær vikur eða frá 8. september. Allar líkur eru á að þessari tilraun til að fylgjast með ferðum þessa stærsta dýrs jarð- arinnar sé lokið. Endingartími og sendingatíðni steypireyðarinnar þykir þó mjög ásættanleg á alþjóð- legan mælikvarða. Síðustu dagana sem merki bárust frá dýrinu var það að dóla sér suður af Reykjanesi. Stefnt er að því að merkja fjóra hvali með gervihnattasendum í haust. Talsverður kostnaður fylgir þessu verkefni. Verð merkjanna hef- ur hækkað um helming eins og önn- ur innflutt vara síðastliðið ár og er nú um 400 þús. krónur. Samkvæmt upplýsingum Gísla Víkingssonar, hvalasérfræðings á Hafrannsóknastofnun, telst það góð- ur árangur að fá merki frá steypi- reyðinni í 78 daga. Margvísleg vandamál eru því samfara að merkja stórhveli samanborið við landdýr eða minni hvali. Líklegast er að merkið hafi losnað úr dýrinu og al- gengt er að líkaminn hafni þessum aðskotahlut með því að mynda örvef utan um merkið og ýta því smám saman út. Einnig er hugsanlegt að rafhlaðan eða annar búnaður hafi gefið sig. Ekki er hægt að handsama stór- hveli og koma merkinu tryggilega fyrir á besta stað, heldur verður að skjóta því úr fjarlægð. Merkið þarf að festast ofarlega á bakinu því merkin senda ekki neðan yfirborðs sjávar og þurfa því að ná sambandi við gervitungl þessar fáu sekúndur sem loftnetið er ofan sjávar í hvert skipti. Ekkert merki í hálfan mánuð Hafró hyggst merkja fjóra hvali í haust                                  ÍSLENSK erfðagreining segir að vísindamenn á vegum fyrirtækisins, auk vísindamanna í Finnlandi, Hol- landi, Bandaríkjunum og á Spáni, hafi fundið fjóra breytileika í erfða- mengi mannsins, sem auka mjög lík- ur á krabbameini í blöðruhálskirtli. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í gær. Þetta er í sjötta skiptið sem Ís- lensk erfðagreining finnur erfða- breytileika sem eykur líkur á blöðru- hálskrabbameini. Fyrirtækið segir að frekari rann- sóknir hafi sýnt fram á að þessa breytileika sé að finna í 1,5% karl- manna sem eigi 2,5 sinnum meira á hættu en aðrir að fá krabbamein í blöðruhálskirtil. Hægt sé að nýta þessar nið- urstöður í greiningarprófum sem IE hefur þróað. ÍE finnur erfðabreytileika

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.