Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 Margt smátt gerir eitt stórt segirorðtækið. Þetta hafa mörg fyrirtæki og stofnanir nýtt sér svo um munar.     Eitt dæmi um það eru svokölluðseðilgjöld. Samkvæmt lögum má ekki innheimta seðilgjöld nema gerður hafi verið samningur við viðkomandi viðskiptavin.     Ferdinand Han-sen, verk- efnastjóri gæða- stjórnunar hjá SI, tekur þetta mál upp í grein í Morgunblaðinu á laugardag.     Hann rifjar upporð Björgvins G. Sigurðssonar, fyrrverandi viðskiptaráðherra, í 24 stundum í september í fyrra að þau fyrirtæki og stofnanir sem ekki hætti að ruka seðilgjöld verði beitt sektum.     Ferdinand segir að þrátt fyrirfögur fyrirheit rukki fyrirtæki og stofnanir neytendur enn um sér- staka aukaþóknun fyrir útgáfu og heimsendingu reikninga.     Síðan segir hann: „Ef við gefumokkur að hver fjölskylda í land- inu greiði 1.500 kr. á mánuði í seð- il-/útskriftargjöld, þá eru það 18.000 kr. á ári á hvert heimili. Samkvæmt Hagstofunni eru 77.047 kjarnafjölskyldur í landinu. Ef þessar forsendur eru nærri lagi draga stofnanir og fyrirtæki ólög- lega að sér 1.386.846.000, sagt og skrifað, einnmilljarðurþrjúhundruðáttatíu- ogsexmilljóniráttahundruðfjörutíu- ogsexþúsundkrónur – og er þá að- eins verið að tala um reikninga til einstaklinga en ekki til fyrirtækja.“     Hér er um að ræða ótrúlega upp-hæð, sem er ryksuguð úr vös- um almennings í smáskömmtum. Ferdinand Hansen Margt smátt Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 10 rigning Lúxemborg 17 skúrir Algarve 24 léttskýjað Bolungarvík 8 rigning Brussel 22 léttskýjað Madríd 22 skýjað Akureyri 10 skýjað Dublin 15 skýjað Barcelona 23 léttskýjað Egilsstaðir 9 léttskýjað Glasgow 15 léttskýjað Mallorca 23 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 10 rigning London 19 skýjað Róm 22 léttskýjað Nuuk 2 upplýsingar bárust ekkiParís 23 léttskýjað Aþena 22 léttskýjað Þórshöfn 12 skýjað Amsterdam 18 léttskýjað Winnipeg 21 léttskýjað Ósló 13 skýjað Hamborg 21 heiðskírt Montreal 16 heiðskírt Kaupmannahöfn 20 skýjað Berlín 24 heiðskírt New York 21 heiðskírt Stokkhólmur 17 heiðskírt Vín 23 léttskýjað Chicago 21 léttskýjað Helsinki 16 léttskýjað Moskva 13 þoka Orlando 31 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 21. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 1.32 0,1 7.42 4,2 13.54 0,1 19.58 4,1 7:09 19:33 ÍSAFJÖRÐUR 3.41 0,0 9.43 2,4 16.04 0,1 21.54 2,3 7:13 19:39 SIGLUFJÖRÐUR 5.59 0,1 12.11 1,4 18.09 0,1 6:56 19:22 DJÚPIVOGUR 4.51 2,5 11.09 0,2 17.09 2,2 23.15 0,3 6:38 19:03 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á þriðjudag Norðvestan 8-13 m/s A-lands í fyrstu, annars hægari breytileg átt. Dálítil rigning eða slydda um tíma á austanverðu landinu, en þurrt að mestu vestan til. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast syðst. Á miðvikudag Fremur hæg vestlæg átt og dá- lítil væta, en yfirleitt þurrt og bjart veður norðaustan til. Hiti 3 til 10 stig. Á fimmtudag Suðvestanátt og rigning, eink- um vestan til á landinu. Hiti 7 til 13 stig. Á föstudag og laugardag Vestlæg átt og rigning eða skúrir, en úrkomulítið A-lands. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan 3-8 og smáskúrir, hiti 7 til 13 stig. Norðan 8-13 og rign- ing norðvestan til síðdegis. Í kvöld er útlit fyrir norðanátt með rigningu eða slyddu víða, þó síst SV-lands. Kólnandi veð- ur. TALSVERT hefur fundist af spán- arsniglum undanfarið og það jafnvel á stöðum sem hann hefur ekki fundist á áður. Flestir hafa spánar- sniglarnir fundist í Kópavogi, en einnig á Hofsósi, Vestmannaeyjum og Mosfellsbæ. Um miðjan júlí fannst spánar- snigill á Hofsósi. Hann var reyndar í kínakáli sem pakkað var í Hollandi og flutt þaðan í verslun á Hofsósi. Þar var því um tilfallandi atvik að ræða. Sniglarnir finnast víða Tíu dagar liðu af ágúst þar til spánarsnigill fannst í Mosfellsbæ, en þar um slóðir hafði hann ekki fundist áður, og annar í Kópavogi. Spánarsnigill fannst í garði í Vest- mannaeyjabæ 7. september og var færður Náttúrugripasafninu þar. Síðan fannst annar þar í bæ 17. september sem bendir til þess að sá fyrri hafi ekki verið tilfallandi. „Þá var komið að stórri sprengju,“ segir á vef Náttúru- fræðistofnunar. „Hinn 10. sept- ember barst Náttúrufræðistofu Kópavogs spánarsnigill sem fannst þar í bæ og er hann þar til sýnis lif- andi ásamt þeim fyrri sem stofan fékk í hendur. Daginn eftir var komið með 13 slíka til Náttúru- fræðistofnunar Íslands frá þeim sama stað í Kópavogi. Þeir höfðu verið tíndir úr hrúgu af plöntu- úrgangi. Það fylgdi sögunni að einn hefði sést þar á staðnum fyrr í sum- ar.“ Spánarsniglar halda sig gjarnan til hlés þegar þurrkar ríkja og leita þangað sem raka er að finna þar til blotnar um. Náttúrufræðistofnun hefur þó í sumar borist fjöldi meintra spánarsnigla frá vökulu fólki en sem betur fer stóðust þeir fæstir spænskuprófið, segir á ni.is. aij@mbl.is Margir spánarsniglar fundust í Kópavogi Meintir sniglar stóðust fæstir spænskuprófið GANGNAMAÐUR, sem var við smölun í Héðinsfirði á laugardag- inn, varð fyrir meiðslum. Maðurinn hrasaði og féll við í brattri hlíð og meiddist á fæti auk þess sem talið var að hann hefði farið úr axlarliði. Björgunarsveitin í Siglufirði var þegar kölluð út. Það var í rauninni nærtækt því nokkrir úr sveitinni tóku þátt í smöluninni. Þeir ásamt öðrum smalamönnum báru manninn á börum niður hlíð- ina. Þaðan var maðurinn síðan fluttur á sjúkrahúsið í Siglufirði þar sem hann naut aðhlynningar hjúkrunarfólks. Þetta var fyrsta smölun haustsins í Héðinsfirði og annað skiptið sem gengið er með öðru fyrirkomulagi en tíðkast hafði um árabil. Nú er féð rekið í rétt við nýja veginn. Þaðan er féð flutt á vögnum og kerrum til síns heima. Um eitt hundrað kindur komu til réttar þar á laugardaginn. Gangnamaður slasaðist við smölun fjár í Héðinsfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.