Morgunblaðið - 21.09.2009, Page 32

Morgunblaðið - 21.09.2009, Page 32
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 264. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Spölur bíður svara ríkisins  Enn hefur ríkisstjórnin ekki brugðist við bréfi forsvarsmanna Spalar varðandi hugmyndir um tvö- földun Hvalfjarðarganga og Vestur- landsvegar. Lífeyrissjóðirnir eru áhugasamir um að taka þátt í fjár- mögnun verkefnanna. »2 Njóta mikils trausts  Meðal þeirra sem lesa dagblöð og netmiðla bera tæp 60% mikið traust til Morgunblaðsins og mbl.is. Er þetta niðurstaða könnunar MMR. 75% aðspurðra sögðust bera mikið traust til Fréttastofu RÚV. Aðeins ríflega fjórðungur ber mikið traust til visir.is en 18,9% bera almennt mikið traust til fjölmiðla. »2 Fasteignaviðskipti glæðast  Þinglýstir kaupsamningar tóku eftirtektarverðan kipp vikuna 11.-17. september og urðu nærri jafnmargir og þeir voru að jafnaði í fyrra. Fasteignasalar hafa orðið var- ir við aukinn áhuga á viðskiptum með eignir að undanförnu. »4 250 mál til skoðunar  Fiskistofa hefur það sem af er ári fengið 250 meint brotamál til með- ferðar en í fyrra bárust henni aðeins 107 mál. Á fyrstu átta mánuðum þessa árs var 31 veiðileyfishafi svipt- ur leyfi sínu en alls voru 42 sviptir leyfi í fyrra. Á sama tímabili hafa rúmlega tvöfalt fleiri verið áminntir en allt árið 2008. »6 Ferðavenjurnar breytast  Vegna efnahagsþrenginganna hafa tæp 40% landsmanna breytt ferðavenjum sínum og notar fólk einkabíla nú minna en áður. Þó ferðast aðeins 4% fólks oftar með strætó. »8 Heitast 13 °C | Kaldast 7 °C Vestan 3-8 og smá- skúrir. Norðan 8-13 og rigning NV-til síðdeg- is. Í kvöld er útlit fyrir norðanátt með rigningu. »10 Þóra Þórisdóttir segir sýningu Frið- riks Þórs og Lars von Triers í Hafnar- húsinu í hæsta máta vafasama. »25 MYNDLIST» Stórundar- leg sýning KVEÐSKAPUR» Iðunn fagnaði 80 ára af- mæli um helgina. »28 Flugan stakk sér til sunds, smellti sér í Háskólabíó og end- aði svo kát í salnum í faðmi Jónasar Ingi- mundarsonar. »24 FLUGAN» Hljómlist, bíó og bíó KVIKMYNDIR» Precious sigraði með glæsibrag í Toronto. »27 KVIKMYNDIR» District 9 fellur Sæbirni einkar vel í geð. »28 Menning VEÐUR» 1. Of erfitt að leika Dr. House 2. Vann 35 milljónir í lottói 3. Owen með sigurmark … 4. St. Jósefsspítala lokað hægt og … »MEST LESIÐ Á mbl.is SAGA Film vinn- ur nú að heim- ildamynd um ljósmyndarann Ragnar Axels- son, RAX, og ber hún vinnutit- illinn Síðustu dagar heim- skautsins. Mar- grét Jónasdóttir framleiðir og skrifar handrit en Magnús Viðar Sigurðsson leik- stýrir. Í myndinni verður fylgst með RAX að störfum, þá aðallega við heimskautsbaug, en sterkar og dramatískar myndir hans frá þeim slóðum hafa vakið heimsathygli í gegnum tíðina og ratað á forsíður virtra blaða. Einnig verða æskuár hans og uppruni tekin til skoð- unar. Stefnt er að frumsýningu fyrir jól 2010. | 23 Heimildamynd um ljósmynd- arann RAX Ragnar Axelsson „ÉG átti ham- ingjuríkt líf,“ segir Klara Ve- mundsdóttir sem er 100 ára í dag. Hún hélt upp á afmæli sitt í gær í hópi vina og ættingja, en af- komendur henn- ar eru tæplega fimmtíu talsins. Klara segir margs að minnast frá sinni löngu ævi en nefnir sérstak- lega spænsku veikina árið 1918. Þá var hún, níu ára gömul, ein uppi- standandi í sinni fjölskyldu og færði veikum vatn. Á endanum veiktist Klara, sem missti móður sína í sótt- inni. Klara hefur alla sína tíð búið í Reykjavík og telst til að hún og eig- inmaður hennar hafi búið á átján stöðum í borginni. Í dag dvelst hún á hjúkrunarheimilinu Skjóli. | 4 Hundrað ára og hefur átt ham- ingjuríkt líf Klara Vemundsdóttir Heiðursverðlaunahafi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, Milos Forman, sótti boð forseta Íslands á Bessastöðum í gær og tók þar við verðlaunagripnum. Margt var þar góðra gesta. Kvikmyndaunnandinn Thor Vilhjálmsson lét sig t.a.m. ekki vanta og heilsaði hann að sjálfsögðu upp á leikstjórann. | 26, 27 Andans jöfrar mætast Milos Forman á Bessastöðum Morgunblaðið/Kristinn „ÞAÐ sem var erfiðast við aðgerðina var að þurfa að drekka þrjá lítra af vondu dönsku vatni á dag. Núna svelgi ég í mig vatn því hér er það svo gott,“ segir Jó- hanna Helga Sigtryggsdóttir glöð í bragði en hún kom heim frá Kaupmannahöfn á laugardag eftir vel heppnaða nýrnaígræðslu. Þrátt fyrir að hafa beðið eftir nýju nýra í tvö ár segir hún biðina ekki hafa reynt mjög mikið á sig. „Ég lifði bara mínu lífi en nýja nýrað þýðir vissulega nýtt og orkumeira líf. Ég finn hvernig ég hressist dag frá degi. Mér skilst að fáir yfirgefi sjúkrahúsið svona fljótt eftir aðgerð. Kannski var mér sleppt svona snemma því ég var svo óþolinmóð og alltaf að spyrja hvenær ég fengi að fara heim. Það voru allir fjörgamlir á deildinni með mér og stauluðust um með göngugrind. Ég var farin að ganga um á öðrum degi og lögst í tiltektir á þeim þriðja!“ Samfélagið hélt utan um hana í veikindunum Jóhanna er fædd og uppalin í sveit, einkabarn foreldra sinna sem reka bú í Víðidal í Húnavatnssýslu. Undan- farin ár hefur Jóhanna verið búsett á Hvammstanga og unnið þar á leikskólanum. „Ég er lítið borgarbarn, ég vil búa í litlu samfélagi. Enda reyndist þetta samfélag mér einstaklega vel í veikindum mínum. Vinahópurinn stækkaði við veikindin og umræða um líffæragjafir var meiri en á flestum öðrum stöðum landsins! Ég hlakka til að hitta vini og fjölskyldu og hestana mína. Ég hlakka til að mjólka, ég hlakka til að fara í fjárhúsið, ég hlakka til að fara í útilegu. Nú er ég með nýtt nýra og laus við græjur og vesen sem fylgja nýrnabilun. Þó að ég þurfi að taka lyf þá er það smámál við hliðina á allri lyfjahrúgunni sem ég hef innbyrt undanfarin ár.“ svanbjorg@mbl.is | 7 Nýtt nýra – nýtt líf!  Gekkst undir nýrnaígræðslu eftir að hafa beðið í tvö ár  Fannst erfiðast að drekka þrjá lítra af dönsku vatni á dag Morgunblaðið/Kristinn Nýtt nýra Jóhanna Helga Sigtryggsdóttir horfir glöð og bjartsýn til orkumikillar framtíðar. „MÉR er sagt að strákarnir hafi dansað uppi á þessum stólum þegar fjörið var sem mest á Borginni,“ segir Sonja Schmidt. Sonja á í fórum sínum tvo upp- runalega stóla úr Gyllta salnum á Hótel Borg, sem hún er tilbúin að selja. Stólarnir verða áttatíu ára gamlir á næsta ári en eru samt eins og nýir. Sonja, sem er níræð að aldri, sótti Borgina í gamla daga en lét sér nægja að dansa bara á dans- gólfinu. | 13 Tilbúin að selja upprunalega stóla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.