Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Barnavörur Til sölu allt saman á 35þ kr. Lítið notað. Sími: 845-7805,Breiðholt Reykjavík. Dýrahald Hreinræktaðar ungverskar Vizslur til sölu. Enn eru eftir hvolpar (rakkar) af þessari frábæru tegund. Frábærir fjölskylduhundar og góðir veiðihundar með réttri þjálfun. Ein- staklega barngóðir og lyndir vel við önnur gæludýr. Fljótir að læra og þegar farnir að ganga í ól og vaða. Mjög tignarleg og falleg skepna. Allar nánari uppl. í s. 860 4280 eða í gegnum kiddyoli@gmail.com. Gisting Orlofshús til leigu miðsvæðis á Akureyri. Þrjú svefnherbergi (78 fm). Verönd og heitur pottur. Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt internetsam- band. Upplýsingar í síma 618-2800 eða www.saeluhus.is Nudd Temple Massage Whole Body Healing Massage based on Tantric principles. For men, women and couples. Tel. 698 8301. www.tantra-temple.com Hljóðfæri Dúndurtilboð Kassagítarar: 1/4 stærð kr. 10.900 pakkinn með poka, strengjasetti og stilliflautu. 1/2 stærð kr. 7.900. Full stærð kr. 12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr. 12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá kr. 39.900. Hljómborð frá kr. 8.900. Trommusett kr. 79.900 með öllu. Gítarinn, Stórhöfða 27, sími 552 2125. www.gitarinn.is Atvinnuhúsnæði Bæjarlind 14-16 Til leigu verslunar- eða skrifstofu- húsnæði í Bæjarlind 14-16 á jarðhæð (neðstu) – norðurendi, 2-400 m². Innkeyrsludyr, næg bílastæði og góð aðkoma. Hagstæð leiga. Upplýsingar í síma 895 5053. Geymslur Geymdu gullin þín í Gónhól Ferðabílar, hjólhýsi og fleira og fleira. Upplýsingar og skráning á gonholl.is og í síma 771 1936. Sumarhús Sumarbústaðalóðir Eignarlönd til sölu í landi Kílhrauns á Skeiðum, 50 km frá Rvk. í stærðunum 0,5 ha. til 1,1 ha. Hentar vel til gróðursetningar og er með fallega fjallasýn, kalt vatn, síma og þriggja fasa rafmagn að lóðarmörkum, til afhendingar strax, hagstætt verð og góð kjör. Verið velkomin. Hlynur í síma 824 3040. www.kilhraunlodir.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Námskeið Microsoft kerfisstjóranám Bættu Microsoft í ferilskrána. MCITP Server Administrator 2008 með Win- dows 7 hefst 2. nóv. Hagstætt verð. Rafiðnaðarskólinn, www.raf.is, sími 863 2186. Óska eftir KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi af fólki og veiti ég góð ráð. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns. Upplýsingar á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13. Verið velkomin. Þjónusta Ýmislegt TILBOÐ Dömuskór úr leðri. Verð: 2.500. Misty skór, Laugavegi 178, sími: 551 2070, opið: mán.- fös. 10 - 18, lau. 10 -14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Eigum nýjar hvítar 80 x 200 innihurðir með karmi og gerektum á aðeins 24.000 með vsk. Húsgagnasprautun Gjótuhrauni 6, Hafnarfirði, sími 555-3759. Gríðarlega flottur "push up" í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.885, Glæsilegur "push up" í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.885,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, laugard. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Vandaðar leðurmokkasíur skinnfóðraðar með leðursóla. Litir: svart og bordo. Stærðir: 41 - 48. Verð: 7.950.- Mjúkir og þægilegir leðurskór skinnfóðraðir á góðum sóla. Litur: svart. Stærðir 40 - 47. Verð: 11.950. Léttir og sportlegir herraskór úr leðri, skinnfóðraðir. Góð breidd. Litur: svart. Stærðir: 41 - 48. Verð: 12.650.- Misty skór, Laugavegi 178, sími: 551 2070, opið: mán.- fös. 10 - 18, lau. 10 -14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Bílar Gæðaþvottur + bón á 2500 kr. - bara að mæta Bón & þvottur, Vatnagörðum 16, býður upp á gæðaþvott + bón, engir kústar, ásamt annarri þjónustu sem má sjá á heimasíðu okkar, eins vekj- um við athygli á að við breytum gömlu druslunni í drossíu með lakk- mössun með gæðaefnum. Höfum opið á laugardag frá kl. 10.00. bonogtvottur.is - Sími 445 9090. Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i ´07. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Húsviðhald Skipti um rennur og bárujárn á þökum, einnig smávægilegar múrviðgerðir og ýmislegt fl. Þjónum landsbyggðinni einnig. Upplýsingar í síma 659-3598. Varahlutir www.netpartar.is PARTASALA ...NOTAÐIR VARAHLUTIR Í NÝLEGA BÍLA 486 4499 486 4477 Raðauglýsingar Styrkir Styrkur Tónlistarsjóðs Rótarý Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi auglýsir eftir umsóknum um styrk. Tilgangur sjóðsins er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms. Styrkurinn verður veittur í janúar 2010 og verður að upphæð kr. 500.000. Umsóknarfrestur er til 20. október næstkomandi Umsóknum skal skilað til skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Netfang: rotary@simnet.is. Tilboð/Útboð Lóðir & lagnir Einn verktaki í allt verkið Tökum að okkur verk fyrir fyrirtæki, stofnanir, húsfélög og einstaklinga. Dren, skolp- lagnir, hellulagnir, lóðafrágangur, jarðvegs- skipti, snjóbræðslulagnir, grunnar, fleyganir, vörubílar og allt frá smágröfum til stærri tækja og fleira. Gerum föst verðtilboð. Guðjón, sími 897 2288. Gunnar Sigvalda- son vinur minn er látinn. Gunna kokki, eins og hann var iðu- lega kallaður af mörgum vinum sínum, kynntist ég Gunnar Georg Sigvaldason ✝ Gunnar GeorgSigvaldason fæddist í Reykjavík 4. september 1949. Hann lést á líkn- ardeild LSH í Kópa- vogi 10. september sl. Útför Gunnars fór fram frá Fríkirkjunni 18. september 2009. þegar hann keypti rekstur veitingastað- arins Mamma Rósa í Hamraborg í Kópa- vogi. Með okkur tók- ust góð kynni enda báðir með svipaðan húmor. Gunnar gat verið stríðinn en ég minnist hans fyrst og fremst fyrir hvað mér fannst hann hafa stórt hjarta. Ég man t.d. eftir því að Gunni gekkst í ábyrgð fyrir kaupum á sjónvarpstæki sem gefa átti í fermingargjöf. Náungann þekkti Gunni ekki mikið en hann komst við þegar hann heyrði að mað- urinn ætti í erfiðleikum með að standa við það fyrirheit til dóttur sinnar að færa henni sjónvarp í fermingargjöf. Svona var Gunni. Ég held að Gunni hafi undan- tekningarlaust verið vel liðinn og vinsæll meðal starfsfólksins. Að minnsta kosti var alltaf létt yfir því og mikið hlegið í eldhúsinu. Eins og áður sagði gat Gunni ver- ið ákaflega stríðinn. Það var til dæmis algjört bíó þegar Fannar heitinn og góðvinur Gunna fór að vinna á Mömmu Rósu. Þá áttu þeir félagarnir það til að ganga hvor upp að öðrum með fangið fullt af pottum og pönnum, án þess að t.d. Fannar yrði Gunna var, og svo var allt látið detta í gólfið með tilheyrandi skarkala. Að sjálfsögðu stökk sá þeirra er fyrir varð hæð sína vegna þess hversu honum brá. Allt var þetta til gamans gert en er gott dæmi um uppátækin hjá Gunna kokki. Ef illa lá á manni var Gunni ætíð tilbúinn að gera það sem hann gat til að hjálpa. Maður fann að þar fór vinur manns þegar hann lagði höndina á öxlina á manni. Gunni var mikill áhugamaður um flug. Eftir að hann seldi veit- ingareksturinn hitti ég hann nokkru seinna á Stykkishólmi. Þar hafði hann keypt lítið veitingahús. Innanbæjarmaður sagði mér að það hefði verið heppilegt að fá Gunna í bæinn því hann væri svo asskoti liðlegur við að skutla fólki milli staða á flugvélinni. Þegar ég frétti að Gunni væri veikur hafði ég uppi á símanúmerinu hans og sló á þráðinn til hans. Við áttum gott og skemmtilegt samtal og er ég þakklátur fyrir það. Mér fannst líka mikið til þess koma hversu æðrulaus hann var frammi fyrir þeirri staðreynd að hann ætti einungis nokkra mánuði eft- ir. Ég bið góðan Guð að blessa minningu Gunnars G. Sigvalda- sonar. Fjölskyldu hans sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Helgi Helgason, Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.