Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 23
Menning 23FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 myndlíkingar úr sjómannamáli hafa verið óspart notaðar, auk þess sem menn horfa nú að nýju til þessarar atvinnugreinar sem megintekjulind- ar Íslendinga og jafnvel einu bjarg- arvonarinnar eftir hrunið. Þessi Lífróður – Föðurland vorthálft er hafið“ er yfirskriftsýningar sem nú stenduryfir í menningarmiðstöð- inni Hafnarborg í Hafnarfirði. Hafa sýningarstjórarnir, hjónin Dorothée Kirch og Markús Þór Andrésson, tekið saman listaverk eftir valin- kunna samtímalistamenn sem vísa til sambands manna við sjóinn í þeim tilgangi að tengja listina þjóðfélags- umræðu, en eftir bankahrunið munu nálgun sýningarstjóra við þjóð- félagsumræðuna er nokkuð snjöll því samtímalist á Íslandi er einfald- lega of veik til þess að fást við þann tilfinningalega ólgusjó sem þjóðin er að fara í gegnum enda hefur listin löngum verið rígbundin hagkerfinu sem hrundi. Sýningarstjórarnir hafa því kosið að drepa á umræðuna í formi myndlíkingar og út frá upp- byggjandi efni sem geymir í sér arf- leifð jafnt sem von, fremur en að ráðast beint í hrunið eða kreppuna, enda eru róttækustu og tilfinninga- legustu gjörningarnir um þessar mundir framkvæmdir með rauðri málningu í skjóli nætur og ekki sem list. Formið á Lífróðri er nokkuð sem ég kalla: „Finnum-öll- listaverkin-sem-passa-við-þemað“- sýning og gengur semsagt út á að finna öll listaverkin sem passa við þemað. Aðferðin er algeng og sökum fábrotins úrvals íslenskra lista- manna poppa gjarnan sömu nöfnin upp aftur og aftur, þó með ein- hverjum skekkjumörkum, breytir engu hvort þemað er mikilfengleiki, skemmtanagildi eða sjómennska. Við sjáum hér verk eftir Ragnar Kjartansson, Gjörningaklúbbinn, Hrein Friðfinnsson, Margréti Blön- dal, Ásdísi Sif Gunnarsdóttur, Birgi Andrésson og Hrafnkel Sigurðsson, svo einhverjir séu nefndir. Sýning- arstjórarnir taka hins vegar athygl- isvert spor út fyrir viðurkenningu listheimsins og bæta við næfum mál- verkum Gylfa Ægissonar og teikn- ingum sem sjómaðurinn Elías Hjör- leifsson gerði úti á miðum, reyndar í samvinnu við son sinn Ólaf. Og gengur þetta spor skemmtilega upp hjá þeim hjónum. Upphengið er til stakrar fyrirmyndar. Listaverkin fá andrúm og þemað er nógu afmarkað til að þau fljóti saman þrátt fyrir fjölbreytileika þeirra. Hvert verk nær samt að njóta sín og sum hver fá jafnvel aukinn stuðning vegna sam- hengisins, eins og t.d. vídeógjörn- ingur Ásmundar Ásmundssonar sem ég hef séð áður í öðru samhengi en kolféll fyrir honum í þetta skiptið. Það hefði verið auðvelt að klúðra þessu og maður hefur svosem séð annað eins gerast, en vegna vand- aðrar sýningarstjórnar og auðvitað margra góðra listaverka reynist Líf- róður vera fyrirtaks sýning. Úr sjómannamáli Lífróður – Föðurland vort hálft er hafið bbbbn Morgunblaðið/Heiddi Gengur upp Ransu hrósar góðri sýningarstjórn sérstaklega. Hafnarborg Opið alla daga frá 11-17 og fimmtudaga til 21. Lokað þriðjudaga. Sýningu lýkur 1. nóvember. Aðgangur ókeypis. JÓN B.K. RANSU MYNDLIST Tónlistarmennirnir og hjónakornin Pawel og Ag- nieszka Panasiuk koma fram í Saln- um í tónleikaröð- inni TÍBRÁ annað kvöld kl. 20. Þau flytja verk eftir Schnittke, Chopin, Rachmaninoff, Schumann, Þorkel Sigurbjörnsson og Sigfús Halldórsson. Þau hjónin hafa verið virk í tónlistarlífi landans um árabil og hafa áður haldið tónleika saman. Agnieszka starfar sem meðleikari Listaháskóla Íslands og kennir við Tónlistarskóla Kópavogs. Pawel kennir sellóleik við Tónlistarskóla Ár- nesinga og Kópavogs. Tónlist Píanótónleikar í Salnum Pawel og Agnieszka Panasiuk Myndhöggvarinn Teddi er iðinn við kolann að vanda og hefur nú opnað tvær nýjar sýningar á verkum sínum; í Perlunni og í anddyri Seltjarn- arneslaugar. Um er ræða verk sem hann hefur unn- ið á síðastliðnum tveimur árum. Verkin eru að mestu í tré en einnig vinn- ur hann með málma af ýmsu tagi. Verk Tedda er að finna á mörg- um heimilum, stofnunum og myndlistar- söfnum hér heima en upplýsingar um Tedda og list hans er að finna á vefsíðunni www.teddi.net. Myndlist Teddi opnar tvær sýningar Magnús Th. Magnússon, Teddi. Haukur Snorrason ljós- myndari sýnir nú verk sín í Forsal Gallerís Foldar við Rauðarárstíg. Haukur Snorrason, fæddur 1968, hefur um ára- bil tekið ljósmyndir af Ís- landi úr lofti, af svæðum sem venjulega eru ekki að- gengileg almenningi. Verk Hauks eru ekki hefð- bundnar landslagsmyndir heldur tekur landið á sig ýmsar birting- armyndir, liti og form sem eru ráðandi þáttur í verkum hans. Myndirnar eru stækkaðar á gæðastriga með endingargóðu bleki. Að lokum er sett filma yfir myndirnar til varnar. Ljósmyndun Haukur Snorra- son sýnir í Fold Hluti úr verki eftir Hauk. Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is SAGA FILM er með nýja heimildarmynd í þróun og fjármögnun. Myndin ber vinnutitilinn Síðustu dagar heimskautsins og fjallar um ljós- myndarann Ragnar Axelsson eða RAX, eins og hann er oftast kallaður. Magnús Viðar Sigurðs- son leikstýrir myndinni og Margrét Jónasdóttir er framleiðandi og handritshöfundur. Myndin er gerð í tengslum við útgáfu bókarinnar Last Days of the Arctic sem kemur út samtímis í sjö löndum árið 2010 en í þeirri bók verður að finna myndir frá Grænlandi. RAX hefur verið ljósmyndari á Morgun- blaðinu frá 1976 en hann hóf þar störf aðeins 18 ára gamall. Hann hefur á ferlinum tekið mikinn fjölda ljósmynda sem hafa birst í blöðum og tímaritum um allan heim, þar á meðal LIFE, TIME og National Geographic. Ótrúlegur ljósmyndari „RAX er ótrúlegur ljósmyndari,“ segir Mar- grét. „Hann hefur lag á að velja sér spennandi verkefni. Hann vinnur eins og leikstjóri heimild- armynda og í 25 ár hefur hann ferðast um Ís- land, Grænland og Færeyjar og sótt þangað efnivið í magnaðar myndir. Í myndinni ætlum við að fylgja RAX eftir og skynja í gegnum list hans hvernig lífshættir á norðurslóðum eru að breytast, meðal annars vegna hlýnunar jarðar.“ Margrét segir að í myndinni verði fjallað um uppruna RAX. „Hann var í sveit sem barn og lærði þar að meta náttúruna og horfa á hana öðruvísi en borgarbúar. Á þessum árum drakk RAX í sig bækur um Grænland, sem verður stór hluti af þessari mynd. Síðan ætlum við að fjalla um það hvernig RAX náði út fyrir Ísland með ljósmyndir sínar, eins og Grænlandsmyndirnar. Við munum fara með honum á þá staði sem hann hefur verið að mynda, það er að segja í Landmannaafrétt, þar sem hann hittir vini sína, bændurna, og svo förum við með honum til Grænlands í apríl.“ Gífurleg viðbrögð Heimildarmyndin um RAX var kynnt á fjármögnunarmessunni Below Zero í Tromsö í janúar og á HotDocs í Toronto í Kanada í maí 2009 og Margrét segir viðbrögðin hafa verið gífurlega sterk. „Við erum þegar búin að forselja myndina á fimm erlendar sjónvarpsstöðvar. Við Magn- ús erum búin að vera í þessum bransa í tólf ár og höfum aldrei fengið viðlíka viðbrögð og nú við verki sem við höfum farið með á þessar messur erlendis.“ Áætlað er að myndin verði tilbúin til sýn- ingar fyrir jól 2010. Samspil manns og náttúru  Heimildarmynd um ljósmyndarann RAX í vinnslu  Snýst um áratuga starf hans á norðurhvelinu RAX á Grænlandi Fjallað verður um Grænlandsferðir hans í nýrri heimildarmynd. RAXI vinnur þessa stundina að fjórum bókum. „Í tuttugu ár hef ég farið reglu- lega til Grænlands og farið með veiði- mönnum á ísbjarnaveiðar. Myndir úr þeim ferðum koma í bókinni Last Days of the Arctic. Önnur bók er um Land- mannalaugaafrétt en þangað hef ég far- ið síðastliðin tuttugu ár og myndað. Ég nota þar líka sögur bænda úr ævintýra- ferðum þeirra í gegnum árin. Þriðja bók- in geymir úrval af myndum mínum frá þrjátíu ára ferli ásamt texta eftir mig þar sem ég segi frá tilurð myndanna. Fjórða bókin er leyndarmál en hún er nokkuð mögnuð. Ég vil ekki segja um hvað hún er því hætt er við að einhverjir myndu hlaupa til og stela hugmyndinni. Ég vil einungis segja að margir aðilar munu koma að henni.“ Fjórar bækur í smíðum Halldór Gíslason arkitekt heldur fyrirlestur um upp- byggingu og stofnun Listaháskóla í Mapútó í Mósambík á Kjarvals- stöðum í dag, mánudag, kl. 12. Halldór mun gera grein fyrir starfinu í Mó- sambík og hvernig hönnun getur vaxið í einföldu sam- félagi þar sem stoðkerfi eru af skornum skammti. Halldór vann að stofnun hönnunardeildar LHÍ fyrir bráðum tíu árum, en hann hefur nú starfað að und- anförnu í Mapúto við kennslu og þróun á menntun í hönnun ásamt Sóleyju Stef- ánsdóttur, grafískum hönnuði. Byggingarlist Listaháskólinn í Mapútó Halldór Gíslason Ljósmynd/Sveinn M. Sveinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.