Morgunblaðið - 21.09.2009, Síða 2
2 FréttirINNENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
H
ÍV
T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
9
-
1
4
9
2
AÐEINS
1% FITA
20%
ÁVEXTIR
N Ý R J Ó G Ú R T D R Y K K U RM S . I S
NÝR JÓ
GÚRT
DRYKK
UR
3%
HVÍTUR
SYKUR
AÐEINS ENGINSÆTUEFNI
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
FORSVARSMENN Spalar og lífeyrissjóðanna
bíða nú viðbragða ríkisstjórnarinnar við hug-
myndum um tvöföldun Hvalfjarðarganga og tvö-
földun Vesturlandsvegar frá Kollafirði, um Kjal-
arnes að göngunum. Engin viðbrögð hafa orðið við
bréfi sem Spalarmenn sendu tveimur ráðherrum í
sumar vegna málsins.
Lífeyrissjóðir áhugasamir
Verkið er í hópi þeirra verklegu framkvæmda
sem aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld settu
fram við gerð stöðugleikasáttmálans í júní.
Forsvarsmenn Spalar leituðu á sínum tíma til
lífeyrissjóðanna til að kanna hvort áhugi væri á að
taka þátt í fjármögnun verkefnisins ef vilji væri
einnig fyrir hendi hjá ríkisvaldinu. Forsvarsmenn
lífeyrissjóðanna tóku því vel að sögn Gísla Gísla-
sonar, stjórnarformanns Spalar.
„Í framhaldi af því sendum við fjármálaráð-
herra og samgönguráðherra bréf í sumar en það
eru engin viðbrögð við því bréfi. Þar við situr. Við
förum ekki af stað nema til þess komi að ríkið setj-
ist niður með okkur og velti upp valkostum um
fyrirkomulagið. Það eru ýmsar leiðir sem koma til
greina en engin ein hefur verið sérstaklega nefnd
umfram aðrar að svo stöddu,“ segir hann.
Fleiri valkostir en veggjöld
Ýmsar hugmyndir hafa verið viðraðar um
hvernig standa eigi undir afborgunum og rekstr-
arkostnaði, s.s. með veggjöldum, en þau hafa þótt
henta illa við breikkun stofnbrauta. Gísli segir um-
ræðuna ekkert sérstaklega snúast um veggjald.
Ýmir kostir séu uppi. Í Færeyjum standi t.d.
veggjald í göngum undir hluta framkvæmda á
móti kostnaði sem landstjórnin tekur á sig.
„Það eru ýmsir valkostir sem ég tel að séu
áhugaverðir fyrir ríkið, og örugglega fyrir íbúa og
vegfarendur.“
Engin svör frá ríkinu
Spölur og lífeyrissjóðirnir hafa áhuga á tvöföldun Hvalfjarðarganga og Vest-
urlandsvegar í Kollafirði Skrifuðu tveimur ráðherrum bréf um málið í sumar
Morgunblaðið/Sverrir
Hvalfjarðargöng Umferð hefur margfaldast.
NÝ veröld með óvæntum ævintýrum er það sem
börn úr þorpum frá Austur-Grænandi hafa upp-
lifað síðustu daga í heimsókn sinni hingað til
lands. Hér hafa þau lært sund, skák, kynnst jafn-
öldrum og heimsótt skóla. Verkefnið er sam-
vinna Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands,
Hróksins og fleiri. Um helgina heimsóttu börnin
Húsdýragarðinn í Reykjavík þar sem lítill hund-
ur varð þeim sem undur og opinberun.
GRÆNLENSK BÖRN Í NÝRRI VERÖLD Á ÍSLANDI
Morgunblaðið/Kristinn
MORGUNBLAÐIÐ og mbl.is njóta mests trausts
þeirra sem lesa dagblöð og netmiðla. Bætir Morgun-
blaðið við sig 6,2 prósentustigum. Þetta er niðurstaða
könnunar MMR á trausti almennings til helstu sjón-
varps-, prent- og netfréttamiðla.
Fram kemur hjá MMR að Morgunblaðið er enn sem
fyrr það dagblað sem nýtur mests trausts meðal svar-
enda, en 57,9% þeirra segjast nú bera mikið traust til
blaðsins. Fréttablaðið nýtur mikils trausts meðal 38,1%
svarenda. Meðal netfréttamiðla nýtur Mbl.is mests
trausts, en 59,6% segjast bera mikið traust til Mbl.is,
sem eru 32,7 prósentustigum fleiri en þeir sem segjast
bera mikið traust til visir.is (26,9%).
Um 75% aðspurðra segjast bera mikið traust til
fréttastofu RÚV. Þetta eru ríflega tvöfalt fleiri en segj-
ast bera mikið traust til fréttastofu Stöðvar 2 (37,2%).
Í könnuninni kom í ljós að 18,9% segjast bera mikið
traust til fjölmiðlanna almennt. Þetta eru heldur fleiri en
sögðust bera mikið traust til fjölmiðlanna í könnun sama
efnis í maí 2009 þegar 14,9% sögðust bera mikið traust til
fjölmiðlanna.
Könnunin var framkvæmd dagana 9-14. september sl.
og var heildarfjöldi svarenda 909 einstaklingar.
Lesendur treysta best
Morgunblaðinu og mbl.is
75% aðspurðra bera mikið
traust til Fréttastofu RÚV
RÍKISKAUP
auglýsa um
helgina eftir hús-
næði til leigu fyr-
ir Fangelsis-
málastofnun
undir fangelsi.
Segir Páll Wink-
el, forstjóri stofn-
unarinnar, að um
bráðabirgðaráð-
stöfun verði að ræða en ætlunin er
að taka húsnæði á leigu í tvö ár með
möguleika á framlengingu leigu-
samnings. „Að sjálfsögðu verður
haldið áfram með langtímauppbygg-
ingu, það er að segja að byggja mót-
töku og gæsluvarðhaldsfangelsi í
Reykjavík.
Staðan hefur verið það erfið að við
einfaldlega höfum ekki pláss fyrir þá
fanga sem við þurfum að taka inn,“
segir Páll og segir að í flestum fang-
elsum landsins sé tvímennt í klefa
vegna rýmisskorts.
Páll segir að til standi að vista að-
eins „fyrirmyndarfanga“ á nýja
staðnum, allt að 26 manns. „Við er-
um þarna til dæmis að tala um menn
sem geta verið að klára margra ára
dóma.“
Verða fangar valdir á grundvelli
áhættumats og þeir sem ekki er talið
óhætt að vista utan veggja hinna
eiginlegu fangelsa munu afplána
sína dóma þar.
Enn hafa engin tilboð borist enda
er stutt síðan auglýst var eftir hús-
næðinu. skulias@mbl.is
Vilja leigja
þak yfir
höfuð fanga
Páll Winkel
Tvímennt í flestum
klefum fangelsanna
„SIGLINGIN gengur vel, við erum
að nálgast Eyjarnar,“ sagði Unnar
Valby Gunnarsson, skipstjóri á
Baldri, í samtali við Morgunblaðið á
ellefta tímanum í gærkvöld.
Breiðafjarðarferjan er notuð í
stað Herjólfs sem er í slipp á Ak-
ureyri en vonast er til að skipið verði
komið aftur í áætlun um næstu helgi.
Undanfarin ár hefur ferjan St. Ola
verið notuð þegar Herjólfur fer í
slipp, sem hefði kostað 80 milljónir
en leiga á Baldri 20 til 30 millj. kr.
„Það er gott í sjóinn, ölduhæðin er
rúmir tveir metrar,“ sagði Unnar á
Baldri sem var með um borð tíu bíla
og 33 farþega. sbs@mbl.is
Baldur var
ódýrastur