Morgunblaðið - 21.09.2009, Side 11
„EINA varanlega lausn gjaldeyrisvandans er samstarf við ESB og Seðla-
banka Evrópu, á grunni neyðarréttar innan EES-samningsins og um-
sóknar um aðild að ESB, til að gera krónuna að starfhæfum gjaldmiðli,
sem allra fyrst þar til evra yrði tekin upp, og aflétta höftum á gjaldeyr-
ismarkaði, þar sem kerfisáhætta krónunnar er of mikil,“ seg-
ir Baldur. „Styrkja þarf gengi krónunnar um a.m.k. 30%
til að ná langtíma jafnvægisgengi, sem einnig væri
æskileg staða við skiptingu yfir í evru þegar
hún yrði tekin upp innan 2ja til 3ja
ára. Sé slíkt mögulegt myndi það
lækka erlendar skuldir um 1.000
milljarða og innlendar skuldir
einnig eitthvað, vegna lækkunar
verðlags.“
Starfhæf króna
www.matis.is
Villibráð – meðferð og meðhöndlun
S
B
A
0
9
/2
0
0
9
Matís, Skotveiðifélag Íslands, Matvælastofnun og Úlfar Finnbjörnsson hjá Gestgjafanum bjóða til opins
fræðslufundar á morgun, þriðjudaginn 22. september nk. frá kl. 8:30-9:45 á Hótel Nordica,
Suðurlandsbraut 2. Þar munu fremstu sérfræðingar landsins í meðferð og meðhöndlun villibráðar
flytja erindi um þetta áhugaverða efni.
Dagskrá
08:30-08:35 – Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra – Fundur settur
08:35-08:45 – Ívar Erlendsson, leiðsögumaður/hreindýraguide – Eftir skotið, hvað þá?
08:45-08:55 – Sigmar B. Hauksson, Skotvís – Betri nýting villibráðar - meiri ánægja, fleiri minningar?
08:55-09:05 – Kjartan Hreinsson, MAST – Löggjöf um meðferð og meðhöndlun villibráðar
09:05-09:15 – Guðjón Þorkelsson, Matís – Um meðferð og meðhöndlun villibráðar; tækifæri í vöruþróun?
09:15-09:25 – Úlfar Finnbjörnsson, Gestgjafinn – Fullnýting afurðanna ásamt kryddun, eldun og meðlæti!
09:25-09:45 – Spurningar, svör, umræður
Fundarstjórn
Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís
Fréttir 11VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
Forsenda endurreisnar atvinnulífs,hagkerfis og um leið lækkunar áskuldastöðu heimila, fyrirtækja,sveitarfélaga og ríkis er varanleg
lausn gjaldmiðilsvandans og eðlileg leiðrétting
á gengi krónunar, sem er meira en 30% of lágt
skráð miðað við langtíma-jafnvægisraungengi.
Þetta segir Baldur Pétursson, sem hefur verið
aðstoðarframkvæmdastjóri Endurreisnar- og
þróunarbanka Evrópu (EBRD) í London und-
anfarin ár.
„Af þessum ástæðum eru erlendar skuldir
30% of háar sem nemur um þúsund milljörðum
íslenskra króna, eða um 14 milljónum á hverja
fjögurra manna fjölskyldu,“ segir Baldur. „Sá
vandi sem við er að glíma myndi minnka veru-
lega ef gengi krónunnar væri leiðrétt og
styrktist um 30%, þar sem erlend lán og af-
borganir þeirra myndu lækka um þúsund millj-
arða (frá 3.400 milljörðum í um 2.400 milljarða
króna), og vísitölubundin lán myndu einnig
lækka vegna lækkandi verðlags. Skamm-
tímavanda lántakenda mætti minnka með því
að miða afborganir við gengi og vísitölu vorið
2008 (teygjulán), til að kaupa meiri tíma þar til
gengið hækkar og eðlilegu jafnvægisgengi er
náð.
Jafnframt er mikilvægt að huga að virkari
gjaldeyrishömlum, m.a. með skiptiskyldu á er-
lendum gjaldeyri vegna útflutnings yfir í ís-
lenskar krónur á innlendum gjaldeyrismarkaði,
til að styrkja krónuna sem allra fyrst, lækka
verðbólgu og erlendar skuldir og gera mögu-
legt að lækka vexti mun fyrr en ella.
Eini möguleikinn við lausn þessa risavaxna
gjaldmiðilsvanda er að auka trúverðugleika
krónunnar og styrkja hana að jafnvægisgengi
með samstarfi og samningum við Seðlabanka
Evrópu og ESB um fjármála- og gjaldmið-
ilsstöðugleika, sem fyrst, á grunni EES-
samningsins og umsóknar um aðild að ESB,
eins og stefnt er að, vegna þeirra neyðarstöðu
sem hér er. Eftir það mætti minnka eða af-
nema gjaldeyrishöftin. Í þessu sambandi skipt-
ir afar miklu að Ísland hefur þegar sótt um að-
ild að ESB. Takist að styrkja krónuna í
jafnvægisgengi og koma á gengisstöðugleika,
sem er forsenda allra annarra aðgerða, myndu
erlendar skuldir einnig lækka um 1.000 millj-
arða. Í þessari erfiðu stöðu eru því einnig
hugsanlega mikil tækifæri til lausnar vand-
anum – sem mikilvægt er að athuga afar vel.
Takist þetta er bjart framundan á Íslandi.“
Þrisvar sinnum hærri en Icesave
Til að setja hlutina í samhengi má nefna að
þær skuldir sem Baldur segir að hvíli nú auka-
lega og að óþörfu á þjóðinni vegna hruns krón-
unnar, umfram langtíma-jafnvægisgengi, um
þúsund milljarðar króna, eru væntanlega um
þrisvar sinnum hærri en hugsanlegur mesti
skaði af Icesave-skuldbindingunum. Af þessari
fjárhæð þarf að greiða afborganir og vexti nú
þegar, en ekki eftir nokkur ár eins og í tilfelli
Icesave. Þess vegna er skuldavandi heimila og
fyrirtækja svo mikill, og því er leiðrétting og
styrking gengis svo mikilvæg.
„Meginorsök þessa skuldavanda sem við er
að stríða má rekja til kerfisvanda vegna allt of
lítils og stórlega áhættumikils gjaldmiðils í
mörg ár,“ segir Baldur. „Hann er hruninn
langt umfram eðlilegt langtímajafnvægi og er
ekki lengur nothæfur á alþjóðamörkuðum þar
sem hann hefur misst allt traust. Svo mikið
gengishrun hefur margfalt skaðlegri áhrif nú,
sökum þess hversu erlendar skuldir eru miklu
hærra hlutall af heildarskuldum en áður var.
Þess vegna veldur mikið gengisfall miklu
meira tjóni en ávinningi fyrir íslenska hag-
kerfið og magnar í raun allan vanda og um
leið niðursveifluna. Hluta af gengisfallinu og
vandanum undanfarið má einnig rekja til þess
að gjaldeyri vegna útflutnings hefur ekki verið
skipt yfir í íslenskar krónur á innlendum
markaði.“
Hrun krónunnar vegur þyngst
Baldur segir að þó að tjón af falli bankanna sé
mikið sé það líklega einungis um 20-30% af
heildartjóninu hér á landi en tjónið vegna
hruns krónunnar sé um 70-80% af heildar-
tjóninu. Þetta stafi af því að hrun krónunnar
komi fram í verðbólgu, hækkandi verðlagi,
verðtryggðum lánum (sem sé einstakt og
magni vandann) og miklum hækkunum á er-
lendum skuldum fyrirtækja, ríkis, sveitarfé-
laga og einstaklinga, vöxtum innanlands sem
erlendis, mikilli greiðslubyrði og erfiðleikum
íslenskra fyrirtækja erlendis, auknu atvinnu-
leysi og fleiru.
„Gengisfallið ógnar hratt stórfram-
kvæmdum og undirstöðufyrirtækjum þar sem
þau eru sum hver ekki lengur bankahæf hjá
erlendum bönkum þar sem eigið fé hrundi nið-
ur fyrir viðmiðunarmörk – vegna hruns krón-
unnar þar sem erlendar skuldir hækkuðu mik-
ið. Gengisfallið veldur einnig mun meiri
samdrætti og minni tekjum og því að skera
þarf meira niður í útgjöldum ríkis og sveitarfé-
laga en ella sem um leið magnar niðursveifluna
og gerir hana enn erfiðari. Þrátt fyrir að ein-
staka útflutningsgreinar njóti ávinnings lágs
gengis í meiri tekjum hækka erlendar skuldir
þeirra meira og heildartjón þjóðarinnnar verð-
ur mun meira af gengisfallinu en ávinning-
urinn, eins og blasir við, vegna þess hversu
miklu meira þjóðin er skuldsett í erlendum
gjaldmiðlum en áður var. Þetta er kjarni vand-
ans, og því er lausn gjaldmiðlavandans og
styrking krónunnar svo aðkallandi.
Hefði verið evra hér á landi á umliðnum ár-
um, hefði þetta gengis- og verðbólgutjón ekki
átt sér stað, enda ekkert slíkt gengistjón gerst
almennt hjá fyrirtækjum og einstaklingum í
þeim löndum sem búa við stóra og trausta
gjaldmiðla eins og evruna svo sem í Finnlandi,
Lúxemborg eða Írlandi.“ Þetta á einnig við
Danmörku, Færeyjar og Grænland sem eru
einnig með evru í raun þar sem danska krónan
er tengd evru innan ERM, sem Ísland ætti að
athuga sem allra fyrst í komandi samningum
við ESB, þar til evra verður tekin upp.“
Margfalt meira tjón
Baldur hefur í starfi sínu hjá EBRD-
bankanum starfað mikið í Austur-Evrópu,
Rússlandi og Mið-Asíu. Hann segir að starf al-
þjóðastofnana þar hafi að stórum hluta miðað
að því að koma í veg fyrir meiriháttar fjár-
mála- og gengisáföll. Þetta hafi í meginatriðum
tekist, með miklum stuðningi alþjóðastofnana,
m.a. innan ESB, svo sem Seðlabanka Evrópu,
við þau lönd sem eiga aðild að sambandinu en
hafa ekki tekið upp evru.
„Tjón Íslands í þessari kreppu er margfalt
meira en í verst settu löndum innan ESB sök-
um þess mikla gengisskaða sem varð á Íslandi
vegna um 50-60% gengisfalls. Í mörgum lönd-
um Austur-Evrópu, sem einnig eru mikið
skuldsett í erlendum gjaldeyri, telja margar
bankastofnanir að allar gengisbreytingar um-
fram 15-20% stefni viðkomandi fjármálakerfi í
voða. Því þarf engum að koma á óvart að 50-
60% gengisfall á Íslandi hafi verið helsti or-
sakavaldur að mesta gjaldmiðla- og fjár-
málaáfalli sem nokkurt land hefur orðið fyrir,“
segir Baldur.
Áfall Baldur Pétursson segir að það þurfi ekki að koma nokkrum á óvart að 50-60% gengisfall á
Íslandi hafi verið helsti orsakavaldur að mesta gjaldmiðla- og fjármálaáfalli nokkurs lands.
Erlendar skuldir 30% of háar
Baldur Pétursson segir nauðsynlegt að koma á skiptiskyldu á gjaldeyri í krónur til að styrkja gengið
Takist að leiðrétta gengið og koma á stöðugleika lækki erlendar skuldir um þúsund milljarða króna
BALDUR segir að þrátt fyrir að
stjórnvöld á Íslandi hafi unnið mik-
ið afrek í björgunaraðgerðum á
ýmsum sviðum, s.s. að halda bönk-
um gangandi, umsókn um aðild að
ESB og afgreiðslu Icesave við afar
erfiðar aðstæður, séu gríðarlega
mikilvægar aðgerðir í gjaldmiðla-
málum framundan.
„Þetta stafar af því að áfallið sem
Ísland varð fyrir er hlutfallslega
langstærsta gjaldeyris- og fjár-
málakreppa sem nokkurt land hef-
ur nokkru sinni lent í á friðar-
tímum. Af þessum ástæðum er
verið að glíma við vanda af stærð-
argráðu og flækjustigi sem engin
þjóð hefur glímt við áður.“
Hlutfallslega stærsta áfallið