Morgunblaðið - 21.09.2009, Síða 21
Dagbók 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
6 2
5 3
8 5
7 2 9
1 6 3
5 8 3
2 7 5
4 3 2 8
1 4 7
5 4
3 4
3 6
2 1
7 8
9 8 6 5
4
5 7 2 3 1
2 6 1 3
2 6
5 8 2
9 5 4
6 2 7
7 4 9 3
7 3
1
6 9 5 1
3 8 9 7
8 7 3 4 1 6 9 2 5
5 4 6 2 9 8 7 3 1
1 9 2 3 7 5 8 4 6
2 5 9 7 6 4 3 1 8
4 1 8 9 5 3 2 6 7
3 6 7 1 8 2 5 9 4
6 8 4 5 3 9 1 7 2
7 3 5 6 2 1 4 8 9
9 2 1 8 4 7 6 5 3
5 9 8 2 7 3 4 1 6
1 6 3 4 8 9 2 7 5
7 4 2 5 6 1 9 3 8
4 1 6 9 5 2 3 8 7
2 3 5 8 1 7 6 4 9
9 8 7 3 4 6 1 5 2
6 2 4 7 3 5 8 9 1
3 7 9 1 2 8 5 6 4
8 5 1 6 9 4 7 2 3
1 7 2 3 5 4 9 6 8
3 6 9 1 8 7 5 2 4
5 8 4 2 6 9 7 1 3
8 2 6 5 7 1 3 4 9
7 9 1 4 3 2 6 8 5
4 3 5 8 9 6 2 7 1
9 1 8 6 2 3 4 5 7
6 4 3 7 1 5 8 9 2
2 5 7 9 4 8 1 3 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 21. september,
264. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér
skilja, að ég er í föður mínum og þér í
mér og ég í yður. (Jh. 14, 20.)
Víkverji getur ekki látið hjá líðaað hrósa þeim sem reka 10-11-
verslunina á Keflavíkurflugvelli fyr-
ir hugrekki í verðlagningu.
Krónan hefur hrunið og því ekki
vit í öðru en að láta ferðamönnum
blæða sem allra mest á meðan þeir
hafa enn einhverjar krónur til að
losa sig við. Sumir koma aldrei aftur
og því skiptir engu máli þótt búðaok-
ur skilji eftir blendnar tilfinningar í
garð lands og þjóðar.
Fólk frá fjarlægum löndum eins
og Japan fer varla að segja mann-
hafinu frá okureyjuni í norðri sem
fyrir kaldhæðni örlaganna setti
sjálfa sig á hausinn.
Svo geta Íslendingar sem eru svo
vitlausir að taka ekki með sér nesti
út á flugvöll sopið seyðið af fyrir-
hyggjuleysinu. Það má líka alltaf
auka á yfirdráttinn.
x x x
Verðdæmi segja alla söguna.Maarud-kartöfluflögur með
sýrðum rjóma kosta 749 krónur, lítill
poki af pistasíuhnetum 799 krónur
en kasjúhnetur aðeins 649 krónur, í
sömu gegnsæju umbúðunum.
Þeir sem vilja kanilsnúða hljóta að
hugsa sig tvisvar um. Pågen-snúðar
kosta 449 krónur og þætti mörgum
líklega vel sloppið.
Verði á Lay’s-kartöfluflögum er
stillt í hóf á mælikvarða verslunar-
innar. Pokinn kostar 519 krónur og
væri fróðlegt að sjá hvað kílóið af
kartöflum kostar í framleiðsluland-
inu. Kartöflubændur í því gósen-
landi hljóta að mala gull.
Þeir sem vilja yl í kroppinn með
heitu súkkulaði og vita að beint sam-
band er jafnan á milli verðs og gæða
verða ekki sviknir. Krúsin af Swiss
Miss Marshmallow-kakódufti kostar
aðeins 1.099 krónur. Mörgum þykir
mjólkurkexið ómissandi með kakói
en það er að sjálfsögðu á gjafverði,
aðeins 429 krónur pakkinn. Kókið er
farið að nálgast 400 krónurnar því
tveggja lítra flaska er á litlar 339
krónur.
Rúsínan í pylsuendanum er svo að
Rookee-núðlur kosta 89 krónur
pakkinn eða 270% meira en í Bónus,
sem varla selur þær án álagningar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | Lárétt: 1 eftir-
tektar, 4 þurrka, 7 iðk-
un, 8 gerjunin, 9 ferskur,
11 kvenmannsnafn, 13
fall, 14 útlimur, 15 skál,
17 guð, 20 uxi, 22 skvett-
ir, 23 smá, 24 romsan, 25
kaka.
Lóðrétt | Lóðrétt: 1
hagnast, 2 eyddur, 3
hérað í Noregi, 4 naut, 5
huglaus, 6 hinn, 10 orð-
um aukinn, 12 kraftur,
13 lík, 15 fallegur, 16
sníkjudýrið, 18 er fær
um, 19 kind, 20 klukk-
urnar, 21 slæmt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hrævareld, 8 endar, 9 yndis, 10 lof, 11 skipa,
13 ilina, 15 lagða, 18 ögnin, 21 nón, 22 brand, 23 gaupu,
24 hirðulaus.
Lóðrétt: 2 ruddi, 3 varla, 4 reyfi, 5 loddi, 6 vers, 7 assa,
12 puð, 14 lag, 15 labb, 16 glati, 17 andað, 18 öngul, 19
naumu, 20 naut.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. a3
Ba6 5. Dc2 Bb7 6. Rc3 c5 7. e4 cxd4
8. Rxd4 Bc5 9. Rb3 Be7 10. Bf4 d6
11. Hd1 O-O 12. e5 Rh5 13. Be3 Bg5
14. Dc1 Bxe3 15. Dxe3 Rc6 16. Hxd6
Dh4 17. Hd7 Hab8 18. g3 Dg4 19. h3
Df5
Staðan kom upp í keppni yngri og
eldri stórmeistara sem lauk fyrir
skömmu í Amsterdam í Hollandi. Al-
exander Beljavsky (2662) hafði hvítt
gegn hinum 17 ára Ítala Fabiano
Caruana (2670). 20. Hxb7! Hxb7 21.
Bg2 Hc7 22. Bxc6 f6 23. Be4 Dxe5
24. f4 Dd6 25. Rb5 og svartur gafst
upp. Lið hina eldri vann keppnina
með þó nokkrum yfirburðum og stóð
Daninn Peter Heine Nielsen (2680)
sig best þeirra en hann fékk 6 1/2
vinning af 10 mögulegum.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Nákvæm tímasetning.
Norður
♠873
♥109762
♦D
♣DG109
Vestur Austur
♠K1096 ♠G4
♥K854 ♥DG3
♦K76 ♦G832
♣62 ♣8754
Suður
♠ÁD52
♥Á
♦Á10954
♣ÁK3
Suður spilar 4♠.
NS eiga hvergi átta spila samlegu
og í slíkum tilvikum enda sagnir
gjarnan í 3G ef styrkur leyfir. Bob
Hamman reyndi fyrir sér á þeim
stað í úrslitaleiknum í Sao Paulo, en
fór einn niður eftir spennandi átök.
Hinum megin sá Versace gildi þess
að spila 4♠, þótt hann vissi um tak-
markaðan stuðning. Útspilið var ♣6
og Versce gaf sér óvenju góðan
tíma.
Loks tók hann til óspilltra mál-
anna: Drap heima á ♣Á, lagði niður
♥Á, spilaði laufi á borðið og tromp-
aði hjarta. Tók þá fyrst ♦Á og stakk
tígul. Trompaði hjarta til baka, tígul
í borði og hjarta enn með ♠D. Þar
með voru tíu slagir mættir: 6 á
tromp og 4 toppslagir til hliðar.
Fleiri leiðir liggja til vinnings, en
spilamennska Versace er sýnu best.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Rétt byrjun er besta leiðin til
þess að stilla sig saman við umhverfið.
Láttu ekkert annað trufla þig á meðan.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hættu að velta þér upp úr mistök-
unum. Samræður við foreldra eða aðra
fjölskyldumeðlimi fá aukið vægi.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Reyndu að sýna öðrum ein-
lægni í dag og koma hreint fram.
Njóttu velgengninnar á meðan þú hefur
byr í seglin. Varastu að vilja grípa inn í
líf annarra.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Fjölskyldumálin þurfa að ganga
fyrir öðru í dag því að mörgu er að
hyggja. Hvort þau vaxa eða ekki veltur
á því hversu mikla athygli þú ert tilbú-
inn að veita.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Nú er rétti tíminn til þess að upp-
lifa ný ævintýri svo þú skalt bara láta
það eftir þér að sletta svolítið úr klauf-
unum. Við uppskerum eins og við sáum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Gættu vel að heilsu þinni jafnt
andlegri sem líkamlegri. Hugsjónaeldur
innra með ástvini er hjálplegri en svart-
sýni sérfræðings.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nú ertu tilbúinn til þess að tala um
tilfinningar þínar við þá sem skipta þig
máli. Vertu óhræddur við að sýna öðr-
um væntumþykju.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er allt í lagi að vita
ekki hvað tekur við. En það er gaman
að einhver vilji mann, svo njóttu athygl-
innar.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú vekur athygli annarra og
þér finnst það notalegt. Allt sem teng-
ist fjölskyldu og heimili getur á ein-
hvern hátt aukið velsæld þína.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þið ættuð ekki að láta draga
ykkur til þess að gera annað en þið vilj-
ið sjálf. Gamalt samtal byrjar aftur þar
sem því lauk síðast.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Vertu ekki pirraður þótt þér
finnist ekkert ganga því ekki er allt
sem sýnist. Tilfinningar geta komið í
veg fyrir að þið sjáið hlutina í skýru
ljósi.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Sá sem þú síst áttir von á skýtur
nú upp kollinum og réttir fram sátta-
hönd. Gefðu eftir í litlu málunum og
haltu þínu striki í þeim stóru.
Stjörnuspá
21. september 1918
Fyrsta konan fékk öku-
skírteini hér á landi. Það var
Áslaug Þorláksdóttir Johnson.
Þá voru áttatíu karlar komnir
með ökuréttindi.
21. september 2000
Örn Arnarson varð í fjórða
sæti í 200 metra baksundi á
Ólympíuleikunum í Sydney.
Hann synti á 1 mínútu og
59,00 sekúndum og var „fljót-
astur baksundsmanna í Evr-
ópu,“ að sögn Morgunblaðsins.
21. september 2005
Tilkynnt var að tillaga Portus-
hópsins um byggingu tónlistar
- og ráðstefnuhúss við Reykja-
víkurhöfn hefði verið valin.
Kostnaðaráætlun var 12 millj-
arðar króna og vígja átti húsið
haustið 2009.
21. september 2005
Michael Bolton hélt tónleika í
Laugardalshöll. Morgunblaðið
sagði að hann hefði sungið af
mikilli innlifun og að kven-
þjóðin hefði verið „í sjáan-
legum meirihluta tónleika-
gesta“.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Vinkonurnar Eva Huld Dags-
dóttir, Silja Jónsdóttir og Ásdís Lóa
Erlendsdóttir héldu tombólu á Eið-
istorgi og söfnuðu 5.610 kr. sem
þær styrktu Rauða krossinn með.
Hlutavelta
„ÉG hef verið að halda upp á afmælið allt árið. Í
vor fór ég til eyjarinnar Mön þar sem pabbi var í
fjögur ár í fangabúðum Breta. Í sumar fór ég í
gönguferð um Austurdal í Skagafirði, en í Skaga-
firði á ég rætur, sem og einnig við Breiðafjörð, en
þangað fór ég líka, með fyrirlestur um formóður
mína Ólöfu ríku Loftsdóttur. Í dag tek ég svo á
móti gestum í Skólabæ við Suðurgötu milli klukk-
an fjögur og sjö,“ segir Helga Kress sem fagnar
sjötíu ára afmæli í dag. „Núna er ég að ganga frá
afmælisriti sem Bókmenntafræðistofnun Háskól-
ans ætlar að gefa út mér til heiðurs með úrvali
greina eftir mig frá síðasta áratug. Skrítnast við þessi tímamót er að
þurfa að hætta formlega að vinna, en ég hef meir en nóg að starfa um
ófyrirsjáanlega framtíð. Það jákvæða er frelsið, að geta óskipt starfað
að rannsóknum og skrifað allar þær bækur sem ég hef um ævina safn-
að heimildum til en ekki gefist samfelldur tími til að ljúka. Það getur
verið erfitt að sameina þetta þrennt í háskólastarfi, rannsóknir,
kennslu og stjórnun. Annars finnst mér gaman að kenna og mun
sakna kennslunnar,“ segir Helga sem undirbýr fyrirlestraferð um
Hallgerði í Njálu og útgáfu á ljóðum Ólafar frá Hlöðum. khk@mbl.is
Helga Kress er sjötug í dag
Tímamótunum fylgir frelsi
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is