Morgunblaðið - 30.09.2009, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
SVANDÍS Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra hefur fellt úr gildi
ákvörðun Skipulagsstofnunar um að
ekki skuli fara fram sameiginlegt
mat á umhverfisáhrifum Suðvest-
urlínu og öðrum tengdum fram-
kvæmdum.
Landvernd og Náttúruverndar-
samtök Íslands kærðu ákvörðun
Skipulagsstofnunar frá 25. mars
2009 um að ekki skyldi fara fram
sameiginlegt mat á umhverfisáhrif-
um Suðvesturlínu, styrkingu raf-
orkuflutningakerfis á Suðvestur-
landi og öðrum framkvæmdum sem
tengdust álveri í Helguvík.
Í úrskurði umhverfisráðherra
kemur m.a. fram að rétt þyki að fella
hina kærðu ákvörðun úr gildi vegna
„formannmarka á ákvörðun Skipu-
lagsstofnunar að upplýsa málið ekki
nægjanlega“, m.a. um „hvort fleiri
en ein matsskyld framkvæmd sé fyr-
irhuguð á sama svæði og/eða hvort
framkvæmdir séu háðar hver ann-
arri og með því að hafa ekki haft full-
nægjandi samráð við fram-
kvæmdaraðila og leyfisveitendur
áður en ákvörðun var tekin“.
Aftur til Skipulagsstofnunar
Umhverfisráðherra hefur vísað
málinu aftur til Skipulagsstofnunar
til efnislegrar meðferðar og úrlausn-
ar. Ráðuneytið tekur fram að með
því hafi það „enga efnislega afstöðu
tekið til endanlegra lykta málsins“.
Einn viðmælandi benti á að úr-
skurður umhverfisráðherrans væri
ekki efnislegur heldur væri um að
ræða formsatriði milli ráðuneytisins
og dótturstofnunar þess.
Fyrir liggur mat á umhverfis-
áhrifum vegna Suðvesturlínu og
einnig vegna álversins í Helguvík.
Matið vegna álversins var kært á
sínum tíma og þess krafist að það
færi í sameiginlegt mat með tengd-
um framkvæmdum. Þórunn Svein-
bjarnardóttir umhverfisráðherra
staðfesti í apríl 2008 ákvörðun
Skipulagsstofnunar um álverið. Þar
með ákvað hún að ekki þyrfti að fara
fram sameiginlegt mat.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra sagði að hún og umhverf-
isráðherra hefðu rætt þetta mál fyr-
ir um viku. „Ég vissi að það voru
einhverjir annmarkar að hennar
mati á gögnum og bakgrunni máls-
ins frá Skipulagsstofnun. Ég vissi
ekki betur en að menn ætluðu að
óska eftir þeim gögnum og að um
það snerist málið. Þetta á ekki að
hafa nein áhrif á stöðugleikasáttmál-
ann eða nokkuð annað. Ég tel þetta
vera formsatriði hjá henni, eftir þá
kynningu sem ég hef fengið,“ sagði
Katrín. Hún var spurð hvort hún
teldi að úrskurðurinn myndi tefja
framkvæmdir á Suðurnesjum.
Stöðugleikasáttmáli stendur
„Nei, ekki miðað við þær upplýs-
ingar sem ég hef fengið um málið,“
sagði Katrín. Hún sagði að málið
hefði ekki verið rætt í ríkisstjórninni
en rætt á milli nokkurra ráðherra.
„Þar kom það mjög skýrt fram að
þetta ætti ekki að tefja málið,“ sagði
Katrín. Hún vissi ekki hvað það gæti
tekið langan tíma að ljúka málinu
hjá Skipulagsstofnun, en sagði á
grundvelli þess sem henni hefði ver-
ið sagt að um væri að ræða fáeinar
vikur.
Katrín hafði ekki talað við Svan-
dísi umhverfisráðherra í gær eftir að
málið komst í umræðuna. „Við erum
bundin af stöðugleikasáttmálanum
og þetta á ekki að hafa nein áhrif á
hann. Það eru allavega þær upplýs-
ingar sem ég er með á þessari
stundu,“ sagði Katrín seint í gær.
Þvert á fyrirheit ríkisstjórnar
Ágúst Hafberg, framkvæmda-
stjóri viðskipta- og þróunarsviðs
Norðuráls, sagði að þeir skildu ekki
úrskurð umhverfisráðherra. Hann
sagði að ekki væri orðið ljóst hvaða
áhrif úrskurðurinn myndi hafa á
framkvæmdir við álverið í Helguvík.
Norðurál hefur nú þegar lagt fimm-
tán milljarða króna í verkefnið.
Ágúst sagði að hugmyndir um að
framkvæmdir vegna álvers í Helgu-
vík færu í sameiginlegt mat hefðu
fyrst komið fram 2006. Úrskurður
Þórunnar Sveinbjarnardóttur um-
hverfisráðherra frá því í apríl 2008
hefði bundið enda á þær.
„Við höfum unnið með stjórnvöld-
um nú við fjárfestingarsamning og
stöðugleikasáttmála. Þetta er þvert
á þau fyrirheit sem Alþingi og ríkis-
stjórn hafa gefið okkur,“ sagði
Ágúst. Hann sagði að stjórnendur
Norðuráls ætluðu að fara yfir
ákvörðun umhverfisráðherra og
leita nánari skýringa á henni.
Áhrif úrskurðarins óljós
Umhverfisráðherra felldi úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki skyldi
fara fram sameiginlegt mat vegna Suðvesturlínu og tengdra framkvæmda
Morgunblaðið/Kristinn
Framkvæmdir Fyrsta skóflustunga að álveri í Helguvík var tekin í júní 2008. Umhverfisráðherra hefur fellt úr gildi
ákvörðun um að Suðvesturlína, sem á að flytja orku til álversins, þurfi ekki að fara í sameiginlegt umhverfismat.
Ekki er ljóst hvaða áhrif úrskurð-
ur umhverfisráðherra um Suð-
vesturlínu mun hafa á fram-
kvæmdir á Suðurnesjum. Í gær
voru menn að reyna að átta sig á
hverjar afleiðingarnar verða.
Í HNOTSKURN
»Áhrifasvæði Suðvesturlínunær frá Hellisheiði og út á
Reykjanesskaga.
»Landsnet telur þörf á Suð-vesturlínu því núverandi
línur hafi ekki næga flutnings-
getu og afhendingaröryggi.
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
„ÉG sé fyrir mér að sveitarfélögum muni fækka verulega
á næstu árum, þau eru núna 77 og ég tel að það gæti ver-
ið markmið að stefna að því að þau verði til dæmis 17 við
kosningar til sveitarstjórna árið 2014,“ segir Kristján
Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála.
Kristján Möller og Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga, undirrituðu í gær yf-
irlýsingu um að móta tillögur sem leitt geta til frekari
sameiningar sveitarfélaga. Ráðherra mun síðan leggja
áætlun fyrir Alþingi til afgreiðslu. Skipuð verður fjög-
urra manna nefnd sem meta skal sameiningarkosti í
hverjum landshluta og skal hún kynna sér viðhorf sveit-
arstjórnarmanna og almennings til sameiningar. Með
þessu eru kannaðir möguleikar á nýjum aðferðum til
sameiningar sveitarfélaga sem til þessa hafa farið fram
með frjálsum samningum.
Kristján segir að á fundum með sveitarstjórnarfólki og
öðrum íbúum víða um land hafi hann ítrekað heyrt að
fólk vildi komast hjá átökum sem oft fylgdu sameining-
arkosningum innan sveitarfélaga og milli þeirra.
Árið 2011 flytjast málefni fatlaðra til sveitarfélaganna
og málefni aldraðra 2012. „Fyrirhugaður flutningur
verkefna frá ríki til sveitarfélaga á næstu misserum mun
einnig skapa mun öflugri forsendur til stækkunar og
sameiningar sveitarfélaga,“ segir í frétt frá ráðuneytinu.
Sveitarfélögum gæti
fækkað í 17 árið 2014
Sameining Kristján Möller og Halldór Halldórsson vilja
efla sveitarfélögin í landinu með sameiningu.
„ÉG hef stutt
þetta verkefni
frá fyrstu
stundu,“ sagði
Björgvin G. Sig-
urðsson, 1. þing-
maður Suður-
kjördæmis, um
álverið í Helgu-
vík. Hann kvaðst
binda vonir við-
við að úrskurður
umhverfisráðherra gengi ekki
gegn stöðugleikasáttmálanum og
þýddi ekki tafir á verkinu. „Að
mínu mati má ekkert verða til að
tefja, með neinum hætti, þessi
verkefni,“ sagði Björgvin. Hann
nefndi auk álvers í Helguvík
gagnaver, kísilverksmiðju og fleiri
verkefni í undirbúningi á Suð-
urnesjum.
Björgvin sagði mjög áríðandi að
koma álverinu í Helguvík af stað til
að styrkja atvinnustigið þar sem at-
vinnuleysið er mest. Engar stjórn-
valdsaðgerðir eftir á megi verða til
að hægja á eða tefja verkefnið. „Ég
bind vonir við að þessi úrskurður
þýði það ekki, en vil fá fullvissu og
efnislega yfirferð með fulltrúum
Skipulagsstofnunar og ráðherra.“
Ekkert má tefja
verkefnin á
Suðurnesjum
Björgvin G.
Sigurðsson
„ÉG er virkilega
ósátt við ákvörð-
un umhverf-
isráðherra og
þykir þetta
óskiljanlegt,“
sagði Ragnheið-
ur E. Árnadóttir,
2. þingmaður
Suðurkjördæmis.
Hún vildi mót-
mæla því að það
væri „góð stjórnsýsla“ að afturkalla
ákvarðanir sem teknar hafa verið
af þar til bærum stjórnvöldum. „Og
setja þar með áætlanir fyrirtækja
sem eru að koma með mikilvægan
atvinnurekstur inn í landið í full-
komið uppnám.“
Ragnheiður kvaðst óttast það
mjög að úrskurðurinn hefði, auk ál-
vers í Helguvík, áhrif á gagnaverið.
Þar fyrir utan gæti þetta haft áhrif
á stækkun álversins í Straumsvík.
„Þessi ríkisstjórn er að bregða fæti
fyrir hvert atvinnutækifærið á fæt-
ur öðru,“ sagði Ragnheiður.
Bregða fæti fyrir
atvinnutækifæri
Ragnheiður E.
Árnadóttir
Náttúruverndarsamtök Íslands
fagna úrskurði Svandísar Svav-
arsdóttur umhverfisráðherra um
að fella úr gildi ákvörðun Skipu-
lagsstofnunar um að ekki skuli
fara fram sameiginlegt mat á um-
hverfisáhrifum framkvæmda
vegna Suðvesturlínu á milli Hellis-
heiðar og Helguvíkur og öðrum
tengdum framkvæmdum.
Náttúruverndarsamtökin sendu
frá sér tilkynningu í gær vegna
málsins. Þar segir m.a.:
„Enginn veit í dag um hvar eða
hversu mikið verður unnt að virkja
fyrir 360 þúsund tonna álver í
Helguvík eða hversu langt áform
þar um eru komin. Það var meg-
inforsenda stjórnsýslukæru Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands frá 24.
apríl að til að unnt sé að meta um-
hverfisáhrif framkvæmda verði all-
ar upplýsingar að liggja fyrir. Úr-
skurður ráðherra er sigur fyrir
náttúruvernd þótt helst hefðum
við kosið að umhverfisráðherra
hefði úrskurðað þessar fram-
kvæmdir í sameiginlegt mat. Líkt
og gert var með framkvæmdir
vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka.“
Fagna úrskurði umhverfisráðherra
Lím og þéttiefni í úrvali
Tré & gifsskrúfur.
Baðherbergisvörur og höldur.
Glerjunarefni.
Hurðarhúnar og skrár.
Rennihurðajárn.
Hurðarpumpur.
Rafdrifnir hurðaropnarar.
Hert gler eftir máli.
Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin.
104 Reykjavík S: 58 58 900. - www.jarngler.is