Morgunblaðið - 30.09.2009, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
FRAMKVÆMDIR eru komnar á
fullt skrið við byggingu gagnavers
Verne Global á Ásbrú, gamla varn-
arsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Ís-
lenskir aðalverktakar reisa nú 1.
áfanga og að meðtöldum und-
irverktökum eru alls um 100 manns
að störfum á svæðinu. Hjá Verne
Global er reiknað með allt að 35 störf-
um en fyrirtækið er nokkurs konar
heildsali fyrir gagnaverið. Með þeim
fyrirtækjum sem munu hýsa sín
tölvugögn á Ásbrú getur starfs-
mannafjöldinn farið í 75-100 manns,
auk afleiddra starfa.
Fyrsti viðskiptavinurinn er svo
gott sem í höfn en samkvæmt heim-
ildum blaðsins hafa viðræður átt sér
stað við bandaríska stórfyrirtækið
IBM um hýsingu gagna hér á landi.
Forráðamenn Verne Global vildu
ekki staðfesta í gær hver við-
skiptavinurinn væri, aðeins að hann
væri meðal stærstu fyrirtækja
Bandaríkjanna. Samkvæmt upplýs-
ingum blaðsins hafa fulltrúar IBM og
Verne átt í viðræðum við íslensk
stjórnvöld um gerð fjárfesting-
arsamnings, en ekki hefur tekist enn
að útkljá skattaleg atriði í þeim
samningi, m.a. um heimilisfesti
þeirra fyrirtækja sem hýsa gögn í
gagnaveri Verne og eignarhald á net-
þjónum. Hafa stjórnvöld viljað að fyr-
irtækin hafi lögheimili á Íslandi og
greiði hér skatta og skyldur, á móti
einhvers konar ívilnunum. Fjárfest-
ingarsamningur af þessu tagi er sem
fyrr háður samþykki Alþingis og Eft-
irlitsstofnunar EFTA.
Fjárfesting upp á 50 milljarða
Iðnaðarráðuneytið hefur sam-
kvæmt heimildum blaðsins þrýst á
fjármálaráðuneytið að ljúka málinu
en á fyrrnefnda bænum er gagnaver
Verne talið ísbrjótur fyrir önnur sam-
bærileg verkefni.
Á fundi með fjölmiðlum á Ásbrú í
gær kom fram í máli Jeff Monroe,
forstjóra Verne Global, að fyrirtækið
ætlaði sér að reisa gagnaverið í fjór-
um áföngum. Áhersla verður lögð á
að ljúka fyrsta áfanganum á næsta
ári og geta þá ráðist í gerð 2. áfanga í
kjölfarið. Monroe segir fjármögnun
tryggða fyrir 1. áfangann sem og
orkuöflunina frá Landsvirkjun og
Hitaveitu Suðurnesja.
Monroe varðist fimlega spurn-
ingum um hve fjárfestingin við
gagnaverið væri nákvæmlega mikil.
Gaf hann þó upp 300-400 milljónir
dollara, sem jafngilda allt að 50 millj-
örðum króna, en endanlegur kostn-
aður lægi ekki fyrir.
Orkuþörfin fyrir 1. áfanga er nærri
20 MW og að sögn Monroes hefur
ekki verið reiknað með að hin svo-
nefnda Suðvesturlína útvegaði þá
orku, sem einkum var ætluð álverinu
í Helguvík. Spurður út í úrskurð um-
hverfisráðherra frá í gær, um að fella
úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar
að Suðvesturlínan fari ekki í sameig-
inlegt mat á umhverfisáhrifum, segir
Monroe að möguleg töf á lagningu
þessarar raforkulínu geti haft áhrif á
síðari áfanga gagnaversins. Það sé
sömuleiðis mikilvægt að orkuöflun
fyrir þetta svæði, Suðurnesin, sé
tryggð fyrir þau verkefni sem hafa
verið áformuð. „Við styðjum það
heilshugar að Suðvesturlínan komist
í gagnið sem allra fyrst,“ segir
Monroe, sem segir samstarfið við Ís-
lendinga til þessa hafa gengið mjög
vel. Vonast hann til að fjárfesting-
arsamningnum ljúki á næstunni.
Gagnaver Athafnasvæði fyrirtækisins Verne Global á Ásbrú, gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Verne bíður eftir
fjárfestingarsamningi
Framkvæmdir við gagnaver Verne Global komnar á fullt skrið
Bandaríska stórfyrirtækið IBM vill hýsa þar gögn
Fjárfestingarsamningur stjórn-
valda við Verne Global er langt á
veg kominn en eftir er að útkljá
skattalegan ágreining. Orka hef-
ur verið tryggð í 1. áfanga.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir gagnaver Verne Global
ekki aðeins hafa áhrif á nærsamfélagið á Suðurnesjum heldur þjóðarbúið
allt. Við fyrstu tvo áfangana geti skapast mörg hundruð ný störf, þar á
meðal vel launuð tæknistörf, en það fari þó eftir því hvaða viðskiptavinir
nýta sér þjónustu Verne í framtíðinni.
„Þetta verður að vera samhent átak allra, bæði ríkisstjórnar og einka-
aðila. Það hefur verið ágætlega unnið að þessu verkefni í iðnaðarráðu-
neytinu og viðræður hafa átt sér stað við fjármálaráðuneytið. Þar hafa
málin gengið hægt en vonandi eru þau að skýrast,“ segir Árni.
Hann bendir á að þótt verkefni Verne Global hafi farið af stað áður en
kreppan skall á þá sé mikilvægt að hugleiða að hér sé komið gott tæki-
færi til að nýta í kreppunni. „Við höfum tækifæri til að koma af stað
merkilegu verkefni sem er að þokast áfram. Það er full ástæða til hjá ríki,
sveitarfélögum og einkaaðilum að fylgja þessu eftir í kreppunni.“
Gott tækifæri til að nýta í kreppunni
Ljósmynd/Páll Ketilsson
Samstarf Jeff Monroe, forstjóri Verne Global, og Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri Reykjanesbæjar, með 1. áfanga gagnaversins í bakgrunni.
Í HNOTSKURN
»Verne Global er í eigunokkurra erlendra og inn-
lendra fjárfesta. Meðal
stærstu eigenda eru banda-
ríski fjárfestingasjóðurinn
General Catalyst og Novator,
fjárfestingafélag Björgólfs
Thors Björgólfssonar.
»Orkuþörf fyrsta áfangagagnaversins er um
20MW. Töf á Suðvesturlínu
gæti haft áhrif á síðari áfanga
gagnaversins.
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan
16.00 mánudaginn 5. október.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út
stórglæsilegt sérblað um
tísku og förðun föstudaginn
9. október 2009.
Í Tísku og förðun verður fjallað um
tískuna haustið 2009 í hári, förðun,
snyrtingu og fatnaði auk umhirðu
húðarinnar, dekur og fleira.
Meðal efnis verður :
Nýjustu förðunarvörurnar.
Húðumhirða.
Haustförðun.
Ilmvötn.
Snyrtivörur.
Neglur og naglalökk.
Hár og hárumhirða.
Tískan í vetur.
Flottir fylgihlutir.
Góð stílráð.
Íslenskir fatahönnuðir.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
Tíska og
förðun