Morgunblaðið - 30.09.2009, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 30.09.2009, Qupperneq 17
Daglegt líf 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Í sland er stórkostlegt land. Hér er allt sem til þarf til að byggja upp gott samfélag. Þið eigið að nota gjafirnar sem ykkur hafa verið gefnar og nýta sköpunarkraftinn í fólkinu sem býr hérna. Þið þurfið ekki að ganga í neitt bandalag til að lifa af kreppuna. Sjálfstæði ykkar er það síðasta sem þið eigið að láta frá ykkur,“ segir Garry Raven, Ojibway- frumbyggi frá Kanada, sem er kominn hing- að til lands til að miðla af reynslu sinni sem sáttasemjari. Hann verður með erindi á ráð- stefnu Sáttar sem hefst á fimmtudaginn en um helgina ætlar hann að vera með tvo fyr- irlestra sem eru opnir öllum. Gerir heildina sterkari „Ég ætla meðal annars að kynna þá aðferð sem ég hef notast mikið við og ég kalla trún- aðarhring (Sharing Circle). Þetta gengur út á það að ég sest niður með því fólki sem er að leita sátta og bið það að raða sér í hring. Hver einstaklingur í hringnum fær tækifæri til að tjá sig í ákveðinn tíma um líðan sína og hvert hann stefnir. Enginn má grípa fram í og enginn má fara á meðan á þessu stendur. Þannig átta ég mig á hvað fólkið er að ganga í gegnum og hvernig hverjum og einum líður í þeim hópi sem ég vinn með. Fólkið áttar sig líka betur hvað á öðru. Þetta gerir heild- ina sterkari, hvort sem það er vinnustaður, hjónaband, samband foreldra og barna eða heilt samfélag.“ Hann segir það taka mislangan tíma að ná sáttum með þessum hætti, stundum er nóg að hittast í nokkur skipti, stundum þarf að hittast mjög oft. „Þessu lýkur ekki fyrr en allir eru sáttir,“ segir Garry sem hefur notað trúnaðarhringinn mikið til að vinna með hjónum sem eru ekki sátt sem og fjöl- skyldum. „Það er ótrúlegt hvað börn og for- eldrar segja hvert öðru lítið um það hvernig þeim líður. Og þá er hætta á að foreldrarnir missi tökin á börnum sínum. Það sama á við um fyrirtæki. Yfirmenn fyrirtækja átta sig því miður allt of sjaldan á nauðsyn þess að starfsmenn séu ánægðir og að þeir fái að tala sínu máli. Fyrirtæki tapa ótrúlega mikl- um peningum á því einu að hafa óánægða starfsmenn. Það þarf að draga fram það allra besta í hverjum einstaklingi í heildinni. Það sama á við um samfélög. Ég óttast að sumir leiðtogar Íslands séu til dæmis ekki í nógu góðum tengslum við almenning núna í þessu ástandi sem hér ríkir. Að þeir átti sig ekki á hversu miklu máli skiptir að tala við og hlusta á fólkið í landinu.“ Tengslin mega ekki rofna Undanfarin 25 ár hefur Garry unnið við að miðla menningu frumbyggja og hann notar þá þekkingu og reynslu til að vinna með fólk. Svokallað lækningahjól (Medicine Wheel) er aldagömul aðferð sem Garry hef- ur notað til að upplýsa fólk um ábyrgð þess hvers gagnvart öðru sem og samfélagslega ábyrgð. Hvernig það þarf að gæta hvert annars. „Ég bý til táknrænt hjól eða hring úr 36 steinum og hver og einn þeirra stend- ur fyrir kennslu í einhverju ákveðnu í lífi okkar. Hjólið myndar allt æviskeiðið, frá vöggu til grafar. Á þennan hátt kenni ég fólki að hverju tímabili í lífinu fylgja skyldur og ábyrgð. Það þarf að upplýsa fólk um ábyrgðina sem við berum sem foreldrar, makar, vinnuveitendur eða hvar sem við er- um stödd hverju sinni í lífshlaupinu. Fólk þarf að gæta hvað annars og það skiptir máli að horfa til menningarinnar, þeirra róta sem við erum sprottin úr. Við megum ekki slá slöku við í því að bera áfram milli kynslóða þau gildi sem skipta máli og tengja okkur við fortíðina. Ef þessi tengsl rofna þá koma upp vandamál.“ Ólst upp með Vestur-Íslendingum Garry var alinn upp með Vestur- Íslendingum og hefur alla tíð kunnað vel við þá. „Vesturíslensku krakkarnir sem ég var með í skóla á sínum tíma voru aldrei að velta því neitt fyrir sér að ég væri frumbyggi eða uppnefna mig sem indíáni. Það var ekki fyrr en ég fór í franskan skóla sem ég fann fyrir slíku. Faðir minn vann með Vestur- Íslendingum allt sitt líf, hann verslaði með fisk sem hann keypti af þeim. Íslendingar og frumbyggjar hafa alltaf lifað í sátt og sam- lyndi, þeir lærðu hver af öðrum. Það er svo- lítið skondið að fyrst kenndum við Íslending- unum að veiða en þeir urðu fljótt mjög góðir í því og þurftu þá að kenna okkur síðar meir. Við unnum líka mikið saman í skógarhöggi,“ segir Garry og bætir við að sumir gömlu frumbyggjarnir kunni hrafl í íslensku, en reyndar séu það helst blótsyrði. „Áður en ég fór hingað í þessa fyrstu ferð mína til Ís- lands reykti ég gömlu góðu pípuna mína með nokkrum öldnum Vestur-Íslendingum, vin- um mínum. Þannig vildi ég þakka fyrir líf þeirra, blessa þá og þakka fyrir það sem þeir gerðu með okkur frumbyggjunum.“ Brjálaður hrafn Garry gerði sér sérstaka ferð norður í land til að heilsa upp á Hvítserk í Húnaflóa, hinn tignarlega dranga sem þar rís úr sæ. „Hvítserkur er hvíti vísundur norðursins, sá sem gætir þeirrar höfuðáttar. Vísundur er skepna sem stendur fyrir mikinn andlegan styrk í menningu okkar frumbyggjanna. Ég heimsótti Hvítserk við sólarupprás, því sá tími er tákn nýs upphafs. Ég var með at- höfn, reykti pípuna mína honum til heiðurs og til að þakka fyrir gjafir jarðar. Heimsókn mín til Hvítserks fullkomnar ferðalag mitt til höfuðáttanna. Ég hef heimsótt Moskvu í austri, Hawaieyjarnar í suðri og Vancouver í vestri,“ segir Garry Raven. En hvers vegna er hann kenndur við hrafn? „Hrafnsnafnið hefur fylgt fjölskyldu minni kynslóð fram af kynslóð. Indíánanöfnin gömlu komu þannig til að fólk var nefnt eftir einhverju lifandi í náttúrunni, tré, dýri eða jurt. Mitt eðli er eðli hrafnsins og ég ber ábyrgð á þessum fugli. Mér ber að tala fyrir hann og verja hann í einu og öllu, í orði og borði,“ segir Garry sem ber tíðindi milli heima, rétt eins og margur krumminn. Hann getur séð fram- tíðina. „Þegar ég ber slík tíðindi þá segir fólk að hrafninn sé orðinn brjálaður, enda eru hrafnar í mínu samfélagi taldir vand- ræðagemsar,“ segir Garry og hlær og það er ekki laust við að hlátur hans minni á krunkið í krumma. Ber í sér eðli hrafnsins Hann er heillaður af Íslandi og vill ekki að Íslendingar fórni sjálfstæði sínu með því að ganga í bandalag með öðr- um þjóðum. Garry Raven er alvöru indíáni og ætlar að miðla mörlandanum af reynslu sinni við að sætta þar sem sátta er þörf. Morgunblaðið/Heiddi Hrafninn Garry Raven er vel tengdur náttúrunni enda er indíánum ætlað að gæta móður jarðar. Auk erinda sinna sem Garry verður með á ráðstefnu Sáttar (satt.is) 1.-3. október verður hann með tvo fyrirlestra sem eru öllum opnir:  Lækningahjólið (Medicine Wheel): SÁÁ- salurinn í Efstaleiti 7, 4. okt. kl. 13.30-17.00  Trúnaðarhringurinn (Sharing Circle): Nor- ræna húsið 5. okt. kl. 17.30-20.:00 Ykkur gleðifregn ég flyt; ferskeytlunnar glæðist von, út er komið úrvalsrit eftir Pétur Stefánsson. Vísuna orti Pétur Stefánsson af sinni alkunnu hógværð. Auðvitað er það fagnaðarefni að þessi góðvinur Vísnahornsins hefur gefið út vísna- bók. Hann vinnur hjá búsetu- og stuðningsþjónustu fyrir geðfatlaða og rennur ágóði af sölu bókarinnar til Búsetukjarnans. Bókin nefnist Stefjahnoð og fer ágóðinn í ferða- sjóð sem nýttur verður til dagsferða út fyrir bæinn og til annarra gagn- legra hluta. Formála að bókinni rit- ar annar góðvinur Vísnahornsins, Björn Ingólfsson. Hægt er að panta eintak af bókinni með því að senda póst á: peturstef@simnet.is. Fyrir fáeinum dögum orti Pétur: Engu stjórnað er með glans, ekkert bætir haginn. Allt á leið til andskotans eins og fyrri daginn. Ólafi Þ. Auðunssyni datt í hug vísa er hann var staddur við tónlistar- húsið og sendi Vísnahorninu: Útá miðin enginn rær enginn sést að bauki Þett’ er orðinn líflaus bær ljótur þar að auki. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Gleðifregn og andskoti Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | Íbúar í Reykjanesbæ gáfu heilsu og forvörnum sérstakan gaum í liðinni viku, en þá var heilsu- og forvarnarvika haldin í fyrsta sinn í bænum. Framkvæmd vikunnar er samstarf fjölmargra aðila og á sér nokkurn aðdraganda en á undanförnum þremur árum hefur bæði ver- ið blásið til forvarnarviku og heilsuviku í sitt- hvoru lagi með það að markmiði að efla vitund bæjarbúa um heilsu og forvarnir. Vikunum var steypt saman á þessu ári, enda tengsl heilsueflingar og forvarna órjúfanleg. Sigfús Sigurðsson, landsliðsmaður í handbolta, kom m.a. inn á það í fyrirlestri sínum „Það er pláss fyrir okkur öll einhvers staðar“. Hann sagði þar frá hvernig íþróttaiðkun og vináttunet innan íþróttahreyfingarinnar hefðu bjargað honum frá óreglu. Andleg heilsa sem og líkamleg Mikil heilsuvakning hefur verið í Reykjanesbæ að undanförnu. Framboðið af heilsutengdri af- þreyingu hefur aukist, bæði í formi námskeiða og aðstöðu í bænum, s.s. íþróttavalla og leik- svæða. Nýr göngustígur sem liggur meðfram strandlengjunni frá Gróf að Stapa hefur verið hvati fyrir marga til þess að labba meira, hjóla meira eða drífa sig út að skokka. Í heilsu- og for- varnarviku minnti starfsfólk Bókasafns Reykja- nesbæjar stígfarendur á að lestur er sálinni það sem hreyfing er líkamanum með ljóðum, fróðleik og textabrotum sem fest hafði verið víðsvegar á leiðinni. Þá minnti starfsfólk Bjargarinnar, Geð- ræktarmiðstöðvar Suðurnesja, á mikilvægi þess að rækta geðheilsuna, bæði með geðrækt- argöngu og málþingi um geðheilsu. Flestallar líkamsræktarstöðvar og námskeiðshaldarar kynntu starfsemi sína og buðu fría prufutíma, ásamt því að ýmsar íþróttagreinar voru kynntar. og fólki var gefinn kostur á að mæla heilbrigði sitt. Skólamatur, sem sér um matseldina í öllum grunnskólum bæjarins, lagði áherslu á hollt fæði í vikunni og slíkt gerðu leikskólarnir einnig. Ým- is íþróttamót voru háð, fjölskyldan fékk frítt í sund á lokadegi vikunnar og hlaupatúttan Guð- björg Jónsdóttir leiddi fjölskylduskokk um bæ- inn. Heilsan sett í forgang Fyrstu heilsu- og forvarnarviku lokið Ljósmynd/Dagný Upp Mikil heilsuvakning hefur verið í Reykjanesbæ – bæði hvað varðar líkamlega heilsu og andlega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.