Morgunblaðið - 30.09.2009, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Ístórum drátt-um koma úr-slit þingkosn-
inganna í
Þýskalandi á
sunnudag ekki á
óvart. Kristilegir demókratar
(CDU/CSU) og frjálsir demó-
kratar (FDP) náðu meirihluta
á þingi og stjórnarmynd-
unarviðræður eru hafnar.
Ljóst var fyrir kosningar að
þessir flokkar stefndu á að
mynda stjórn og Angela Merk-
el kanslari vildi ekki halda
áfram samstarfi við sósíal-
demókrata (SPD).
Merkel stendur því með
pálmann í höndunum, en flokk-
ur hennar er þó laskaður því
að hann fékk 33,8% atkvæða í
kosningunum, sem er tæpum
1,5 prósentustigum minna en
fyrir fjórum árum.
Þetta fylgistap er þó ekkert
miðað við hrunið hjá SPD.
Fyrir fjórum árum var nánast
jafnræði með stóru flokkunum
tveimur, munaði aðeins einu
prósentustigi. Nú töpuðu sósí-
aldemókratar um þriðjungi
fylgis síns – fengu 23% at-
kvæða – og hefur það ekki ver-
ið minna frá stofnun sam-
bandslýðveldisins. Þessi ósigur
er í samræmi við þann vanda,
sem steðjar að vinstri mönnum
víða í Evrópu. Í Frakklandi og
á Ítalíu eru hægri menn við
völd og vinstri menn sundr-
aðir. Fátt virðist geta komið í
veg fyrir að Verkamanna-
flokknum verði úthýst í næstu
kosningum á Bretlandi og
stjórn sósíalista á Spáni á und-
ir högg að sækja.
Sigurvegari kosninganna er
hins vegar Guido Westerwelle,
leiðtogi FDP. Flokkur hans
fékk 14,6% atkvæða og hefur
aldrei hlotið meira fylgi. Sú
var tíðin að FDP réð úrslitum
um stjórnarmyndun í Þýska-
landi. Þegar flokkurinn missti
þá lykilstöðu syrti í álinn og
ekki eru mörg ár síðan hann
barðist fyrir tilveru sinni á
þýska þinginu. Nú er flokk-
urinn kominn á flug á ný og
hefur á átta árum næstum því
tvöfaldað fylgi sitt.
Reyndar er einnig umhugs-
unarefni að flokkurinn Vinstri,
sem er birtingarmynd sósíal-
istaflokksins, sem á sínum tíma
fór með völd í Austur-Þýska-
landi, skuli hafa náð 11,9%
fylgi. Sá flokkur hefur nánast
þrefaldað fylgi sitt á átta ár-
um. Græningjar sóttu einnig í
sig veðrið þótt þeir séu nú
fimmti stærsti flokkur Þýska-
lands aðrar kosningarnar í röð,
en voru þriðji stærsti flokk-
urinn í kosningunum 2002.
Fylgi allra litlu flokkanna
þriggja jókst því á kostnað
stóru flokkanna í kosning-
unum.
Samstarf stóru flokkanna
hefur að vissu leyti verið eins
og spennitreyja fyrir þá. Þetta
eru þeir flokkar,
sem hafa barist um
að vera stærstu
stjórnmálaflokkar
landsins og sú bar-
átta getur háð
þeim í samstarfi. Líklegt er að
útkoman verði miðjumoð.
Þótt Merkel vildi losna úr
stjórnarsamstarfinu við SPD
er athyglisvert er að hún sagði
daginn eftir kosningarnar að
ekki væri þörf á grundvall-
arstefnubreytingu. Í augum
Westerwelle eru undanfarin
fjögur ár glataður tími.
Frammistaða frjálsra demó-
krata setur Westerwelle í góða
stöðu til að knýja fram mark-
mið sín. Ein af lykilkröfum
hans er lækkun skatta og mun
Merkel verða að koma til móts
við hann með einhverjum hætti
í þeim efnum. En hversu mikið
er hægt að lækka skatta í
Þýskalandi? Árið 2010 blasir
við 100 milljarða evra fjár-
lagahalli. Margir þýskir bank-
ar hafa átt í vök að verjast
vegna hrunsins á fjármála-
mörkuðum. Stjórnvöldum hef-
ur tekist að koma í veg fyrir að
upp úr syði, en með ærnum til-
kostnaði. Að auki gera margir
fastir útgjaldaliðir, sem erfitt
er að hagga, erfitt fyrir.
Er leiðtogar 20 helstu iðn-
ríkja heims hittust í Pittsburg
í liðinni viku töluðu Merkel og
Peer Steinbrück, fráfarandi
fjármálaráðherra og sósíal-
demókrati, einni röddu um að
leggja þyrfti skatt á hreyfingar
á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum. Westerwelle hafnar slík-
um álögum. Merkel og Wester-
welle eru hins vegar sammála
um að breyta fjármálaeftirlit-
inu í Þýskalandi og færa það
inn í þýska seðlabankann.
Kosningarnar í Þýskalandi
bera vitni sveiflu til hægri og
eru úrslitin í samræmi við vís-
bendingar um hægri sveiflu í
Evrópu, sem til dæmis mátti
lesa úr kosningunum til Evr-
ópuþingsins í sumar. Þrátt fyr-
ir hrun á fjármálamörkuðum
og reiði kjósenda vegna
græðgisvæðingar halla þeir sér
ekki til vinstri. Þeir vilja beisla
þau öfl, sem leiddu til hruns-
ins, en ekki snúa baki við
frjálsum markaðsbúskap.
Pólitískur ferill Angelu
Merkel er undraverður. Hún
kemur frá Austur-Þýskalandi
og nær völdum í flokki kristi-
legra demókrata þegar hann
var veikur fyrir. Hún hefur
sterk öfl innan flokksins á móti
sér, en nú hefur henni hins
vegar tekist að tryggja sér stól
kanslara annað kjörtímabilið í
röð. Í samstarfi við frjálsa
demókrata fær hún tækifæri til
að láta að sér kveða með mun
afdráttarlausari hætti til að
losa um viðjarnar á þýsku
efnahagslífi. Spurningin er
hvernig hún nýtir það tæki-
færi.
Til hvaða breytinga
leiðir nýtt stjórnar-
mynstur í Berlín?}
Hægri sveifla
Þ
að kemur ekki á óvart að dregið
hefur úr stuðningi þjóðarinnar við
aðild Íslands að Evrópusamband-
inu. Í kjölfar bankahrunsins hefur
þjóðernishyggja aukist til muna
og tortryggni gagnvart öðrum þjóðum farið
vaxandi. Það er ekki beinlínis geðfellt að fylgj-
ast með þessari þróun. Þjóðremban fer Ís-
lendingum svo dæmalaust illa.
Hér á landi tókst á ótrúlega skömmum tíma
að klúðra öllu því sem klúðrað varð. En svona
fer þegar byggt er á sandi. Icesave er hluti af
þessu klúðri en stór hópur manna kýs að láta
eins og það mál sé að stærstum hluta útlend-
ingum að kenna og æpa svo orðið: Evrópu-
sambandið! eins og þar sé einn aðalsökudólg-
inn að finna.
Þessi sami hópur hefur engan áhuga á opinni og upp-
lýstri umræðu um Evrópumálin og mun gera allt sem
hann getur til að koma í veg fyrir hana. Fræðsla um þau
mál er nefnilega stórhættuleg að mati þessara manna því
hún getur leitt til þess að almenningur taki upplýsta
ákvörðun sem byggir á velvilja til Evrópusambandsins.
Og það má náttúrlega ekki gerast.
Þeir sem vilja vita hvernig þessi hópur manna hugsar
geta farið inn á AMX-vefinn og kynnt sér áherslurnar
sem eru þar í forgrunni. Skrifin þar eru vægast sagt sér-
kennileg. Stundum finnst manni eins og þeir sem þar
skrifa telji það eftirsóknarverðast af öllu fyrir þjóðina að
lifa á slátri og skyri og fara ekki til útlanda
því þar séu bara vondir menn sem skilja ekki
hvað það er að vera Íslendingur.
Það er tilviljun háð hvaða þjóð ein-
staklingar tilheyra og Íslendingar eru ekkert
merkilegri en aðrar þjóðir. Fyrir bankahrun
var okkur sagt af áhrifamönnum í samfélag-
inu að við hugsuðum hraðar en aðrar þjóðir,
værum fljótari að taka ákvörðun, værum
djarfari og hugumstærri. Í ljós er komið
hvaða innistæða var fyrir þeim fullyrðingum.
Við eigum að losa okkur við þjóðrembuna
og vinna markvisst að því að efla samskipti
okkar við aðrar þjóðir. Við eigum ekki að
læsa að okkur og hóta að slíta stjórnmála-
sambandi við þær þjóðir sem við teljum ekki
skilja hversu stórmerkileg þjóð við erum.
Aðildina að Evrópusambandinu á síðan að ræða ræki-
lega.
Fjölmiðlar eru stundum skammaðir og sagðir styðja
aðild að Evrópusambandinu. Þetta er ekki rétt. Fjöl-
miðlum ber skylda til að opna umræðu um erfið og knýj-
andi mál. Það hafa þeir verið að gera. Þeir hafa verið að
sinna upplýsingarskyldu sinni en ekki brugðist henni.
Þjóðin þarf svo að róast og átta sig á því að það felst
ekkert frelsi í því að hjúpa sig þjóðrembu. Með slíkri
gjörð eru menn einungis að kalla yfir sig ófrelsi og ein-
angrun.
Og hver vill það? kolbrun@mbl.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
Pistill
Hin vonda þjóðremba
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
Óvissa um persónu-
kjör litar prófkjör
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
K
osningar til sveitar-
stjórna fara fram 29.
maí á næsta ári og því
er tími prófkjara að
ganga í garð. Sjálf-
stæðismenn á Seltjarnarnesi riðu á
vaðið og hafa auglýst prófkjör sem
fram á að fara 7. nóvember nk. Aðrir
stjórnmálaflokkar eru farnir að
hugsa sér til hreyfings. Búast má við
tilkynningum um fleiri prófkjör nú í
vetrarbyrjun og eftir áramótin mun
þeim fjölga mikið ef að líkum lætur.
Sveitarstjórnarkosningar hafa þá
sérstöðu að oft eru boðnir fram list-
ar óháðir stóru flokkunum og það á
eftir að koma í ljós þegar nær dreg-
ur kosningum hverjir bjóða fram í
hverju sveitarfélagi. Það kann svo
að hafa áhrif á kosningarnar næsta
vor hve mjög sveitarfélögum hefur
fækkað frá því síðast var kosið.
Frumvarp um persónukjör til
sveitarstjórnarkosninga er nú til
meðferðar hjá Alþingi. Verði það
samþykkt mun fyrirkomulag kosn-
inganna gjörbreytast. Í stað þess að
kjósa fyrirfram raðaða lista verða
kjósendurnir að raða fólki á listana í
kjörklefanum. Óvissa um afdrif
frumvarpsins mun væntanlega lita
prófkjörsbaráttuna sem framundan
er. Verða leiðtogar listanna valdir í
prófkjörum eða ekki fyrr en í kjör-
klefanum næsta vor?
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri
Vinstri grænna, segir að það sé und-
ir hverju svæðisfélagi fyrir sig kom-
ið hvernig verður raðað á lista. „Ég
reikna þó frekar með því að stærstu
svæðisfélögin nýti forval til að raða
upp og hefur töluverð vinna farið í
það undanfarið að samræma forvals-
reglur til að félögin geti haft þau til
hliðsjónar, sú vinna er á lokastigi,“
segir Drífa. Ef persónukjör verður
ofan á reiknar Drífa með því að nið-
urstaða í forvali verði notuð til að
velja fólk á listana, án þess þó að
vilja svara fyrir svæðisfélögin.
Samkvæmt lögum Framsókn-
arflokksins eru framboð til sveitar-
stjórnar í höndum aðildarfélaga í
viðkomandi sveitarfélagi. Aðildar-
félög ákveða hvaða aðferð skal við-
hafa við val frambjóðenda, sjá um
framkvæmd valsins og ganga frá
framboðslista. „Þar til annað kemur
í ljós er unnið eftir því lagaumhverfi
sem nú gildir varðandi sveit-
arstjórnarkosningar,“ segir Sigfús
Ingi Sigfússon, framkvæmdastjóri
flokksins.
Eins og hjá öðrum flokkum eru
það fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins
í hverju sveitarfélagi sem ákveður
uppstillingu á lista. Jónmundur Guð-
marsson framkvæmdastjóri segir að
aðeins fulltrúaráðið á Seltjarnarnesi
hafi tekið ákvörðun um prófkjör.
Sigrún Jónsdóttir, framkvæmda-
stýra Samfylkingarinnar, segir að
undirbúningur sé hafinn hvað varð-
ar málefnastarfið og sveitarstjónar-
fulltrúar flokksins komi fljótlega
saman til stefnuþings.
Fulltrúaráð flokksins ákveða
framkvæmd og fyrirkomulag nið-
urröðunar á framboðslista Samfylk-
ingarinnar við kosningar til sveit-
arstjórna.
Sigrún segir að Samfylkingin geri
ráð fyrir að það náist góð samstaða
innan þings sem utan um framvindu
frumvarps um persónukjör og það
verði viðhaft í sveitarstjórnarkosn-
ingunum næsta vor.
Morgunblaðið/Ómar
Prófkjör Frambjóðendur Samfylkingarinnar bíða eftir fyrstu tölum 2006.
Dagur B. Eggertsson varð hlutskarpastur og varð leiðtogi listans.
Kosningar til sveitarstjórna nálg-
ast óðfluga. Flokkarnir eru þegar
farnir að huga að vali fólks á
listana en nú ríkir óvissa um það
hvort Alþingi samþykki fyrirliggj-
andi frumvarp um persónurkjör.
SKIPTAR skoðanir eru um frum-
varpið um persónukjör í öllum
flokkum, bæði á Alþingi og í
sveitarstjórnum.
Það kom fram hjá Atla Gísla-
syni, þingmanni Vinstri grænna,
hér í blaðinu í gær að hann teldi
ólíklegt að frumvarpið næði fram
að ganga á þinginu í vetur. Mörg
atriði þess orkuðu tvímælis og
þau þyrfti að skoða vandlega.
Þessi skoðun Atla fær stoð í
umsögn stjórnar Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs um
frumvarpið, sem hún hefur sent
allsherjarnefnd Alþingis. Þar seg-
ir orðrétt: „Frumvarpið um per-
sónukjör er ófullkomið og þarf
mun betri umfjöllun áður en það
er tilbúið til afgreiðslu.“ Þegar
annar stjórnarflokkanna gefur
svona umsögn er ljóst að það er
langt í land að stuðningur sé við
frumvarpið eins og það liggur
fyrir.
SKIPTAR
SKOÐANIR
››