Morgunblaðið - 30.09.2009, Side 21

Morgunblaðið - 30.09.2009, Side 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009 Kæri Örn. Ég var ekki að trúa því sem hún Bogga systir þín sagði við mig í símann þennan laugardagsmorgun sem þú kvaddir þennan heim, að þú værir dáinn, nei það gat bara ekki átt sér stað. Mín fyrsta hugsun var „guð minn góður hvernig segi ég börn- unum okkar frá þessu, þau eru bara 6 og 9 ára, þetta er ekki rétt- látt og getur ekki verið satt“. Það kemur svo ótrúlega margt upp í hugann á svona tímum og maður veit ekki hvað skal segja en ég vil fyrst og fremst fá að þakka þér fyrir öll okkar ár sem við áttum saman þó svo að við höfum slitið samskiptum endanlega í febrúar á þessu ári. Við gengum í gegnum súrt og sætt eins og gengur og gerist hjá venjulegum fjölskyldum að ég held, en við stóðum af okkur marga vinda og létum ekki bugast. Ég vil líka þakka þér fyrir að hafa gefið mér þessi tvö yndislegu börn sem við eigum saman, Eyþór Vilmund og Ernu Björgu Rán. Það er ekki sjálfgefið að eignast heil- brigð börn, hvað þá á gamalsaldri eins og ég sagði svo oft. Þau eru það dýrmætasta sem ég á og þau mun ég varðveita og hlúa að af minni bestu getu og eins og þú og allir vita á ég bestu fjölskyldu í heimi sem mun hjálpa okkur í gegnum þennan missi og erfiðleika í framtíðinni. Þú misstir móður þína 9 ára gamall eins og Eyþór okkar er núna 9 ára að missa þig, enginn átti von á þessu en svona getur líf- ið verið. Þú varst ríkur maður sagði pabbi alltaf og átti hann þá við all- an barnahópinn þinn sem þú mátt- ir vera stoltur af og ég tel mig vera heppna að fá að kynnast þeim öllum og vera í góðu sambandi við þau öll svo við gleymum ekki barnabörnunum þínum fimm en mér þykir vænt um þau öll. Mamma kom þér oft í móðurstað og þið gátuð talað saman um marga hluti og pabbi líka, þú lærð- ir margt af honum sagðir þú svo oft og hann er stoltur af því. Hugur minn reikar og það er svo margt sem mig langar að rita hér niður en ég mun hafa mínar minn- ingar um þig og okkar líf bara fyr- ir mig og börnin okkar. Örn minn, takk innilega fyrir samferðina í þessu lífi og Eyþór og Erna eru glöð í sínu hjarta að þú sért núna búinn að hitta afa Villa og ömmu Siggu, svo ég gleymi ekki honum Snata okkar. Þau eru ótrúlega dugleg en sakna þín mik- ið. Hvíl þú í friði kæri vinur. Elskulegu systkini barna minna og fjölskyldur, Bogga, Jóna, Georg, Gauti og fjölskyldur, Krist- ín og fjölskylda, ég votta ykkur öll- um mína innilegustu samúð og Guð veri með ykkur öllum. Nú getur hann breitt út faðminn yfir okkur öll eins og fallegur Örn gerir. Kveðja, Ingibjörg. Pabbi. Frá því ég var lítill strák- ur hef ég alltaf haft gott samband við hann. Og get ég sagt að ég er mjög þakklátur fyrir þann tíma sem við áttum, þó sá tími hafi mátt vera örlítið lengri. En það er lítið hægt að gera annað en að vona og biðja að hann sé sáttur þar sem hann er í dag. Það sem ég get sagt um Örn er að hann elskaði ekkert Örn Vilmundarson ✝ Örn Vilmund-arson fæddist á Akranesi 25. júní 1962. Hann lést á heimili sínu, Hurð- arbaki í Hvalfjarð- arsveit, 19. sept- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarð- arströnd 29. sept- ember. meira en börnin sín og tjáði mér það oft. Mörg átti hann og var hann þar af leið- andi mjög ríkur mað- ur. 10 börn og sann- gjarnlega skipt líka, 5 strákar og 5 stelp- ur. Sjómennskan var ávallt sterk í honum enda var hann til sjós á mörgum bátum í hátt 20 ár þegar hann kemur á þurrt land eftir allan þennan tíma var aldrei langt í viljann til að fara á sjóinn aftur. Lét hann verða af því í lokin og fór í smá tíma sem kokkur á sjóinn. Fyrir mér var hann traustur vin- ur, ásamt því að vera faðir minn og það var í ófá skiptin að skrípalætin í okkur létu mann alveg gleyma því að maður væri að skemmta sér með gamla kallinum í stað þess fannst manni maður bara vera með einum af félögunum og hafði hann mjög gaman af því að vera félagi en ekki pabbi manns svona endr- um og eins. Mikill húmor í kall- inum og aldrei langt í glensið og stríðnina. Hann var mjög strangur í uppeldi en ávallt mjög sanngjarn. 19.09.09 missti ég pabba minn og góðan vin sem ég elska mjög. Hvíl í friði elsku pabbi. Guðmundur Orri Arnarson. Jæja pabbi minn, því miður ertu farinn frá mér langt fyrir aldur fram. Þó svo það hafi gengið á ýmsu hjá okkur í gegnum árin þá hef ég ávallt elskað þig og virt. Síðastliðið ár höfum við verið frek- ar nánir og er ég rosalega þakk- látur að hafa fengið þennan tíma með þér, þú kenndir mér svo margt á þessum tíma. Við gátum setið úti í skúr heilu tímana og rætt um bíla, fótbolta og bara lífið. Ef það er eitthvað sem stendur upp úr því sem þú kenndir mér þá er það að fjölskyldan er alltaf núm- er eitt. Drengirnir mínir, Mikael Aron og Baldur Freyr eru heppnir að hafa átt svona góðan afa sem vildi allt fyrir þá gera, alltaf til staðar ef eitthvað bjátaði á. Það eru minningar sem þeir munu geyma um alla ævi, minningin um afa Ödda. Ég kannski á erfitt með að kveðja því það var svo margt sem við vorum búnir að plana að gera saman. Finnst svo erfitt að kyngja því að ég á ekki pabba lengur. En þrátt fyrir allt sem gekk á milli okkar mun ég ávallt minnast þín eins og þú varst, hreinskilinn, sanngjarn, þrjóskur og umhyggjusamur. Eiginleikar sem ég mun gera að mínum með árunum, þótt eitt af þessu hafi skilað sér til mín frá fæðingu og það er þrjóskan. En lífið heldur áfram og mun ég hafa það sem gott veganesti allt það sem þú kenndir mér. Ég gæti skrifað um svo margt en ég læt þetta duga elsku pabbi minn. Þín verður sárt saknað. Ég enda þetta með klisjunni sem við oft notuðum „selaví“ eða svona er lífið. Birgir Þór Arnarson. Elsku pabbi, aldrei hélt ég að það kæmi að þessum degi svona fljótt, en svona er lífið. Í gegnum árin höfum við átt góðar stundir saman og ég á mikið af góðum minningum um þig. Þú varst mað- ur orða þinna og ef það var eitt- hvað sem skipti þig máli þá voru það börnin þín og fjölskylda. Þú varst ávallt hreinskilinn og alltaf til staðar fyrir mig þegar ég þurfti. Við höfum gengið í gegnum margt saman í gegnum árin, gott og slæmt, og mér finnst alltof snemmt að þurfa að kveðja þig núna. Orð fá því ekki lýst hvað þín verður mikið saknað og þú átt allt- af stað í hjarta mínu. Þín dóttir, Sigríður Helga Mogensen.  Fleiri minningargreinar um Örn Vilmundarson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Kær bróðir minn og frændi, JENS ÁSGEIR GUÐMUNDSSON, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Uppsölum, Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 23. september. Útför hans fer fram frá Heydalakirkju laugardaginn 3. október kl. 11.00. Lára Guðmundsdóttir og aðstandendur. ✝ Sonur okkar, bróðir og barnabarn, EINAR MÁR KRISTJÁNSSON, Hörðalandi 6, Reykjavík, er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins. Ólöf Jónsdóttir, Kristján S. Elíasson, systkini hins látna, Magnea Hulda Magnúsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BENEDIKT SIGURJÓNSSON vélvirki, Mánagötu 24, Reykjavík, sem lést mánudaginn 21. september, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtudaginn 1. október kl. 13.00. Sigríður Sigurðardóttir, Ingi Gunnar Benediktsson, Drífa Konráðsdóttir, Sigrún Björk Benediktsdóttir, Valtýr Valtýsson og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGURÐUR FRIÐGEIR JÓHANNSSON stórkaupmaður, Melseli 7, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. október kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Parkinsonsamtökin. Svava Steinunn Ingimundardóttir, Elínborg Sigurðardóttir, Jón Ingi Sigurðsson, Linda Jóhannsdóttir, Heiðdís Sigurðardóttir, Sigvaldi S. Einarsson, Heiðrún Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur okkar og bróðir, JÖKULL TANDRI ARNARSON, Brávallagötu 10, lést á heimili sínu laugardaginn 26. september. Guðmundur Örn Ragnarsson, Jónína Lára Einarsdóttir, Bjartmar Orri Arnarson, Brynjar Frosti Arnarson. ✝ Elskuleg frænka okkar, ÞURÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR frá Reykjahlíð í Mývatnssveit, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 27. september. Sigurður Jónas Þorbergsson, Finnur Baldursson, Sigurður Baldursson og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR, Hverfisgötu 31, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar föstudaginn 25. september. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jóhannes Þórðarson, Soffía Guðbjörg Jóhannesdóttir, Ólafur Kristinn Ólafs, Ólafía M. Guðmundsdóttir, Halldóra Sigurlaug Ólafs, Magnea Jónína Ólafs, Jóhannes Már Jónsson, Kjartan Orri Jónsson, Margrét Finney Jónsdóttir og Eydís Ósk Jóhannesdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, systir, mágkona og tengda- dóttir, SONJA RÁN HAFSTEINSDÓTTIR, Fífurima 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 24. september. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 5. október kl. 15.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á MS-félag Íslands. Öllum þeim er önnuðust hana í veikindum hennar eru færðar alúðlegar þakkir. Þórir Þrastarson, Linda Brá Hafsteinsdóttir, Ægir J. Guðmundsson, Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson, Karla M. Sigurjónsdóttir, Sölvi Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.