Morgunblaðið - 30.09.2009, Page 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Fatnaður
Við vorum að fá æðislega
nýja sendingu
Ný sending af flottum og vönduðum
kjólum í stærðum S, M og L. Verð
aðeins 6990. Önnur æðisleg sending
frá USA á leiðinni. Netverslunin
www.shopcouture.is
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri. Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
AKUREYRI
Sumarhús (130 fm) til leigu við
Akureyri. 4 svefnherb. + svefnloft, 2
baðherb, rúm fyrir 11 manns, verönd
og heitur pottur, glæsilegt útsýni yfir
Akureyri. www.orlofshus.is eða
Leó, sími 897 5300.
Heilsa
REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI
STREITU- OG KVÍÐALOSUN
Notuð er m.a. dáleiðsla og
EFT (Emotional Freedom
Techniques).
Viðar Aðalsteinsson,
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694-5494,
www.EFTiceland.com.
Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 39.900. Hljómborð frá
kr. 8.900. Trommusett kr. 79.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Húsnæði í boði
Stúdíó
60 fermetrar Vesturbergi 195. Jarð-
hæð, sérinngangur. Kettir og hundar
velkomnir, langtímaleiga. Íbúðin er
ekki samþykkt sem íbúðarhúsnæði,
þar af leiðandi fást ekki húsaleigu-
bætur. Kr. 70.000, tveir mánuðir fyrir-
fram, kr. 140.000. Útsýni yfir
höfuðborgina. Sími 861 4142 frá 10
til 17 en ekki á öðrum tímum.
Geymslur
Geymdu gullin þín í Gónhól
Ferðabílar, hjólhýsi og fleira og fleira.
Upplýsingar og skráning á gonholl.is
og í síma 771 1936.
Sumarhús
Ólafur Ragnar og fangavaktin,
Eiður Smári, Tiger Woods,
Räikkönen og allir hinir verða
með okkur í vetur
Já þú last rétt. Þú missir ekki af neinu
í bústað hjá okkur. Frábær aðstaða
fyrir fjölskyldur og hópa.
Heitir pottar og grill - hvað annað?
Minniborgir.is
Spennandi gisting á góðum stað.
Sumarbústaður ÓSKAST
Óska eftir sumarbústað á Suðurlandi.
Verð ca. 10-12 milljónir. Greiðsla ný-
legur bíll + peningar. Uppl. 897-0490.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Nýir og notaðir vetrarhjól-
barðar. Gott verð.
Kaldasel ehf.
hjólbarðaverkstæði,
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Handslípaðar kristalsljósakrónur
frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið
úrval. Frábær gæði og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Vandaðar og þægilegar herra-
mokkasíur úr leðri og með
skinnfóðri
Litur: Svart.
Stærðir: 41-46.
Verð: 14.700.-
Sportlegir og vandaðir herraskór
úr mjúku leðri og með skinnfóðri
Litur: Brúnt.
Stærðir: 41-46.
Verð: 17.550.-
Vandaðir herraskór úr mjúku
leðri og með skinnfóðri. Henta
vel breiðum fæti og hárri rist.
Litir: Svart og brúnt.
Stærðir: 40-45.
Verð: 14.700.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Teg. 7273 - léttfylltur og mjög
flottur í BC-skálum á kr. 3.950,-
buxur í stíl á kr. 1.950,-,
Teg. 6579 - mjúkur og æðislegur í
CDE-skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl
á kr. 1.950,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Föndurnámskeiðin í fullum
gangi!
Kortagerð - skrappbooking - skart-
gripagerð - lampaskreytingar - græn-
lenskur perlusaumur - rússneskur
spírall - o.fl.
Fondurstofan.is
Mörkin 1 - sími 553 1800.
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga kl. 11-15.
Bílaþjónusta Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Varahlutir
www.netpartar.is
PARTASALA ...NOTAÐIR VARAHLUTIR Í NÝLEGA BÍLA
486 4499
486 4477
Minnispeningar og frímerki
óskast
Vil kaupa íslenska og Norðurlanda-
minnispeninga. Einnig íslensk frí-
merki. Söfn eða minni einingar. Vin-
samlegast hringið í síma 699 1159.
Ýmislegt
Elsku Kobbi, mikið
var það sérstök tilfinn-
ing sem greip mig þegar ég heyrði
fréttirnar af andláti þínu. Þú varst
síðasti aðilinn í fjölskyldunni af þess-
ari kynslóð og með þér hverfur mikil
þekking um hluti sem skipta miklu
máli og hafa að mörgu leyti ekki verið
nægjanlega ræktaðir. Fyrsta minn-
ingin sem ég á um þig er þegar ég var
einu sinni sem oftar með pabba í
Hraunsholti og þú fórst út að sýna
mér bílana og segja mér frá þeim. Sá
mikli áhugi sem ég hafði á bílum er að
mörgu leyti þeim tíma sem þú gafst
þér að þakka og það var ansi oft sem
við tveir spjölluðum um bíla, allar
nýju tegundirnar og þá fékk ég alltaf
að sýna þér leikfangabílana sem for-
eldrar mínir höfðu gefið mér. Þegar
ég varð eldri var ljóst að þessi mikla
viska sem þú hafðir um bíla hafði ekki
alveg skilað sér til mín enda vissi ég
lítið um vélar og tengda hluti en við
vorum þó sammála um eitt og það var
að Chrysler var í miklu uppáhaldi hjá
okkur báðum.
Jakob Valdimarsson
✝ Jakob Valdimars-son vélvirki fædd-
ist í Hraunsholti í
Garðahreppi í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu
17. september 1928.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Holts-
búð í Garðabæ 22.
september 2009 og fór
útför hans fram frá
Garðakirkju í Garða-
bæ 29. september,
Þegar ég rifja upp
þennan tíma að alast
upp í hrauninu og í
nágrenni við ykkur þá
skil ég hversu hepp-
inn ég hef verið og
hversu mikil forrétt-
indi það eru að til-
heyra Hraunsholt-
sættinni. Ég sé það
líka hversu ofboðs-
lega líkur afa þú
varst, alltaf í góðu
skapi og gafst þér
alltaf tíma fyrir okkur
krakkana. Sögurnar
af afa sem þú sagðir voru ekki margar
en þær eru þó þannig að þær eru
greyptar í huga manns og verða allt-
af, fyrir þær verð ég alltaf þakklátur.
Núna þegar ég er kominn í hverfið
þá ert þú farinn, en þó svo að síðustu
blaðsíðunni hafi verið flett í þinni sögu
þá veit ég að á hverjum degi mun ég
minnast tímans er ég var að alast upp
og um leið minnast ykkar allra sem
eruð farin. Það voru forréttindi að fá
að kynnast þér, elsku frændi, kysstu
alla frá mér.
Helgi Hrannarr.
Elsku afi minn.
Þegar ég byrjaði að hugsa um hvað
ég ætti að skrifa um þig datt mér
strax í hug minning úr gamla húsinu
okkar. Þegar þú komst á hverjum ein-
asta laugardagsmorgni með kónga-
brjóstsykur handa okkur systkinum.
Stundum vorum við varla vöknuð, en
þú komst nú samt, og ég man hvað ég
hlakkaði alltaf til. Ég hefði ekki getað
óskað eftir betri afa en þú varst alltaf
svoddan töffari og ég elskaði þegar þú
komst í heimsókn. Þú varst alltaf með
hattinn þinn og staf þá og allt í einu
læddist brjóstsykurspoki úr vasanum
þínum. Ég sakna þín, elsku besti afi,
en vona að þú sért kominn á betri
stað. Skilaðu kveðju frá mér til ömmu,
og til frændanna minna; Valda,
Hjalta, Ásgeirs og Birkis.
Í bænum okkar, besti afi
biðjum fyrir þér
að Guð sem yfir öllu ræður,
allt sem veit og sér
leiði þig að ljóssins vegi
lát’ þig finna að,
engin sorg og enginn kvilli
á þar samastað.
Við biðjum þess í bænum okkar
bakvið lítil tár,
að Guð sem lífið gaf og slökkti
græði sorgarsár.
Við þökkum Guði gjafir allar
gleði og vinarfund
og hve mörg var ávallt með þér
ánægjunnar stund.
(Sigurður Hansen.)
Þín dótturdóttir,
Katrín Fjóla.
Haustið leggst á með fullum þunga.
Þann 22. september sl. barst mér sú
fregn að Jakob Valdimarsson, síðasti
bróðirinn frá Hraunsholti í Garðabæ,
hefði kvatt þennan heim. Jakob var
fjölskyldu minni afar kær og mikill
aufúsugestur á heimili okkar. Hann
hafði mjög hlýja nærveru og var já-
kvæður maður, þrátt fyrir mikið and-
streymi í lífi hans.
Honum svipaði til foreldra sinna,
heiðurshjónanna Sigurlaugar og
Valdimars í Hraunsholti. Hann sá
alltaf bjartari hliðar tilverunnar og
vildi gera öllum gott. Hann var afar
trúaður maður og var eindregið þeirr-
ar trúar, að lífið héldi áfram eftir
þetta líf. Það hafa verið fagnaðarfund-
ir hinum megin þegar Jakob fór yfir
og ég efa ekki að vel hafi verið tekið á
móti honum í nýjum heimkynnum.
Hann var alla tíð mjög samvisku-
samur og fór oft á ári að leiðum
bræðra sinna, þeirra Guðmundar,
sem lést langt fyrir aldur fram árið
1951 og Péturs tvíburabróður síns
sem lést árið 1985. Einnig sá hann vel
um leiði foreldra sinna í Garðakirkju-
garði. Jakob varð fyrir þeirri sorg að
missa einkason sinn Valdimar árið
2006. Eftir stendur Sigurlaug einka-
dóttirin og afabörnin tvö sem Jakob
unni afar heitt.
Jakob var einstaklega fróður um
staðhætti og staðarnöfn í Garðabæ.
Það hefði verið fengur í því ef eftir
hann lægi bréfstúfur þar sem hann
staðfesti þau örnefni sem tengjast
umhverfinu í Hraunsholti. Það fór
heilmikill fróðleikur með Jakobi.
Þegar við kynntumst var Jakob
starfsmaður Stálvíkur í Garðabæ.
Hann vann iðulega langan vinnudag
en vílaði þó ekki fyrir sér að liggja öll
kvöld undir bílum vina og vanda-
manna. Þar var gert við, soðið í ryð og
betrumbætt, allt endurgjaldslaust
enda Jakob einstaklega bóngóður
maður. Ég man vel eftir honum
standandi undir bílagrindinni sem
hann útbjó sjálfur en hann var með
afbrigðum handlaginn maður. Engan
þekki ég sem hafði eins gaman af bíl-
um og var það honum mikið áfall að
þurfa að hætta að keyra fyrir rúmum
2 árum síðan. Hann hafði unun af því
og gat setið heilu dagana í bíl sínum
og skoðað fallegu staðina sína í
Garðabæ. Hann kom oft niður í
Hraunhóla og horfði yfir Hrauns-
holtslandið. Síðustu misserin var það
honum þungbært að sjá þær gífur-
legu breytingar sem hafa átt sér stað í
heimahögunum. Æskuslóðirnar
verða aldrei eins.
Það væri hægt að segja svo mikla
sögu um Jakob en þar sem hann var
dulur maður um einkahagi þá læt ég
staðar numið með þessari fátæklegu
stiklu minni og þakka honum fyrir
mikinn vinskap í garð okkar í Hraun-
hólum 18.
Hafðu kæra þökk vinur fyrir góða
samfylgd.
Jón Ernst Ingólfsson.