Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 2
Kæra Jóhanna. Bestu þakkir fyrir tölvupóstinn frá þér 5. október sl., þar sem þú spyrð m.a. um yfirlýsingar sem Per Olav Lundteigen stórþingsmaður hefur gefið hinum íslenska Framsóknarflokki þess efnis að Noregur sé reiðubúinn til að lána Íslandi 100 milljarða norskra króna. Okkur er hugleikið að aðstoða Ísland í erfiðri stöðu landsins, m.a. með veitingu langtímalána ásamt öðr- um Norðurlöndum. Noregur hefur átt frumkvæði að tímanlegri og verulegri aðstoð við Ísland innan nor- ræns ramma. Eins og þér er kunnugt er norska lánið að upphæð 480 milljónir evra (u.þ.b. 4,2 milljarðar norskra króna) af norrænu heildarláni sem nemur um 1,8 milljörðum evra. Það hefur hvorki í norsku eða norrænu samhengi verið rætt um að hækka þessar upphæðir. Ríkisstjórn þín hefur gert mikið til að hreinsa upp eftir hina föllnu banka og í mótun stefnu um að ná efnahagslegum stöðugleika og endurreisn á Ís- landi. Nú skiptir miklu að Ísland komi samskiptum við umheiminn í samt lag. Við styðjum ykkur í þessari viðleitni og vonum að stjórn AGS geti fljótlega samþykkt fyrstu endurskoðun stöðugleikaáætlunarinnar, þannig að næsta út- borgun lánsins frá AGS og fyrsta útborgun af norrænu lánunum geti átt sér stað. Þegar Noregur, ásamt Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð, gaf fyrirheit um lánveitingu í nóvember í fyrra, var það m.a. með því skilyrði að Ísland virti al- þjóðlegar skuldbindingar, þ.m.t. varðandi innlánstryggingar, og að þau lönd sem hafa helst orðið fyrir vanefnum íslenska innlánstryggingasjóðsins veiti lán til að fjármagna þær skuldbindingar sem íslensk stjórnvöld gangist við í þessu samhengi. Þessar forsendur lágu til grundvallar samþykki Nor- egsbanka fyrir láni til Seðlabanka Íslands og ákvörðun Stórþingsins um að veita ríkisábyrgð vegna lánsins. Meðferð íslenskra skuldbindinga um innlánstryggingar gagnvart erlendum innistæðueigendum í bönkunum sem féllu skiptir mjög miklu fyrir styrkleika stöðugleikaáætlunarinnar. Í þessu samhengi eru Icesave-samningarnir við Stóra-Bretland og Holland mikilvægir. Við leggjum þunga áherslu á norræna samstarfið. Það gagnast bæði Noregi og Íslandi að það eflist og að norska aðstoðin við Ísland gerist í slíkri samvinnu. Ég hlakka til norræna fundarins í Stokkhólmi þar sem okkur gæti gefist til- efni til m.a. að fjalla betur um stöðu mála á Íslandi. Með vinsamlegri kveðju, Jens Stoltenberg. „Ekki rætt um hærri upphæðir“ Jens Stoltenberg 2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Baldur Arnarson og Andra Karl „MÉR finnst það fráleitur þvætting- ur og dónaskapur að halda því fram að forsætisráðherra Íslands sé að beita sér gegn lánveitingu án skilyrða hingað til okkar Íslendinga. Það sjá þetta allir í hendi sér. Ég er aldeilis undrandi á þessu,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í samtali við fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, á laugardag. Tilefnið var fullyrðingar Sigmund- ar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og Höskuldar Þórhallssonar, þingmanns sama flokks, þess efnis að Jóhanna hefði sent Jens Stoltenberg forsætisráð- herra Noregs, tölvubréf, í því beitt sér gegn norsku risaláni og sagt för framsóknarmanna og fundahöld með fulltrúum norsku flokkanna setja rík- isstjórnina í vanda. Í svarbréfi Stoltenbergs er hug- myndum um risalán til Íslendinga hafnað og að því vikið að áætlun um samnorrænt lán standi, þ.e. svo fram- arlega sem Íslendingar standi við skuldbindingar sínar. Framsóknar- mennirnir segja svarið pantað. Fékk alls staðar sama svar Forsætisráðherra sagðist ekki skilja hvað Sigmundi og Höskuldi gengi til með málatilbúnaði sínum. „Ég sendi fyrirspurn um það til Stolt- enbergs um hvort það kæmi til greina að stjórnvöld byðu okkur 2.000 millj- arða króna lán án skilyrða. Ég veit ekki hvað þessir menn halda. Heldur Höskuldur virkilega að forsætisáð- herra Noregs fari að búa til svar eftir pöntun frá mér? Þetta er auðvitað al- gjörlega fráleitt.“ Raunar taldi Jóhanna sennilegast að tvímenningarnir væru að reyna að fela þá staðreynd að þeir komu tóm- hentir til baka. „Þetta er ómerkilegur blekkingaleikur sem þeir hafa sett á svið með því að halda því fram að við myndum fá þessi lán. Ég taldi mér skylt að spyrja sérstaklega hvort þau stæðu til boða og það var alveg skýrt.“ Jóhanna segist hafa látið kanna það í norska stjórnkerfinu, fjármálaráðu- neytinu og á fleiri stöðum áður en hún sendi Stoltenberg fyrirspurnina hvort þetta gæti komið til greina. Svarið hafi alls staðar verið það sama. „Algjörlega fráleitt“ Jóhanna Sigurðardóttir segir þvætting og dónaskap að halda því fram að hún hafi beitt sér gegn norskri lánveitingu Kæri Jens. Ég endurtek hjartanlegar hamingjuóskir mínar með árangurinn í kosningunum en hér á Íslandi er ríkis- stjórnin því miður að fást við fjölmörg erfið málefni. Mér þykir miður að trufla með að nefna við þig mál sem hefur vakið talsvert mikla athygli á Íslandi, það er að segja yfirlýsingu Per Olav Lundteigens til alþingismanns íslenska Framsóknarflokksins, syst- urflokks Miðflokksins, um að Noregur sé reiðubúinn að lána Íslandi 100 milljarða norskra króna. Við ger- um okkur vel ljóst að Lundteigen talar fyrir sig og af- staða norsku ríkisstjórnarinnar er okkur vel kunn. Það gildir hins vegar ekki um alla hér á landi og Framsóknarflokkurinn á Íslandi sakar okkur um að fylgja ekki eftir frum- kvæði sínu. Til þess að komast hjá frekari vafa vil ég leyfa mér að spyrja hvort hægt sé að fá nánari skýringar á afstöðu norsku stjórnarinnar sem svari tillögu Lundteigens? Er útspil hans raunhæft? Mér þætti vænt um að fá svar frá þér við fyrsta tækifæri. Ég hlakka til norræna fundarins í lok þessa mán- aðar. Með kærri kveðju, Jóhanna. „Mér þykir miður að trufla“ Jóhanna Sigurðardóttir Eftir Andra Karl andri@mbl.is „FYRIR það fyrsta er ekki hægt að lesa bréf Jóhönnu á annan hátt en sem beiðni um að slá málið út af borðinu. Og það kemur heim og saman við það sem okkur var sagt úti, þ.e. að Stoltenberg hefði borist erindi um að málið væri farið að valda óþægindum.“ Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsókn- arflokksins, sem er allt annað en sáttur við framgang Jóhönnu Sig- urðardóttur forsætisráðherra. Hún lét birta í gær bréfaskipti sín og Jens Stoltenbergs, forsætisráðherra Noregs. Sigmundur er nýkominn til lands- ins eftir ferð til Noregs þar sem hann, ásamt föruneyti, fundaði með fulltrúum þingflokka um möguleika á láni til Íslands án skilyrða um afgreiðslu Ice- save og AGS. Hann segir er- indinu hafa verið vel tekið af fulltrúum sjö af átta flokkum og fulltrúi hins átt- unda, Verka- mannaflokksins, hafi einfaldlega ítrekað, að beiðni um slíkt hafi ekki borist og á meðan hún berst ekki fari að sjálfsögðu ekki fram neinar viðræður. „Ég velti því fyrir mér hver við- brögðin hefðu verið ef Jóhanna og Steingrímur hefðu sent formlegt er- indi um það að ræða málin, opna á viðræður, í stað þess að gera þetta með þessum hætti. Það vekur furðu ef þetta eru hinar eðlilegu boðleiðir þegar um er að ræða stöðu Íslands og einhverja 1.000 milljarða. Að senda nokkrar línur í tölvupósti.“ Sigmundur segir nálgun Jóhönnu í bréfinu einnig undarlega. Fram- sóknarmenn hafi aldrei beðið um neina 2.000 milljarða. „Okkar mál- flutningur hefur alltaf verið sá að það þurfi ekki eins mikil lán og verið er að tala um. Þessi tala var upp- haflega nefnd af einum þingmanni og er sú upphæð sem hann sá fyrir sér að hægt væri að fara upp í. Við- ræður okkar við norsku þingmenn- ina voru hins vegar um miklu lægri upphæðir og raunar aldrei annað en lánalínu.“ Hvað varðar svar Stoltenbergs segir Sigmundur Davíð hann hafa svarað eins og lagt sé upp með „en sem betur fer sló hann þetta ekki al- veg út af borðinu“. Hann er þess fullviss að ef farið væri eftir réttum boðleiðum og formlegt erindi sent tæki norski forsætisráðherrann vel í það. „Miðað við stuðninginn sem er við það í norska þinginu, miðflokks- menn fullyrða reyndar að það sé fyr- ir því meirihluti, þætti mér und- arlegt ef hann slægi það út af borðinu.“ Sigmundur Davíð mun í dag óska eftir utandagskrárumræðu á Alþingi um þessi mál. Næsti þingfundur verður haldinn á morgun. Forsætisráðuneytið birti í gær bréfaskriftir milli Jóhönnu Sigurðardóttur og Jens Stoltenbergs Morgunblaðið/Kristinn Forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir og Sigmundur Davíð eiga eftir að takast á um Noregslánið á Alþingi. „Beiðni um að slá málið út af borðinu“ Sigmundur Davíð fer fram á utandagskrárumræðu á Alþingi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.