Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009 Forsætisráðherra telur fráleittað hún hafi beitt sér gegn lán- veitingu Noregs til Íslands án skil- yrða. Ásakanir þess efnis komu fram hjá forystu- mönnum Fram- sóknarflokksins eftir að systur- flokkur Samfylk- ingarinnar í Nor- egi hafði einn þarlendra flokka tekið dræmt í lán til Íslands. Þetta segja þeir Íslend- ingar sem sátu fundi með fulltrú- um norsku flokkanna fyrir helgi.     En hafi forsætisráðherra ekkiviljað spilla fyrir, hvers vegna sendi hún þá tölvupóst til kollega síns í Noregi og spurði hvort til greina kæmi að Ísland fengi 2000 milljarða króna lán?     Var einhver ástæða til að óskaeftir 2000 milljörðum? Fram- sóknarmennirnir ræddu um að fá 1000 milljarða. Er ekki möguleiki að hægt væri að fá 1000 milljarða þó að 2000 milljarðar standi ekki til boða?     Seðlabankastjóri Jóhönnu hefurlíka sagt að ástæða sé til að draga úr lánveitingum frá því sem áformað hefur verið. Er ekki ástæða til að Jóhanna hlusti á hann vegna þessa?     En umfram allt þá þarf ekki mjögskynug norsk stjórnvöld til að finna að Jóhönnu er engin alvara með þreifingunum í tölvupóst- inum. Orðalagið er þannig að hver maður sér að alvöruleysið er al- gert.     Tölvupósturinn er aðeins sendurtil að geta sagt að þetta hafi verið reynt. Jóhanna vill enga aðra leið en þá sem AGS og ESB er þóknanleg. Jóhanna Sigurðardóttir Málamyndafyrirspurn forsætisráðherra Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 6 alskýjað Lúxemborg 12 skýjað Algarve 27 heiðskírt Bolungarvík 3 skýjað Brussel 14 léttskýjað Madríd 26 léttskýjað Akureyri 2 alskýjað Dublin 13 léttskýjað Barcelona 23 léttskýjað Egilsstaðir 1 alskýjað Glasgow 13 léttskýjað Mallorca 24 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 4 skýjað London 15 léttskýjað Róm 24 léttskýjað Nuuk -1 heiðskírt París 16 skýjað Aþena 23 léttskýjað Þórshöfn 9 léttskýjað Amsterdam 14 léttskýjað Winnipeg 0 skýjað Ósló 4 skúrir Hamborg 12 skýjað Montreal 7 léttskýjað Kaupmannahöfn 9 skýjað Berlín 10 skýjað New York 16 heiðskírt Stokkhólmur 5 skúrir Vín 15 skýjað Chicago 3 skýjað Helsinki 4 skýjað Moskva 5 alskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 12. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 0.11 2,9 6.21 1,4 12.53 3,2 19.28 1,4 8:10 18:19 ÍSAFJÖRÐUR 2.40 1,5 8.43 0,8 15.12 1,8 21.53 0,6 8:21 18:19 SIGLUFJÖRÐUR 4.56 1,1 10.38 0,6 17.00 1,2 23.40 0,4 8:04 18:01 DJÚPIVOGUR 3.13 0,7 9.54 1,8 16.30 0,9 22.39 1,5 7:41 17:47 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á þriðjudag Suðvestan 3-10 m/s og dálitlir skúrir á stöku stað, en bjart að mestu á austanverðu landinu. Hiti 5 til 12 stig. Á miðvikudag Sunnan 5-10 og rigning eða súld á sunnan- og vestanverðu landinu, annars þurrt að kalla og víða bjart. Suðvestan 8-15 og skúrir undir kvöld, en áfram bjartviðri NA-til. Heldur hlýn- andi. Á fimmtudag, föstudag og laugardag Suðvestan- og sunnanátt ríkjandi og væta með köflum, en þurrt norðaustantil. Milt í veðri. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustanátt og rigning eða súld, en hægari og úrkomulítið norðan- og austantil. Dregur úr úrkomu um tíma í dag, hiti 0 til 9 stig, hlýjast sunnanlands, en hlýnar smám saman fyrir norð- an í dag. SVEITARSTJÓRN Skagafjarðar gerir ráð fyrir óbreyttri staðsetn- ingu vegar við Varmahlíð. Hyggst félagið Leið ehf. gera athugasemd við þá tillögu til Skipulagsstofnunar. Stytting akleiða á Norðurlandi var rædd á fundi, sem Leið ehf. og At- vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar boð- uðu til, í Húnaveri um helgina. Jónas Guðmundsson, stjórnar- formaður Leiðar ehf., segir að flestir séu þeirrar skoðunar að ólíklegt sé að lagðir verði hálendisvegir til að stytta leiðir milli landshluta. Göng undir Tröllaskaga séu einnig ólíkleg- ur kostur. Nærtækara sé að fara svokallaða Svínavatnsleið í A-Húnavatnssýslu, en hún myndi stytta hringveginn um 12,6- 14,6 km eftir leiðarvali. Einnig hafi lítillega verið skoðuð stytting í Skagafirði um 6,3 km. Samtals myndi þetta stytta vegalengdir um 20 km. Jónas segir að styttri akleiðir milli landshluta hafi mikla þýðingu til eflingar byggðar í landinu, aukins umferðaröryggis og lækkunar flutn- ingskostnaðar. Jónas segist vera fylgjandi því að farið verði í Svínavatnsleið í einka- framkvæmd en það kalli á veggjöld. Hann segir að kostnaður við þennan veg sé áætlaður 1.600 milljónir. Seg- ist hann sannfærður um að hægt sé að fá hagstæð tilboð í þennan veg þar sem ekkert sé um að vera í vega- gerð á Íslandi um þessar mundir. Vilja stytta leiðirnar á milli landshluta Leið ehf. gerir athugasemd við óbreytta vegarlagningu í Skagafirði Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Blönduós Leið vill fara Svínavatns- leið framhjá Blönduósi. HÁTT í 1.500 jarðskjálftar komu fram á mælum Veðurstofunnar í september sl., að því er fram kemur á vef stofnunarinnar. Virkasta svæð- ið í mánuðinum var í Flóanum, suð- vestur af Selfossi. Mesti daglegi fjöldi skjálfta mældist í hrinu 9. september, eða um sjötíu. Stærsti skjálftinn var um þrjú stig á Richter og fannst á Selfossi, í Hveragerði og á Eyrarbakka. Lítið mældist af skjálftum á Reykjaneshrygg og skjálftavirkni minni þar en undan- farna mánuði. Þó varð skjálftahrina austan við Fagradalsfjall fyrstu vik- una í september, þar sem um sjötíu skjálftar voru staðsettir, sá stærsti 1,3 stig á Richter. Nokkur virkni var á Torfajökulssvæðinu, á Kröflu og Þeistareykjum og víðar. 1.500 skjálftar í september

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.