Morgunblaðið - 12.10.2009, Síða 15

Morgunblaðið - 12.10.2009, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009 Hugsi Hundurinn Skelliblær var áhugalítill um skákina þar sem hann kom við á stórmóti Vinjar, Hróksins og Hellis sem fram fór í Mjódd um helgina í tilefni alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins. Ómar TUTTUGU og þrjú ár eru nú liðin frá leið- togafundinum í Höfða – fundi Ronalds Reag- an, þáverandi forseta Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbasjoffs, þáverandi forseta Sov- étríkjanna, dagana 11.-12. október 1986. Fundurinn í Höfða átti að vera einskonar upphitun fyrir formlegri leiðtoga- fund ári síðar. Hann reyndist hins- vegar einhver dramatískasti leið- togafundur kaldastríðsáranna. Um hann er ennþá rætt og ritað, bækur með titlum eins og „Reykjavík Re- visited“ hafa komið út og leikrit hef- ur meira að segja verið samið um fundinn. Margir álíta fundinn hafa verið einskonar vendipunkt í sam- skiptum austurs og vesturs á sínum tíma. Nú um stundir stendur eitt atriði upp úr; sú staðreynd að leiðtogarnir tveir fóru í fullri alvöru að ræða hugmynd sem enginn hafði búist við, sem sagt eyðingu kjarnavopna. Þótt hugsjónin um eyðingu kjarna- vopna væri ekki ný af nálinni var raunin sú að afvopnunarviðræður höfðu jafnan fækkun kjarnavopna að markmiði. Reagan og Gorbasjoff tóku hinsvegar af skarið og ræddu allítarlega um eyðingu allra kjarna- vopna á tíu árum. Samkomulag náð- ist ekki en ljóst var að báðum leið- togum var full alvara. Það er ekki fyrr en nú, rúmlega tveimur áratugum síðar, að eyðing kjarnavopna og þar með hugsjónin um veröld án kjarnavopna er aftur komin á dagskrá. Forseti Banda- ríkjanna Barack Obama hefur end- urvakið hugmyndina með afgerandi hætti. Hann hefur gert útbreiðslu kjarnavopna, fækkun þeirra og til lengri tíma litið eyðingu að for- gangsmarkmiði í utanríkismálum. Leiðtogafundur öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna í sl. mánuði, sem forsetinn stýrði, er til vitnis um að hann ætlar að fylgja málinu eftir af krafti en fundurinn samþykkti ályktun sem var mjög í anda þeirrar stefnu sem hann hefur talað fyrir. Stefnumörkun forsetans hefur bakgrunn í allvíðtækri umræðu innan Banda- ríkjanna sem utan á undanförnum árum. Í fararbroddi hafa m.a. verið fyrrverandi ut- anríkisráðherrar Bandaríkjanna, Henry Kissinger og George P. Schultz, fyrrverandi varnarmálaráðherra William J. Perry og Sam Nunn sem lengi var öldungadeild- arþingmaður. Þeir hafa í ræðu og riti á undanförnum árum hvatt til þess að hugsjónin frá Höfðafundinum um veröld án kjarnavopna yrði endurvakin og stefnt að því að gera hana að raun- veruleika. Rökin sem þeir færa fram eru að útbreiðsla kjarnavopna og útbreiðsla á þekkingu til að smíða þau sem og útbreiðsla kjarna- kleyfra efna sé í þann mund að skapa ástand þar sem heimsbyggðin stendur á ystu nöf og mjög brýnt sé að koma böndum á þróunina. Þessi boðskapur hefur náð eyrum margra þeirra sem hugnast engan veginn þróunin á sviði kjarnavopna. Smám saman hefur umræðan orðið til þess að verið er að koma í skipu- legan farveg stuðningi forystu- manna um víða veröld til að stuðla að framgangi málsins. Slík samtök „Global Zero“ var t.d. stofnað til með fundi í París í desember 2008. Í reynd er um að ræða þrýstihóp fyrrverandi leiðtoga, stjórnmála- manna, herforingja og annarra for- ystumanna á alþjóðavísu sem telja brýnt að takast á við þær ógnir sem stafa af tilvist kjarnavopna, ekki síst frekari útbreiðslu þeirra. Þetta fólk er á einu máli um að hættan á að kjarnavopnum verði einhverntíma beitt fari vaxandi eftir því sem þau komast í hendur fleiri ríkja og jafn- vel hryðjuverkasamtaka. John F. Kennedy sagði einhverju sinni með vísan í tilvist kjarnavopna. „veröldin átti ekki að vera fangelsi þar sem maðurinn biði þess að vera tekinn af lífi“. Kjarnavopn í veröldinni eru í kringum 26.000, langflest í eigu Bandaríkjanna og Rússlands eða allt að 95% en sjö önnur ríki hafa á að skipa slíkum vopnum þótt í minna mæli sé. Hugsanlegt er að tugur ríkja gæti bæst í hópinn á næstu tveimur áratugum ef ekkert er að gert. Milli 40 og 50 ríki eiga kjarnakleyf efni sem hægt væri að nota til smíði kjarnavopna. Hið mikla magn kjarnavopna sem er í eigu Rússlands og Bandaríkj- anna segir sína sögu um það hversu ábyrgð þessara ríkja er mikil og hversu miklu það skiptir að þau gangi á undan með góðu fordæmi og fækki í vopnabúrum sínum. Öðru- vísi trúir því ekki nokkur maður að hugur fylgi máli um eyðingu kjarna- vopna. Greinlegt er að Barack Obama er sér vel meðvitaður um ábyrgð Bandaríkjanna í þessum efnum. Hann hefur þegar gert sam- komulag í grundvallaratriðum við Medvedev forseta Rússlands um all- mikla fækkun kjarnavopna. Hann miðar jafnframt að því að Bandarík- in fullgildi samning um allsherj- arbann við tilraunum með kjarna- vopn. Fleira er í farvatninu. Leið Obama er sem sagt sú að ganga á undan með góðu fordæmi. Þar með er hann ekki einungis að beina aug- um að ríkjum sem kunna að stefna að því að eignast kjarnavopn heldur einnig þeim sem eiga þau fyrir. Hann er ekki að tala um tvískipta veröld þar sem sumir eiga kjarna- vopn og aðrir ekki heldur veröld án kjarnavopna. Engum dettur í hug að veröld án kjarnavopna sé handan við hornið þótt hugmyndin sé komin á dag- skrá. En sem alvöru dagskráratriði í milliríkjasamskiptum er um að ræða nýmæli ef frá er talinn leið- togafundurinn í Höfða 1986. Kannski mætti segja sem svo að þráðurinn hafi verið tekinn upp að nýju. Eftir Gunnar Gunnarsson » Á leiðtogafundinum í Höfða var í fyrsta sinn í alvöru rætt um eyðingu allra kjarna- vopna. Barack Obama hefur nú tekið þráðinn upp að nýju. Gunnar Gunnarsson Höfundur er sendiherra í utanríkis- þjónustunni. Hann var fastafulltrúi Íslands hjá NATO 2002-2008. Leiðtogafundurinn í Höfða og hugsjónin um veröld án kjarnavopna „ÉG HEF ekki mikla samúð með því hvernig Árni Sigfússon setur fram sína pólitík í þessum málum sem öðrum,“ sagði Svandís Svavarsdóttir um- hverfisráðherra á Morgunvakt Rásar 2 sl. föstudag þegar hún var beðin um viðbrögð við harðorðri ályktun Reykjanesbæjar um umdeildan úrskurð hennar um að fella úr gildi úrskurð Skipulagsstofn- unar um að ekki skuli fara fram heild- stætt mat á umhverfisáhrifum fram- kvæmda vegna Suðvesturlínu og öðrum tengdum framkvæmdum. Ráðherrann sagðist nefnilega, ólíkt sumum, ekki vera að gæta hagsmuna einstakra orkufyrirtækja og álfyr- irtækja heldur gæta hagsmuna heild- arinnar, umhverfisins og komandi kynslóða. Hún skildi hreinlega ekki allt uppnámið vegna þessarar ákvörð- unar hennar sem einungis hefði í för með sér „einhverra vikna frestun“ á framkvæmdum við álver í Helguvík. Við þyrftum jú að koma með ný svör – eitthvað annað – í stað gamaldags álverspólitíkurinnar sem bæjarstjór- inn í Reykjanesbæ stæði augljóslega fyrir. „Staðan í þjóðfélaginu er svo flók- in,“ sagði ráðherrann, hún verður ekki leyst við ríkisstjórnarborðið. Ekki frekar en annað, varð mér hugs- að. „Við getum þetta ekkert öðruvísi en með þjóðinni,“ sagði ráðherrann ábúðarfullur og var uppnuminn yfir kraftinum sem býr í kirkjukórum, Lionsfélögum og skógræktarfélögum um land allt. Við þyrftum að horfa til landsbyggðarinnar því þar hefði fólk búið við kreppu um margra ára skeið og væri vant því að berjast gegn henni með útsjónarsemi, hug- myndum og jákvæðni. Við þyrftum að virkja sprotana og kraftinn í þjóðinni. Ég geri svo sannarlega ekki lítið úr kraftinum, dugnaðinum og útsjón- arseminni sem býr í íslenskri þjóð. Ég er sammála ráðherranum um það að við eigum að horfa til frumkvæðis fólks og sjálfsbjargarviðleitni og að við getum margt lært af íbúum lands- byggðarinnar. Ég held líka að við séum flest þannig gerð að við bítum á jaxlinn, bölvum í hljóði og reynum hvað við getum að snúa erfiðum að- stæðum okkur í vil. En þegar kreppir að og enga atvinnu er að fá er ekki nóg að vera með fallega söngrödd. Félagar í Lionsklúbbum og skógræktarfélögum þurfa líka að borga reikninga um hver mánaðamót. Og Svandís, hvað kallarðu sprota og hvað kallarðu nýjar lausnir? Hvað á að koma í stað- inn fyrir þær ómögu- legu framkvæmdir í Helguvík sem þú ert svo einbeitt í að stöðva? Myndi ferðaþjónusta falla í þann hóp, myndi heilsutengd starfsemi lenda þar? Myndi gagnaver, kísilver, frum- kvöðla- og háskólastarfsemi passa inn í formúluna þína? Ráðherranum til upplýsingar eru það einmitt þessi verkefni sem bæjaryfirvöld í Reykja- nesbæ hafa beitt sér fyrir á liðnum misserum með bæjarstjórann Árna Sigfússon í broddi fylkingar. Keilir, Íslendingur, söfnin í Duus-húsum, Blái demanturinn. Pólitík Árna Sig- fússonar, sem ráðherrann hefur svo megna óbeit á, snýst fyrst og síðast um það að skapa fjölbreytt atvinnu- tækifæri á Suðurnesjum. Hagsmun- irnir sem Árni Sigfússon er að gæta eru hagsmunir þeirra 1.675 ein- staklinga á Suðurnesjum sem ganga um án atvinnu. Ég vil að endingu minna ráð- herrann á að fyrir réttum þremur ár- um urðu Suðurnesjamenn fyrir einu mesta áfalli sem orðið hefur í at- vinnumálum hérlendis við brotthvarf bandaríska hersins. Menn einsettu sér þá að skapa störf, búa til verð- mæti og tryggja von og trú í þessu góða samfélagi. Sú barátta stendur enn og má ekki við skemmdar- verkum eins og þeim sem ráðherrann stendur fyrir. Útsjónarsemi, hugmyndaauðgi og jákvæðni eru nákvæmlega þeir eig- inleikar sem við þurfum á að halda við núverandi aðstæður. Við þurfum ekki á yfirlæti og hroka að halda. Ég skora á Svandísi Svavarsdóttur að leggjast á árarnar með okkur hinum við að skapa tækifæri í stað þess að bregða fæti fyrir þau hvar sem færi gefast. Kirkjukórapólitík umhverfisráðherra Eftir Ragnheiði Elínu Árnadóttur Ragnheiður Elín Árnadóttir » Við þurfum að virkja sprotana og kraftinn í þjóðinni. Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.