Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 18
18 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009 ✝ Stefán Árnasonfæddist 14. apríl 1920 á Melstað við Ak- ureyri. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 4. október 2009. Foreldrar hans voru Árni Stefánsson trésmíðameistari, f. 8. júní 1874, d. 16. júní 1946, og Jónína Gunn- hildur Friðfinnsdóttir húsmóðir, f. 8. sept- ember 1885, d. 28. desember 1969. Stef- án var einn af fjórtán börnum þeirra hjóna. Tvö þeirra eru enn á lífi. Stefán kvæntist árið 1945 Petrínu Soffíu Þórarinsdóttur Eldjárn, f. 17. febrúar 1922, d. 9. júlí 2003. Börn Petrínu og Stefáns eru: 1) Þórarinn stýrimaður, f. 11.10. 1945, 2) Sigrún, fjölmiðlafræðingur, f. 19.3. 1947, 3) Gunnhildur Jónína sjúkraliði, f. 4.4. 1952, 4) Árni, íþróttakennari, f. 10.10. 1953, 5) Páll, rafvirki, f. 25.3. 1960, og 6) Ólöf lyfjafræðingur, f. 20.5. 1965. Barnabörn þeirra Petrínu og Stefáns eru 19 og barnabarnabörn eru einnig 19 talsins. Stef- án stundaði bak- aranám á Siglufirði og lauk einnig prófi frá Samvinnuskól- anum í Reykjavík. Hann vann lengi í Brauðgerð KEA á Ak- ureyri en varð síðan fjármálafulltrú Raf- magnsveitu ríkisins á Akureyri. Stefán hafði mikinn og lifandi áhuga fyrir íþróttum og hollum lífsháttum. Garðyrkja og trjárækt voru hans yndi. Stefán og Petrína bjuggu alla sína búskapartíð á Akureyri en síðasta árið dvaldi Stefán á Dvalarheimilinu Hlíð. Stefán verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag, 12. október 2009, og hefst athöfnin kl. 13.30. Meira: mbl.is/minningar „Veistu um einhvern sem þarf að- stoð? Ef svo er þá get ég hjálpað.“ Þannig spurði pabbi þegar ég heim- sótti hann á laugardagsmorgni, síð- asta daginn hans í þessu lífi. Þegar ég var að fara – stóð hann upp – faðmaði mig þétt að sér og kvaddi með þeim orðum að nú slægju hjört- un okkar í takt. Þessi síðasta stund okkar saman lýsir pabba afar vel. Hjartahlýja, um- hyggja og lifandi áhugi fyrir fólki voru hans aðalsmerki. Hver er sinnar gæfu smiður. Pabbi lifði fallegu lífi og var gleðigjafi fyrir fólkið í kringum sig. Hann fæddist á Akureyri í stórum barnaflokki og bjó alla sína tíð á Akureyri. Gránufélagsgata 11 og Suðurbyggð 1 eru hornsteinar æskunnar. Pabbi og mamma sköp- uðu okkur krökkunum sex yndisleg heimili á þessum tveimur stöðum. Pabbi var að ýmsu leyti óvenjulegur faðir. Hann kenndi okkur að lesa náttúruna með fjöruferðum og gönguferðum upp í hlíðarnar fyrir of- an bæinn. Hann var jafnréttissinni í framkvæmd og það fór aldrei á milli mála að hann hafði alveg jafn mikla trú á okkur stelpunum og bræðrun- um. Hann studdi okkur til sjálfstæðis og gaf góð ráð þegar um var beðið. Við vissum alltaf að við gátum leitað til pabba ef eitthvað bjátaði á. Hann virti skoðanir okkar og virti það líka að við þyrftum sjálf að læra af okkar eigin mistökum. Pabbi lifði lífinu lifandi og var ung- ur í anda. Það lýsir honum ágætlega að hann vildi ekki láta kalla sig lang- afa. Afanafnið dugði að hans mati. Hitt var of ellilegt. Mín barnabörn kunnu vel að meta afa Stefán og við erum búin að skemmta okkur vel saman í fjölskylduboðum þar sem afi hélt gjarnan léttar tækifærisræður – stundum fleiri en eina í sama sam- kvæmi, öllum til ánægju. Pabbi var fróðleiksþyrstur alveg fram á síðasta dag og vel lesinn. Það lýsir honum vel að þegar hann var á ferð í Noregi tal- aði hann fína norsku, þegar hann var í Þýskalandi talaði hann þýsku, í Bandaríkjunum talaði hann ensku. Við krakkarnir vissum aldrei hvar hann hefði lært þessi tungumál. Þau voru bara þarna. National Geograp- hic lá yfirleitt á stofuborðinu, tímarit Garðyrkjufélagsins og Atlas. Hann var alltaf að stúdera. Það var hægt að fletta upp í pabba, hann vissi allt um tré, plöntur, lönd og þjóðflokka. Pabbi hafði svarið og gjarnan bætti hann latneska orðinu við bara til frekari útskýringar. Í síðustu heim- sókninni til hans vorum við tala um ýmis stórafmæli sem verða á næsta ári. Meðal annars ræddum við um það hann yrði níræður árið 2010. Við ræddum líka um lífið og dauða og vorum sammála um að lífið væri miklu meira heillandi en dauðinn. Hvorugt okkar grunaði að dauðinn væri þegar kominn með tærnar inn í stofuna hans. Það er yndislegt að hann óraði ekki fyrir því. Hann gekk til hvílu glaður og sáttur og vaknaði ekki aft- ur. Farðu í friði, elsku besti pabbi. Þín dóttir, Sigrún. Pabbi er dáinn, 89 ára gamall, hress fram á síðasta dag. Á unglings- árunum vakti pabbi mig til umhugs- unar um náttúruna. Ófá skiptin fékk hann mig með sér í gönguferðir t.d. upp í Fálkafell eða Glerárdal. Oft var ég tregur til en í þessum gönguferð- um kynntist ég pabba vel og þarna má segja að hann hafi verið í sínu rétta umhverfi því pabbi var mikill náttúruunnandi. Í þessum ferðum kenndi pabbi mér að þekkja blómin og fuglana og hvernig hringrás náttúrunnar er og vakti hjá mér áhuga sem hefur vaxið og dafnað síðan. Pabbi hafði mikinn áhuga á öllum veiðiskap, ekki síst að fara á sjó og dorga. Það voru hans ær og kýr. Gerði hann það fram eftir öll- um aldri og til að mynda veiddi hann 13 kílóa lúðu á örlitla sjóstöng þá orð- in áttatíu ára gamall. Það eina sem ég sé eftir er að hafa ekki farið á sjó með pabba í sumar því oft var hann búinn að minnast á hvort við ættum ekki að skella okkur á sjó. Pabbi var á undan sinni samtíð hvað varðaði mat og hollustu og hafði mjög framúrstefnulegar hugmyndir um hvað væri hollt að borða og hvað ekki. Hann bjó til sultur, bakaði brauð og eldaði mjög góðan mat. Man eftir því þegar hann tók hausinn af smásilungi, bruddi hann og kyngdi öllu saman. Einnig þegar hann setti brúna sósu út á skyrið en þarna hefur hann nú sennilega verið að reyna að ganga fram af mér. Pabbi hafði græna fingur og sner- ist líf hans alla tíð mikið um ræktun. Hann ræktaði tómata og agúrkur í gróðurhúsi, gulrætur, kál og fleira og ól okkur systkinin á hollum og fjöl- breyttum mat. Garðurinn heima í Suðurbyggð fékk líka að njóta hæfi- leika hans og var kosinn verðlauna- garður. Pabbi fékk plöntur héðan og þaðan og eru margar plöntur frá hon- um komnar í Lystigarðinum á Ak- ureyri. Einnig hafði hann mikinn áhuga á skógrækt og fór meðal ann- ars í skógræktarferð til Noregs. Pabbi sagði mér að einu sinni þeg- ar hann hefði verið á ferðalagi með mömmu út í Ameríku hefðu Amerík- anar haldið að hann væri indíáni því hann var svo dökkur yfirlitum og með virðulegt nef. Held að honum hafi ekki þótt slæmt að líkjast indíán- um og sé nú ánægður að fá að fara á hinar eilífu veiðilendur sem indíánar fara á eftir dauðann. Farðu í friði, elsku pabbi. Páll Stefánsson. Stefán Svarfdal Árnason er fallinn frá – og þar með kveðjum við fjöl- skyldan yndislegan afa og langafa, höfðingja og vin. Afi Stefán, sem sumir af yngstu meðliðum stórfjöl- skyldunnar góðlátlega kölluðu afa gulrót eða afa krokkett, var einstak- ur maður, enda ekki á margra færi að vera í senn hlýr og yfirvegaður, vitur en yfirlætislaus, fræðandi og lær- dómsfús, fyndinn og einlægur, ákveðinn en jafnframt skilningsrík- ur. Afi var áhugasamur um hagi síns fólks og ávallt reiðubúinn að bjóða fram aðstoð sína. Sem dæmi má nefna tvennt sem nánast alltaf heyrð- ist frá afa þegar maður hringdi í hann eða sótti heim: Mér þykir rosa- lega vænt um þig og: Er eitthvað sem ég gert fyrir þig? Maður var ávallt léttari í lund eftir samskipti við afa. En velvilji Stefáns var ekki einskorð- uð við fjölskylduna sína og það hljóta hreinlega að vera fáir á Akureyri sem ekki hafa á einhverjum tíma- punkti staðið það til boða að nýta sér sumarhúsið á Svalbarðseyrinni. Afi var ákaflega félagslyndur maður sem kom fram við fólk með hlýju og virð- ingu, var fús til að faðma og kyssa á kinn, en líka tilbúinn að gantast og sjá spaugilegu hliðar á lífinu. Afi saknaði ömmu sárt eftir að hún andaðist árið 2003 og því hefur dvölin í Suðurbyggðinni, og síðar á öldrun- arheimilinu Hlíð, vafalaust verið á köflum einmannaleg. En þrátt fyrir það var afi ekki gefinn fyrir að kvarta. Þvert á móti vildi hann frekar einblína á hið jákvæða í lífinu og leit björtum augum á framtíðina. Minn- ingarnar fjölmörgu um afa munu lifa áfram með okkur um ókomna tíð en hans verður sárt saknað. Megi hann hvíla í friði við hlið hennar Diddu sinnar. Héðinn Svarfdal Björnsson og fjölskylda. Þegar ég sest niður til að skrifa um hann afa kemur mjög margt upp í hugann. Ég naut þess að dveljast oft á heimili hans og ömmu í æsku og undi mér vel í rólegheitunum þar. Enn í dag get ég séð fyrir mér hvern- ig dagurinn leið þar hjá þeim, hvað var í útvarpinu og hvað var í matinn. Ég sé ömmu fyrir mér í stofunni með prjónana og afa í garðinum að segja mér frá blómunum eða í eldhúsinu að reyna að gefa mér eitthvað nýtt að smakka. Við vorum nú ekki alltaf sammála og ég vildi ekki alltaf fara eftir ráðleggingum hans og fyrir- mælum eða smakka það sem var í boði. Kannski vorum við of lík á sum- um sviðum en alltaf skildum við þó sátt og ég hlakkaði til næstu heim- sóknar. Á menntaskólaárunum heimsótti ég þau oft og stundum fylgdu mér vinkonur í heimsóknirnar. Afi hafði þann vana að yfirheyra þær um mat- reiðsluaðferðir á heimilum þeirra og hafði hann sérstakan áhuga á hvern- ig feður þeirra steiktu fisk. Hann hafði sjálfur mikinn áhuga á að elda og vildi ólmur virkja karlmenn í elda- mennskunni og hélt meðal annars matreiðslunámskeið fyrir þá. Hann vildi gjarnan hafa góð áhrif á ungu kynslóðina með því að fræða hana um hollustu og góða siði. Þessar heim- sóknir eru stundum rifjaðar upp og allir muna vel eftir honum afa. Hann var mjög fróður maður og vel lesinn og hafði mjög gott minni. Hann var mjög stoltur af sínu fólki, bæði forfeðrum og afkomendum og hafði gaman að því að rifja upp gaml- ar sögur og ferðalög með ótrúlega miklum smáatriðum. Hann upplifði margt í eigin æsku sem honum þótti skemmtilegt að rifja upp og bera saman við nútímann. Blak, sund, gönguferðir, göngu- skíði, ferðalög, lestur, matreiðsla, ættfræði, matjurta- og blómarækt, allt þetta féll undir áhugamál hans sem hann sinnti alla tíð eins og hann mögulega gat. Það var fátt sem hon- um fannst skemmtilegra en að fræða aðra um það sem honum var huglægt og þekkti vel. Helst vildi hann senda mig heim með bækur eftir hverja heimsókn svo ég gæti lesið mér til um málefnið og rætt aftur um það við hann seinna. Þau amma voru ólík en nutu þess að gera ýmislegt saman og voru mjög samrýnd. Það varð mjög tómlegt á heimilinu eftir að amma dó og enginn fann jafnmikið fyrir því og afi. Það var því yndislegt að heim- sækja hann í fyrsta skiptið á dval- arheimilið og heyra hversu vel hon- um leið þar og hversu sáttur hann var við þær breytingar. Hann hafði alltaf gaman af því að spjalla og láta í sér heyra og hann naut þess vel að hafa einhverja áheyrendur. Síðast þegar ég heimsótti afa spjölluðum við mikið, aðallega um garðrækt og hann var svo ofsalega ánægður að geta ráðlagt mér í þeim efnum. Það var alltaf hægt að stóla á að afi hefði eitthvað um málin að segja og gæti sagt sínar skoðanir á þeim. Hans skoðunum varð þó ekki mjög auðveldlega breytt og hann gat verið býsna ákveðinn. Það er erfitt að hugsa til þess að nú verði heimsóknirnar ekki fleiri, að hrútaberjahlaupið sem ég lofaði að færa honum verði áfram hér hjá mér en þá er líka gott að geta rifjað upp allar þessar minningar. Þær eru mik- ils virði. Petrína Soffía Eldjárn. Við viljum skrifa nokkur orð í minningu afa okkar. Afi Stefán var mjög sérstakur maður með ákveðnar skoðanir á hlutunum. Það ríkti rólegt andrúmsloft á heimili þeirra afa og ömmu og hlutirnir voru í föstum skorðum. Afi var mikill áhugamaður um mat og matseld og undi sér vel í eldhúsinu þar sem hann gat hagað hlutunum að vild. Einnig var hann mikill fróðleiksbrunnur og sankaði að sér vitneskju úr ýmsum áttum og hafði mjög gaman af því að ræða um ólíka hluti. Það gátu verið borgir úti í heimi, eldamennska, ættfræði, íþróttir eða eitthvað annað sem hann kunni góð skil á. Það var gaman að fylgjast með hvernig það lifnaði yfir honum þegar hann hitti einhvern sem hafði líka gaman af því að spjalla og umræðurnar gátu farið um víðan völl og aftur til baka á skömmum tíma. Hann lagði mikla áherslu á heil- brigt líferni og hreyfingu og stundaði sund og göngur langt fram eftir aldri. Morgunsundið var einn af föstu punktum tilverunnar og var honum mikils virði að komast í sundlaugina, hitta sundfélagana og fá í einu góðan félagsskap og hreyfingu. Hann lagði líka áherslu á hollar neysluvenjur á heimilinu og var mjög duglegur við að reyna að koma okkur barnabörn- unum upp á ýmsa hollustu sem okkur þótti nú ekki alltaf mjög freistandi, má þar nefna gulrótasafa og tómat- safa sem hann drakk með bestu lyst. Amma sá þá aumur á okkur og leyfði okkur að sleppa við hollustuna og jafnvel fá eitthvað bragðbetra hjá sér. Reyndar var oft gaman að horfa á hann afa borða því fáir borða með jafnmikilli innlifun og hann og sér- staklega þótti honum gaman að smakka eitthvað nýstárlegt og blanda saman hlutum sem öðrum þóttu engan veginn eiga samleið. Þá hló hann afi og hafði gaman af. Matur í hans huga var sambland af áhuga- máli og list þar sem bestu listaverkin urðu til úr einhverju sem aðrir sáu sem eitthvað allt annað. Það breyttist mikið á heimilinu þegar amma dó og það var mjög áþreifanlegt hversu mikið hann saknaði nærveru hennar. Þau höfðu gert svo margt saman og stundað áhugamálin saman eins lengi og mögulegt var. Í vor þegar hann flutti á dvalarheimilið urðu miklar breyt- ingar á, hann varð svo miklu sáttari og kátari, enda hafði hann þar mun meiri félagsskap og leið mjög vel. Það var nú ekki verra að geta séð yfir í garðinn í Suðurbyggðinni, garðinn sem hann alla tíð hafði lagt svo mikla rækt við. Það voru ófáar skoðunar- ferðir farnar í garðinn í gegnum tíð- ina og alltaf gott að komast í nýjar gulrætur eða ber og skoða allt það sem óx og dafnaði þar. Garðyrkja var nefnilega einnig mikið áhugamál hans afa og hafði hann gaman af öllu sem hægt var að rækta upp. Þó svo að afi verði ekki lengur hjá okkur má með sanni segja að hann eigi mjög mikið í afkomendum sínum og oft má greina svolítinn afleggjara frá honum í okkur flestum. Það er því oft hægt að brosa og minnast hans og sjá hann fyrir sér í huganum í sömu aðstæðum og jafnvel segja sömu hlutina. Hans verður því minnst áfram sem sérstaks manns sem markaði sín spor í sögu fjölskyldunn- ar. Hafþór, Petrína S. Eldjárn, Jón og Þorbergur Þórarinsbörn. Þar sem ég var ásamt dætrum mínum stödd í heimsókn hjá afa fyr- ir skömmu, tók hann þétt utan um mig og kynnti mig fyrir yndislegum starfsstúlkum Hjúkrunarheimilisins Hlíð á Akureyri. Honum fannst hann ríkur af afkomendum sínum og var stoltur. „Já, sagði starfsstúlkan, en Stefán minn, ekki eru þær minna ríkar að eiga þig sem afa!“ Mikið hafði hún rétt fyrir sér. Án efa hefur það ekki þótt fagn- aðarefni þegar móðir mín tilkynnti ung að árum að hún ætti von á barni. Þegar á hólminn var komið var það hins vegar afi sem strauk bakið á henni fram á síðustu stundu á fæð- ingardeildinni árið 1971. Þetta hlýt- ur að hafa þótt sérstakt á þeim tíma og einkennir þann mann sem hann hafði að geyma þegar á reyndi. Ég fæddist stelpa, sem afa þótti gott. Ekki svo að skilja að strákarnir í fjölskyldunni hefðu ekki átt öruggt sæti í hans hjarta, heldur vorum við stelpurnar (í hans augum), sennilega auðveldari viðureignar og meðfæri- legri. Sem barn man ég ekki eftir öðru- vísi móttökum í Suðurbyggðinni en afi væri með útbreiddan faðminn úti á tröppum og amma í skjóli fyrir aft- an. „Ertu ekki svöng?“ Maður lærði fljótt að viðnám gegn þörf afa til að næra afkomendur sína mátti sín lít- ils. Steiktur fiskur eða buff skyldi á diskinn eftir ferðina, sama hvað klukkan var. Afi hafði gaman af því að kunna að bjarga sér í eldhúsinu og mikið hefði ég viljað vera fluga á vegg, þegar hann ákvað að kenna jafnöldrum sínum, karlmönnum, að sjóða kartöflur og steikja fisk, þá sjálfur um áttrætt. Fóru þessar virðulegu kennslustundir fram í eld- húsinu í Suðurbyggð og vöktu tölu- verða athygli. Afi missti mikið þegar amma dó og hrakaði heilsu hans nokkuð hratt frá þeim degi. Aðallega var það minnið sem sveik hann. Furðulega hætti hann smám saman að muna það sem við gerðum saman fyrir klukkutíma en ef hann var inntur eftir því hver hefði byggt Sunnuhvol fékk maður nákvæma útlistun á hver hefði neglt hvaða nagla og skrúfað hvaða skrúfu fyrir áratug- um. Hann gat ekki undir það síðasta sagt mér hvar hann borðaði kvöld- mat en sagði mér í smáatriðum hvernig hann kynntist ömmu Petr- ínu á KEA. Dæmi hver fyrir sig hvor minning skiptir meira máli. Sjarmi afa og útgeislun var ómæld. Hann tók á móti manni í fal- legri skyrtu með bindi, nýrakaður og vellyktandi. Þannig byrjaði hann alla daga og það var síðast fyrir 3 vikum þar sem við gengum saman að hann spjallaði við hvern þann sem á vegi okkar varð og töfraði fram bros hjá viðkomandi, þó aðallega konum. Einhver sagði: „Maður velur sér vini, maður velur sér ekki fjöl- skyldu.“ Einver valdi samt fyrir mig besta afa í heimi. Blessuð sé minning þín, elsku afi Stefán. Sigrún Hermannsdóttir. „Láttu mig vita ef ég get gert eitt- hvað fyrir þig, vinur.“ Þannig kvaddi Stebbi, föðurbróðir minn, mig síðast þegar ég kíkti til hans og þannig kvaddi hann ævinlega. Fundir okkar voru hvorki langir né strangir. Við fórum yfir stöðuna á okkar fólki. Hann vildi hafa það á hreinu að öll- um liði vel. Síðan ræddum við sam- eiginleg áhugamál; matseld og sæt- ar stelpur. Hinu síðastnefnda sagðist Stebbi vera umlukinn á Dvalarheimilinu Hlíð enda ánægður með dvölina þar. Veturinn 1977-78 var ég í skóla í Álasundi í Noregi. Mikil töf var á af- greiðslu námslána og ég alveg háður góðvild skólasystkina minna til að lifa af. Námslánið var væntanlegt hvaða dag sem var og beðið eftir póstinum í spenningi. Svo kom loks- ins aflangt umslag merkt Lands- bankanum. En þegar það var opnað kom í ljós að það innihélt ekki stóra ávísun frá lánasjóðnum heldur minni ávísun með svohljóðandi kveðju: „Fáðu þér bjór. Kveðja, Stebbi frændi.“ Það skal tekið fram að ég hlýddi eins og ávallt þegar Stefán lagði mér lífsreglurnar … sem ég held að hafi verið oftar en ég geri Stefán Árnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.