Morgunblaðið - 12.10.2009, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 12.10.2009, Qupperneq 19
Minningar 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009                          mér grein fyrir því atvikin höguðu því þannig að ævistarf hans var við hlið föður míns, Ingólfs hjá Rarik á Norðurlandi eystra. Skrifstofa Rarik var um tíu ára skeið á neðri hæðinni á Byggðaveg- inum, æskuheimili mínu. Við krakk- arnir, Ingólfsbörn nutum þess að eiga góðan að í Stefáni ef þannig stóð á. En það voru fleiri sem nutu þess. Þannig var að eftir að Stebbi varð ekkill bjargaði hann sér með alla matseld. Hann komst hins vegar að því að því var ekki eins fyrir komið hjá öllum körlum sem eins var ástatt hjá. Þannig að hann stofnaði til nám- skeiðs til að gera þá sjálfbjarga. Námskeiðið hófst með því að hann kenndi þeim að kaupa inn og síðan var farið heim og eldað. Geri aðrir betur! Elsku Tóti, Sigrún, Gunnhildur, Árni, Palli og Ólöf. Við Maja og systkini mín af Byggðaveginum sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur. Hallgrímur Ingólfsson. Okkur mönnunum gengur illa að skilja tímann, þessa fjórðu vídd sem við lifum í. Það breytir reyndar engu hvað við skiljum, tíminn líður óháð skilningi og í réttu hlutfalli við lifaða ævi hvers og eins. Askur Yggdrasils var helgasta vé ásatrúar. Við rætur hans voru þrír brunnar, í einum viska, við annan réðust örlög manna. Við Gránufélagsgötu á Akureyri stendur tré. Myndarlegt tré, reyni- viðartré, helgt tré til forna. Það stendur þarna stakt og ekkert í kring. Áður en þetta „ekkert“ varð til, stóð þar Gránufélagsgata 11 og fleiri hús. Húsin og garðarnir hurfu þegar rýmt var til fyrir nútíma sjö- unda áratugarins, fyrir tæpri hálfri öld. Allt hvarf, nema þetta eina tré. „Nútíminn“ lét svo á sér standa og ekkert var byggt. Enn er beðið og enn stendur tréð. Silfurreynir, hugs- anlega gráreynir, annaðhvort er það. Fagurlimað og krónmikið. Tréð gróðursetti ungur drengur, líklega sumarið 1932. Það var nokkuð dýrt, það kostaði hann spariféð, aleiguna, ígildi allmargra bíóferða. Tréð sitt gróðursetti hann í fjærsta horni garðsins að Gránufélagsgötu 11. Það dafnaði þar vel, fyrst í garð- inum, þessum fallega garði, sem nú er horfinn. Enginn, eða a.m.k. afar fáir vita af hverju tréð stendur þarna, eða að það tilheyrði garðinum og hús- inu. Húsið er líka öllum gleymt, nema e.t.v. einhverjum úr fjölskyldunum sem þar bjuggu. Tréð stendur þarna stakt, líkt og það hafi dottið niður úr himninum. Tré þetta er yfir 80 ára gamalt, sprottið af fræi sem komið var til, vel fyrir 1930. Það var gróðursett af ung- um dreng, tólf ára gömlum, Stefáni Árnasyni í Gránufélagsgötu 11. Drengurinn hafði að vísu fæðst á Melstað, handan Glerár, en flutti í Gránufélagsgötuna nokkurra mán- aða gamall. Í húsið sem faðir hans byggði. Umhverfis húsið var fallegur garður. Æskuminningar Stefáns voru þaðan, garðurinn, kýrnar, grænmetisgarðurinn, Eyrin, Brekk- an, lífið. Það að ungur drengur kaupi að eig- in frumkvæði tré fyrir aleigu sína, velji það sjálfur, planti, hugsi um það og gæti þess, já allt sitt líf, það var ekki, ekki bara á þessum tíma, heldur líka í dag, ekki aðeins ekki sjálfsagt, heldur býsna sérstakt. Það var engin tilviljun að tré þetta var ekki fjarlægt ásamt öllu hinu sem þarna stóð. Nú er Gránufélagsgata 11 horfin, garðurinn farinn, Stefán rétt geng- inn, en tréð hans stendur þarna enn. Sjötíu og sjö ára samskiptum manns og trés er lokið. Hann fylgdist nefn- inlega með trénu sínu drengurinn, gætti þess. Eins og allt sem sjálfsagt er, þá bara er það. Þó er það svo að ekkert er sjálfsagt, allra síst það sem sjálf- sagt er talið! Til þess var sáð, og vitið, þetta merkilega tré er sprottið úr hjarta ungs drengs, lifandi hugsjón, heilagt tré, ósnertanlegt. Kæri Stefán, þökkum samfylgd- ina, Árni B. Stefánsson og fjölskylda. ✝ Óskar M Hall-grímsson fæddist á Ytri-Sólheimum í Mýrdal 18. mars 1922. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Eir 4. okt 2009. Foreldrar hans voru Hallgrímur Brynjólfsson bóndi á Felli, f. 1.9. 1870, d. 24.7. 1937 og Guðrún Einarsdóttir frá Ytri Sólheimum, f. 12.1. 1888, d. 3.5. 1965. Al- bróðir Óskars er Jó- hann Magnús, f. 23.9. 1911. Systkini samfeðra: Sveinn, f. 24.9. 1897, Vilhjálmur, f. 10.4. 1899, Sigurleif, f. 1.7. 1900, Jónas, f. 2.4 1902, Brynjólfur, f. 1.8. 1903, Ísleif Elísabet, f. 4.4. 1905, Þorgerður, f. 19.7.1906, Ísbjörg, f. 19.10. 1908, Jón, f. 21.4. 1910, Erlendur, f. 18.11. 1911, og Brynjólfur, f. 18.5. 1913. Þau eru öll látin. Óskar kvæntist 11. mars 1950 Margréti Rögnu Jóhannsdóttur, f. 8.8. 1929. Foreldrar hennar voru Jóhann Kr. Ólafsson, f. 24.10. 1883, d. 22.6. 1967 og Kristín Guðnadótt- ir, f. 22.4. 1891, d. 8.6. 1942. Börn Óskars og Margrétar eru: 1) Reyn- f. 14 .7. 1981, Margrét Helga, f. 14.2. 1998. 5) Margrét, f. 1.12. 1962, gift Ragnari B. Bjarnarsyni, f. 18.9. 1958. Sonur þeirra Bjarki, f. 23.2. 1998. Synir Margrétar og Óskars Bergssonar, Andri, f. 22.11. 1980, Hjálmar, f. 15.7. 1986 í, sambúð með Lindu Smáradóttur, og Trausti, f. 11.12. 1987. 6) Hall- grímur, f. 21.5. 1965, kvæntur Gyðu Á. Helgadóttur, f. 1.1. 1971. Dætur Hallgríms og Helenu Jónsdóttur: Hrefna, f. 2.5. 1989, Hildur Kristín, f. 3.5. 1993. Óskar fæddist á Ytri- Sólheimum í Mýrdal og ólst þar upp hjá móður sinni og Einari móðurafa sínum. Hann missti afa sinn 12 ára. Hann fór á vertíð 14 ára og næstu ár vann hann ýmsa vinnu auk bústarfa. Árið 1947 hóf hann nám í rafvirkjun hjá Vilhjálmi bróður sínum og tók sveinspróf 1952. Lengst af starfaði hann sem deildarstjóri hjá Raf- magnseftirliti ríkisins. Óskar og Margrét bjuggu lengst af í Hlíð- artúni 5 í Mosfellsbæ og var oft mannmargt heimili þar. Börnin voru 6 og móðir Óskars bjó hjá þeim og faðir Margrétar síðustu ár- in. Eitt helsta áhugamál Óskars var söngur og starfaði hann mörgum kórum, lengst með karlakórnum Stefni, Söngfélagi Skaftfellinga og RARIK kórnum. Útför Óskars fer fram frá Lága- fellskirkju í Mosfellsbæ í dag, 12. október og hefst athöfnin klukkan 13. ir, f. 21.6. 1951, kvæntur Berglindi Guðmundsdóttur, f. 10.12. 1959. Börn þeirra Óskar, f. 20.2. 1984, sambýliskona Sigríður Ósk Bjarna- dóttir, Selma Mar- grét, f. 4.12. 1993. 2) Hróbjartur Ægir, f. 16.2.1953, kvæntur Lilju Arnardóttur, f. 26.5. 1958. Synir þeirra, Örn, f. 21.3. 1978, kvæntur Ragn- heiði I. Davíðsdóttur. Börn þeirra Axel Örn, f. 2002, Lilja Björg, f. 2004 og Inga María, f. 2008. Ari, f. 8.2.1983, sambýliskona Þórey Hannesdóttir. 3) Kristín, f. 23.2. 1955, gift Agnari Ívari Agn- arssyni, f. 5.10. 1954. Synir þeirra, Jóhann Helgi, f. 28. 8. 1982, kvænt- ur Helgu Björk Árnadóttur, Óskar Matthías, f. 2. 11. 1987, Magnús Karl, f. 5.8. 1989. 4) Gunnar, f. 26.2. 1959, kvæntur Sigurbjörgu B Ólafs- dóttur, f. 12.1. 1961. Börn þeirra, Guðrún Dögg, f. 20.2. 1978. Börn hennar: Guðni Þór, f. 2002, faðir Bjarki Þór Jónsson, Glóey Ýr, f. 2004 og Sesar Óli, f. 2008. Óli Rafn, Fyrsta minning mín um Óskar tengdaföður minn er frá því ég var 6 ára. Hann kom með afa austur á Stöðvarfjörð í heimsókn til okkar á ferð sinni um landið sem rafmagns- eftirlitsmaður. Það æxlaðist þannig að ég fór með til baka hringinn í kringum landið í sveitina til afa og ömmu á Sólheimum. Þetta er ógleym- anleg ferð og mér fannst ég vera orð- in mjög stór að fara ein að heiman. Hjá afa og ömmu hitti ég síðan Hróa son hans en hann var þar í sveit. Ég var í sveitinni mörg sumur eftir það og alltaf kom Óskar reglulega í heimsókn að Sólheimum og þeirra heimsókna var beðið með eftirvænt- ingu. Hann kom oftar en ekki með pakka handa Hróa og eru mér minn- isstæðar opal brjóstsykurrúllurnar sem voru í uppáhaldi og ég reyndi all- ltaf að komast í þær. Þegar ég fór síð- an í skóla til Reykjavíkur tæpum 12 árum síðar þá hittumst við Hrói aftur og fórum að vera saman. Óskar var ekki mjög ánægður með það til að byrja með og fannst ég vera fullung og kannski fannst honum tengslin við fjölskylduna of mikil, en með tíman- um urðum við miklir vinir. Hann var mikill fjölskyldumaður og á heimili þeirra Grétu var allar helgar opið hús fyrir þá sem vildu koma í kaffi og hitt- umst við gjarnan þar börn, tengda- börn og síðan bættust barnabörnin við. Skötuveislurnar á Þorláksmessu urðu fastur liður og fyrir þá sem ekki borðuðu skötuna var Gréta með salt- fisk og barnabörnin fengu pulsur. Hann átti sælureit á Sólheimum þar sem sumarbústaðurinn var. Þegar fjölgaði í fjölskyldunni reyndist húsið of lítið því allir vildu fara austur. Var því ráðist í framkvæmdir á öðru húsi. Samverustundirnar fyrir austan urðu margar og þar naut tengdapabbi sín. Synir okkar nutu þess að fara í bíl- túra með afa niður á sand og þar fengu þeir sína fyrstu ökukennslu. Þegar komið var úr ökukennslunni beið amma gjarnan með veislukaffi. Hann hafði alltaf mikla bíladellu og þegar farið var að vera með vélsleða á Mýrdalsjökli keypti hann einn slíkan með sonum sínum. Söngur var aðaláhugamál Óskars og söng hann með mörgum kórum. Hann söng bassa og það eru ótaldar stundirnar þar sem sungið var í bú- staðnum og Gréta spilaði á gítarinn. Þau kenndu okkur unga fólkinu text- ana og raddirnar. Hann var mjög ánægður þegar við Hrói gengum í Söngfélag Skaftfellinga og áttum við þar samveru í 10 ár. Fyrir 9 árum síð- an fór heilsan að bila og tóku þá við erfið ár. Smá saman hvarf hann frá okkur. Handartakið var þó þétt til síðustu stundar og af og til sást blik í augunum og þá vissum við að hann var að fylgjast með. Óskari fannst skrýtið þegar við eignuðumst okkar barnabörn og ég man þegar hann sagði við mig „Hann kallar hann afa“ já sagði ég, hann er afi hans og ég amma, þá hristi hann bara höfuðið, hann var afinn. Síðustu árin dvaldi Óskar á hjúkr- unarheimilinu Eir og viljum við hjón- in þakka fyrir þá umönnun sem hann naut þar. Kæri vinur, þá er komið að kveðju- stund. Ég þakka fyrir allar góðu stundirnar í gegnum árin.Blessuð sé minning þín. Þín tengdadóttir, Lilja. Óskar Maríus Hallgrímsson tengdafaðir minn er látinn. Ég kynnt- ist Óskari fyrir 30 árum. Ég man enn þegar ég hitti hann fyrst. Hár mynd- arlegur maður, bar með sér gleði, glettni í augnaráðinu og handtakið hlýtt og þétt. Þannig var Óskar, hafði áhuga á mönnum og málefnum, vina- margur, gestrisinn og höfðingi heim að sækja. Sólheimar í Mýrdal voru hans æskustöðvar og þar reisti hann sér sumarbústað 1972. Þar dvöldu þau Gréta um helgar og í fríum. Bústað- urinn var þeirra annað heimili. Strax og fór að vora var farið þangað nánast hverja helgi. Eftir hádegi á föstudög- um var kominn ferðahugur í Óskar, hann verslaði og fór svo og sótti Grétu í vinnuna. Hugurinn var kom- inn austur. Barnabörnin skipuðu stóran sess í lífi Óskars. Í sumarbústaðnum voru farna ófár ökuferðir á Sólheimasand eða sandinn eins og við köllum hann. Hann hafði einstakan áhuga á að kenna barnabörnunum að keyra. Fyrst sátu þau á fangi afa og fengu að stýra og þegar þau stækkuðu fengu þau að keyra sjálf. Þessi æfingaakst- ur afa skilaði sér vel og hafa barna- börnin sem voru í ökuskóla afa verið farsælir ökumenn. Óskar ferðaðist mikið um landið þegar hann vann hjá Rafmagnseftir- liti ríkisins og kynntist þá mörgum. Hann lagði sig fram um að læra nöfn á fólki og átti mjög gott með að ræða við fólk og leiða ágreiningsefni til lykta. Óskar var farsæll bæði starfi og einkalífi. Hans góða eiginkona Gréta var manni sínum stoð og stytta. Hún sá um börn og bú þegar Óskar var á ferðum um landið vegna starfa sinna. Hún sá um heimilið af miklum mynd- arskap og í minningunni var alltaf veisla hjá henni. Hún hafði líka lag á að gera allan mat að veislumat. Það kunni Óskar líka vel að meta. Óskar var gæfumaður í lífinu, hann átti góða fjölskyldu og góða starfs- ævi. Hann var hraustur og heilsugóð- ur fram undir áttrætt þegar heilsunni fór að hraka. Að leiðarlokum þökkum við Reynir, Berglind, Óskar og Selma Margrét fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Blessuð sé minning Óskars M. Hallgrímssonar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Berglind Guðmundsdóttir. Þegar við hugsum til baka um afa okkar sem nú er fallinn frá er það fyrsta sem okkur dettur til hugar ökuferðirnar úti á sandi. Ökuskóli afa hófst snemma. Fyrst sat maður í fangi hans og fékk að stýra og um leið og við náðum niður á kúplinguna fengum við að keyra sjálfir. Þetta var sennilegast það sem við hlökkuðum mest til við að fara upp í sumar- bústaðinn þegar við vorum litlir. Við hugsum líka til allra 100 kr. seðlanna sem þú laumaðir að okkur. Það gerðirðu alltaf svo lítið bæri á, stundum svo lítið að annar okkar man einu sinni eftir að hann uppgötvaði það ekki fyrr en eftir að hann var far- inn frá þér að hann væri með 100 kall í vasanum. Við munum líka alltaf muna eftir því hve mikið þú lagðir upp úr því að halda fjölskyldunni saman. Kaffiboðin á sunnudögum þar sem þið amma tókuð á móti afkom- endunum. Skatan á Þorláksmessu sem var reyndar tilfelli annars okkar pylsur á Þorláksmessu. Jólaboðin á annan í jólum. Það er síðan okkar að viðhalda. Þegar við sitjum hérna og kveðjum þig í síðasta sinn verður okkur hugsað til þess hvernig þú kvaddir alltaf. Þú kvaddir með stóru faðmlagi og klappaðir létt á bakið á manni. Vertu sæll afi. Örn og Ari Hróbjartssynir. Hlýr faðmur og glettinn svipur er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar Óskars Hallgrímssonar er minnst. Óskar var glaðsinna, skemmtilegur og kunni að njóta lífs- ins. Hann hafði lifað tímana tvenna, var alinn upp af móður sinni í gamla bændasamfélaginu og var alltaf trúr og tryggur uppruna sínum. Á meðan ég var tengdasonur Óskars sagði hann mér sögur af æsku sinni og upp- runa sem tengdust mikilli tryggð og dálæti við æskustöðvarnar í Mýr- dalnum. Einkenni þess sem Óskar sagði frá og ráðlagði, var að það þjón- aði oft tilgangi, og ég lærði fljótt að hlusta þótt ég væri ekki alltaf sam- mála. Það hefur reyndar komið með aldrinum að skilja og skynja að ráðin og sögurnar voru settar fram af reynslu, þekkingu og væntumþykju. Ein ábendingin um fegurð lífsins var að taka vel eftir því sem ber fyrir augu skömmu eftir að keyrt er austur yfir Jökulsá á Sólheimasandi, sem hann kallaði hliðið á Vestur-Skafta- fellssýslu. Þá blasir við fjallahringur- inn frá Sólheimajökli til Dyrhólaeyjar með Pétursey fyrir miðri mynd. Þetta sjónarhorn rammar inn Mýr- dalinn á stað þar sem margir fara geyst og gleyma því að njóta þess sem fyrir augu ber. Ein skoðun Ósk- ars var að hann gaf ekki mikið fyrir það ef fólk var að gera sig eitthvað breiðara en efni stóðu til. Hann kall- aði það yfirborðsgreind og glotti. Ráðleggingar, æðruleysi og dæmi- sögur nafna míns hafa reynst mér gott veganesti í lífinu og er ég þakk- látur fyrir það. Það er ekki hægt að minnast Ósk- ars án þess að segja frá helstu áhuga- málum hans. Óskar var söngmaður af guðs náð og söng með mörgum karla- kórum. Hann var lipur dansari og eft- irminnilegur þegar hann sveif um dansgólfið með Grétu í fanginu. Söngur, dans, fjölskyldan og vinir voru líf hans og yndi. Hann var ávallt fús til ferðalaga sem oftast leiddu hann í sumarbústaðinn í Fiskhólnum á Sólheimum, sem hann kallaði Vina- minni. Síðustu árin hefur Óskar glímt við hrörnun og hrumleika sem smám saman tóku frá honum persónu- töfrana. Núna er ferðinni heitið yfir móðuna miklu og mikið held ég að nafni minn sé reiðubúinn í þá ferð. Ég sé hann fyrir mér kveðja hópinn sinn með hlýju faðmlagi, setja upp six- pensarann og halda síðan kankvís á vit nýrra ævintýra. Kæra Magga og fjölskylda, við Jó- hanna sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi minning um góðan dreng lifa. Óskar Bergsson. Óskar Maríus Hallgrímsson Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skila- frests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.