Morgunblaðið - 12.10.2009, Síða 26
MARÍA Pálsdóttir leikkona sleit há-
sin á frumsýningu á verkinu Bláa
gullið í Borgarleikhúsinu í fyrra-
dag, en lauk henni samt sem áður
sárþjáð. „Það er verið að athuga
hvort einhver geti æft inn fyrir
mig,“ segir María en hún er vel gift
því maðurinn hennar er bæklunar-
læknir. Hún er komin í plastgifs og
vonast til þess að fá sérstaka spelku
svo hún geti haldið áfram í
vinnunni.
„Þetta er svolítið fjörug sýning
og við erum að dansa og hoppa og
hía eitthvað og það er þarna ákveð-
inn þokudans, við erum að leika
vatnsmólekúl og vatnsmólekúlið er
að gufa upp með ákaflega fallegum
söng sem er brotinn upp með miklu
dansnúmeri. Maður hleypur svona
af stað í það og ég hélt bara að Vík-
ingur eða Sólveig hefðu verið svona
klaufsk og sparkað í hásinina á
mér,“ segir María, beðin um að lýsa
þessu. Hún segist hafa hrasað við
þetta og svo böðlast í gegnum atrið-
ið og alla sýninguna í þeirri trú að
þetta myndi lagast. „Og af því þetta
eru trúðar sem eru alltaf í núinu og
geta alltaf brugðist við þá spurði
annar trúðurinn: „Meiddirðu þig
eitthvað, vinan?“ (María beitir
trúðsrödd) en svo kom bara í ljós að
ég sleit hásin.“ Starf trúðsins er
vissulega áhættusamt.
Úr Bláa gullinu Trúðarnir í miklu
stuði, María lengst til vinstri.
Trúður
sleit hásin
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:45 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Guð blessi Ísland kl. 5:45 - 8 LEYFÐ
The Ugly Truth kl.10 B.i. 14 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:50 - 8:30 - 11 B.i.16 ára
Jennifer‘s Body kl. 5:45 - 8 - 10:20 B.i.16 ára
The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.14 ára
Inglorious Bastards kl.6 - 9 B.i.16 ára
Guð blessi Ísland kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 6 - 9 B.i.16 ára
The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.14 ára
Antichrist ATH. ótextuð kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.18 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Söguleg kvikmynd eftir Helga Felixson sem verður sýnd víða um
heim á næstunni og enginn Íslendingur má missa af.
Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins
HHH
„...frumleg og fyndin
í bland við óhugnaðinn“
– S.V., MBL
„Kyntröllið Fox plumar
sig vel sem hin djöfulóða
Jennifer!“
– S.V., MBL
SÝND Í REGNBOGANUM
Ekki fyrir
viðkvæma
HHHH
„Verður vafalaust
titluð meistarverk...“
– H.S., Mbl
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
HHHH
„Gainsbourg er rosaleg...“
– E.E., DV
SÝND Í SMÁRABÍÓI
HHH
„9 er fyrirtaks samansuða
af spennu, ævintýrum og
óhugnaði í réttum
hlutföllum”
B.I. – kvikmyndir.com
HHH
„9 er með þeim frumlegri – og
drungalegri – teiknimyndum
sem ég hef séð í langan tíma.
Grafíkin er augnakonfekt í
orðsins fyllstu merkingu.”
T.V. – Kvikmyndir.is
Missið ekki af
þessari frábæru
ævintýra- og teiknimynd
fyrir fólk á öllum aldri
Talsett af helstu
stjörnum Hollywood
HHH
„Tímamótamynd!”
– Erpur Eyvindarson, DV
HHH
– Sæbjörn Valdimarsson, Mbl
„Áhugaverð og
skemmtileg.”
– Dr. Gunni, Fréttablaðið
ÞEGAR VERÖLD
OKKAR LEIÐ
UNDIR LOK –
HÓFST ÞEIRRAFRÁ FRAMLEIÐENDUNUM
TIM BURTON OG
TIMUR BEKMAMBETOV
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009
Borg týndu barnanna sterkt upp í
hugann. Að öðru leyti blasa við gam-
alkunnug átökin á milli góðra og illra
gilda, það sem er nýtt af nálinni er að
þau grundvallaröfl eru í vélrænum
búningi í 9.
Teikningarnar og tölvugrafíkin
ber vott um hugmyndaauðgi og er
Furðuverur og furðuheimarfrönsku leikstjórannaMarcs Caros og Jean-Pierres Jeunets (einkum
La cité des enfants perdus), jafnt
sem drungalegur og bölsýnn stíll
framleiðandans Tims Burtons, svíf-
ur yfir vötnunum í 9. Jafnvel má geta
sér til að grafíkmeistararnir hafi sótt
hugmyndir að manndrápstólum sín-
um og tækjum í vitfirrta veröld
meistara Hieronymusar Bosch.
9 gerist í óljósri framtíð, þegar
vísindamaður nokkur finnur upp
„Skepnuna“, slíkt ofurvopn að hann
hefur ekki stjórn á því lengur og
vinnur það allsherjarstríð við mann-
kynið. Engu lífi er eirt utan örfárra
tuskubrúða, sem eru reyndar vél-
menni en vísindamaðurinn gæddi
mannlegri sál áður en hann lést og
skildi eftir sig veigamiklar upplýs-
ingar um „upprunann“, sem er lykill-
inn að því að brúðurnar geti sigrað
Skepnuna.
Brúðurnar bera ekki nöfn heldur
númer og halda sig í felum fyrir
Skepnunni, sem eigrar um eyðilend-
ur tortímingarinnar til að útrýma
þeim. Þá kemur til sögunnar hin
hugumstóra brúða nr. 9, sem hefur
legið í dái en gerist forsvari bylt-
ingar brúðanna gegn Skepnunni.
Frumleg og öðruvísi teiknimynd
sem vekur einkum athygli fyrir sér-
stætt útlitið, sem dregur fyrrnefnda
afar vönduð, sannkallað konfekt fyr-
ir augað. Það er á hinn bóginn ekk-
ert sérlega bragðgott, það vofir von-
leysislegt hörmungarástand yfir
brúðunum, sem eru ekki aðlaðandi
hlutir í sjálfu sér. En nr. 9 á eftir að
breyta gangi mála í þessu ryðgaða
og ruslaralega einskismannslandi og
þegar á líður fer áhuginn vaxandi
fyrir undarlegum örlögum enn und-
arlegri söguhetja, sem minni spá-
menn hefðu ekki átt möguleika á að
vekja hjá nokkrum manni.
Grafíkin er sterkasta vopn Ack-
ers, sem áður hefur einungis stýrt
stuttmyndum (þ.á m. hinni 10 mín-
útna löngu 9, sem nýja myndin er
byggð á). Að auki hefur hann her
góðra og vel valinna leikara til að tal-
setja brúðurnar og eru notadrjúgir
við að gefa þeim persónuleika. 9 er
allt að því framandi verk í fá-
breytilegri kvikmyndaflórunni,
mynd sem skilur við mann dálítið
sleginn út af laginu og jákvæðan,
einkum sakir ferskrar sköpunargleði
og sjálfstæðs hugmyndaflugs, sem
gerist æ fáséðara, þrátt fyrir sí-
aukna þróun kvikmyndatækninnar.
saebjorn@heimsnet.is
Ofurhetjan nr. 9
Laugarásbíó, Smárabíó
9
bbbmn
Leikstjóri: Shane Acker. Teiknimynd.
Aðalraddir: Christopher Plummer (1),
Martin Landau (2), John C. Reilly (5),
Crispin Glover (6), Jennifer Connelly
(7), Elijah Wood (9), Alan Oppenheimer
(Scientist). 90 mín. Bandaríkin. 2009.
Sæbjörn
Valdimarsson
KVIKMYND
Tölu- og bókstafir eru frekar
óvenjuleg nöfn á söguhetjum í
bókum og bíómyndum, en nokkur
góð koma þó upp í hugann. Fyrst-
an skal frægan telja garpinn og
róbótinn R2-D2 og félaga hans
C-3PO í hinum feikivinsælu Star
Wars-myndum. Svo er það „Numb-
er One“ úr Star Trek-bálknum og
„Number 5“ sem spilaði stóra
rullu í Short Circuit. V var aðal-
maðurinn í V for Vendetta og þá
má ekki gleyma útsendara nr. 99 –
Get Smart, og því síður lífseigustu
hetju kvikmyndasögunnar, 007,
öðru nafni James Bond.
Kvikmyndahetjur með tölustafi að nafni
9 Sköpunargleði og sjálfstætt hugmyndaflug ræður ríkjum, nánast framandi verk í fábreytilegri kvikmyndaflóru.