Morgunblaðið - 12.10.2009, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 12.10.2009, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 285. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana Heitast 9 °C | Kaldast 0 °C Suðaustanátt. Dreg- ur úr úrkomu um tíma í dag, hlýjast sunnan- lands, hlýnar smám saman fyrir norðan. » 10 Fyrsta plata Maríu Magnúsdóttur er fín frumraun og telur gagnrýnandi hana hafa stimplað sig inn með stæl. »25 TÓNLIST» Stimplað inn með stæl KVIKMYNDIR» Teiknimyndin 9 er frum- leg og öðruvísi. »26 Hafdís Huld segir frá tilurð nýrrar og léttrar plötu sinnar, Synchronised Swimmers, sem kemur út í dag. »27 TÓNLIST» Tekið upp í hlöðu LEIKLIST» Trúður sleit hásin á frumsýningu. »26 SJÓNVARP» Olíusápan Dallas í end- urnýjun lífdaga. »23 Menning VEÐUR» 1. Leitin að Madeleine í Svíþjóð 2. Enginn vill sjá þrýstnar konur 3. Einn söngvaranna látinn 4. Vantar þig veiðarfæri eða … »MEST LESIÐ Á mbl.is Morgunblaðið/Ómar Hástökkvari Þórdís Lilja Gísladóttir tekur á móti viðurkenningu Frjálsíþróttasambands Evrópu um næstu helgi. Eftir Andra Karl andri@mbl.is „ÞETTA er alveg stórkostlegt og ég er enn í hálfgerðu sjokki að hafa hlot- ið þetta,“ segir frjálsíþróttakonan Þórdís Lilja Gísladóttir sem um næstu helgi tekur á móti sérstakri viðurkenningu frá Evrópska frjáls- íþróttasambandinu í Búdapest. Viðurkenninguna fær Þórdís fyrir einstakt framlag sitt til frjálsíþrótta og nefnist upp á enska tungu The European Athletics Women’s Lead- ership Award. Þetta er í fyrsta skipti sem hún er veitt en frjálsíþrótta- sambandið vill vekja athygli á starfi kvenna innan frjálsíþrótta í Evrópu. Þórdís bendir á að þrátt fyrir að kynjahlutföll keppenda séu því sem næst jöfn séu ekki nema örfá prósent kvenna í nefndum og stjórnum hjá al- þjóðasambandinu og ólympíu- hreyfingunni. Þórdís segir Ísland standa framar en fjölmörg önnur lönd þegar kemur að hlutfalli kvenna í nefndum og við- urkenningin verði hvatning til þess að halda áfram á sömu braut. „Ég tek við þessari viðurkenningu fyrir hönd allra þeirra kvenna sem lagt hafa sitt af mörkum,“ segir hún. Aldamótahópur afreka Mikið verður gert úr afhendingu viðurkenningarinnar í athöfn sam- bandsins í Búdapest á laugardag. Á sama tíma verða veittar aðrar viður- kenningar til frjálsíþróttafólks, s.s. fyrir bestan árangur. En á meðan þeir sigurvegarar taka aðeins á móti sínum verðlaunum flytur Þórdís ræðu, s.s. um það hvernig hægt sé að auka hlut kvenna. Þórdís hóf snemma að æfa og keppa í frjálsum íþróttum. Hún var í íslenska landsliðinu til 25 ára og fyrir- liði þess í 15 ár. Hún keppti á tvenn- um Ólympíuleikum, sex heimsmeist- aramótum, einu Evrópumeistaramóti utanhúss og tvisvar innanhúss. Frá því hún hætti að keppa hefur hún unnið ötullega að framgangi frjálsra íþrótta, sér í lagi í grasrótar- starfi. Undanfarin 15 ár hefur hún ásamt eiginmanni sínum, Þráni Haf- steinssyni, starfað hjá ÍR. Þau bjuggu m.a. til nýtt þjálfunarkerfi fyrir ungmenni og var það tekið í notkun árið 2000. Í ár vann svo ÍR bikarkeppnina og var uppistaðan í sigurhópnum krakkarnir sem byrj- uðu að æfa upp úr aldamótum. Jafn- framt er Þórdís sviðsstjóri í íþrótta- fræði við kennslufræði- og lýðheilsu- deild Háskólans í Reykjavík. „Enn í hálfgerðu sjokki“ Þórdís Gísladóttir hlýtur viðurkenn- ingu fyrir framlag til frjálsíþrótta „ÞAÐ má segja að þetta sé ljóða- annáll,“ segir Sindri Freysson um nýútkomna ljóðabók sína, Ljóð- veldið Ísland. „Ég yrki um hvert einasta ár frá 1944 til 2009 og sæki innblástur í það sem hæst bar á hverjum tíma. Ljóðveldið er í raun nútímatilbrigði við Völuspá að því leyti að bókin rekur sögu ákveðins heims frá tilurð hans til Ragnaraka. Þetta er hröð, hrá og ómstríð bók og vonandi líka hraðétin. Í henni er vaxandi þungi og þegar nær dregur nútímanum, sérstaklega eftir 2000 til núsins, þá tvíeflist þessi textafoss og verður steraknúinn, eins og þeg- ar Bruce Banner breytist í Hulk og fer að rústa jeppum.“ Sindri segist í bókinni setja fram rammpólitíska sögusýn sem stuði líklega marga. „Hrunið og afleiðingar þess hafa skert fullveldi okkar svo mjög að það er kannski í reynd aðeins í orði kveðnu, nánast óskhyggja eða skáldskapur. Lýðveldið frá 1944 heyrir nú sögunni til.“ | 23 Sindri Yrkir um íslenskan veruleika frá lýðveldisstofnun. „Lýðveldið frá 1944 heyrir nú sögunni til“ ÓLAFUR Kjart- an Sigurðarson barítónsöngvari hefur verið valinn besti söngvarinn við óperuna í Saarbrücken í Þýskalandi. Stjórnandi óper- unnar, Dagmar Schlingmann, líkti kraftinum í Ólafi við sprengju í ræðu sem hún hélt við þetta tækifæri. | 23 Ólafur besti söngvarinn Ólafur Kjartan. Hvernig var valið? Frjálsíþróttasamband Evrópu óskaði eftir því við aðildarsambönd sín að þau sendu tilnefningar. Aðildar- samböndin eru fimmtíu talsins og samkeppnin því hörð. Frjálsíþróttasamband Íslands óskaði sjálft eftir tilnefningum og var Þórdís valin úr hópi tíu kvenna í byrjun sept- ember síðastliðins. Hringt var í Þórdísi í síðustu viku og hún fyrst spurð hvort hún gæti verið viðstödd athöfnina í Búdapest þar sem hún væri á meðal fimm kvenna sem kæmi til greina að verðlauna. Þegar ekki var víst að Þórdís gæti verið viðstödd var henni tjáð að hún þyrfti eiginlega að mæta. Hún hefði orðið hlutskörpust. Hvert er markmiðið? Eitt markmiða með þessari viður- kenningu er að vekja athygli á hinu mikilvæga framlagi almennra kven- leiðtoga innan hreyfingarinnar. Í hverju keppti Þórdís? Þórdís byrjaði snemma að æfa og keppa í frjálsum íþróttum. Hún á t.a.m. enn Íslandsmetið í hástökki kvenna utanhúss. Keppti tvisvar á Ólympíuleikum, fyrst árið 1976 í Montreal í Kanada, þá aðeins 16 ára gömul. S&S ÞETTA HELST» Fjöldi nýrra starfa skapast  Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins stendur til að geyma fjölda þyrlna, léttra flugvéla og herþotna í stóra flugskýlinu á Keflavíkur- flugvelli og sinna þar viðhaldi og við- gerðum. Hollenska félagið ECA er nú í viðræðum um málið við ÍAV Þjónustu, dótturfélag Íslenskra að- alverktaka. »Forsíða Með réttarstöðu grunaðra  Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson, Ólafur Ólafsson og fleiri hafa réttarstöðu grunaðra manna í rannsókn sérstaks saksóknara á við- skiptum með hlutabréf í Kaupþingi fyrir rúmu ári. Verið er að rannsaka hvort um sýndarviðskipti hafi verið að ræða til að halda uppi verði á bréfum bankans, þegar Mohammed Bin Khalifa Al-Thani keypti 5% hlut í Kaupþingi skömmu fyrir fall bank- ans. »4 Illt umtal um Impregilo  Friðrik Sophusson, fráfarandi for- stjóri Landsvirkjunar, segist velta því fyrir sér hvort verkalýðshreyf- ingin og eftirlitsstofnanir hérlendis geri meiri kröfur til erlendra verk- takafyrirtækja sem hingað koma til starfa en til íslenskra fyrirtækja. Þetta kemur fram í bók sem Atli Rúnar Halldórsson hefur tekið saman um sögu Kárahnjúkavirkj- unar. » 11 Brögð í tafli í kosningum  Margvíslegum brögðum var beitt til að hindra frjálsar kosningar í sveitarstjórnarkosningum í Rúss- landi í gær, að sögn Liliu Shíbanóvu hjá óháðu eftirlitsstofnuninni Golos. Flokkur Dmítris Medvedevs, Sam- einað Rússland, er sakaður um að hafa brotið kosningalög. »12

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.