Morgunblaðið - 18.10.2009, Side 6
6 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2009
Martín Palermo er ólík-
indatól. Á löngum ferli
hefur hann ítrekað
yljað alþýðu manna
með ótrúlegum til-
þrifum.
Ekki hefur þó allt
gengið upp hjá honum
á velli. Sérstaklega kem-
ur einn leikur upp í hug-
ann, viðureign Argentínu
og Kólumbíu í Ameríkubikarnum sumarið
1999. Þá gerði kappinn sér lítið fyrir og
brenndi af þremur vítaspyrnum. Það ku vera
einsdæmi í sparksögunni og færði Heims-
metabók Guinness verknaðinn í letur.
Fyrsta spyrnan small í þverslánni og þaðan
þeyttist tuðran upp í stúku. Palermo var stað-
ráðinn í að láta það ekki slá sig út af laginu
enda vítaskytta liðsins og stillti knettinum
sperrtur upp á punktinum síðar í leiknum. Aft-
ur gleymdi hann að halla sér yfir knöttinn sem
fór að þessu sinni rakleiðis yfir markið. Pa-
lermo gramdist þetta að vonum og gyrti bræk-
urnar upp undir höku í bræði sinni.
Þegar þriðja vítið var dæmt var okkar maður
hvergi af baki dottinn. Brotið var á honum
sjálfum og langar leiðir sást að enginn annar
fengi að taka spyrnuna. Að þessu sinni gaf Pa-
lermo sér góðan tíma, hallaði sér vel og vand-
lega yfir boltann – og þrumaði honum beint á
Miguel Calero markvörð.
Misnotaði þrjár
vítaspyrnur
Hál Tuðran lætur
ekki alltaf að stjórn.
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
M
úgurinn gekk bókstaflega af
göflunum í Buenos Aires þetta
örlagaríka kvöld fyrir réttri
viku. Það hefur ekki legið
svona vel á Argentínumönn-
um síðan í Mexíkó sumarið 1986. Martín Pa-
lermo talaði tungum og reif sig úr að ofan,
Diego Maradona fleytti kerlingar í sverðinum
– á bumbunni, og aðrir leikmenn og aðstand-
endur hinnar sögufrægu sparksveitar stigu
trylltan stríðsdans. Meira að segja sjálft al-
mættið komst við og brynnti músum. Himn-
arnir opnuðust. Var við öðru að búast? Eins og
sparkelskir vita er almættið argentínskt að
uppruna og hefur jafnvel tekið upp á því að
reka smiðshöggið á sóknir landsliðsins. Að
vísu hafði það reglurnar ekki alveg á hreinu í
það skipti en menn tóku viljann fyrir verkið.
Almættið þurfti þó ekki að leggja hönd á
plóginn að þessu sinni. Það var annar æðri
máttur, fyrrnefndur Martín Palermo, sem sá
um markaskorun. „Þetta er enn eitt krafta-
verk heilags Marteins,“ grét Maradona, þjálf-
ari argentínska landsliðsins, eftir að miðherj-
inn stæðilegi hafði tryggt liðinu sigur á Perú í
uppbótartíma og þar með séð til þess að Arg-
entína var enn með í slagnum um sæti í úr-
slitakeppni heimsmeistaramótsins (HM) í Suð-
ur-Afríku.
Ekki verður þverfótað fyrir skyttum í arg-
entínska landsliðinu, Lionel Messi, Sergio
Agüero, Carlos Tévez og Gonzalo Higuaín, öll-
um spriklandi af æskufjöri. Þær hafa þó skotið
púðurskotum að undanförnu og um tíma leit út
fyrir að Argentína myndi jafnvel sitja heima
meðan lokakeppni HM færi fram, í fyrsta
skipti síðan 1970.
Í örvæntingu sinni greip Maradona, sem
sætt hefur harðri gagnrýni heimafyrir, til þess
ráðs að gefa æskunni langt nef og kalla á
Martín Palermo, „Brjálæðinginn“, eins og
heimamenn kalla hann vegna lundarfarsins,
eftir tíu ára fjarveru. Kappinn verður 36 ára í
næsta mánuði en hefur komið eins og storm-
sveipur inn í landsliðið, fyrst skoraði hann í tví-
gang í æfingaleik gegn Gönu og síðan gull-
markið góða gegn Perú.
Markaskorari af Guðs náð
Það þýddi að Argentínumönnum nægði jafn-
tefli gegn Úrúgvæ í lokaleik forkeppninnar
síðastliðinn miðvikudag. Þeir gerðu gott betur,
lögðu heimamenn í Montevideo í fyrsta skipti í
33 ár með marki varamannsins Marios Bollatt-
is. Sá sigur var óhjákvæmilegur, annað hefði
stungið í stúf við handritið. Svo öruggur var
Maradona með sig á miðvikudagskvöldið að
hann skipti Palermo ekki einu sinni inn á.
Martín Palermo er enginn nýgræðingur í
markaskorun. Hann gerði 115 mörk í 192 leikj-
um fyrir Estudiantes og Boca Juniors í argent-
ínsku deildinni á árunum 1991 til 2000. Það var
þó ekki fyrr en hann sló í gegn í álfukeppninni
árið 2000 – gerði meðal annars bæði mörkin í
2:1-sigri Boca á Real Madrid – að evrópsk fé-
lög fóru að strjúka honum af áfergju.
Eins og hjá svo mörgum Argentínumönnum
varð Spánn fyrir valinu. Villarreal hreppti
hnossið. Palermo gekk aftur á móti erfiðlega
að fóta sig þar og gerði aðeins 18 mörk í 70
leikjum. Hann reyndi líka fyrir sér hjá Real
Betis og Alavés – við lítinn orðstír.
Eftir hálft fjórða ár í útlegð sneri Palermo
aftur til Boca Juniors og það var eins og hann
hefði aldrei brugðið sér af bæ. Mörkunum
rigndi á ný. Undanfarin fimm ár hefur Pa-
lermo verið einn skæðasti sóknarmaðurinn í
argentínsku knattspyrnunni en á þessum tíma
hefur hann gert 83 mörk í 147 deildarleikjum.
Palermo gnístir tönnum framan í Elli kerlingu.
Síðastliðið vor gerði hann sér lítið fyrir og
sló markamet Franciscos Varallos hjá Boca,
194 mörk í öllum keppnum. Tvö hundraðasta
markið kom fáeinum vikum síðar – með bak-
fallsspyrnu. Eins og við vitum er Palermo
maður hinna miklu tilþrifa.
Hvað landsliðið áhrærir virtist Palermo hafa
brennt allar brýr að baki sér með Spánarferð-
inni mislukkuðu. Þrátt fyrir vaska framgöngu
með Boca var hann ítrekað sniðgenginn. Að
vísu hafði Alfio Basile hugsað sér að velja hann
að nýju í landsliðið í fyrra en ekkert varð af því
þar sem slæm meiðsli knúðu dyra.
Í dag eru þau vonbrigði aftur á móti gleymd
og grafin. Heilagur Marteinn er snúinn aftur.
Brattari en nokkru sinni.
Hin heilaga brjálsemi
Gamla kempan Martín Palermo sneri aftur eftir tíu ára útlegð og átti drjúgan þátt
í að tryggja Argentínu farseðilinn á heimsmeistaramótið í Suður-Afríku næsta sumar
Kátur Martín Palermo ærist af
gleði eftir að hafa veitt Perú-
mönnum náðarhöggið. Mun
hann leika á HM næsta sumar?
Reuters
Menn hafa velt því fyrir
sér að undanförnu hvort
Palermo hafi sett annað
og mun ánægjulegra
heimsmet í leik með
Boca Juniors gegn arg-
entínsku meisturunum,
Vélez Sársfield, 4. októ-
ber síðastliðinn þegar
hann skallaði knöttinn í
netið af hvorki meira né
minna en 38,90 metra
færi. Lýst er eftir skalla-
mörkum af lengra færi.
Fyrir þá sem ekki hafa séð markið kom
markvörður Sársfield út fyrir vítateig sinn til
að spyrna knettinum fram völlinn. Hann var
undir pressu og ekki tókst betur til en svo að
hann sendi knöttinn beint á Palermo þar sem
hann stóð rétt innan við miðjubogann. Mið-
herjinn hafði engar vöflur á svari, heldur skall-
aði tuðruna í fallegum boga í fjærhornið. Hafði
hún aðeins einu sinni viðkomu í jörðinni á leið-
inni. Ótrúlegt mark.
„Það er alltaf eitthvað að koma fyrir mig,“
sagði Palermo gáttaður við argentínska fjöl-
miðla eftir leikinn. „Þegar ég svipast um eftir
sambærilegum fréttum af öðrum leikmönnum
gríp ég í tómt. Það gerast hlutir hjá mér sem
ég get ekki útskýrt.“
Boca vann leikinn 3:2 og var sigurinn kær-
kominn eftir fjóra tapleiki í röð.
Skoraði með
skalla frá miðju
Vinsæll Palermo í
leik með Boca.
Skin og skúrir
Martín Palermo hefur fengið sinn skerf af alvarlegum
meiðslum gegnum tíðina – en alltaf brölt á fætur aftur.
Hann hefur í tvígang slitið krossband í hné. Í fyrra
skiptið fyrir réttum áratug í leik með Boca Juniors gegn
Colón í Argentínu. Raunar var kappið svo mikið í þeim
leik að Palermo lék um stund eftir áfallið og skoraði
meira að segja sitt hundraðasta mark í efstu deild í Arg-
entínu – á öðrum fætinum. Hann var hálft ár að ná sér af
þeim meiðslum.
Palermo sleit krossband í
hné öðru sinni í upphafi
síðustu leiktíðar en
hann var þá genginn
að nýju til liðs við
Boca Juniors. Hann lét
raunar ekki þar við sitja,
heldur sleit liðband líka.
Aftur var hann frá æfing-
um og keppni í sex mánuði.
Kyndugustu meiðslin
komu í nóvember 2001 en á þeim
tíma var Palermo í röðum Villarreal
á Spáni. Eftir að hafa skorað mark stökk hann með til-
þrifum yfir auglýsingaskilti og upp á steyptan vegg fyrir
framan sjóðheita stuðningsmenn Gula kafbátsins. Vegg-
urinn var hins vegar ekki undir þessa óvæntu heimsókn
búinn og hrundi til grunna með þeim afleiðingum að
aumingja Palermo tvífótbrotnaði.
Hann var tvo mánuði að jafna
sig á þeim ósköpum.
Varð undir vegg
Hress Maradona
magalendir af gleði.
Nóvember
kaktus
759
Á MEÐAN
BIRGÐIR ENDAST