Morgunblaðið - 18.10.2009, Page 23

Morgunblaðið - 18.10.2009, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2009 ómetanlega hagnýt. Það fólst dýr- mæt reynsla í því að starfa undir stjórn Agnars Kl. Jónssonar, auk ánægjunnar sem því fylgdi svo oft. Agnar var mikill hamingjumaður í einkalífi sínu því þau voru afar sam- rýnd hann og lífsförunautur hans Ólöf Bjarnadóttir vígslubiskups Jóns- sonar Dómkirkjuprests, fyrsta heið- ursborgara Reykjavíkur, og Áslaug- ar Ágústsdóttur konu hans. Þau gengu að eigast tveimur dögum áður en Agnar tók við ráðuneytisstjóra- starfi í fyrra sinnið og höfðu nýlega fagnað 40 ára hjúskaparafmæli sínu þegar hann lést. Framkoma þeirra hjóna var jafnan látlaus en yfir henni glæsibragur. Fallegasta húsið í emb- ættismannagötunni við Tjörnina, Tjarnargata 22, var umgjörðin um fagurt og hlýlegt heimili þeirra. Þau sómdu sér vel hvar sem þau fóru – og unnu ættlandi sínu og þjóð mikið gagn heima og heiman. Við fráfall Agnars komst Geir Hall- grímsson, sem þá var utanrík- isráðherra, svo að orði: „Stefnufastari eða traustari mann en Agnar var í starfi og dagfari öllu gat ekki, enda vann hann sér og landi sínu virðingu allra þeirra sem hann átti skipti við erlendis sem hérlendis ... Samstarfs- menn mátu manninn Agnar Kl. Jóns- son mikils, hlýjan, mikinn persónu- leika, sagnafróðan og gamansaman, þegar svo bar undir, vandan að virð- ingu sinni og lands síns.“ Þetta eru orð að sönnu. – Allur ferill Agnars Kl. Jónssonar var með þeim hætti að hans mun ávallt verða minnst sem eins af merkustu embættismönnum Stjórnarráðs Íslands og nýtustu þegnum þessa lands. öðrum fremur þetta ritar ekki hvað síst minnisstætt hve hart Agnar gekk fram í sparn- aðinum, meðan þjóðin var að vinna sig í gegnum erfiðleikaárin 1967-1969 þegar síldveiðar brugðust og verðfall varð á flestum útflutningsafurðum. Agnar sýndi starfsfólki sínu traust. Viðhorf hans var það að öllu skipti að hafa á að skipa starfshæfu fólki og væri þá hvorki heppilegt né nauðsyn- legt að hafa stöðug afskipti af verk- um þess. Lét hann þannig starfsfólki sínu allajafna eftir að meta hvenær það þarnaðist leiðsagnar hans og var þá ávallt viðmótsþýður og fús að full- móta með því úrlausn máls. Oftast tók það skamma stund, enda var hann ríkur af reynslu og hafði ekki önnur viðmið en réttsýni og sann- girni. En Agnar var hafsjór af fróð- leik því áhugasviðið var vítt, athygl- isgáfan skörp og minni hans traust. Og hann var sér ugglaust meðvitandi um mikilvægi þess fyrir stofnun á borð við ráðuneyti eða sendiráð að kynslóð geti lært af kynslóð, ekki síst þar sem fordæmi og vitneskjan um þau vegur jafnan þungt, þegar vanda skal meðferð mála og gæta þess að réttur einstaklinga sem á ýmsum tímum eiga skipti við stjórnvöld sín haldist jafn og sanngjarn. Þannig varð oft lengri seta í skrifstofu Agn- ars en tilefnið krafðist. Leiftrandi frásagnargáfa hans af atvikum, mönnum og málefnum naut sín á óviðjafnanlegan hátt. Vera má að hraðastjórnun nútímans kunni lítt að meta þann tíma sem þannig leið. En þeir sem sjálfir upplifðu hefðu síst viljað hafa farið þessara stunda á mis og geta borið um hve oft, og stundum löngu seinna við óvæntar og erfiðar aðstæður, sú vitneskja sem Agnar þarna miðlaði átti eftir að reynast Fyrsta sendiherrastarfið sem Agn- ar gegndi var í London (1951-56). Sökum þess vanda sem íslenska þjóðin á nú við að etja er vert að nefna, að í fyrstu sendiherrastörf- um Agnars Kl. Jónssonar á erlendri grund komu m.a. til hans kasta samskipti við breska ráðamenn, þ. á m. hinn kunna utanríkisráðherra Anthony Eden, vegna harkalegra viðbragða í Bretlandi við útfærslu íslensku fiskveiðilandhelginnar 1952 úr 3 í 4 sjómílur frá grunn- línum sem dregnar voru þvert fyrir mynni fjarða og flóa. [Áður höfðu breskir togarar getað fiskað hér upp að ströndum í skjóli samnings sem Danir höfðu gert árið 1901 til 50 ára gegn hlunnindum fyrir danskt svínaflesk á Bretlands- markaði. Breskir útgerðarmenn reyndu með löndunarbanni að knýja Íslendinga til að hverfa frá útfærslunni. Það sem í húfi var fyr- ir þjóðina er ljóst af þeirri stað- reynd að sjávarafurðir voru nær 95% heildarútflutnings hennar um þetta leyti. En óbilgirni Breta bar ekki árangur, því þá lánaðist að bjarga útflutningshagsmununum í óvæntri átt með verslunarvið- skiptum við Sovétríkin. Þau við- skipti áttu eftir að gefast vel og standa í áratugi, þótt um væri að ræða helsta andstæðing Atlants- hafsbandalagsins.] Þvínæst varð Agnar sendiherra í París (1956-61), uns hann tók við ráðuneytisstjóra- starfi að nýju og gegndi því sem næst út áratuginn. Hann var þann- ig ráðuneytisstjóri í alls 16 ár, mikl- um mun lengur en nokkur annar til þessa dags. Að því loknu tóku enn við sendiherrastörf, nú í Oslo (1969-76), og loks Kaupmannahöfn (1976-79). – Auk dvalarlandanna fjögurra sinnti Agnar á starfstíma sínum erlendis sendiherrastörfum í 9 Evrópulöndum öðrum, þ.e. Hol- landi, Spáni, Portúgal, Ítalíu, Belg- íu, Grikklandi, Póllandi, Tékkóslóv- akíu og Tyrklandi, auk svo Ísraels. Var Agnar sæmdur æðstu heið- ursviðurkenningum margra þess- ara landa, auk stjörnu stórriddara Hinnar íslensku fálkaorðu. Það fór einkar vel á því – og gladdi Agnar – að löngum og farsælum embætt- isferli hans á sviði utanríkismála skyldi ljúka þar sem hann hófst, í hinni gömlu höfuðborg við Eyr- arsund. Óbilgirni Breta Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Eyþór Árnason hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2009. Aðrir sem áttu handrit í keppninni eru beðnir að vitja þeirra á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar sem fyrst eða fyrir 15. janúar 2010. Einnig er unnt að fá handrit send í póstkröfu. Gefa þarf upp dulnefni. Aðeins var opnað umslag með nafni vinningshafa. Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar, Ingólfsnausti - Vesturgötu 1, 101 Reykjavík, menning@reykjavik.is 588 50 12 Bólusetning árleg inflúensa Reykjavík—Akureyri Heilsuvernd hefur hafið bólusetningu gegn árlegri inflúensu. Skráning í síma 510-6500 eða á www.doktor.is Netlæknaþjónusta-tímabókanir Verð kr.1.500.- Höfundur er fyrrverandi sendiherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.