Morgunblaðið - 18.10.2009, Síða 36

Morgunblaðið - 18.10.2009, Síða 36
36 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2009 Sudoku Frumstig 6 4 9 8 2 7 8 9 5 4 1 6 3 3 7 9 8 3 7 4 1 6 8 7 3 3 4 2 6 9 8 4 5 1 2 5 2 9 7 6 1 3 8 6 8 7 4 5 7 5 4 1 7 3 8 1 7 8 2 1 5 4 9 2 7 3 6 4 8 9 2 5 9 5 8 9 4 3 1 6 2 7 4 7 6 2 8 5 9 3 1 2 3 1 6 7 9 4 5 8 1 6 3 7 5 2 8 9 4 8 9 2 1 4 6 3 7 5 7 4 5 8 9 3 1 6 2 9 5 4 3 2 8 7 1 6 3 1 7 5 6 4 2 8 9 6 2 8 9 1 7 5 4 3 5 4 7 2 8 9 6 1 3 3 9 8 6 1 5 4 7 2 2 6 1 4 3 7 9 8 5 9 7 3 5 4 8 1 2 6 1 8 5 3 2 6 7 4 9 6 2 4 9 7 1 5 3 8 8 5 2 7 9 4 3 6 1 4 1 6 8 5 3 2 9 7 7 3 9 1 6 2 8 5 4 2 8 4 3 6 5 1 7 9 7 5 6 4 1 9 2 8 3 3 1 9 7 8 2 4 5 6 5 7 2 1 3 4 9 6 8 8 4 3 2 9 6 7 1 5 9 6 1 8 5 7 3 4 2 4 9 8 6 7 3 5 2 1 6 3 7 5 2 1 8 9 4 1 2 5 9 4 8 6 3 7 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er sunnudagur 18. október, 291. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef- ast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.) Víkverji eignaðist á dögunumDisney-teiknimyndina Mjall- hvíti sem nú hefur verið endur- útgefin á DVD. Hann sat heillaður í 80 mínútur og rifjaði upp kynnin af prinsessunni fallegu, vondu drottn- ingunni, góða prinsinum og hinum litríku dvergum. Auðvitað er þessi mynd brakandi snilld og árin hafa ekkert unnið á henni. Þegar dverg- arnir sungu: „Hæ, hó, hæ, hó...“ hríslaðist hrifningarstraumur niður eftir baki Víkverja. Svo voru dverg- arnir svo skemmtilegir að Víkverji botnaði ekkert í því af hverju Mjall- hvít var svo fús til að yfirgefa þá. En hún fann auðvitað prinsinn sinn eða hann fann hana og kyssti hana ást- arkossi. Manneskjur verða að fylgja ástinni hvert sem hún leiðir þær. Í þessu tilviki lá leiðin beint í kon- ungshöllina sem er vitaskuuld afar góður áfangastaður. x x x Víkverji ólst upp við Disney-myndir í Gamla Bíói forðum daga. Hann man enn spenninginn sem gagntók hann þegar ljósin slokknuðu og myndin byrjaði. Enn í dag er uppáhaldslitur Víkverja blái liturinn í Disney-myndunum sem hann sá svo oft í æsku sinni. Sá litur er í huga Víkverja tákn um æv- intýraljóma og fegurð. x x x Vikverji er einlægur aðdáandióþekkra krakka. Honum fellur vel hversu hugmyndarík þau eru og dáist að frumlegri hugsun þeirra. Lína langsokkur er til dæmis í miklu uppáhaldi hjá honum. Og vitanlega Emil í Kattholti. Svo er Víkverji sömuleiðis hrifinn af Skúla skelfi en bækur um hrekki hans koma út á hverju ári hjá Forlaginu. Nú eru ný- komnar bækurnar Skúli skelfir og hræðilegi snjókarlinn og Skúli skelf- ir og jólin. Þar fer Skúli vitanlega á kostum eins og ævinlega og gerir óhemju mikið af sér. x x x Víkverji fagnar jólabókaflóðinuinnilega og ekki síst þeim mikla fjölda skemmtilegra barnabóka sem þá kemur út. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 sokkalaus, 8 huglausar, 9 tappi, 10 stirðleika, 11 kvarta undan, 13 nam, 15 kofa, 18 hirða um, 21 glöð, 22 furða á, 23 mannsnafn, 24 mjög stórt. Lóðrétt | 2 koma auga á, 3 fjarstæða, 4 máni, 5 ótti, 6 dugur, 7 skott, 12 mergð, 14 hegðun, 15 drakk, 16 morkni, 17 búa til, 18 mikið, 19 brúkar, 20 nytjalandi. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 lemja, 4 þerna, 7 pilts, 8 sópur, 9 alt, 11 siða, 13 þráð, 14 nefna, 15 senn, 17 krás, 20 far, 22 neyta, 23 illur, 24 afann, 25 agnar. Lóðrétt: 1 lepps, 2 málið, 3 ausa, 4 þúst, 5 rápar, 6 af- ræð, 10 lyfta, 12 ann, 13 þak, 15 sínka, 16 neyða, 18 ról- an, 19 særir, 20 fann, 21 rifa. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2 e5 7. Rb3 Be7 8. O-O O-O 9. Be3 Be6 10. f4 exf4 11. Hxf4 Rbd7 12. Rd4 Re5 13. a4 Hc8 14. Dd2 He8 15. Rf5 Bf8 16. Hd1 Rg6 17. Hf2 Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í Ohrid í Makedóníu. Guðmundur Gíslason (2348) hafði svart gegn Manuel Ocantos (2160) frá Lúx- emborg. 17… Hxc3! 18. Rxd6 Hxe3! 19. Rxe8 Dxd2 20. Rxf6+ gxf6 21. Hxd2 Bc5 svartur hefur nú léttunnið tafl. 22. Kf1 Hxe4 23. Hxf6 Hxa4 24. Bh5 Rf4 25. Bd1 He4 26. b3 Rd5 27. Hxd5 Bxd5 28. Hf5 Hd4 29. Bh5 Bb4 30. c4 Be6 31. Hf2 Hd3 og hvítur gafst upp saddur lífdaga. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Hræðsluáróður. Norður ♠D8 ♥Á4 ♦KD105 ♣KD632 Vestur Austur ♠753 ♠K6 ♥G9762 ♥K1053 ♦94 ♦ÁG87 ♣G85 ♣974 Suður ♠ÁG10942 ♥D8 ♦632 ♣Á10 Suður spilar 4♠. Útspilið er ♦9 og sagnhafi rétt lítur á blindan, biður svo um kónginn. Aust- ur drepur og gjörbreytir stemmning- unni við borðið með frumlegum leik. Hver er sá leikur? Hverfum að upphafinu: Suður vakti á 1♠, fékk 2♣ á móti, sagði þá 2♠ og norður fjóra. Samningurinn er auðvit- að skotheldur, en keppnisformið er tví- menningur og því full ástæða til að taka alla þá slagi sem í boði eru. Og þeir eru tólf með því einu að svína í trompi. Þetta sá austur fyrir og ákvað að setja strik í örlagareikninginn með ógnandi leik – hann spilaði ♦G í öðrum slag! Hið áhyggjulausa yfirbragð sagn- hafa hvarf eins og dögg fyrir sólu. Hann óttaðist misheppnaða svíningu í trompi og stungu í kjölfarið. Og til að forða þeim ósköpum spilaði suður ♠Á og spaða með óvæntum afleiðingum. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Farðu gætilega í viðskiptum við aðra, þú hefur ekki allar upplýsingar. Kauptu eitthvað fallegt fyrir heimilið eða fjölskyldumeðlimi. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ert með hugann við allt of margt og þarft að geta verið í næði til að koma jafnvægi á hlutina. Láttu ekki hræring- arnar koma þér úr jafnvægi. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Fólk sem er að reyna að ganga í augun á þér, móðgar þig hugsanlega al- veg óvart. Kannski einum of við þína nán- ustu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Taktu því vel ef einhver finnur að framkomu þinni því allt slíkt er vel meint. Láttu vináttuna ekki blinda þér sýn. Vertu tilbúinn að deila leyndarmálinu með vini. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Óskhyggjan er afleitur húsbóndi. Hið rétta er að ráðast strax að rótum vandans og kippa hlutunum í lag áður en þeir ganga of langt. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú hefur tilhneigingu til að van- treysta sjálfum þér og ættir að forðast það og fara eftir sannfæringu þinni. Ein- beittu þér að nánd og samskiptum. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þér gengur vel í vinnunni og þú munt ná miklum árangri á komandi ári. Þú sýnir af þér óvenju mikinn samstarfs- vilja. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Nýttu þér sambönd þín í við- skiptum og þiggðu ráðgjöf þeirra sem þú veist að má treysta. Mundu bara að tala skýrt og skorinort svo enginn þurfi að velkjast í vafa um tilgang þinn. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er einhver umræða í gangi sem kann að snerta þig svo þér er fyrir bestu að hafa allt þitt á hreinu. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú þarft að beita allri þinni lagni til að þoka málum áleiðis. Deildu innsæi þínu með einhverjum sem þú átt skap með. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Vinur reitir þig eilítið til reiði, kannski er hann ýtinn eða fer fram með offorsi. Leitaðu þér lækninga ef einhver vandamál eru sem þú þarft hjálp til að leysa. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú leggur þig fram við að gera heimili þitt huggulegra á næstunni. Njóttu þess að vera einstakur, og hættu að reyna að vera einsog hinir. Stjörnuspá 18. október 1913 Ljósahátíð var haldin á Seyð- isfirði þegar rafveitan var vígð og rafljós kveikt í fyrsta sinn. „Ljósin eru björt og skær og allur útbúnaður vandaður og í besta lagi,“ sagði blaðið Austri. „Mun óhætt að segja að almenn ánægja sé í bænum yfir rafljósunum.“ Þetta var ein fyrsta rafveitan sem náði til heils bæjarfélags. 18. október 1939 Dómkirkjan var þétt setin þegar efnt var til guðsþjón- ustu í tilefni af fundi allra nor- rænu konunganna í Stokk- hólmi. Tilgangur fundarins var að reyna að afstýra því „að Norðurlönd yrðu vettvangur styrjaldarinnar eða þátttak- endur hennar,“ eins og Sig- urgeir Sigurðsson biskup orð- aði það í ræðu sinni. Þá var rúmur mánuður frá upphafi síðari heimsstyrjaldarinnar. 18. október 1953 Bandarísk herflugvél af gerð- inni Neptun fórst norðvestur af Vestmannaeyjum. Öll áhöfnin, níu manns, lést. 18. október 2001 Hiti í Reykjavík mældist 15,6 stig, sem var októbermet. „Sannkallaður sumarylur í lofti,“ sagði Morgunblaðið. 18. október 2008 Fjöldi fólks kom saman á Austurvelli til að mótmæla bankahruninu. Mótmæla- fundir voru vikulega fram í mars, með hléi um jólin. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „ÉG ER nú bara að vinna um helgina, þannig að ég get ekkert haldið upp á þetta,“ segir Gunnar Schev- ing Thorsteinsson lögreglumaður, sem á 26 ára af- mæli í dag. Gunnar hefur starfað sem lög- reglumaður í fimm ár en hann komst á bragðið þegar hann prófaði að sækja um hjá sumarlögregl- unni að loknu stúdentsprófi frá MR. Hann segir vinnuna vissulega skemmtilega þótt nú séu erfiðir tímar og sótt að lögreglumönnum úr öllum áttum. Hann nýtir frítímann til æfinga á bras- ilísku sjálfsvarnaríþróttinni jiu jitsu, en þessa dag- ana hefur Gunnar reyndar lítinn tíma til tómstunda, ekki einu sinni til að halda upp á afmælið eins og áður segir, því hann er á kafi í aukavöktum hjá lögreglunni. Sem betur fer er það nú ekki allt til einskis því Gunnar er framsýnn maður og aukavaktirnar eru allar liður í stærri áætlun. „Ég keypti mér utanlandsferð og er að safna fyrir henni. Ég ætla nefnilega að kíkja til London, það verður eiginlega af- mælisveislan,“ segir Gunnar og bætir því við að þetta verði hálfgerð kreppuferð, því hann ætlar að treysta á að hann fái ókeypis gistingu hjá kunningjum. Og hvað ætlar hann að gera í London? „Bara slappa af, fá mér gott að borða og njóta lífsins.“ una@mbl.is Gunnar Scheving Thorsteinsson, 26 ára Sparar sig fyrir London Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.