Morgunblaðið - 18.10.2009, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 18.10.2009, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2009 Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands standa saman að Eyrarrósinni, viðurkenningu sem veitt er árlega einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar á landsbyggðinni. Fyrstu Eyrarrósina, árið 2005, hlaut Þjóðlagahátíðin á Siglufirði; 2006 féll hún í skaut LungA, Listahátíðar ungs fólks á Austurlandi; Eyrarrósina 2007 hlaut Strandagaldur á Hólmavík, árið 2008 kom hún í hlut hinnar ísfirsku Rokkhátíðar alþýðunnar; Aldrei fór ég suður, og á þessu ári hlaut Landnámssetrið í Borgarnesi Eyrarrósina. • Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi umsækjenda um Eyrarrósina 2010 • Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, 1.500.000 kr. og verðlaunagrip til eignar • Viðurkenningin verður afhent í ársbyrjun 2010 á Bessastöðum • Verkefnið sem hlýtur viðurkenninguna fær sérstaka kynningu í tengslum við Listahátíð í Reykjavík 2010 • Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú Framúrskarandi menningarstarf á landsbyggðinni HÉR MEÐ ER AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM UM EYRARRÓSINA 2010 UMSÓKNUM SKAL FYLGJA: Lýsing á verkefninu Lögð skal fram greinagóð lýsing á verkefninu; umfangi þess, sögu og markmiðum. Tíma- og verkáætlun Gerð skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu verkefnisins og áformum á árinu 2010. Skilyrði er að verkefninu hafi nú þegar verið hleypt af stokkunum. Upplýsingar um aðstandendur Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem að verkefninu standa og grein gerð fyrir þeirra þætti í því. Fjárhagsáætlun Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári. Uppgjör ársins 2008 fylgi umsókn. • Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar verður hún ekki tekin til greina • Umsækjendur geta verið m.a. stofnun, safn, tímabundið verkefni eða menningarhátíð • Umsóknarfrestur er til 16. nóvember 2009 og verður öllum umsóknum svarað • Viðurkenningin verður veitt í ársbyrjun 2010 • Umsóknir skal senda til Listahátíðar í Reykjavík, pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar „Eyrarrósin“ Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík í síma 561 2444, johanna@artfest.is www.listahatid.is holar@simnet.is PAPA JAZZ AFMÆLIS- OG ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Guðmundur Steingrímsson – PAPA JAZZ – verður áttræður þann 19. október. Af því tilefni efnir hann til afmælistónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, sunnudag, frá kl. 15 til 17. Á meðal gesta á tónleikunum verða Raggi Bjarna, Óli Gaukur, Svanhildur Jakobsdóttir, Árni Ísleifsson, Sigurgeir Sigmundsson, Björn Thorodd- sen, Carl Möller, Helga Garlich, Vigdís Ásgeirsdóttir og Kristján Hreinsson. Þá kemur út í dag ævisaga Guðmundar eftir Árna Matthíasson og munu þeir kynna bókina við þetta tækifæri og árita hana fyrir áskrifendur og aðra sem þess óska. Allir velkomnir – aðgangur ókeypis Guðmundur Steingrímsson og Bókaútgáfan Hólar VEFSÍÐA vikunnar að þessu sinni, The Smoking Gun, er fyrir þá sem áhuga hafa á sakamálum hvers konar og skjölum og ljós- myndum sem þeim tengjast en einnig fræga fólkinu, mistökum þess og kröfum. Á síðunni má finna ýmis laga- skjöl og handtökutilskipanir og er nýju efni hent inn á síðuna dag- lega. Tilgangurinn virðist vera sá að koma fyrir augu almennings upplýsingum sem eru á einhvern hátt ótrúlegar eða dularfullar eða upplýsingum sem fjölmiðlar hafa ákveðið að birta ekki. Þá má einn- ig finna ýmsar heimildir um glæpi sem þykja óvenjulegir og glæpa- menn sem þykja í skrýtnara lagi. Nafnið, The Smoking Gun, vísar í myndlíkingu fyrir sönnunargagn í glæpamáli, eitthvað sem bendlar mann við glæpinn. Fyrir þá sem áhuga hafa á fræga fólkinu, m.a. stjörnum úr heimi kvikmynda eða tónlistar, má benda á sérstakan hluta síðunnar sem helgaður eru myndum lögreglunnar af þekktu fólki sem gerst hefur brotlegt við lög. Þá er annar hluti tileinkaður samningum sem poppstjörnur hafa gert. Má sjá lista yfir þá hluti sem eiga að vera til taks á tónleika- stöðum m.a. og slíkir listar flokk- aðir eftir tónlistarmönnum. Sem dæmi má nefna lista frá David Bowie en hann vill hafa tiltæka kaffivél af gerðinni Mr. Coffee, ávaxtaskál fyrir 12 manns, ferskan appelsínusafa, 12 handklæði og mannhæðarháan spegil, svo eitt- hvað sé nefnt. Ef farið er í öllu harðari deild, Guns n’ Roses, þá vilja rokkararnir fá stóra nauta- steik, bakka með osti og kjötá- leggi, heilmikið af pasta og Dom Perignon kampavín m.a. helgisnaer@mbl.is VEFSÍÐA VIKUNNAR: thesmokinggun.com Jane Fonda Jay-Z Janis Joplin Dómsskjöl, afbrotamanna- myndir og kröfur poppstjarna Reuters Svalur Bale. Gyðja Megan Fox. Ómótstæðilegur Depp. Þokki Zoe Saldana. Fox og Depp kynþokkafyllst KVIKMYNDATÍMARITIÐ hefur seinustu vikur staðið fyrir netkönnun á því hvaða kvikmyndastjörnur séu kynþokkafyllstar og liggja nú niðurstöður fyrir og koma kannski ekkert sérstaklega á óvart. Meg- an Fox er í fyrsta sæti yfir leikkonur og Johnny Depp er kynþokkafyllstur karla. Í öðru sæti yfir kyn- þokkafullar leikkonur er Angelina Jolie, í þriðja sæti Emma Watson, í fjórða Scarlett Johansson og í því fimmta Zoe Sald- ana. Hjá körlum er það Robert Pattinson sem lendir í öðru sæti, Robert Downey jr. í þriðja, Brad Pitt í fjórða og Christi- an Bale í fimmta. Listann allan má sjá á empireonline.- com.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.