Morgunblaðið - 04.11.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
SKILANEFND Kaupþings hefur
engin afskipti haft af málefnum Haga
og eigenda fyrirtækisins 1998 ehf.
Theodór Sigurbergsson og Jóhannes
R. Jóhannsson eru fulltrúar skila-
nefndar gamla bankans í stjórn Nýja
Kaupþings. Þeir Theódór og Jóhann-
es fara þó með fimm atkvæði innan
stjórnarinnar á móti fimm atkvæðum
fulltrúa íslenska ríkisins. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hefur
skilanefndin ekki komið nálægt
samningaviðræðum um endurskipu-
lagningu skulda 1998 ehf. Jafnframt
er skilanefndin ekki sögð taka afstöðu
til úrvinnslu skuldamála einstakra
fyrirtækja innan Nýja Kaupþings.
Ekki hafa fengist upplýsingar um
hvort mál 1998 hafi verið tekin fyrir
innan stjórnar Nýja Kaupþings. Hins
vegar er ljóst að fulltrúar skilanefnd-
ar Kaupþings munu hafa talsvert að
segja um niðurstöðu mála 1998, þar
sem þeir hafa helmingsatkvæðavægi í
stjórn nýja bankans. Ekki náðist í
fulltrúa skilanefndar við vinnslu frétt-
arinnar.
Nýtt fjármagn frá eigendum?
Í fréttatilkynningu Nýja Kaup-
þings í gær segir að nú sé kannað
hvort eigendur 1998 hafi tök á að
koma með eða hafa milligöngu um
nýtt fjármagn inn í rekstur félagsins.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri
Nýja Kaupþings, staðfesti í samtali
við Morgunblaðið að það væri raunin.
Finnur vildi hins vegar ekki tjá sig
um rammasamkomulag milli bankans
og 1998 sem Jóhannes Jónsson
greindi frá að lægi fyrir í Morgun-
blaðinu 31. október sl. Nýja Kaupþing
á 95,7% veð í Högum, en eigendur
1998 bera jafnframt hlutfallslega
ábyrgð á lánum 1998. Finnur sagði að
til greina kæmi að ganga að eignum
eigenda 1998.
Jóhannes ræðir viðkomandi sam-
komulag í aðsendri grein í Morgun-
blaðinu í dag. Þar segir að erlendir
fjárfestar muni koma með nýtt fjár-
magn inn í félagið sem verði nýtt til að
gera upp skuldir 1998. Jóhannes segir
Nýja Kaupþing jafnframt munu eign-
ast hlut í 1998. „Með því er hámarks-
endurgreiðsla til bankans tryggð,“
segir í greininni. Þegar haft var sam-
band við Jóhannes í gær vildi hann
ekki tjá sig en vísaði á lögmann.
Þann 30. október sl. var tilkynnt að
skilanefnd Kaupþings hefði fengið
framlengdan frest til að ákveða að-
komu kröfuhafa að Nýja Kaupþingi.
Þegar fjármögnun Nýja Kaupþings
lauk lá fyrir að eigið fé bankans yrði
72 milljarðar. Skuld 1998 við bankann
nemur 48 milljörðum á gengi dagsins
í dag, en ekki er víst á hvaða verði
skuldin var færð úr gamla bankanum,
og því ekki ljóst hvernig vænt afskrift
á láninu mun skiptast á milli nýja og
gamla bankans. Finnur segir að frest-
un á ákvörðun skilanefndarinnar
tengist ekki málefnum Haga á neinn
hátt.
Skilanefnd ekki viðriðin
samninga við 1998
Morgunblaðið/Ómar
Til greina kemur
að ganga að veðum
eigenda 1998
Eftir Hlyn Sigurðsson
hlynur@mbl.is
JÓHANNA Sigurðardóttir for-
sætisráðherra sagði að afloknum
ríkisstjórnarfundi í gær, að það
væri ekki sjálfgefið að eigendur
fyrirtækja, sem verið væri að af-
skrifa skuldir hjá, kæmu að
áframhaldandi rekstri fyrirtækj-
anna sem eigendur. Hún telur að
þegar um stærri fyrirtæki er að
ræða eigi að fara fram útboð.
Forsætisráðherra sagði þetta
þegar hún var spurð hvað hún
vildi segja um þann möguleika að
tugmilljarða skuldir Haga og
1998 hf., félags í eigu Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar og fjöl-
skyldu, verði afskrifaðar í nýja
Kaupþingi.
Forsætisráðherra og Stein-
grímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra funduðu með
blaða- og fréttamönnum, strax að
afloknum ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun.
Forsætisráðherra kvaðst telja
að þær samræmdu verklags-
reglur sem bankarnir vinna eftir,
hvað varðar skuldaúrvinnslu fyr-
irtækja, væru í meginatriðum
góðar.
„Það er lykilatriði,“ sagði Jó-
hanna, „að jafnræðis sé gætt.
Verklagsreglurnar byggjast á því
og ég held að þær hafi í stórum
dráttum gert
það.“
Jóhanna sagð-
ist einnig telja
mikilvægt að
verið væri að
endurskoða allt
regluverkið á
fjármálamark-
aðnum, til þess
að koma í veg
fyrir kross-
eignatengsl, misnotkun á markaði
og svo framvegis.
Meðferð á fyrirtækjum
verði samræmd
„Þar verður þess gætt að um
enn meira gegnsæi verði að
ræða, vegna þess að það er mjög
mikilvægt í þessu ferli öllu að
það sé gegnsæi ríkjandi og það
ríki ákveðinn trúnaður um það að
það sé samræmd meðferð á fyr-
irtækjunum innan bankakerf-
isins,“ sagði Jóhanna.
Forsætisráðherra sagði að það
væri ekki alveg sjálfgefið að eig-
endur fyrirtækja, sem verið væri
að afskrifa skuldir hjá, kæmu að
áframhaldandi rekstri fyrirtækj-
anna sem eigendur.
„Mér finnst, að minnsta kosti,
þegar um stærri fyrirtæki er að
ræða, að þá eigi að fara fram út-
boð,“ sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir ennfremur.
Fyrirtæki í útboð
eftir afskriftir
Jóhanna
Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra segir ekki sjálfgefið að eigendur
komi að rekstri eftir afskriftir