Morgunblaðið - 04.11.2009, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
SPENNAN leyndi sér ekki í svip
barnanna á leikskólanum Kvista-
borg í gær þegar þau fengu að
kynnast kraftinum í dælubíl
slökkviliðsins.
Árlegar heimsóknir slökkviliðsins í
leikskóla landsins standa nú yfir og
fá börnin bæði almenna fræðslu um
eldvarnir og að skoða reykkafara-
búningana og slökkvibílana og vek-
ur það jafnan mikla lukku. Það er
þó ekki aðeins til gamans gert að
sögn Garðars Guðjónssonar, verk-
efnastjóra SHS, því mikilvægt er að
börnin þekki til slökkviliðsins, m.a.
svo þau hræðist ekki slökkviliðs-
mann í búningi ef til þess kæmi að
þau lentu í eldsvoða. Með forvarna-
starfinu má þó vonandi koma í veg
fyrir það því algengt er að börnin
fari heim að leikskóladeginum
loknum og geri ærlega úttekt á
brunavörnum heimilisins.
una@mbl.is
ÞAU YNGSTU ANNAST SLÖKKVISTARFIÐ
Morgunblaðið/Júlíus
www.mbl.is/sjonvarp
GESTUM í Upplýsingamiðstöð
ferðamanna í Aðalstræti í Reykjavík
hefur fjölgað mjög í ár. Fyrstu níu
mánuði ársins komu 287 þúsund
gestir í miðstöðina sem er 24% aukn-
ing frá sama tímabili í fyrra. Sala á
ferðum, einkum dýrari tegundum
ferða s.s. jöklaferða og þyrluferða,
hefur aukist mjög undanfarið vegna
þess hve gengi íslensku krónunnar
er hagstætt fyrir erlenda ferða-
menn.
Mikil aukning hefur orðið í aðsókn
að afþreyingu í borginni í ár. Sund-
laugar borgarinnar, Listasafn
Reykjavíkur, Árbæjarsafn, Land-
námssýningin Reykjavík 871 +/- 2,
Borgarbókasafn, Viðey, Fjölskyldu-
og húsdýragarðurinn og Ylströndin
tóku á móti metfjölda innlendra sem
erlendra gesta nýliðið sumar.
Gengið styður ferða-
þjónustu í borginni
Morgunblaðið/Eggert
Kaffisopi Afslöppun á Laugavegi.
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vinsælu buxurnar frá GERKE komnar
Tvær síddir - Verð 12.900
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
Kvart- og síðbuxur
Stretchbuxurnar
komnar aftur
Str. 36-56
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
BERÐU SAMAN VERÐ OG ÞJÓNUSTU
NÆST ÞEGAR ÞÚ FLÝGUR
HVERS VEGNA VELUR ÞÚ ICELANDAIR?
• Í flugvélum Icelandair er meira bil á milli sæta og gott rými fyrir alla farþega.
• Hver farþegi hefur sinn eigin skjá á sætisbakinu fyrir framan sig.
• Rafmagnsinnstungur eru í hverju sæti á Economy Comfort og Saga Class
til hleðslu á tækjum.
• Aukið athafnarými og betri stuðningur við líkamann gera flugferð
með Icelandair ánægjulegri.