Morgunblaðið - 04.11.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
Íslendingar hafa fengið svomargar furðufréttir úr við-
skiptalífinu síðasta árið að þeim
er alveg hætt að bregða. Fréttir
um að hinn eða þessi burgeisinn
skuldi 5 eða 10 milljarða og ætli
ekki eða muni ekki eða geti ekki
greitt neitt af þeim hreyfa varla
nokkurn mann lengur.
Fréttir um að hópur sem hamp-að var í sífellu á hæstu stöð-
um hafi skuldað svo sem eins og
eina þjóðarframleiðslu eru jafn-
vel utan hneykslunarmarka.
En þó þykir sumum enn skrítiðað slíkir séu enn taldir traust-
ir og eftirsóttir viðsemjendur
banka, sem byggja eigi á nýjum
grunni.
En sem betur fer er landinnekki daufari en svo eftir allt
sem dunið hefur yfir, að enn þyk-
ir honum undarlegt að eins árs
börnum séu lánaðar nokkrar
milljónir. Menn sperra enn upp
eyru og glenna augu yfir svona
fréttum. Enn hefur þó enginn
spurt Glitni (Íslandsbanka) hvers
vegna börnin komu í bankann í
burðarrúmum og slógu þessi lán.
Á meðan opinbert svar hefurekki verið gefið verða menn
að láta almannaróminn duga.
Hann segir að börnin hafi verið í
valdabaráttu innan sparisjóðsins
Byrs og helsti þáverandi eigandi
bankans hafi verið í sama liði.
Því var dagskipun bankastjórans
til lánadeildarinnar þessi: „Leyfið
börnunum að koma til mín, þótt
sýslumaðurinn banni það.“ Hún
sagði það gamla konan: „Það er
ekki öll vitleysan eins og það ger-
ir hana svo dásamlega.“
Blessað barnalán
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 2 léttskýjað Lúxemborg 6 skúrir Algarve 22 heiðskírt
Bolungarvík 3 alskýjað Brussel 9 skúrir Madríd 19 heiðskírt
Akureyri 2 rigning Dublin 8 léttskýjað Barcelona 22 léttskýjað
Egilsstaðir 5 rigning Glasgow 8 léttskýjað Mallorca 20 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 5 skýjað London 14 léttskýjað Róm 14 léttskýjað
Nuuk -4 skýjað París 13 alskýjað Aþena 16 skúrir
Þórshöfn 9 skúrir Amsterdam 8 súld Winnipeg 0 skýjað
Ósló 4 skúrir Hamborg 8 skýjað Montreal 8 alskýjað
Kaupmannahöfn 6 skýjað Berlín 4 skúrir New York 12 skýjað
Stokkhólmur 6 skýjað Vín 0 snjókoma Chicago 5 heiðskírt
Helsinki -1 heiðskírt Moskva 0 snjókoma Orlando 19 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
4. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 0.44 0,4 6.52 4,2 13.10 0,4 19.11 3,9 9:22 17:02
ÍSAFJÖRÐUR 2.53 0,1 8.51 2,2 15.21 0,2 21.10 2,0 9:41 16:53
SIGLUFJÖRÐUR 4.57 0,2 11.11 1,3 17.26 0,1 23.51 1,2 9:24 16:35
DJÚPIVOGUR 4.07 2,3 10.25 0,3 16.22 2,0 22.28 0,3 8:55 16:28
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á fimmtudag
Suðaustan 5-10 m/s og dálítil
rigning vestast, en annars hæg-
ari, skýjað og úrkomulítið.
Hvessir við SV- og V-ströndina
seinnipartinn. Hiti 2 til 7 stig,
hlýjast syðst.
Á föstudag
Austan 8-15 m/s með rigningu,
einkum SA-til. Hvassast við S-
ströndina og NV-lands. Hiti
svipaður.
Á laugardag
Norðaustlæg átt með vætu, en
léttir til á S- og V-landi.
Á sunnudag og mánudag
Austlægar áttir með lítilsháttar
vætu, en birtir til víða inn til
landsins. Fremur svalt.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðaustan 5-13 m/s, hvassast
NV-til og við SA-ströndina.
Slydda eða rigning N- og
A-lands, en bjart að mestu á S-
og SV-landi. Hiti 0 til 7 stig.
POTTURINN og Pannan hefur opnað
nýjan veitingastað í miðborg Reykja-
víkur í 100 ára gömlu húsi sem gjarnan
hefur verið nefnt Skólabrú.
Rekstri hússins er skipt í þrennt. Á
miðhæðinni er Potturinn og Pannan.
Þar er boðið upp á hádegisverðarseðil.
Á kvöldin er boðið upp á hefðbundinn
veitingamatseðil og framundan er ís-
lenskt jólahlaðborð sem hefst upp úr
miðjum nóvember. Á efri hæðinni er
svo Veitingasalurinn Skólabrú en þar
er aðstaða fyrir allt að 150 manns í
sæti.
Eigandi veitingastaðarins er Þórir
Björn Ríkarðsson, en Þórir hefur rek-
ið Pottinn og Pönnuna í Brautarholti
síðan 1996 ásamt eiginkonu sinni Önnu
Sölku Knútsdótttur. Saga Veitinga-
húss Pottsins og Pönnunnar spannar
30 ár og fyrir tveimur árum opnaði
Potturinn og Pannan veitingahús á
Blönduósi. Starfsmenn eru í dag um
40 talsins, en þeim fjölgar væntanlega
á næstu mánuðum.
Undanfarin ár hefur verið veit-
ingarekstur í húsinu en á því hafa ver-
ið gerðar miklar endurbætur þar sem
áhersla hefur verið lögð á að halda
upprunalegum arkitektúr þess.
Potturinn og pannan opnuð á Skólabrú
Á Skólabrú Þórir Björn við veitingastaðinn í hjarta borgarinnar.
Sími 544 5858, www.frostmark.is
Dalvegi 4 Kópavogi og Gagnheiði 69 Selfossi
Staðlaðar lausnir – Sérlausnir
Hönnun – Sala – Framleiðsla