Morgunblaðið - 04.11.2009, Side 12
12 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
Þetta helst ...
● SKULDABRÉFAVÍSITALA GAMMA
lækkaði um 0,16 prósent í viðskiptum
gærdagsins. Þar af lækkaði óverð-
tryggður hluti vísitölunnar um 0,26 pró-
sent og verðtryggður hluti hennar um
0,13 prósent. Velta á skuldabréfa-
markaði var öllu meiri en á mánudag-
inn, eða 12,8 milljarðar króna.
Velta á hlutabréfamarkaði Kauphallar
Íslands nam 76 milljónum króna og
hækkaði Úrvalsvísitalan um 0,65 pró-
sent. Bréf Össurar hækkuðu um 1,94
prósent og Marels um 1,62 prósent.
Bréf Bakkavarar lækkuðu hins vegar
um 4,17 prósent. bjarni@mbl.is
Skuldabréf lækkuðu
● FYRIRTÖKU í
máli þrotabús
Baugs Group á
hendur rekstr-
arfélagi Spron var
frestað um mánuð,
en hún átti að eiga
sér stað í gær.
Málið snýst um
vaxtagreiðslur af
skuldabréfum, sem Baugur gaf út og
voru að hluta í eigu Spron. Um mitt ár í
fyrra greiddi Baugur vexti af bréfunum í
samræmi við skilmála, en þrotabúið hef-
ur krafist riftunar á þessari greiðslu.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins ber þrotabú Baugs því við að þegar
vaxtagreiðslan var innt af hendi hafi fé-
lagið í raun ekki verið greiðslufært.
bjarni@mbl.is
Fyrirtöku í riftunarmáli
Baugs og Spron frestað
veltu og að hann sé fluttur úr landi
en ekki fjárfestur að nýju hér á landi
er útlit fyrir að spár um vöru- og
þjónustuskiptaafgang séu ofmetnar.
Erfitt er fyrir stjórnvöld að hafa
bein áhrif á þáttatekjuhluta við-
skiptahallans nema með breytingum
á stýrivöxtum Seðlabankans. Er það
vegna þess að erlendir aðilar eiga
krónueignir fyrir um 600-800 millj-
arða króna og vextir af þessum eign-
um hafa neikvæð áhrif á viðskipta-
jöfnuð.
Útlit fyrir meiri
viðskiptahalla
Sé hagnaður stóriðju ekki endurfjárfestur flyst hann úr landi
Morgunblaðið/RAX
Halli Þrátt fyrir að afgangur hafi verið á vöruskiptum við útlönd er halli á
viðskiptum umtalsverður og er það helst um að kenna vaxtagreiðslum.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÚTLIT er fyrir að viðskiptahalli á
þessu ári verði öllu meiri en gert hef-
ur verið ráð fyrir í spám. Neikvæður
viðskiptajöfnuður þýðir í raun að
meira er flutt út af gjaldeyri en kem-
ur inn til landsins og eykur það
þrýsting til veikingar á gengi krón-
unnar.
Í spá fjármálaráðuneytisins er
gert ráð fyrir því að viðskiptahalli
ársins í ár verði um 103 milljarðar
króna. Samkvæmt tölum frá Seðla-
banka Íslands nam viðskiptahalli á
fyrstu sex mánuðum ársins hins veg-
ar 92 milljörðum króna og er því afar
ólíklegt að spá ráðuneytisins rætist.
Spáir ráðuneytið því að á árunum
2010-2014 verði uppsafnaður við-
skiptahalli samtals 31 milljarður
króna, en hann gæti hins vegar
reynst öllu meiri.
Sé hagnaður stóriðjufyrirtækja
ekki fjárfestur aftur hér á landi
hverfur hann úr landi sem þátta-
tekjur, í formi vaxta- eða arð-
greiðslna til eigenda. Rekstrarhagn-
aður fyrir afskriftir og fjármagnsliði,
en eftir skatta, er hins vegar talinn
með í útreikningum á vöruskipta-
jöfnuði.
Vextir hafa áhrif
Miðað við að rekstrarhagnaður
stóriðjufyrirtækja sé um 20% af
SAMKVÆMT heimildum Morg-
unblaðsins var einkahlutafélagið
Bakkabræður ehf. stofnað á dög-
unum. Samkvæmt hluthafaskrá eru
það bræðurnir Lýður og Ágúst
Guðmundssynir sem standa á bak
við félagið. Þeir eru sem kunnugt
er stærstu hluthafar í Bakkavör og
stýra ennþá Exista. Ágúst Guð-
mundsson, stjórnarformaður
Bakkavarar, vildi ekki tjá sig um í
hvaða tilgangi Bakkavör ehf. væri
stofnað þegar blaðið leitaði svara.
Í upplýsingum úr hluthafaskrá er
tilgangur félagsins Bakkabræðra
ehf. „kaup, sala og eignarhald á
verðbréfum, kaup sala og rekstur
fasteigna og lausafjár ásamt lána-
starfsemi tengd rekstrinum og ann-
ar skyldur rekstur.“ Hlutafé
Bakkabræðra ehf. eru 500 þúsund
krónur og eru bræðurnir einir í
stjórn. ornarnar@mbl.is
Bakka-
bræður
ehf-væðast
Bakkabræður Ágúst og Lýður Guð-
mundssynir hafa stofnað nýtt félag.
STOÐTÆKJAFRAMLEIÐANDINN Össur hef-
ur nýlokið 3,6 milljarða króna hlutabréfaútboði og
er því ætlað að styrkja stöðu félagsins á danska
hlutabréfamarkaðnum. Að sögn Hjörleifs Pálsson-
ar, fjármálastjóra Össurar, voru það aðallega
danskir og breskir fagfjárfestar sem skráðu sig fyr-
ir hlutafénu. Þeir sem áttu áður hlutafé í Össuri
tóku ekki þátt í útboðinu en Hjörleifur segir að
ástæðan fyrir þessu fyrirkomulagi sé áhersla fé-
lagsins á að dýpka og auka veltu með bréfin í kaup-
höllinni í Kaupmannahöfn.
Tæplega 30 milljónir hluta voru boðnar út og var
útboðsverðið á hlut fimm danskar krónur. Heildar-
andvirði útboðsins nemur því 148 milljónum danskra
króna. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í síðustu
viku er lausafjárstaða Össurar góð um þessar mund-
ir og hlutafjáraukningin mun því styrkja hana enn
frekar. Hjörleifur segir að mikil áhersla sé lögð á að
halda fjárhagslegri stöðu fyrirtækisins sterkri.
Hann segir ennfremur að hlutafjáraukningin bæti
aðgengi Össurar að danska hlutabréfamarkaðnum
og það muni styrkja stöðu félagsins í framtíðinni ef
félagið þurfi aðgang að fé vegna tækifæra sem kunna
að opnast. ornarnar@mbl.is
Össur sækir sér erlent hlutafé
Hlutafjárútboð Össurar tókst vel Bréf seldust fyrir 3,6 milljarða Aðallega
danskir og breskir fjárfestar Liður í að treysta stöðuna í dönsku kauphöllinni
Morgunblaðið/Árni Torfason
Össur Fleiri fjárfestar komnir að félaginu.
EIGNIR skulda-
bréfasjóðs í Finn-
landi á vegum
norræna bank-
ans Nordea, um
25 milljarðar
króna, þurrk-
uðust út í banka-
hruninu fyrir um
ári. Réttarhöld
eru að hefjast í
Finnlandi vegna
sjóðsins, er nefndist Hafmeyjan, en
hann keypti m.a. skuldabréf ís-
lensku bankanna og bandarísku
fasteignalánasjóðanna Fannie Mae
og Freddie Mac. Bauð Hafmeyjan
finnskum fjárfestum og sparifjár-
eigenum upp á 6% ávöxtun. Hafa
málefni sjóðsins verið til umfjöll-
unar hjá finnska sjónvarpinu og
hvernig hann var kynntur til sög-
unnar sem öruggur fjárfesting-
arkostur. Um 1.400 Finnar áttu fé í
Hafmeyjunni þegar allt hrundi í
fyrra. gummi@mbl.is
Hafmeyjan
í Finnlandi
uppþornuð
Finnland Kreppan
kemur víða við.
● SÉRFRÆÐINGAR IFS-ráðgjafar spá að
Seðlabanki Íslands lækki stýrivexti um
50 til 100 punkta á morgun. Stöðugt
gengi krónunnar ásamt auknum gjald-
eyrisforða myndar svigrúm til vaxta-
lækkunar að mati IFS.
Hinsvegar kann síðasta mæling á vísi-
tölu neysluverðs að koma í veg fyrir að
vextir lækki að þessu sinni. IFS bendir á í
umfjöllun sinni að í síðustu fundargerð
peningamálastefnunefndar komi fram
sú skoðun að áhrif gengisveikingar séu
að mestu komin fram í verðlagi. Síðustu
verðbólgumælingar benda hins vegar til
annars. Þá telur IFS að vextirnir verði
lækkaðir og ekki síst í ljósi jákvæðrar
þróunar frá því að tillaga um 50 punkta
lækkun var naumlega felld á síðasta
vaxtaákvörðunarfundi.
Spá 100 punkta vaxta-
lækkun Seðlabankans
Mjóddinni • Höfða • Firði • Akureyri • Selfossi
Gleraugnaverslunin þín
Styrkleikinn í vinnugleraugunum
er sniðinn sérstaklega að því sem er
næst þér. Þú þreytist síður í augunum.
Margskipt gleraugu
fyrir margvísleg tilefni
Kauptu marg-
skipt gleraugu í
Augastað og þú
færð sérhönnuð
vinnugleraugu
í kaupbæti.
Þér líður betur í augunum við
tölvuna, lesturinn eða prjónaskapinn.
Komdu í Augastað og við leiðum þér
kostina fyrir sjónir.
Tilboðið gildir til
20. nóvember 2009.
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
91
38
4