Morgunblaðið - 04.11.2009, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
MAREL Food Group hagnaðist um
tæpar 900 þúsund evrur, jafnvirði
um 165 milljóna króna, á þriðja árs-
fjórðungi, borið saman við 4,5 millj-
óna evra hagnað á sama tímabili í
fyrra. Heildartekjur á tímabilinu
námu 133,7 milljónum evra en voru
rúmar 170 milljónir evra á þriðja
fjórðungi síðasta árs.
Í tilkynningu Marel um afkomuna
kemur m.a. fram að núverandi já-
kvæð þróun á mörkuðum haldist eða
batni lítilsháttar á komandi mörkuð-
um. Búist er við að árið 2010 fari bet-
ur af stað en þetta ár. Afkoman muni
batna til samræmis við aukin umsvif
á mörkuðum. Hyggst Marel styðja
við þá þróun með áframhaldandi að-
haldi í rekstri. Segist forstjóri Marel,
Theo Hoen, vera ánægður með
rekstrarafkomu fjórðungsins.
„Við erum áfram mjög meðvituð
um kostnaðarhliðina í rekstrinum í
ljósi þess hve batinn er hægur. Það
er stöðugleiki í fjölda pantana af
kjarnastarfsemi,“ segir Hoen.
Minnkandi hagnaður
hjá Marel Food Group
Félagið segir langtímahorfur vera góðar
TOYOTA sem er
stærsti bílafram-
leiðandi heimsins
hefur ekki í
hyggju að fara
sömu leið og
McDonald’s og
yfirgefa Ísland,
þrátt fyrir að hér
seljist nú færri
bílar, bankarnir hafi tekið yfir um-
boðsaðilann og eigandinn sé kominn
í þrot. Þetta hafði Reuters eftir Ta-
dashi Arashima, forstjóra Toyota í
Evrópu, sem var staddur á bílasýn-
ingu í París í gær. Leitar Lands-
bankinn að kaupendum að rekstr-
inum, sem áður var í eigu Magnúsar
Kristinssonar. Arashima sagði
Toyota njóta góðrar markaðs-
hlutdeildar á Íslandi eða um 25%
sem væri gott fyrir sölu á þjónustu
tengdri merkinu, ekki væri á döfinni
hjá Toyota að taka yfir reksturinn á
Íslandi. Toyota á Íslandi sendi yf-
irlýsingu frá sér í gærkvöldi um að
skilanefnd Landsbankans væri ekki
að taka fyrirtækið yfir.
Toyota
yfirgefur
ekki Ísland
Landsbankinn leitar
að kaupendum
HRUN íslensku bankanna hefur
orðið til þess að borgin Notthingham
á Englandi tapaði 5,7 milljónum
punda, eða um 1.100 milljónum
króna. Fyrir hrunið hafði borgin
fjárfest í bönkunum þremur fyrir
41,6 milljónir punda. Að því er fram
kemur á fréttavef thisisnottingham
er Nottingham það sveitarfélag á
Englandi sem fór næstverst út úr
hruninu á Íslandi, var með um 20%
af öllum sínum fjárfestingum í ís-
lensku bönkunum; Landsbanka,
Kaupþingi og Glitni.
Samkvæmt nýrri fjárhagsáætlun
borgarinnar er reiknað með að hún
innheimti 36 milljónir punda en 5,7
milljónir séu tapaðar. Er gengið út
frá því að sveitarfélög verði með for-
gangskröfur hjá tveimur bankanna,
en mögulega þurfi samþykki fyrir
þessu hjá íslenskum dómstólum. Fá-
ist þær kröfur ekki í gegn getur tap
Nottingham orðið hátt í 20 milljónir
punda. guna@mbl.is
Nottingham
stórtapar á
bönkunum
Hrunið Fagurt er í Nottinghamborg.
Nefnd um vist- og meðferðarheimili
Viðtöl við einstaklinga sem dvöldu á vistheimilinu
Silungapolli sem börn á árunum 1950-1969
Með erindisbréfi, dags. 2. apríl 2007, skipaði forsætisráðherra nefnd á grundvelli laga nr. 26/2007 um skipan
nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn. Hlutverk nefndarinnar er að kanna hver
tildrög þess hafi verið að börn voru þar vistuð, hvernig opinberu eftirliti hafi verið háttað með starfsemi
viðkomandi stofnunar og hvort börn sem þar voru vistuð hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi á meðan á dvöl
þeirra stóð.
Um þessar mundir er vistheimilisnefnd m.a. að kanna starfsemi vistheimilisins Silungapolls sem starfrækt var á
árunum 1950-1969. Af því tilefni óskar nefndin vinsamlegast eftir því að þeir sem dvöldu sem börn á
vistheimilinu Silungapolli, og hafa áhuga á því að veita nefndinni viðtal og upplýsa hana um reynslu sína af
dvölinni, hafi samband við nefndina fyrir 1. desember nk. í síma 563-7016 eða á netfangið
vistheimili@for.stjr.is.
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti Húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
íslen
sk fr
amle
iðsla
SWS-8851 3+1+1
Boston-lux NICE
man-8356 3+1+1
Roma boston-lux
Tungusófar
Sófasett
Stakir sófar
Hornsófar
íslen
sk fr
amle
iðsla
íslen
sk fr
amle
iðsla
íslen
sk fr
amle
iðsla
Bonn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
SWS horn
149.900 k
r
149.900 k
r
verð áð
ur 399.9
00 kr
P-8185
269.900 k
r
verð áð
ur 319.9
00 kr
íslen
sk fr
amle
iðsla
299.900 k
r
íslen
sk fr
amle
iðsla
verð áð
ur 469.0
00 kr
man-87-leður bogasófi